Morgunblaðið - 16.09.1990, Blaðsíða 28
28
ÁI¥I8\0A.HXA tftfy
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIININA/RAÐ/SMA
SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1990
■ a i jr^i Y^IMC^AR
HHHf HHn NhH HHi ★HHH HBWI ^HR ™ ^^mmm^^ ^^tmmmmm^^ Ummm B ■ ■ ’H ^^mmmmmrn*^ M » m m.
Viðskiptafræðingur
Verk- og kerfisfræðistofan hf. óskar eftir að
ráða ungan viðskiptafræðing til fjölbreyttra
starfa. Viðkomandi þarf að hafa áhuga og
þekkingu á verðbréfum, bókhaldi og tölvu-
notkun. Starfið felst meðal annars í því að
aðstoða viðskiptavini VKS við uppsetningu
og notkun verðbréfakerfisins Vísis.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 20. septem-
ber nk. Öllum umsóknum verður svarað og
farið með þær sem trúnaðarmál.
VERK- OG KERFISFRÆÐISTOFAN HF
Bíldshöfða 14 • 112 Reykjavík • Sími (91) 68 75 00
Atvinna óskast
Ég er 26 ára gömul, kennari að mennt og
mig bráðvantar atvinnu í 5-6 mánuði, helst
við almenn skrifstofustörf.
Upplýsingar í síma 39023.
„Au-pair“
19 ára dönsk stúika óskar eftir því að kom-
ast á heimili í Reykjavík eða nágrenni sem
allra fyrst. Reykir ekki.
Nánari upplýsingar í síma 46289 á kvöldin.
Atvinna óskast
35 ára fisktæknir með mikla reynslu í stjórn-
unar- og skipulagsstörfum óskar eftir at-
vinnu. Reynsla í innflutningi og útflutningi.
Góð viðskiptasambönd erlendis. Reynsla í
almennum skrifstofustörfum. Hefur lokið
námi í Útflutnings- og markaðsskóla íslands.
Haldgóð þekking og reynsla á PC tölvum.
Flest kemur til greina.
Vinsamlegast sendið tilboð til auglýsinga-
deildar Mbl. merkt: „K - 8524“.
Atvinnutækifæri
Vegna mikillar eftirspurnar þá vantar okkur
á skrá metnaðarfulla einstaídinga til ýmissa
starfa.
Sýnishorn af beiðnum
★ Fjármaálstjóra til starfa hjá fyrirtæki með
fjölþætta starfsemi þ.á.m. umfangsmiklar
þyggingaframkvæmdir. Viðskiptafræði-
menntun nauðsynleg.
★ Viðskiptafræðing til starfa hjá fyrirtæki,
sem staðsett er á Akureyri. Helstu verkefni
eru við bókhald, fjármál, verðbréf og trygg-
ingar.
★ Sérhæft skrifstofustarf hjá lögmanns-
og innheimtufyrirtæki.
★ Fiskeldisfræðing til starfa hjá laxeldisfyr-
irtæki á Vestfjörðum.
★ Sérhæft skrifstofustarf 1/2 dag f.h. við
bókhald og önnur vandasöm skrifstofustörf
hjá innflutningsfyrirtæki.
★ Síma og móttökustjórnun 1/2 dag f.h.
hjá stóru fyrirtæki , staðsett uppi á Höfða.
★ Aðstoðarverkstjóra á veitingastað,
vaktavinna.
★ Sérhæft skrifstofustarf 1/2 daginn e.h.
á fasteignasölu.
★ Rafeindatæknifræðing (veikstraum) til
starfa hjá þjónustufyrirtæki.
★ Sölumann til starfa á bílasölu.
★ Sölumann til starfa hjá rótgónu innflutn-
ingsfyrirtæki. (Fjölbreyttar vörur).
Afgreiðslusörf hjá fjölmörgum matvöru-
verslunum sem staðsettar eru víðsvegar á
höfuðborgarsvæðinum.
★ Sölu og afgreiðslustarf hjá metnaðarfullri
matvöruverslun, mikil vinna og ágæt laun.
★ Afgreisðslustörf í sérvöruverslunum
bæði hálfan og allan daginn.
★ Sölumenn til ýmissa starfa. Reynsla af
sölustörfum nauðsynleg.
★ Sölufólk á auglýsingum upp á hlut (pró-
sentur).
★ Afgreiðslufólk til starfa á veitingastað.
Einnig viljum við komast í samband við alla
þá sem eru að leita sér að nýju starfi, hvort
heldur um er að ræða vel menntaða ein-
staklinga, sérhæft skrifstofufólk, sérhæft
afgreiðslufólk, iðnaðarmenn og/eða öll
önnur ótilgreind störf.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
um störf þessu eru veittar á skrifstofu
okkar.
TEITUR lÁRUSSON
STARFSMANNAÞJÓN USTA
HAFNARSTRÆTI 20. VIÐ LÆKJAF .ORG. 101 REYKJAVÍK SÍMI 624550
Keflavík
Viðskiptafræðingur
Við viljum ráða viðskiptafræðing með reynslu
í bókhaldi og reikningsskilum til starfa á skrif-
stofu okkar.
I boði er fjölbreytt starf við endurskoðun,
reikningslega og skattalega aðstoð við stór-
an viðskiptavinahóp okkar.
Umsóknir með nauðsynlegum upplýsingum
sendist okkur fyrir 25. sept. nk. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál verði þess
óskast. Nánari upplýsingar gefur Davíð Ein-
arsson, löggiltur endurskoðandi í síma
Endurskoóunar-
mióstöðin hf.
N.Manscher
Tjarnargötu 2, 230 Keflavík
Veitingafólk ath!
Nýr og glæsilegur veitingastaður sem opnar
bráðlega í Garðabæ óskar að ráða eftirfar-
andi:
Matreiðslumenn, framreiðslumenn og fólk
í sal.
Upplýsingar hjá Árna í síma 657676 mánu-
dag og þriðjudag milli kl. 16 og 18.
Matsmaður
frystiskip
Vanur matsmaður óskast á m/s Ásgeir
Frímanns ÓF-21.
Upplýsingar í síma 91 -675480 eftir kl. 20.00.
Sölumaður (504)
Óskum að ráða sölumann til starfa hjá
traustri heildverslun í Reykjavík. Framtíðar-
starf. Heilsdagsstarf.
Starfssvið: Sölu- og kynningarstarf á hár-
greiðsluvörum til hárgreiðslustofa og versl-
ana. Einnig umsjón með námskeiðahaldi á
vegum fyrirtækisins, gerð pantana o.fl.
Við leitum að manni með réttindi sem hár-
greiðslumaur sem hefur áhuga og getu til
að starfa sjálfstætt, hefur ánægju af menn-
legum samskiptum og býr yfir góðum sölu-
hæfileikum. Starfsreynsla skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Oladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar merktar: „504“.
Hasva niiur hf
Grensásvegi 13 Reykjavík [ Sími83666 Ráöningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Húshjálp
Húshjálp óskast við þrif á einkaheimili. Æskileg-
ur vinnutími fimmtud. og föstud. frá kl. 13-17.
Tilboð sem greini frá aldri, heimilisfangi og
fyrri störfum skilist á auglýsingadeild fyrir
nk. föstudag merkt: „September - 215“.
Atvinna óskast
Útgerðartæknir með próf úr Fiskvinnsluskól-
anum óskar eftir atvinnu á Reykjavíkursvæð-
inu.
Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 15. október merkt: „Út - 13400“.
Húsbyggjendur
húseigendur
Byggingafyrirtæki getur bætt við sig verkefn-
um, úti sem inni.
Við gerum kostnaðaráætlanir og/eða föst
verðtilboð ef óskað er.
Upplýsingar í símum 72357, 43744 og
671475.
Viðskiptafræðingur
með reynslu í bókhaldi óskar eftir ca. 60%
starfi.
Vinsamlega leggið inn svörá auglýsingadeild
Mbl. fyrir 24. september merkt: „Viðskipta-
fræðingur - 8519“.
Rafvirki!
Rafvirki með B. löggildingu óskar eftir starfi.
15 ára starfsreynsla. Vanur að vinna sjálfstætt.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 21. september merkt: „Rafvirkjameistari
- 8529“.
Laus störf hjá
, Mosfellsbæ
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar hjá
Mosfellsbæ:
A) Trésmiður í áhaldahúsi. Starfið er fólgið
í almennri trésmíðavinnu og viðhald hús-
eigna Mosfellsbæjar sem og ýmiss nýsmíða-
verkefni.
Leitað er að trésmið með alhliða reynslu.
Nánari upplýsingar gefa bæjarstjóri eða
bæjartæknifræðingur skrifstofu Mosfells-
bæjar í síma 666218. Skriflegum umsóknum
skal skilað á skrifstofu Mosfellsbæjar, Hlé-
garði, í umslagi merktu: „TRÉSMIÐUR" fyrir
26. sept nk.
B) Ritari bæjarstjóra
Starfið er einkum fólgið í vélritun fundar-
gerða bæjarstjórnar og nefnda, úrvinnslu á
skjölum er varða afgreiðslu nefnda, al-
mennri vélritun fyrir skrifstofu bæjarfélags-
ins, skjalavörslu, boðun nefndarfunda og
fleira. Hér er um tímabundna ráðningu að
ræða, 8-10 mánaða. Viðkomandi þarf að
hafa góða reynslu í vélritun og þekkja til ri-
tvinnslukerfa. Nánari upplýsingar um starfið
veita bæjarritari eða bæjarstjóri, skrifstofu
Mosfellsbæjar, Hlégarði, í síma 666218.
Skriflegum umsóknum skal skilað til bæjarrit-
ara Mosfellsbæjar, Hlégarði, í umslagi
merktu: „RITARI" fyrir 26. september nk.