Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 47 Minning: Jón Egilsson Fæddur 1. ágúst 1913 Dáinn 19. október 1990 Mig langar til að fara fáeinum orðum um vin minn, Jón Egilsson, vélstjóra, sem jarðsunginn var 27. október síðastliðinn á ísafirði við Skutulsfjörð. Ég ætla mér ekki að rekja hér ættir Jóns eða ævistörf, en mig langar í þessum fáu orðum að þakka vináttu þessa öðlings. Eg kynntist Joni fyrst árið 1976 er ég kom á ísafjörð ásamt dóttur- dóttur Jóns, Sigrúnu Garðarsdóttur, en hún er nú eiginkona mín. Þegar fundum okkar bar fyrst saman var hann í heyskap hjá skyldmennum sínum í Engidal við Skutulsfjörð. Þar sá ég strax í verki hjálpsemina sem var svo einkennandi fyrir hann; hjálpsemi sem krafðist aldrei neinn- ar umbunar í staðinn. Þegar kynni tókust með mér og Jóni var ég varla nema unglingur og óreyndur eftir því. Hann var hins vegar lífsreyndur maður á sjö- tugsaldri. Samt tók hann mér strax sem jafningja. Þaðan í frá hittumst við af og til í fjölskylduboðum. Alltaf var jafn gott að hitta hann, bæði til. að skipt- ast á skoðunum, en ekki síður vegna þess að honum lék ávallt foi-vitni á að vita hvað við höfðumst að, jafnt í námi sem starfi. Árið 1983, er ég lauk námi, fór ég vestur á ísafjörð til að vinna hjá Orkubúi Vestfjarða, en þar vann Jón einmitt á þeim árum. Þau rúm- lega tvö ár, sem ég bjó fyrir vest- an, tókst góður vinskapur með okk- ur. Fyrstu mánuðina vestra bjó ég hjá honum í Grundargötunni, en eftir að ég flutti þaðan átti ég þó ætíð athvarf hjá honum þegar á þurfti að halda. Margar góðar sam- verustundir áttum við, hvort sem var við spjall, eldamennsku eða tafl. Jón var liðtækur skákmaður á sínum yngri árum og hlaut hann m.a. viðurkenningu fyrir. Eins og áður er á minnst ein- kenni það Jón hversu hjálpsamur hann var. Þá var hann gæddur fleiri góðum kostum, svo sem að gera öllum jafn hátt undir höfði, án tillits til stéttar eða stöðu. Jón var einstakt ljúfmenni, alltaf boðinn og búinn til aðstoðar. llonum var það ætíð ofarlega í huga að aðrir hefðu það nógu gott. Þegar ég kveð þennan vin minn í hinsta sinn vil ég láta í ljós þakk- læti frá mér og Sigrúnu fyrir allt það sem hann var okkur. Sigurður Strange Rauði krossinn með myndasamkeppni Rauði kross íslands heldur myndasamkeppni fyrir börn og unglinga til að vekja athygli á hörmungum stríðshrjáðra í heiminum. Alþjóðahreyfing Rauða kross- ins gengst fyrir myndasam- keppni fyrir börn og unglinga að fimmtán ára aldri. Samkeppn- in er liður í alþjóðlegu átaki til hjálpar stríðshrjáðum sem er í undirbúningi og mun ná hámarki næsta vor. Markmið samkeppninnar er að vekja athygli á þeim hörmungum sem óbreyttir borgarar þurfa að þola í stríði. Samkvæmt athugunum Rauða krossins á striðsrekstri nú- tímans eru níu af hverjum tíu sem láta lífið, hljóta örkuml eða eru hraktir á flótta frá heimkynnum sínum óbreyttir borgarar, börn, konur og gamalmenni. Jafnframt er tilgangurinn að upplýsa fólk um hlutverk Rauða krossins í stríði. Hann starfar nú á flestum átakasvæðum í heiminum og hefur á sínum snærum fjölda fólks sem er reiðubúið að hefja hjálparstarf um leið og átök brjót- ast út. í skjóli merkisins, sem nýtur virðingar stríðandi aðila fyrir hlut- leysi, er hægt að lina þjáningar milljóna stríðshrjáðra á hvetju ári. Þátttakendum í myndasam- keppninni er heimilt að nota þá aðferð sem hentar hverjum og ein- um við gerð myndanna. Æskilegt er að þær séu á blaði sem er ekki stærra en A3. Þær skulu merktar á bakhlið með nafni, heimilisfangi og aldri viðkomandi og sendar RKÍ fyrir 1. desember næstkomandi. Utanáskriftin er: Myndasamkeppni Rauði kross íslands, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. Rauði kross íslands mun veita verðlaun fyrir 10 myndir sem vald- ar verða af sérstakri dómnefnd. Fyrstu verðlaun er ferð til Genfar. Allar verðlaunamyndirnar verða sendar til höfuðstöðva Rauða kross- ins í Genf og fara þar fyrir aðra dómnefnd sem einnig velur 10 myndir úr þeirn sem borist hafa frá einstökum landsfélögum Rauða krossins um allan heim. Sigurveg- ararnir 10 fá Genfarferð að launum. Aiþjóðlegu dómnefndina skipa Alexander Hay, fyrrverandi forseti Alþjóðaráðs Rauða krossins, Kristín Svíaprinsessa, Nastassja Kinski, leikkona og Peter Ustinov leikari. (Fréttatilkynning) Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI76677 Erfidrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfi Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi, brauðtertur, fíatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með rjóma. rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fí. Með virðingu, FLUGLEIDIR HÖTEL LOFTLEIDIR REYKJAVlKURFLUGVELLI, IOI R E Y KJ A V I K SlM I: 9 1 - 2 2 3 2 2 Kveðjuorð: Alfreð Gíslason Fæddur 12. desember 1905 Dáinn 13. október 1990 • Við vorum samferða á lífsleiðinni í nokkra áratugi. Hann kom til okkar á Grund ungur læknir, hafði verið í Svíþjóð áður. Alfreð læknir var mikill áhuga- maður, ekki einungis í starfi sínu á Grund, hann starfaði einnig að áfengisvörnum og að þeim unnum við saman um árabil. Fyrstu tilraun- ir með lyfið Antabus gegn áfengis- bolinu gerði hann á Grund. Þá unn- um við og saman í Krabbameinsfé- laginu í Reykjavík og síðar í Krabbameinsfélagi íslands. Um þennan mann væri hægt að skrifa margt og mikið, en á starf- •semi okkar, sem er á ýmsum svið- um, hafði hann einlægan áhuga. Heimilismenn voru vinir hans og er hans minnst með þakklæti og virðingu á Grund. Börnum hans, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ástvinum, t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓHAININ PÉTUR EINARSSON, Fýlshólum 3, Reykjavik, lést í Landspítalanum aðfaranótt 11. nóvember sl. Sigrún Pálsdóttir og aðrir aðstandendur. eru færðar innilegar samúðarkveðj- ur. Gísli Sigurbjörnsson t Elskulegur eiginmaður minn, KARL VILHJÁLMSSON, Bólstaðarhlíð 41, lést í Borgarspítalanum 10. nóvember. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Lára Sigurðardóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar og afi, INGVAR ÍVARSSON, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 14. nóv- ember kl. 1 3.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er vinsamlegast bent á minningarsjóð Borgarspitalans. Gyða Þorsteinsdóttir, Þórir Ingvarsson, Edda Jónasdóttir, Hjördís E. Ingvarsdóttir, Jón Vignir Karlsson, Sigrfður Óiöf Ingvarsdóttir, Þurfður G. Ingvarsdóttir, Árni Pálsson, Ingveldur Ingvarsdóttir, Benedikt Jónasson og barnabörn. t Þökkum innilega ættingjum, vinum og kunningjum sýnda samúð og veittan stuðning við fráfall elskulegs eiginmanns míns, sonar okkar og bróður DAVÍÐS ARNARS GESTSSONAR, Ystaseli 3. Sirjun Yuangthong, Una Traustadóttir, Gestur Guðjónsson, og systkyni. t Innilegar þakkir sendum við öllum, vinum og vandamönnum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BIRGIS S. BOGASONAR. Sérstakar þakkir til félaga úr Fóstbræðrum. Svanhildur Jónsdóttir, Sigrún Elín Birgisdóttir, Kristján Einar Birgisson, Angela Berthold, Jón Gauti Birgisson, Sigríður Ósk Birgisdóttir, Bogi Örn Birgisson, Albert Birgisson, Elin S. Jóhannesdóttir, Páll Samúelsson, Eggert Bogason, Þórhildur Kristjánsdóttir, Sigurlaug Eggertsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.