Morgunblaðið - 23.10.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER 1990
47
Hin árlega Amnesty-vika
Malawi: Jack Mapanje
Jack Mapanje er ljóðskáld og
hefur verið í haldi í Mikuyu-fang-
elsi í Suður-Malawi allt frá því hann
var handtekinn af lögreglunni í
Zomba 25. september 1987. í nær
tvö ár voru heimsóknir til hans
ekki leyfðar, jafnvel ekki af konu
hans og þremur börnum. Nú fær
kona hans að heimsækja hann fjór-
um sinnum á ári.
Jack Mapanje
hefur ekki verið
ákærður fyrir neitt
brot. Ekki er mönn-
um kunnugt um að
hann hafi verið virk-
ur í stjórnmálum eða verið í sam-
bandi við neina hópa stjórnarand-
stæðinga, en hann hefur hin síðari
ár samið ijóð með stjórnmálalegri
skírskotun. Lögreglan framkvæmdi
húsleit í vinnuherbergi hans við
háskólann, eftir að hann var hand-
tekinn. Þar lögðu þeir m.a. hald á
á ljóðasöfn hans.
Malavísk stjórnvöld hafa ekki
svarað eftirgi-ennslan Amnesty
hvaða ástæður voru fyrir handtöku
Jack Mapanje. Forsetinn hefur rétt
til að fyrirskipa handtöku á hveijum
sem er, í ótakmarkaðan tíma til að
„viðh^lda stöðugleika". Þeir sem
lenda í þessu hafa hafa engan
möguleika á að mótmæla slíkum
handtökum.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hann verði
tafarlaust og skilyrðisiaust látinn
laus. Skrifið til:
His Exellency the Life-President
Ngvvazi Dr. H. Kamuzu Banda
OfFice of the President
Private Bag 388
Liiongwe 3, Malawi.
Kína: Wang Xizhe
Þann 20. apríl 1981 var verk-
smiðjuverkamaðurinn Wang Xizhe
handtekinn í þriðja sinn síðan í
Menningarbyltingunni á 7. áratug
þessarar aldar. Hann sat sem ungur
stúdent í fangelsi árin 1968-69.
Eftir nokkurn tíma við landbúnað-
arstörf fékk hann vinnu í verk-
smiðju. Vakti hann heimsathygli
þegar hann árið 1974 ásamt tveim-
ur öðrum bjó til 90 metra langt
„veggblað“, þar sem réttarkerfið
var m.a. gagnrýnt. Hann sat í fang-
elsi frá 1977-79, þar til hann fékk
uppreisn æru í tengslum við fall
„ijórmenningaklíkunnar“. Hann
hefur eftir það skrifað greinar í
opinber blöð og tekið þátt í ýmsum
nefndum fyrir sakaruppgjöf an'n-
arra þeirra sem gagnrýnt hafa
stjórnvöld.
Ástæða fangelsunar hans árið
1981 var opið bréf þar sem hann
varði samviskufangann Li Qing og
útgáfu hans á hvað fór fram við
réttarhöld yfir öðrum stjórnargagn-
íýnenda, Wei Jingsheng. Við
handtökuna voru 350 skjöl gerð
upptæk. Stjórnvöld hafa skýrt frá
því að réttarhöldin yfir Wang Xizhe
hafi verið opinber. Hann var dæmd-
ur í 14 ára fangelsi, m.a. fyrir
„gagnbyltingarsinnaðan áróður og
undirróðursstarfsemi" og fyrir að
hafa „hvatt almenning til að mót-
mæla fangelsunum“. Wang Xizhe
er nú 42 ára gamall, giftur og á
einn son.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að hann verði
tafarlaust og skilyrðislaust látinn
laus. Skrifið til:
Prime Minister
Li Peng Zongli
Guowuyuan
Beijingshi
People’s Republic of China
RONNING
0HITACHI
Hitachi myndbandstækin eru sér-
hönnuð til að hreinsa sig sjálf.
Með tilkomu sjálfvirks hreinsibún-
aðar á myndhaus tilheyra reglulegar
verkstæðisferðir fortíðinni. Stærð, útlit
og tæknilegir eiginleikar tilheyra
framtíðinni. VT-M748E er 4 hausa
myndbandstæki, með sérstökum
valmyndaskjá, fjarstýringu, sjálfvirkri
sporun (autotrack), allt að 8 tíma
upptökumöguleika (long play), eins
árs upptökuminni, fjölkerfa PAL,
NTCSC, NESCAM.
Og kostar aðeins frá 57.990 stgr.
VT-M728E. Er 2 hausa tæki,
Og kostar aðeins 39.990 stgr.
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
=)
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Vinningstölur laugardaginn 20. okt. 1990
00
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 Q 2.259.764
2. 4af5®|01 130.975
3. 4af5 69 9.823
4. 3af 5 2.901 545
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.911.521 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
„LÍFSFÖRUNAUTUr
Sumir halda að sæng sé bara sæng. Að lítill munur sé á þessari eða hinní sængínni. Þetta
er auðvitað alrangt. Sængur em ákaflega mismunandi. Sumar eru þunnar og ræfilslegar,
nánast eíns og teppi. Aðrar em þungar og óþjálar. Enn aðrar em léttar og hlýjar - og
dúnmjúkar.
Æðardúnssængin er í flokki hinna síðastnefndu. Það er GEFJUNARSÆNGIN líka, þótt hún
standist ekki að öllu leyti samanburð við þennan kjörgrip. En allt stefnir
þetta í rétta átt. Sífellt er unnið að endurbótum á samsetníngu kembunn-
ar sem notuð er í GEFJUNARSÆNGINA, og míða að því að gera hana lík-
ari dúnsænginni, ss. aukin eínangmn. Annan góðan kost hefur GEFJUN-
ARSÆNGIN: Það má þvo hana . . . jafnvel í þvottavél!
Síðast en ekki síst: GEFJUNARSÆNGIN endist nánast Iífstíð! Þú ert því að
velja þér „lífsförunaut" þegar þú velur GEFJUNARSÆNG.
GEFJUNARSÆNG OG -KODDAR eru góð kaup
- á íslenskri framleiðslu. Veljum íslenskt.
VERSLANIR UM LAND ALLT.