Morgunblaðið - 16.09.1990, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBÉR 1990
Hópurinn á „kirkjugóinnu"..
NESJAVELLIR
*
Alfaklúbbur tekur umhverf!
álfakírkju í fóstur
Jú, við höfum frétt að borgarráð
hafi úthlutað okkur þessu landi
á Nesjavöllum til ráðstöfunnar. Það
verður formlegt á næstu dögum og
þar með hefur SÁÁ tekið skikann
í fóstur og við ætlum að skila hon-
um af okkur grónum og fallegum,
enda annað ekki við hæfi þar sem
þarna er að finna stærstu álfa-
kirkju landsins," sagði Grétar Berg-
mann í samtali við Morgunblaðið.
En um hvað snýst málið? Grétar
heldur áfram:
„Þetta byijaði síðastliðið vor er
SÁÁ stóð fyrir fjáröflun og var
lítill álfur seldur í einn dag. Þessu
var gríðarlega vel tekið og margir
álfar seldust, en sölufólkið, sem
allt er úr röðum SÁÁ , stofnaði
með sér Álfaklúbb til þess að halda
hópinn og skipuleggja álfasölu
næsta árs. Meðal annars sótti þessi
klúbb.ur um að fá afgirt skógrækt-
arsvæði á Nesjavöllum þar sem
Einar á Einarsstöðum fann stærstu
álfakirkju landsins á sínum tíma.
Nú hefur það gengið eftir og við
erum þess albúnir að taka þennan
landskika í fóstur."
Hinir mennsku „álfar“ SÁÁ fóru
austur á Nesjavelli í sumar sem
Álfakirkjan.
leið og skoðuðu sig um. Sagði Grét-
ar að þeim hefði litist alveg sérstak-
lega vel á sig og menn hefðu fund-
ið að þeir væru að hella sér út í
þarft verk og gott. Nú væri búið
að úthluta svæðinu og menn biðu
með óþreyju eftir því að láta til
skarar skríða.
GLERLIST
Viðbúnað-
ur Skota
vegna Jón-
asar Braga
Ungur íslenskur myndlistar-
maður, Jónas Bragi Jónas
son, hefur fengið inngöngu í Kon-
unglega listaháskólann í Edinborg
sem þykir með betri og eftirsótt-
ari skólum sinnar tegund. Aðeins
tveir fslendingar hafa áður fengið
sæti í þessum skóla, Leifur Breið-
fjörð og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Inntaka Jónasar í skólann er ekki
síður merkileg fyrir þær sakir, að
skólayfirvöld ákváðu að festa
kaup á dýrum tækjum til þess að
Jónas gæti sem best skapað list
sína, en hann steypir skúlptúra í
gler og er það vandasamur starfi
svo ekki sé sterkara að orði kveð-
ið.
Jónas hefur verið í þijú ár við
nám í Englandi og sérhæft sig í
umræddum skúlptúr. Það er mikið
vandaverk, því fyrst þarf að smíða
Glerlistamennirnir Leifur Breiðijörð t.h. og Jónas Bragi Jónasson.
mót sem þolir hitann frá bræddu
glerinu. Sú vinna getur tekið allt
að tvo mánuði. Síðan getur það
tekið tvo til þijá daga að hella
glerinu í mótin til þess að fá rétt
blæbrigði.
Búnaðurinn sem fyrr greinir
kostaði skólann tæpa milljón og
var hann keyptur eingöngu vegna
væntanlegrar setu Jónasar í skól-
anum. Jónas Bragi hefur haidið
nokkrar sýningar á glerskúlptúr-
um sínum í Englandi, en aldrei
heima á íslandi. Mun það heldur
ekki vera á dagskrá, ekki fyrst
um sinn að minnsta kosti.
511
Þjjóðleikhúsið
frumsýnir í íslensku óperunni
gamanleik með söngvum
Örfá sætí laus
eftir Karl Ágúst Úlfsson, Pálma Gestsson,
Randver Þorláksson, Sigurð Sigurjónsson
og Örn Árnason.
Handrit og söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjóri: Egill Eðvarðsson
Tónskáld: Gunnar Þórðarson
Leikmynda- og búningahönnuður: Jón Þórisson
Dansahönnuður: Ásdís Magnúsdóttir
Hljómsveitarstjóri: Magnús Kjartansson
Ljósahönnuður: Páll Ragnarsson
Sýningarstjóri: Kristín Hauksdóttir
Leikarar:
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Bessi Bjarnason,
Jóhann Sigurðarson, Karl Ágúst Úlfsson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdóttir,
Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson,
Rúrik Haraldsson, Sigurður Sigurjónsson,
Steinn Ármann Magnússon, Tinna Gunniaugsdóttir,
Þórarinn Eyfjörð og Örn Árnason.
Dansarar:
Asta Henriksdóttir, ÁsdísMagnúsdóttir,
Heiga Bernhard og Guðmunda H. Jóhannesdóttir.
Leikpersónurm.a.:
Ragnar Reykás, Kristján Ólafsson, Grani,
útfararstjóri, Heimir, Bogi róni, Ófeigur, tenór,
Davíð borgarstjóri, Geir, menntamálaráðherra,
Haddi banjó, Fróði, Reinhart, Harry, Örvar róni,
Friðrik, Snævar, Steingrímur, spaugmunavörður,
sætavísa, Skugga-Sveinn, Ástvaldur, saumakona,
hvíslari, Ólafía, Ingibjörg, Ásta í Dal, Hreiðar,
Heiðar, Viðar, Ólafur Ragnar, Kapítóla, Þormóður,
Ketill skrækur, sviðsmenn, sjónvarpsmenn
og áhorfendur.
Föstud. 21. sept. (frumsýning), laugard. 22. sept., 2.
sýn., sunnud. 23. sept., 3. sýn., fimmtud. 27. sept., 4.
sýn., föstud., 28. sept., 5. sýn., sunnud. 30. sept., 6.
sýn., föstud. 5. okt., 7. sýn., laugard. 6. okt., 8. sýn.,
sunnud. 7. okt., föstud. 12. okt. laugard. 13. okt.
og sunnud. 14. okt.
Miðasala og símapantanir í íslensku óperunni
alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18.
Símapantanir einnig alla virkadagafrá kl. 10-12.
Símarl 1475 og 11200.