Morgunblaðið - 07.07.1990, Blaðsíða 40
Fródleikur og
skemmtun
-ffyrir háa sem lága!
FLUGLEIDIR MSn'
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Vegagerð ríkisins:
Ahersla lögð á stærri verkefiii
Júní 1990:
Mesta
atvinnu-
leysi í
20 ár
ATVINNULEYSI í júní síðast-
liðnum var meira en verið hefur
í þeim mánuði í tvo áratug'i. Að
meðaltali voru 2.100 manns á
atvinnuleysisskrá í mánuðinum,
''“AAí það eru 1,6% vinnufærra
manna.
Skráðir atvinnuleysisdagar í
júní voru 46.000, 27.000 hjá kon-
um og 19.000 hjá körlum. Það
samsvarar því að allan mánuðinn
hafi að meðaltali 2.100 manns, eða
1,6% vinnufærra manna, verið á
atvinnuleysisskrá.
Undanfarin fimm ár hafa að
meðaltali verið skráðir 18.400 at-
vinnuleysisdagar í júní.
Isaflörður:
Tveir ungir
ökumenn tekn-
ir á ofsahraða
LÖGRELGAN á ísafirði tók tvo
unga ökumenn á ofsahraða í
Kirkjubólsliiíð í Skutulsfirði í
gær. Annar var á 147 kílómetra
hraða en hinn á 141.
Á veginum í Kirkjubólshlíð er
^Wihámarkshraði 90 kílómetrar á
klukkustund og voru ökumennirnir
sviptir ökuskírteinum á staðnum.
Þeir eru báðir rúmlega tvítugir.
Lögreglan á ísafirði stöðvaði tvo
aðra unga ökumenn í gær. Voru
þeir einnig á yfir hundrað kíló-
metra hraða.
Að sögn lögreglu hefur heldur
dregið úr hraðakstri á svæðinu að
undanförnu vegna aukinna radar-
mælinga.
SÍFELLT fleiri óskir um jarð-
göng berast nú Vegagerð ríkis-
ins, sem leggur nú aukna áherslu
á stórframkvæmdir á borð við
göng og brýr. En þar sem ekki
hefur fengist, aukið fjármagn
vegna þeirra framkvæmda, hefur
breytt áhersla í vegagerð fyrst
og fremst komið niður á lagningu
bundins slitlags og almennum
verkefnum, að sögn Snæbjörns
Jónassonar, vegamálastjóra.
Lagðir verða 108 km af bundnu
slitlagi í sumar en það er um
þriðjungi styttri vegalengd en í
fyrra og um þrisvar simnini
styttra en árið 1987, en þá var
lagt mest af slitlagi á einu ári.
Meðal þeirra verkefna sem lokið
verður við á þessu ári, má nefna
veg um Kópavogslæk og Arnarnes
með tilheyrandi brúm, brú á Múla-
kvísl og tenging við veg og jarð-
göng í Ólafsfjarðarmúla, sem eru
stærsta verkið sem nú er unnið að.
Þá standa til eða eru hafnar lagfær-
ingar á Strákagöngum, endurbygg-
ing Norðfjarðarvegar, lagning
bundins slitlags í Berufirði og Ham-
arsfirði, brúar- og vegagerð um
Álftá á Mýrum og yfir Dýrafjörð
og nýbygging Norðurlandsvegar.
Af óskalista um jarðgöng má
nefna göng undir Hvalfjörð en lög
voru sett á Alþingi í vor sem heim-
ila hlutafélagi framkvæmdir við þau
og gjaldtöku af vegfarendum til að
standa undir kostnaði. Enn fremur
göng milli fjarða á Austurlandi og
tenging við Hérað, auk tengingar
Önundarfjarðar, Súgandafjarðar og
Skutulsfjarðar, en vonir standa til
að bjóða megi verkið út í byijun
næsta árs.
Þá hafa einnig verið settar fram
óskir um göng undir Digranesháls,
tvenn göng til að tengja Ólafsfjörð
og Siglufjörð, göng milli Vopna-
fjarðar og Héraðs og göng til Vest-
mannaeyja en athugun á þessum
göngum er styttra á veg komin.
Sjá nánar á bls. 5.
Rolling Stones vilja til íslands
BRESKA rokkhljómsveitin Rolling Stones, sem er af mörgum talin
fremsta rokkhljómsveit heims, hefur óskað eftir því við islenska
aðila að þeir skipuleggi tónleika hljómsv.eitarinnar hér á landi.
Miðað er við að hljómsveitin leiki hér í það minnsta á einum tón-
leikum um mánaðamótin ágúst/september.
Að sögn íslenska umboðsmanns-
ins sem leítað var til vildi hljóm-
sveitin í fyrstu halda hér óauglýsta
tónleika, en ákvað svo að halda
venjulega tónlejka cg hafa um-
i*>
boðsmenn hennar óskað eftir upp-
lýsingum um Laugardalshöllina.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er reiknað með miklu
umstangi fyrir tónieikana og sér-
staklega verður lagt mikið í örygg-
isgæslu.
Rolling Stones er nú í tónleika-
ferð um Evrópu til að fylgja eftir
síðustu breiðskífu sinni og hefur
hvarvetna verið metaðsókn að tón-
léikUm hennar. ‘ ;
Þingflokksformaður framsóknarmanna um álversundirbúning:
Ríkissljórnin hlýtur að
leita álits þingflokkanna
PÁLL Pétursson, formaður þingílokks framsóknarmanna, segir að
ráðherrar ríkisstjórnarinnar hljóti að vilja ræða það í þingflokkum
sinum, hvort heimila eigi Landsvirkjun að liefja undirbúningsfram-
kvæmdir við virkjanir vegna orkusölu til nýs álvers. Páll segir, að
staðarval fyrir álver get.i haft áhrif á stuðning einstakra aðila, sem
að ríkisstjórninni standa, við byggingu álvers. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins benda þær skýrslur sem fyrir liggja til þess að athygl-
in beinist freniur að Keilisnesi en öðruni stöðum.
Alþingi samþykkti í vor, að Lands-
virkjun væri heimilt, að fengnu sam-
þykki ríkisstjórnarinnar, að taka 300
milljóna króna Ián til að hefja undir-
búningsframkvæmdir við virkjanir
vegna orkusölu til nýs áivers. Á
fundi stjórnar Landsvirkjunar á
fimmtudag var samþykkt að fara
þess á leit við ríkisstjórnina, að hún
lýsti vilja sínum varðandi það, hvort
heíja ætti þessar framkvæmdir.
Þegar það álit lægi fyrir tæki sfjórn
Landsvirkjunar afstöðu í málinu.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks framsóknarmanna og stjórn-
armaður í Landsvirkjun, segir að
samkvæmt lögunum frá því í vor sé
ljóst, að það þurfi samþykki ríkis-
stjórnarinnar, en ekki aðeins iðnað-
arráðherra, til að heimila Landsvirkj-
un að hefja undirbúningsfram-
kvæmdirnar. Jafnframt telji hann,
að ráðherrarnir hljóti að vilja ræða
máiið í . þíngflgkkum .stjórnarflokk-
anna áður en ákvörðun verði tekin,
enda væri verið að taka mikla
áhættu með því að veija 300 milljón-
um til framkvæmdanna.
Páll vísar til þess, að við myndun
ríkisstjórnarinnar hafi Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra, lýst
því yfir, að ákvörðun um byggingu
álvers yrði ekki tekin nema með
stuðningi allra stjórnarflokkanna og
að ef einhver hluti stjórnarinnar af-
greiddi málið með stjórnarandstöð-
unni liti hann svo á, að nýr meiri-
hluti hefði myndast á þingi.
Páll segir, að staðsetning álvers-
ins geti haft áhrif á afstöðu aðila í
ríkisstjórnarflokkunum til málsins.
Ef ríkisstjórnin ætli að hafa áhrif á
byggðaþróun í landinu, sem hann
rtelji henni bera skylda til, þá hljóti
ihún.að taka ájstrÁuyalinu..