Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 Umönnunar- og hjúkrunarheimilið Eir: VR leggrir 85 míllj. til byggingarinnar Félagið fær rými fyrir 10-12 félagsmenn SJÚKRASJÓÐUR Verslunarmannafélags Reykjavíkur mun taka þátt í byggingu umönnunar- og hjúkrunarheimilisins Eir, sem byggt verður við Gagnveg í Grafarvogi. Samþykkt var á almenn- um félagsfundi VR á sunnudag að félagið kostaði 10% byggingar- innar, eða sem svarar til 85 milljóna króna byggingarkostnaðar. „Með þessu tryggjum við rými þarna fyrir 10 til 12 af okkar félags- mönnum sem þurfa á slíkri umönn- un og hjúkrun að halda sem þarna verður veitt,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir þessi rými vera um tíunda hluta heimilisins, þar verði samtals um 100 rými. Magnús segir áætlað að fyrsta skóflustungan að Eir verði tekin næstkomandi föstudag. Byggingin verður síðan tekin í notkun í fjórum áföngum. Fyrsti áfangi á að vera tilbúinn í september 1992, annar áfangi í janúar 1993, þriðji áfangi í september 1993 og fjórði áfangi í janúar 1994. Reykjavíkurborg verður aðal- framkvæmdaraðili með um 330 milljóna króna kostnaðarþátttöku. Ennfremur standa að byggingunni Seltjarnarnessbær, Sjómannadag- urinn í Reykjavík og Hafnarfirði, Samtök blindra og sjónskertra á íslandi, sjálfseignarstofnunin Skjól og Félag aðstandenda alzheimer- sjúklinga. Morgunblaðið/Júlíus Tveir árekstrar á TVO umferðarslys urðu með sama hætti með rúm- lega klukkustundar millibili á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar á laugardagskvöldið. Fimm manns slösuðust, enginn lífshættulega, og fimm bílar skemmdust. í báðum tilfellum var bílum ekið norður Kringlumýrarbraut og beygt áleiðis Miklubraut og í veg fyrir bíla á leið suður Kringlumýrarbraut eftir sömu gatnamótum hægri akrein. I fyrri ákrestrinum slösuðust ökumenn beggja bílanna og voru fluttir á slysadeild en í hin- um árekstrinum kastaðist annar bílanna á kyrrstæð- an bíl við gatnamótin og handleggsbrotnaði farþegi í kyrrstæða bílnum, auk þess sm ökumennirnir tveir hlutu meiðsli. Myndin var tekin á slysstað skömmu eftir seinni áreksturinn. VEÐUR VEÐURHORFUR íDAG, 15. NÓVEMBER YFIRLIT í GÆR: Yfir austurströnd Grænlands er 1,033ja mb lægð en um 900 km suðvestur í hafi er heldur vaxandi 975 mb djúp og víðáttumikil lægð, sem hreyfist hægt norður. Heldur hlýnandi veður. SPÁ: Austan- og suðaustanátt, stinningskaldi við suðurströndina, en annars hægara annars staðar. Súld sunnanlands, en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG:Vestlæg átt og skúrir um austanvert landið en austlæg átt og slydduél nyrðra. KÓInandi veður. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða 5 , 5 Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hlti 0 8 veður skýjað skýjað Bergen 7 skýjað Helsinki 0 léttskýjað Kaupmannahöfn 6 skýjað Narssarssuaq 10 léttskýjað Nuuk 1 hálfskýjan Osló 2 skýjað Stokkhólmur 3 léttskýjað Þórshöfn 8 þoka Algarve 20 heiðskirt Amsterdam 8 þokaásíð.klst. Barcelona 18 hálfskýjað Berlín 8 súld Chicago +2 léttskýjað Feneyjar 14 þokumóða Frankfurt 8 þokumóða Glasgow 10 súld Hamborg 8 þokumóða Las Palmas 22 léttskýjað London 14 súldás.klst. Los Angeles 17 skýjað Lúxemborg 9 skýjað Madríd 13 iéttskýjað Malaga 20 hálfskýjað Mallorca 19 skýjað Montreal *3 snjóél New York 3 léttskýjað Orlando 12 alskýjað Parls 12 alskýjað Róm 13 þokumóða Vín 4 súld Washington 5 léttskýjað Winnipeg +10 skýjað Bensínleki úr neðansjávarleiðslu í Örfirisey: Viljum kanna bygg- ingu viðlegukants - segir forsljóri Skeljungs hf. „ÞETTA er geysilega mikil framkvæmd, samt held ég nú að allir séu að komast á þá skoðun að hún sé nauðsynleg," segir Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs hf. um að byggja viðlegukant fyrir olíuskip, sem þau geti lagst upp að við dælingu olíu og bensíns í birgðastöð olíufélaganna í Örfirisey. Hann segist munu senda hafn- aryfirvöldum bréf, þar sem farið er fram á viðræður um þetta, •enda sé það hafnaryfirvalda að sjá um að þessi höfn sé til. Losi skipin við bryggju, segir Kristinn að hætta á mengunarslysum eins og varð á föstudag sé hverfandi. Við losun bensíns á föstudagsmorg- un varð vart leka á neðansjávarleiðslu, en mengun er ekki talin hafa orðið mikil. Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri segir að taka verði Ieiðsluna á land til að kanna ástand hennar. Olíufélagið hf. og Skeljungur hf. reka birgðastöðina i Örfirisey. Eldsneyti sem skipað er á land þar fer um neðansjávarleiðslur. Þær eru þijár, ein fyrir svartolíu, önnur fyrir léttari eldsneytistegundir og sú þriðja til vara. Eldsneyti. frá stöðinni fer í skip við bryggju, eða á bíla í stöðinni. Fyrir nokkrum árum fóru fram bréfaskipti milli félaganna og hafnaryfirvalda um möguleika á byggingu viðlegu- kants fyrir skipin. Síðast segir Kristinn að þáverandi hafnarstjóra hafí verið skrifað bréf í desember 1986. Hann segir þráðinn verða tekinn upp aftur nú, í tilefni af þessu óhappi. „Það eru hafnaryfirvöld sem eiga að sjá um að þessi höfn sé til,“ segir Krsitinn. „Við erum auð- vitað á þeirri skoðun að það eigi að kanna möguleika á að koma upp viðlegukanti við Örfirisey þar sem olíuskip geta lagst að á meðan dæling fer fram. Það sem við náum fram með því er öryggi bæði ski- panna sjálfra og auðvitað alls bún- aðar.“ Hann segir kosti viðlegu- kants meðal annars felast í að all- ur búnaður verði sýnilegur, losun hraðari og hætta á óhöppum hverf- andi. Kristinn segir að í dag fari kaf- ari með leiðslunni til að kanna ástand hennar og verður einkum leitað eftir því, hvort hnjask hafi valdið skemmdum á leiðslunni. Hann segir það hafa komið veru- lega á óvart að leiðslan lak, þar sem hún er aðeins tveggja ára gömul og eigi að vera vel varin. Hann segir að ekki liafi enn borist formlegt erindi um að taka leiðsl- Una á land og telur ekki tímabært að ákveða það, á meðan ekki er meira vitað um hvers vegna lekinn varð. Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri segist telja óhjákvæmi- legt að leiðslan verði tekin á land til skoðunar, enda sé ekki fullnægj- andi að skoða hana neðansjávar eins og komið hafí í ljós fyrr í haust, þegar olíuslysið varð við Laugarnes. „Það var búið að skoða þá leiðslu af kafara nokkrum dög- um áður og í sjálfu sér gaf lýsing- in af henni ekki tilefni til að ætla að lögnin væri svo slæm sem hún reyndist.“ Magnús segist telja ótvírætt að ef komið verður upp viðlegukanti fyrir þessar olíustöðvar, þá yrði aðstaðan gjörbreytt. Hann bendir á að í Helguvík er viðlegukantur. „Skipin leggjast upp að bryggju og þar er allri olíunni landað um lagnir sem er hægt að skoða hven- ær sem er.“ Húsavík: Rómantískir innbrotsþjófar Húsavik. INNBROT var framið í Blómabúðinni Muru við Garðarsbraut á Húsavík að- faranótt sl. sunnudags. Stolið var nokkrum þúsunda króna og einhveijum gjafavör- um en litlar skemmdir voru framkvæmdar. Hinir seku höfðu kveikt á kertum en slökkt á þeim áður en þeir yfirgáfu húsið með illan feng. Lögreglan er með málið í rannsókn en hingað til hafa innbrot verið frekar fátíð á Húsavík. En það er eins og ein- hver skemmdar- og óknyttar- alda hafi farið yfir bæinn í haust því að hin ýmsu skemmd- arverk hafa verið framin í görð- um og á götuljósum. - Fréttaritari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.