Morgunblaðið - 05.09.1990, Síða 41

Morgunblaðið - 05.09.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 41 Undarleg félagshyggja Til Velvakanda. Þeir sem höfðu atvinnu af því að útbreiða marxisma og unnu fyr- ir KGB eru nú atvinnulausir. Blaðið Land og fólk í Danmörku lokaði fyrsta febrúar sl. og engin bæna- skrá kom til ríkisstjórnarinnar um að blaðið kæmi út á ný. Hér gerð- ist það aftur á móti að almenningur borgar skuldir Þjóðviljans og ríkið kaupir fjölmörg eintök af blaði sem enginn vill lesa. Blað Framsóknar- flokksins, sem trúði á Samvinnu- hreyfinguna, er á sama báti og ríkissjóður er látinn borga brúsann. Þetta gerist á sama tíma og lok- að er lífsnauðsynlegum deildum á sjúkrahúsunum. Félagshyggjan lætur ekki að sér hæða og alltaf eru þyngdar skattaálögumar á þjóðina. Eg held að ríkissjóður á dögum Jóns Magnússonar forsætis- Nafn Guðs Til Velvakanda. Fyrir skömmu birtist klausa í Velvakanda þar sem fjallað var um nafn Guðs og var ekki laust við að það hneykslaði höfundinn að fæst- um væri kunnugt um það. Nú verð ég að hryggja hann með að engum er fuilkunnugt um nafnið. Því er nefnilega þannig varið að í hebreska ritmálinu sem gamla test^mentið var ritað á voru einungis samhljóð- ar en hveijir sérhljóðamir voru urðu menn að geta sér til um. Nafn Guðs er ritað JHVH. Margir vilja lesa út úr því Jehóva en aðrir hafa það Jahve. En þama hefðu allt eins getað verið aðrir sérhljóðar og því veit enginn hvernig nafnið var bor- ið fram á þeim tíma sem bækur gamla testamentisins voru fyrst færðar í letur. Engum er því kunri- ugt um nafn Guðs - ekki einu sinni páfínn í Róm veit það. Grúskari Hvað er i nafn Guðs?! _ Til Velvakanda. PL Nýlega las ég í bókinni Mátturl "ai'kmið bænarinnar eftir Alfix jorenzen sem Hvítasunnumenn gc| út. Bók þessi er afar merk fyrir þbl sakir að minna kristna menn á bænl ina, sem þeir nota of lítið og oft eklj á réttan hátt. En undrun mín vaknaði er ég Jg kaflann um Faðir vorið, þar Vwor colninrr hoggorgr VtQÍrWln Vtgj ráðherra hafi ekki verið burðugur þegar þeir bræður, hann og Sigurð- ur Magnússon, byggðu Vífilstaða- hælið og víluðu ekki fyrir sér að berklasjúklingar skyldu fá ókeypis læknaþjónustu fyrst allra landa. Þakkirnar sem þeir fengu fyrir framtakið vom þær að þegar Fram- sóknarflokkurinn komst fyrst hér til valda þá var Sigurður Magnús- son rekinn frá Vífilstöðum. Fram- sóknarflokkurinn rak alla menn úr embættum sem ekki voru Fram- sóknarmenn þar sem því varð við komið, og svo voru búin til ótal embætti, flest óþörf, handa flokks- mönnum. Og þá varð til máltækið: Drengur sem Samvinnuskólanum getur gengið í allar stöður. Ríkis- sjóðurinn sem notaður var sem vasapeningur fyrir flokkinn varð hins vegar fljótt þurrausinn - hvað á svona flokkur lengi að lifa? Húsmóðir Viðskiptahugbúnaðurinn vinsæii, sem mörg hundruð fyrirtæki nota í öllum greinum atvinnulífsins. Samhæfð kerfi, sem notandinn ó auðvelt með að læra á. STÓLPI fæst fyrir minni fyrirtæki á ótrúlega hagstæðu verði. Griðastaður á Landakotstúni Til Velvakanda. Uppi á Landakotstúni í Reykjavík stendur stór kirkja, sem við kaþólskir nefnum Dómkirkju Krists konungs en í daglegu tali manna kallast Landakotskirkja. Með bréfí þessu vil ég benda andlega leitandi fólki á það að kirkja þessi er opin alla daga frá því snemma morguns og fram á kvöld. Messað er alltaf minnst einu sinni á dag, klukkan sex að kvöldi virka daga en á venju- legum messutíma á helgum. í kirkjunni er sannkallaður griða- staður manna sem þrá að ganga í Guðshús inn úr erli hins daglega lífs og eiga stund í skjóli hins hæsta. Þar finna menn guðdómleg- an frið til bænagjörða og einnig fallega trúarmuni sem gleðja augað og auka trú og íhugun. Kirkjan er sannkallað bænahús þar sem fórn Drottins, dauða og upprisu er minnst á hveijum degi í heilagri messu. Kristskirkja er sannkallað musteri Guðs.- Einar Ingvi Magnússon Skórnir sem hurfu Til Velvakanda Átta ára drengur, nýfluttur til landsins eftir margra ára búsetu erlendis, fór ásamt frændsystkyn- um sínum í sundlaugina í Laugardalnum síðast liðinn föstu- dag milli kl. 3 og 6. Þegar hann ætlaði að sundi loknu, að fara í nýju skóna sem honum höfðu verið gefnir fyrir heimferðina til íslands, voru þeir horfnir og kom hann heim grátandi í gömlum skóm sem starfs- fólk laugarinnar léði honum. Foreldrar bama sem vom í laug- inni umræddan dag eru vinsamleg- ast beðnir að athuga hvort börn þeirra hafí tekið skó drengsins í misgripum, en slíkt hendir að sögn starfsfólks laugarinnar. Skórnir eru hvítir, öklaháir Hi-tec skór með blá- um og gulum röndum. Skónum mætti skila til starfsfólks laugar- innar sem mun koma þeim til drengsins. Frændsystkini drengsins Kynntu þér málið. SKERFISÞRÓUN HF. SKEIFUNNI 17, 108 REYKJAVÍK Sölu- og þjónustuaðilar um land allt. Símar 91-688055 / 687466 SÖLU- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR ÚTI A LANDI: Borgames: Leó Kolbeinsson ...................................... 93-71720 Ólafsvík: Viöskiptaþjónustan sf., Páll Ingólfsson............... 93-61490 Isafjöröur: Reiknistofa Vestfjarða, Elias Oddsson................ 94-3854 Sauðárkrókur: Stuöull sf., Stefán Evertsson .................... 95-36676 Aukureyri: Tölvuvinnslan, Jóhann Jóhannsson..................... 96-22794 Húsavík: Radióstofa SBG, Steingrimur Gunnarsson ................ 96-41453 Egilsstaðir: Viðskiptaþjónustan Tfaust, Óskar Steingrimsson..... 97-11095 Nýr haustfatnaður í stórum stærðum Hár:„ ði Sérverslun Háaleitisbraut 58-60 Sími 32347 TINLKL rOLKLK5 Þessir hringdu .. . Páfagaukur Óska eftir að fá kvenkyns páfa- gauk gefins. Spyijið eftir Önnu í síma 73285. Regnúlpa Dökkblá regnúlpa gleymdist í Læknastöð Vestubæjar í byijun ágúst og getur eigandi vitjað hennar þar. Læða Lítil svört læða, hölt á annarri afturlöpp, kom í hús að Melgerði 31 fyrir nokkru. Eigandinn er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 32506. Radarvari Radarvari var tekinn úr bíl við Starhólma í Kópavogi sl. fimmtu- dag. Vinsamlegast hringið í síma 44708 ef hann hefur fundist. Veiðistöng Lítil veiðistöng fannst við Hreðavatn í ágúst. Eigandinn getur hringt í Kjartan í síma 40635.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.