Morgunblaðið - 16.09.1990, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1990
3
PIASTVORUR FYRIR
ÚTGERÐ OG
FISKVINNSLU
Fiskker
Fiskker eru notuð til geymslu og flutnings á fiski. Þau tryggja
hámarksgæði fisksins á öllum vinnslustigum. Þá er sama hvort
um er að ræða fiskiskip af minnstu gerð, stærstu ferskfisktogara,
saltfiskverkun, fiskeldi, fiskmarkaði, rækjuvinnslu eða
síldarvinnslu. Fiskkerin frá Sæplasti henta alls staðar.
Plastbretti
Plastbretti Sæplasts eru notuð þar sem gerðar eru miklar kröfur
um hreinlæti, s.s. í matvælaiðnaði. Þau fúna ekki, drekka ekki í
sig vatn eða óhreinindi og því er auðvelt að halda
þeim hreinum.
Trollkúlur
Trollkúlur eru framleiddar undir vörumerkinu ICEPLAST. Þæreru
óaðskiljanlegur hluti veiðarfæra sérhvers aflaskips. Þær eru
sterkar og sérstaklega gerðar til að standast átök Norður-
Atlantshafsins.
Sæplast hf. kynnir starfsemi sína og framleiðslu á
Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll
19.-23. september 1990.
sœplast