Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B 258. tbl. 78. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 Prentsmiðja Morg-unblaðsins Hafna leiðtoga- fundi arabaríkja Bagdad. Bahrain. Washington. Reuter. FLEST arabaríkjanna hafa ekki sinnt áskorun Hassans Marokkókon- ungs um að efna til leiðtogafundar um stríðsástandið við Persaflóa og gera „lokatilraun“ til að koma í veg fyrir hernaðarátök um Kú- væt. Virðist sem ekkert ætli að verða úr því að fundur verði hald- inn, að sögn stjórnmálaskýrenda. Samstarfssamtök Persaflóaríkj- anna (GCC) sex tilkynntu í gær að tillaga Hassans væri of seint fram komin og leiðtogafundur þjónaði engum tilgangi. Yasser Arafat, leið- togi Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO), og Hussein Jórdaníu- konungur, fögnuðu tillögu Hassans en Irakar lögðust gegn fundinum og sögðu hann einungis geta orðið til þess að hnykkja á klofningi meðal araba og þannig þjónað hags- munum þeirra sem stefndu að ófriði við íraka. Qian Qichen utaníkisráðherra Kína sagðist í gær hafa átt „árang- Stórslgálfti í Kazakhstan Moskvu. Reuter. ursríkar“_ viðræður við Saddam Hussein íraksforseta í Bagdad um leiðir til að afstýra hernaðarátökum við Persaflóa. Sagði hann Saddam hafa látið í ljós vilja til að leysa deiluna um Kúvæt með allsheijar- samningum er innihéldu Iausn á vanda Palestínumanna. Yfirlýsing Qians varð til þess að olíuverð lækk- aði um dollar á fatið og seldist það á 32 dollara í gær. Margaret Thatcher forsætisráð- herra Bretlands sagði í gærkvöldi að hyrfu írakar ekki hið bráðasta frá Irak yrðu þeir hraktir þaðan með hervaldi. Sýndu ríki heims lin- kind gagnvart írökum yrðu leiðtog- ar þeirra dæmdir hart af sögunni. Thatcher varaði einnig við tilraun- um til þess að bola sér úr sæti leið- toga íhaldsflokksins og hótaði að gefa þeim sem það áformuðu engin grið. Reuter Motmæli á Bastillutorginu Um eitthundrað þúsund franskir menntaskólanemar mótmæltu kennaraskorti og slæmum aðbúnaði í skólunum í helstu borgum Frakklands í gær. Talið er að 50 þúsund skólanemar hafi tekið þátt í mótmæl- um í París og var myndin tekin af hluta þeirra sem mótmæltu á Bastillutorginu. Sjá „Kennsluaðferðum og lélegum aðbúnaði mótinælt“ á bls. 25. Sovétstjórnin setur Eystra- saltsríkjunum úrslitakosti Jeltsín segist ekki ætla að sundra sovéska ríkjsambandinu Moskvu. Reuter. SOVÉTSTJÓRNIN hefur hótað ÖFLUGUR jarðskjálfti varð í Sovétlýðveldinu Kazakhstan í gær og þar sem upptök hans munu hafa orðið grunnt undir yfirborði jarðar var talið mögu- legt að hann hefði valdið miklu tjóni en þegar síðast fréttist höfðu engar fregnir borist frá skjálftasvæðinu. Að sögn sovéska sjónvarpsins varð skjálftinn skammt frá kínversku landamærunum klukkan 12:25 að íslenskum tíma. Upptök hans voru við vatnið Íssyk-Kúl sem er um 100 km suður af höfuðborg Kazakhstans, Alma-Ata, og mæld- ist hann 6,3 stig á richter-kvarða á skjálftamælum jarðvísindastofn- unar í Moskvu.en 6,7 stig á mælum í Pekíng í Kína. Eystrasaltsríkjunum þremur hörðum efnahagsþvingunum falli þau ekki frá áformum um að fara sínar eigin leiðir í efnahagsmál- um, að sögn Ritu Dapkus, tals- manns litháíska þingsins. Níkolaj Ryzhkov forsætisráðherra Sov- étríkjanna setti forsætisráðherr- um ríkjanna úrslitakosti á fundi í Moskvu sl. laugardag og veitti þeim viku frest til að samþykkja efnahagsstefnu Sovétstjórnarinn- ar. Ríkin þrjú höfnuðu afarkost- um hans þegar í stað og hétu samstöðu gegn hótunum Sovét- stjórnarinnar. „Ryzhkov sagði að við yrðum að fara að sovéskum efnaliags- og skattalögum og samþykkja sovésku fjárlögin. Yrðum við ekki við því yrði skorið á öll efnahagstengsi eftir viku,“ sagði Dapkus. Hún sagði fundinn með Ryzhkov ekki boða gott fyrir samningaviðræður við Sovétstjórnina um sjálfstæði Eist- lands, Lettlands og Litháens sem hefjast eiga síðar í þessum mánuði. Kazimiera Prunskiene forsætis- ráðherra Litháens skýrði þingi landsins frá fundinum með Ryzhkov í gær og sagði að það væri til einsk- is að ræða við hann frekar um mál- efni Eystrasaltsríkjanna. Menn yrðu að leita til æðri manna og því væri næsta skref að leita til Míkhaíls Gorbatsjovs leiðtoga sovéska komrn- únistaflokksins. „Hann setti ríkjun- um þremur í raun úrslitakosti og sagði að við yrðum að leggja skatta- kerfið niður, hætta notkun eigin gjaldmiðils, afnema verðlagsstefn- una og slíta viðskiptasamböndum erlendis,“ sagði Prunskiene. Eystrasaltsríkin þijú vinna nú að því að öðlast alþjóðlega viðurkenn- ingu á sjálfstæði sínu en þau voru innlimuð í Sovétríkin með leyni- samningum Jósefs Staltns og Adolfs Hitlers 1939. Þau hafa sniðgengið Moskvustjórnina og sett á laggirnar eigin banka og tekið upp beint við- skiptasamband við erlend ríki og einstök sovésk lýðveldi. Sovétstjórn- in heldur því fram að þar til gengið hafi verið frá nýjum sáttmála um samband lýðveldanna verði samband þeirra og Moskvustjórnarinnar að byggjast á sovéskum lögum. Borís Jeltsín forseti Rússlands lýsti í gær ánægju með viðræður við Gorbatsjov um helgina og sagðist ekki stefna að því að splundra so- véska ríkjasambandinu. Sagðist hann sáttur við uppkast að nýjum, ríkjasáttmála sovésku lýðveldanna að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sjá „Vaxandi líkur á samkoniu- lagi um ..." á bls. 24. » Pólland: Eigur komm- únista teknar Varsjá. Reuter. FLOKKUR pólskra kommúnista, er nú nefna sig sósíalista, liefur mótmælt harkalega þeirri ákvörðun þingsins sl. föstudag að gera megnið af eignum flokksins upptækar. Lítill greinarmunur var gerður á flokki og opinberum yfirvöldum ára- tugina ljóra er kommúnistar fóru einir með völdin. Er þeir gáfust end- anlega upp og fólu andófsmönnum ríkisstjórnarvöld í ágúst á sl. ári voru m.a. um 1.900 húseignir í eigu þeirra. Fjármálaráðuneyti landsins mun yfirtaka allar þessar eignir en flokkurinn fær að haida fé sem talið er vera bein framlög flokksfélaga. Viðræður EB og EFTA: Utanríkisráðherrar EB úti- loka aðild að ákvörðunum Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópubandalagsins (EB) ræddu í gær samninga við Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) um evrópska efnahagssvæðið (EES). Samkomulag varð um að fela framkvæmda- stjórn EB að leggja fram tillögur um samráð við EFTA um ákvarð- anir sem varða EES. Samkomulagið gerir ráð fyrir að EFTA-ríkjun- um verði gefinn kostur á að fylgjast með ákvörðunum frá því þær verða lagðar fram en öllum hugmyndum um aðild að ákvörðunum er hafnað. Á ráðherrafundinum var sérs- taklega fjallað um vandamál vegna fiskveiða og landbúnaðar í viðræð- unum um EES. Framkvæmda- nefndinni var falið að undirbúa til- lögur um þessi efni fyrir ráðherra- fund sem haldinn verður 4. des- ember nk. Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar EB, sagði við blaðamenn að sérstök vandamál íslendinga á sviði sjávarútvegs væru ljós. Samkvæmt heimildum í Brussel lýsti Delors því yfir á fundinum að kröfur um veiðiheim- ildir í íslenskri fiskveiðilögsögu á þessu stigi myndu ekki leiða til annars en að íslendingar yfirgæfu viðræðurnar. Leggja bæri áherslu á að semja fyrst um aðgang að mörkuðum áður en samið yrði um aðgang að fiskimiðum. Ráðherrar EB fögnuðu breytt- um áherslum EFTA vegna þeirra undanþága frá reglum EB sem aðildarríkin hafa krafist. Það ætti hins vegar eftir að kanna hversu stór hluti undanþáganna yrði til frambúðar og hvað EFTA-ríkin meintu með aðlögunartíma og var- nöglum. Bretar lögðu fram tillögur sem m.a. gera ráð fyrir samráðs- fundum allra aðildarríkja EFTA og EB á fyrstu stigum ákvarðana og sömuleiðis að fulitrúar úr fram- kvæmdastjórnum beggja banda- laganna geti hist með skömmum fyrirvara ef þörf er talin á. Danir lýstu yfir stuðningi við bresku til- löguna og Þjóðveijar studdu hana sömuleiðis en önnur aðildarríki voru minna en hálfvolg segja heim- ildir í Brussel. Sjá „Vilja kanna möguleika á umfangsminni ..." á bls. 24.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.