Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKffTI/flrVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990
33
Landbúnaður
Aðalfundur
Framleiðsla á tækjum tíl fóður-
gjafa af riílluböggum hafin
VÉLSMIÐJA Kaupfélags Rangæinga er um þessar mundir að hefja
framleiðslu á nýju tæki til fóðurgjafa af rúlluböggum. Tækið er
vökvaknúið og tengist mokstustækjum eða þrítengi dráttarvéla. Með
þessu tæki eru rúllurnar sóttar og fluttar á þann stað, þar sem gefa
á heyið. Þar greiðir tækið heyið niður, t.d. í vagn eða í múga á
fóðurgangi eða annars staðar, þar sem gripirnir ná til þess.
Vélsmiðja Kaupfélags Rangæ-
inga hefur um árabil sinnt þróun
og framleiðslu landbúnaðartækja
fyrir bændur. Í því starfi hefur ver-
ið lögð höfuðáherlsa á að tækin
væru ódýr, sterk og þyrftu ltið við-
hald. Þannig hafa tækin yfirleitt
hentað sérstaklega vel fyrir þær
aðstæður sem ríkja í íslenskum
landbúnaði, að sögn forsvarsmanna
vélsmiðjunnar.
Við hönnun þessa tækis var eink-
um haft í huga að það kæmi að sem
bestum og víðtækustum notum fyr-
ir bændur, en kostaði ekki alltof
mikla peninga. Auk þess sem að
framan greinir er hægt að fá fylgi-
hluti með tækinu, sem breytir því
í öflugan staurabor eða steypu-
hrærivél.
Meðal þeirra tækja sem fram-
leidd hafa verið hjá vélsmiðju Kaup-
félags Rangæinga eru mykjusnigl-
ar, mykjudreifarar, losunarbúnaður
í votheýsturna og K.R. baggatínan.
Segjast foráðamenn vélsmiðjunnar
binda miklar vonir við hið nýja
tæki og hyggjast með því fylgja
íslenskum bændum inn á nýja braut
í heyverkunaraðferðum.
RÚLLUBAGGAR — Þetta vökvaknúna tæki sem
vélsmiðja Kaupfélgs Rangæinga er að hefja framleiðslu á
til fóðurgjafa af rúlluböggum, tengist mokstustækjum eða
þrítengi dráttarvéla. Einnig er hægt að fá fylgihluti með
tækinu, sem breytir því í öflugan staurabor eða steypuhræri-
vél.
Ljósm./Ottó Eyfjörð
Ný sljórn Félags íslenskra teiknara
AÐALFUNDUR FÍT, sem er fagfélag grafískra hönnuða, mynd-
skreyta og auglýsingateiknara á íslandi, var haldinn 25. okt. sl.
Fyrir fundinum lágu umsókniar 16 teiknara um inngöngu í félagið
og voru þær samþykktar. Með þessu nýja fólki eru félgsmenn FÍT
orðnir rúmlega 100.
Fráfarandi stjórn flutti skýrslu
og fór yfir tildrög þess að félagið
var endurvakið 'ifyrra eftir fimm
ár alægð í starfsemi þess. Sam-
þykkta voru tiiögur að nýjum lögum
með þeim brytingum, að íjölgað er
í stjórn fálgsins og stjórnin sér um
afgreiðslu umsókna.
Ný stjórn var mynduð og var.
Björn B. Björnsson, Hugsjón, kos-
inn formað’ur, Halla Helgadóttir,
Grafít, ritari, Finnur Jh. Malmqu-
ist, Grafit, gjaldkeri, Atli Hilpiars-
son, ísl. auglýsingastofunni, Ástþór
Jóhannsson, Goðu fólki, Hilnmar
Sigurðsson, Frafít, Kristján Frið-
IMámskeið
rikssin, Magnús Þór Jónsson, AUK,
Sverrir Björnsson Hvíta húsið og
Tryggvi Tryggvason, Yddu.
í frétt frá FÍT segir að félagið
muni halda áfrfam að beita sér fyr-
ir fræðslu- og kynningarfundum um
hin ýmsu mál sem brenna á stétt-
inni á komandi ári. Megi þar nefna
þátttöku í verð’launasamkeppnum,
menntunarmálum .fl. Félagið muni
halda áfram samstarfi ið NT og
Icograda. Höfundaréttarmál séu í
endurskoðun og einnig sé áætlað
að ljúka innan skamms samræm-
ingu Norrænna reglna um hönnun-
arsamkeppni.
Yfirmaðurinn
Ætti að vera frammistöðu-
mat íhverju fyrirtæki
— segir Pétur Ragnarsson yfirmaður kerfis-
fræðideildar
PETUR Ragnarsson er yfirmaður kerfisfræðideildar IBM og hefur
starfað hjá fyrirtækinu í 17 ár. Aðspurður segist hann sjá allt já-
kvætf við frammistöðumatið og ekkert neikvætt. „Mér finnst að það
eigi að vera starfsmannamat í hverju einasta fyrirtæki. Með þessu
veit starfsfólk til hvers er ætlast af því og fær svo með þessu fyrir-
komulagi þá eðlilegu kröfu uppfyllta að fá metið hvernig tekist hafi
til. Ef einhveijum gengur til dæmis illa er nauðsynlegt fyrir hann að
það sé rætt. Þá er reynt að kenna honum eða beina honum inn á
aðrar brautir til að finna livað hentar og hvar hæfileikar hans nýt-
ast. Við getum þurft að beina fólki eitthvað annað en hugsað var í
upphafi ráðningar.”
Pétur segir að þegar ráðinn sé nýr
starfsmaður sé farið yfir verksviðin
og þeim raðað í röð eftir mikilvægi.
Þar sé lýst með nokkrum orðum í
hveiju viðkomandi svið sé fótgið og
farið sé yfir markmið. „Við reynum
að setja öllum markmið þannig að
þeir eigi að skila einhvetju ákveðnu
verkefni eða ákveðnum árangri á
ákveðnu tímabili, t.d. einu ári. Þessi
markmið og lýsing á verksviði eru
samin í sameiningu af starfsmanni
og yfirmanni. Þeir verða báðir að
vera sammála um það er þetta sé
einmitt það sem hann getur, vill og
ætlar að gera. Þegar um nýjan
Til leigu
Verslunar- eða skrifstofuhúsnæði 225 fm ásamt lager-
rými 116 fm er til leigu í Verkfræðingahúsinu við
Engjateig gegnt Hótel Esju. Góð bílastæði. Góð að-
koma að húsinu með tengingu við Suðurlandsbraut.
Upplýsingar veittar í síma 688504.
starfsmann er að ræða er tímabilið
styttra sem valið er áður en mark-
miðin eru yfirfarin að nýju, t.d. 3-6
mánuðir.
Yfirmaður hefur að sjálfsögðu þá
skyldu að fylgjast með stafsmanni
allan tímann. Þegar að trúnaðarsam-
tali kemur er bæði starfíð rætt, fort-
íðin, framtíðin og raunar hvað sem
starfsmaður óskar eftir að ræða.
Persónuleg mál eða vandamál er líka
hægt að ræða. I mínum huga er allt
sem mæli með að fyrirtæki noti þessa
aðferð í samskiptum við starfsfólk
sitt,“ segir Pétur Ragnarsson.
OPNUN ERLENDRA
VERÐBRÉFAMARKAÐA
er umræduefnið ó
M0R6UNVERÐARFUNDI
Félags viðskipta- og hagiræðinga
miðvikudaginn 14. nóvember.
kl. 8.00-9.30 á Hótel Holiday Inn.
Stutt erindi flytja og svara fyrirspurnum:
Gunnar Helgi Hólfdónarson, forstjóri Landsbréfa, og
Svanbjörn Thoroddsen, deildarstjóri verðbréfadeildar VÍB.
Time Manager námskeið
■ STJÓRNUNARFÉLAG Íslands
gengst fyrir Time Manager nám-
skeiði dagana 19. og 20. nóvember
nk. frá kl. 8.30 til 18.00 báða dag-
ana. Leiðbeinandi er Anne Böge-
lund Jensen, yfirleiðbeinandi Time
Manager International. í frétt frá
Stjórnunarfélaginu segir að nám-
skeiðin séu nú vinsælustu námskeið
á vegum félagsins frá upphafi og
hafi 3 þúsund manns sótt þau frá
upphafi. Time manager námskeiðin
byggist á markmiðasetningu og
tímastjórnun. Mannlegi þátturinn
sé sérstaklega tekinn fyrir t.d.
streita og þreyta. Þá sé fjallað um
möguleika kerfisins til hjálpar við
að auka afköst og nýta tímann
betur, forðast tímaþjófa, stjórna
verkefnum, auka hugmyndir og
skipuleggja vinnuaðstöðu.
M TIME Manager International
er stærsta ráðgjafarfyrirtæki í
starfsmannaþjálfun í Evrópu og
hefur leiðbeint tugþúsundum
manna og kvenna í Bandaríkjun-
um, Japan og Sovélríkjunum.
Námskeiðin byijuðu árið 1975 með
námskeiði í tímastjórnun. SAS flug-
félagið var meðal fyrstu stórfyrir-
tækja sem fékk fyrirtækið til ráð-
gjafar og námskeiðahalds. Fleiri
flugfélög hafa einnig bæst í hópinn
svo sem British Airways og Japan
Air Lines. Til dæmis má nefna að
Evrópubandalagið hefur sett allt
starfsfólk höfuðstöðvanna í Bruss-
el svo og þýska verslunarkeðjan
Kaufhof sem hefur um 44 þúsund
starfsmenn.
GBC-Skirteini/barmmerki
fyrir: félagasamtök, ráðstefnur,
starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl.
Efni og tœki fyrirliggjandi.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9-105 Reykjavik
Símar 624631 / 624699
Félagar í FVH og aðrir áhugamenn um
fjárfestingarmöguleika á erlendum
verðbréfamörkuðum, er opnast
15. des. nk., fjölmennið.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐIIMGA
OG HAGFRÆÐINGA