Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990 Hópur Eyfírðinga og Þingeyinga: Forsætisráðherra send andmæli við álveri Vígsluathöfn Siglingar SIGLING, höggmynd Jóns Gunn- ars Árnasonar heitins myndhöggv- ara, var vígð á föstudag. Helga Jónsdóttir, dóttir listamannsins, afhjúpaði skjöld á fótstalli lista- verksins, sem var unnið í stál í Slippstöðinni á Akureyri eftir mót- um Jóns Gunnars. Sigríður Stef- ánsdóttir,_ forseti bæjarstjórnar, Ingólfur Ármannsson, menningar- fulltrúi, og Jóhannes Sigvaldason, stjórnarformaður Kaupfélags Ey- firðinga, fluttu ávörp en listaverkið er reist af Akureyrarbæ í tilefni 100 ára afmælis KEA fyrir ijórum árum. Allmargir bæjarbúar og gestir söfnuðust saman við vígslu listaverksins. HÓPUR Eyfirðinga og Þingey- inga hefur sent forsætisráðherra bréf, þar sem hugsanlegri bygg- ingu álvers við Eyjaljörö er and- mælt. Að sögn Stefáns Halldórs- sonar á Hlöðum skrifa framámenn y sveitarstjórnar- og félagsmálum í öllum sveitarfélögum Eyjafjarð- arsýslu utan Grímseyjarhrepps, auk tveggja hreppa í Þingeyjar- sýslu, alls á fjórða tug manna, undir bréfið. Norðlensk- ar kartöfl- ur á markað NORÐLENSKAR kartöflur eru nú farnar að berast á markað. Nokk- uð var óttast um uppskeru ársins í vor vegna kulda og þurrka. ' Samkvæmt upplýsingum frá Öngli hf. í Öngulstaðahreppi komu fyrstu kartöflurnar á vegum fyrirtækisins á markað þann 31. júlí síðastliðinn. Vonast menn þar til að veðurfarið í bytjun sumars hafi ekki haft teljandi áhrif á uppskeruna, enda hefur þokkalega viðrað til kartöfluræktar síðan. Verslunarmannahelgin: MetQöldi til Hrísevjar UM 2.000 manns lögðu um versl- unarmannahelgina leið sína til Hríseyjar með ferjunni Sævari, og er það mesti ijöldi sem heim- sótt hefur eyna um þessa ferða- helgi. Gamla metið, sem sett var síðastliðið ár, var 1.650 manns. Að sögn Guðjóns Björnssonar sveitarstjóra í Hrísey fór verslunar- mannahelgin fram með besta móti í eynni, þrátt fyrir þennan mikla gestafjölda. Hríseyjarfeijan flutti í júlímánuði 11.234 farþega, en 11.099 á sama tíma í fyrra. Morgunblaðið/KGA Tók Stefán fram, að ekki væri um undirskriftasöfnun að ræða, heldur ábendingu til ríkisstjómarinnar frá þeim hópi sem undirritar bréfið. Tel- ur hópurinn að álver við Eyjafjörð myndi stefna byggða- og atvinnu- ástandi á svæðinu í hættu, og at- vinnugreinar sem tengjast landbún- aði á beinan eða óbeinan hátt, ekki síst í þéttbýli, myndu einnig eiga skaða vísan. Stefán sagði, að síst væri sam- staða um ágæti álvers við Eyjafjörð í sveitarfélögum í sýslunni, og að andstaða við hugmyndina færi vax- andi frekar en hitt. Slæm umgengni í Vaglaskógi um helgina: Aðalsvæði skógarins jafnvel lokuð það sem eftir er sumars „ÞETTA gengur ekki svona mikið lengur, það verður að stöðva þetta. Mér sýnist sem við þurfum jafnvel að loka aðaltjaldsvæðum skógarins það sem eftir lifir sumars vegna umgengninnar um verslunarmanna- helgina," sagði Sigurður Skúlason skógarvörður í Vaglaskógi, en tals- verð ölvun og afar slæm umgengni var í skóginum um helgina. Sigurð- ur sagði, að um 1.500 manns hafí verið saman komnir þar þegar mest var, þar á meðal unglingar niður í 13 ára aldur, og taldi hann líklegt að margir þeir sem í skóginum voru hefðu lagt leið sína þang- að meðal annars vegna strangra aldurstakmarka á útihátíðum sem haldnar voru um helgina. Fólk tók að safnast saman í skóg- inum strax á fimmtudag. Björgunar- sveitir og lögregla aðstoðuðu starfs- fólk skógarins mestalla helgina við gæslu og eftirlit. „Krakkarnir tóku skóginn bara undir útihátíð, og við réðum ekki neitt við neitt," sagði Sigurður. „Til dæmis var eitt kvöldið mætt hér hljómsveit á fiutningabíl með ljósamótor, og hóf að spila tón- list. Þessu urðum við auðvitað að vísa burt. Aðfaranótt laugardags var kalt hér, og við höfðum í nægu að snúast við að varna því að drukkið fólk sofnaði afsíðis.“ Sigurður sagði, að björgunarsveitir hefðu ekki síst þurft að hafa eftirlit við Fnjóská, en hún rennur sem kunnugt er um skóg- ræktarsvæðið. „Mér sýnist sem hár aðgangseyrir og ströng aldurstak- mörk á útihátíðum hafi átt sinn þátt í að auka straum unglinga hingað um helgina. Það er álitamál hvort ekki eigi að hafa skóginn lokaðan unglingum um komandi verslunar- mannahelgar." Miklar skemmdir voru unnar á aðaltjaldsvæðum skógarins, og sagði Sigurður að glerbrot væru á víð og dreif á tjaldsvæðunum. Þá voru unn- ar skemmdir á hreinlætisaðstöðu, allar hurðir hennar rifnar af hjörun- um og pappírsþurrkuhaldarar rifnir Morgunblaðið/Rúnar Þór Unnið að hreinsun Stórarjóðurs, Birgir Sigurðsson, Auðunn Guðna- son, Sigurður Skúlason skógarvörður og Agúst Guðnason. af veggjum. Þetta gerir það að verk- um að þessi svæði verða lokuð nú um nokkurt skeið. Skipulögð voru fjölskyldutjald- svæði sunnan til í skóginum um helg- ina, og sagði Sigurður að þrátt fyrir bágborna aðstöðu þar hefði um- gengni þar verið til fyrirmyndar. Þessi svæði, sem eru á eyrum innst í skóginum, verða opin meðan á hreinsun stendur. Agætlega gengur að ráða í kennarastöður ÁGÆTLEGA hefur gengið að ráða í lausar kennarastöður á Norðurlandi eystra í sumar. Að sögn Trausta Þorsteinssonar fræðslustjóra er þó enn óráðið í nokkrar stöður, en þær eru við skóla sem ekki hefja starf fyrr en um eða eftir miðjan september. Trausti sagði, að allmargar kenn- arastöður í fræðsluumdæminu hafi verið auglýstar í sumar, en þar hafi í mörgum tilfellum verið um stöður að ræða sem réttindaláusir kennarar hafi setið, og verið endurráðnir í. „Ég sé ekki fram á vandræðaástand í kennaramálum fyrir komandi vetur. Hins vegar mætti alltaf vera meira um umsóknir frá kennurum með full réttindi," sagði Trausti. Háskóliim á Akureyri Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við Háskólann á Akureyri: Staða lektors í hjúkrunarfræði við heilbrigðisdeild. Staða lektors í lífefna- og örveru- fræði við sjávarútvegsdeild. Staða lektors í iðnrekstrarfræði við rekstrardeild. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsækjendur skuíu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sín, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Upplýsingar um starfið gefa forstöðumenn viðkomandi deilda í síma 96-27855. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 10. septem- ber nk. Háskólinn á Akureyri Morgunblaðið/Rúnar Þór Hópurinn sem vann að merkingum á álftastofninum á Norðaustur- landi um helgina. Efri röð f.v.: Ekhardt Thorstensen, Þórey Ketils- dóttir, Eileen Rees, Jón Magnússon, Ævar Petersen og Þorvarður Árnason. Neðri röð f.v.: Frank U. Schmidt, Sverrir Thorstensen og Ólafur Einarsson. Háskólinn á Akureyri Laus er til umsóknar staða tölvunarfræðings/kerfis- fræðings við Háskólann á Akureyri. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 10. september og skal umsóknum skilað á skrif- stofu skólans ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Upplýsingar um starfið gefur skrifstofustjóri í síma 96-27855. Háskólinn á Akureyri Álftir merktar Náttúrufræðistofnun Íslands hefur að undanfórnu unnið að merkingu álftastofnsins á Norð- austurlandi. Hefur hópur á vegum stofnunarinnar merkt um 140 fugla, en í fyrra voru um 200 fugl- ar merktir á þessu svæði. Við rannsóknir á stofninum undanfar- in ár hafa komið í ljós áður ókunn- ar fellistöðvar á Melrakkasléttu, og einnig virðist hluti þeirra fugla sem áður dvaldi við Mývatn hafa tekið sér bólstað við Skjálftavatn, sem myndaðist í jarðhræringum árið 1976. Álitið er að um fimmtán þúsund fuglar séu í íslenska álftastofninum. Merkingarnar eru gerðar í samvinnu við bresku samtökin Wildfowl and Wetlands Trust, sem beita sér fyrir verndun og rannsóknum á andfugl- um og heimkynnum þeirra. Fuglam- ir voru rannsakaðir, mældir og vigt- aðir, og að lokum merktir á fæti með stálhring og hylki á stærð við ljósmyndafilmu. Á hylkið er letrað númer viðkomandi fugls, svo stórt að það megi greina með hjálp sjón- auka. Náttúrufræðistofnun vill beina því til fólks sem verður vart við merkta fugla að koma upplýsingum um það til stofnunarinnar, hvar og hvenær fuglarnir sáust, númer þeirra og einnig á hvaða fæti merkið var.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.