Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 Fjölskylda Gísla telur vænlegt að sendimaður fari til Bagdad Steingrímur Hermannsson leitar aðstoðar hjá Arafat FJÖLSKYLDA Gísla H. Sigurðssonar læknis telur að það sé vænleg leið til þess að hann komist frá Bagdad að sendimaður frá íslandi fari til Bagdad. Að sögn eiginkonu Gísla, Birnu G. Hjaltadóttur, lét Gísli þess getið í samtali við hana á laugardag að það hefði sýnt sig varð- andi lausn gísla í írak að vænlegasta leiðin væri sú að sendinefnd eða sendimaður af sama þjóðerni færi til Bagdad. Steóngrímur Hermanns- son forsætisráðherra segir að þessi möguleiki hafi ekki verið ræddur og slíkt sé ekki í undirbúningi svo hann viti til. Hins vegar hefur hann skrifað Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu (PLO), bréf þar sem hann er beðinn um að aðstoða við lausn Gísla. „Ég ætlaði að halda þessu leyndu en þetta hefur hins vegar kvisast út og ég vil ekki vekja neinar vænt- ingar,“ sagði Steingrímur í gærkvöld þegar hann var spurður um bréfið til Arafats. Hann sagðist hafa haft samband að beiðni aðstandenda Gísla við skrifstofu Frelsissamtaka Palestínu í Stokkhólmi og fengið þau svör að þetta væri mjög erfitt mál. Síðan hefði hann tekið þetta má! upp að nýju í bréfi til Arafats fyrir nokkr- um dögum en ekki hefði borist svar við því enn. Bima ræddi símleiðis við Gísla á laugardag, daginn eftir að hann kom til Bagdad. I samtalinu kom fram að Gísli hefði ekki viljað fara frá Kúvæt fyrr en hann hefði fengið afleysingarmann á spítalanum þar sem hann er yfirlæknir á gjörgæslu- og svæfíngardeild. Það hefði loks tekist í lok síðustu viku þegar írask- ur iæknir leysti hann af hóimi og þá fór hann frá Kúvæt. Gísli ók sjálfur til Bagdad og í fylgd með honum var íraskur vinur hans sem unnið hefur hjá sænsku fyrirtæki í Kúvæt. Að sögn Bimu varð Gísli að skiija búslóð þeirra hjóna eftir í Kúvæt. írakinn hefur farið reglulega á milli Bagdad og Kúvætborgar og meðal annars flutt bréf til og frá Gísla. Einnig hefur hann, að sögn Bimu, komið vísinda- greinum frá Gísla áleiðis úr landi en Gísli hefur undanfarið unnið úr viðamiklum rannsóknum sem hann gerði í vor á keðjuverkandi líffæra- bilun (Multiple organ failure). Bima sagðist telja að hin mikla vinna á spítalanum hefði hjálpað Gísla að standast hið andlega álag sem fylgdi vemnni í Kúvæt frá því innrásin var gerð í byijun ágúst. Gísli var eini Vesturlandabúinn sem eftir var í Kúvæt þegar hann fór þaðan ef undan eru skildir Bretar og Banda- ríkjamenn sem enn eru í herkví í sendiráðum ríkjanna í Kúvætborg. Gísli dvelst nú á hóteli í Bagdad og hefur sótt um leyfi til að fara úr landi. Birna sagði að fjölskyldan hefði undanfarha daga mikið velt því fyrir sér hvaða íslendingar gætu helst náð árangri með því að fara til Bagdad og eins hvernig fjár- magna skyldi slíka för. Einnig hefði hún spurst fyrir um þetta atriði í utanríkisráðuneytinu og fengið þau svör að þar væru menn ekki farnir að hugsa svo langt. Aðeins búið að salta í 48 þúsund síldartunnur BÚIÐ var að salta í 48 þúsund tunnur af síld á mánudagsmorg- un, eða 14.400 tunnum minna en á sama tíma í fyrra. Um þetta leyti árið 1985 hafði hins vegar verið saltað í 246 þúsund tunnur af síld. Síldarútvegsnefnd hefur samið um sölu á um 70 þúsund tunnum af síld tii Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur, Þýskalands, Kanada og Bandaríkjanna á þessari veitíð. Góð síldveiði hefur verið við Hvanney, rétt fyrir utan Höfn í Hornafirði, og þar voru 14 síldar- bátar að veiðum eftir hádegið í gær. Delta kaupir meirihluta í Sápugerð- inni Frigg EIGENDUR meirihluta hluta- fjár Sápugerðarinnar Friggjar hf. í Garðabæ hafa gert samn- ing um að selja Delta hf. hluta- bréf sín. Var þetta tilkynnt á fundi með starfsmönnum Friggjar í gær. Frigg er stærsta framleiðslufyr- irtækið á hreinlætisvörum hér á landi og hefur Delta hug á því að reka það áfram í því formi sem verið hefur. Fjörutíu manns vinna hjá fyrirtækinu og er ekki gert ráð fyrir neinum starfsmannabreyt- ingum. Framkvæmdastjóri er Jón Þorsteinn Gunnarsson. Sagði Jón Þorsteinn að reksturinn hefði gengið vel á yfirstandandi ári og magnaukning á framleiðslu væri í kringum 12%. Rekstrarhagnaður væri góður og markaðsstaða fyrir- tækisins traust. Pharmaeo hf., sem á meirihlut- ann í Delta hf., keypti íslensk matvæli hf. í Hafnarfirði í byijun nóvembermánaðar, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu ný- lega. V cstmannaeyj ar: RLR rannsakar lát 19 ára gamals Svía Atvinnuleysistryggingasj óður: Framlag ríkisins dugir tæp- lega fyrir greiðslum út árið Ríkissjóður ábyrgur fyrir greiðslum „ VIÐ ÆTTUM að verða birgir fyrir þennan mánuð því framlag ríkis- ins til Atvinnuleysistryggingasjóðs á að berast um miðjan mánuð- inn,“ segir Eyjólfur Jónsson, forstöðumaður sjóðsins. Hann segir þó að búast megi við að lögbundið framlag í desember muni ekki duga fyrir útstreymi úr sjóðnum. Verkfall yfirmanna á fiskiskipum hefur í för með sér fjöldaatvinnuleysi semjist ekki milli LIÚ og FFSÍ. í sjóðnum eru nú aðeins 37 milljónir kr., eins og fram kom í Morgun- blaðinu á miðvikudag. Ástæðan er sú að losað hefur verið um eign- ir sjóðsins með því að safna eignum í formi skuldabréfa frá Hús- næðisstofnun fyrir alls 1,4 milljarða kr. Að undanfömu hefur aukið at- vinnuleysi í landinu valdið verulegri aukningu bótagreiðslna Atvinnu- leysistryggingasjóðs og hefur fram- lag ríkisins og atvinnurekenda til sjóðsins engan veginn dugað á móti útstreymi bótagreiðslna. Eyj- ólfur sagðist treysta því að ríkið legði fram bætur enda er ríkissjóður ábyrgur fyrir greiðslum úr sjóðnum. Aftur á móti er ijóst að sjóðurinn hefur ekki yfir að ráða vel söluhæf- um bréfum, eins og fram kemur í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, þar sem reiknað er með auknu beinu framlagi til sjóðsins frá ríkinu um: fram það sem lög gera ráð fyrir. í ár er heildarframlag ríkisins og at- vinnurekenda rúmur milljarður kr. en á næsta ári er gert ráð fyrir 200 milljónum úr ríkissjóði umfram það. Áætlað er að vinnustöðvun í fisk- vinnslu végna yfírvofandi verkfalls yfirmanna á fiskiskipum muni kosta 300 milljónir króna í atvinnuleysis- bætur á mánuði. NÍTJÁN ára gamall sænskur piltur sem var við fiskvinnslustörf í Vest- mannaeyjum lést síðastliðinn föstudag af völdum blóðeitrunar sem hann fékk upp úr vírussýkingu en um 50 mínútur liðu frá því fyrst var haft. samband við lækni þar til sjúklingurinn var fluttur á sjúkra- hús. Maðurinn lést um þremur klukkustundum síðar. Rannsóknarlög- reglan var fengin til að annast rannsókn málsins að ósk fyrirtækisins vegna ýmissa sögusagna í kringum málið. Svíinn hafði unnið í um mánað- artíma við fiskvinnslu í Eyjum. Hjá fyrirtækinu unnu fleiri Svíar og eru þeir nú á heimleið, bæði vegna verk- efnaskorts og þessa atviks, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Rannsókn málsins er því sem næst lokið en hún beindist að því hvort beðið hefði verið um aðstoð læknis án árangurs og það leitt til þess að drengurinn hafi legið lengi helsjúkur í herbergi sínu í verbúðinni. Pilturinn hafði unnið tólf tíma vakt síðastliðinn fimmtudag en að morgni föstudags kvaðst hann kenna tii slappleika og mætti ekki til vinnu. Um kl. 9.30 er vitjað um hann á ný og er hann þá orðinn mikið veikur, með útbrot um allan líkamann. Fé- lagar hans héldu í fyrstu að hann væri með mislinga. Um kl. 12.10 höfðu þeir samband við lækni og reyndu að lýsa sjúkdómi piltsins en læknirinn taldi að ekki væri um bráðatilfelli að ræða og vildi að sjúkl- ingurinn kæmi sjálfur á spítalann. Félagar hins látna telja lækninn hafa tekið sér dónalega og ekki hafa svar- að málaleitan þeirra. Kl. 12.30 höfðu þeir samband við lögreglu og sjúkl- ingurinn var fluttur á sjúkrahúsið. Þangað var hann kominn um kl. 13 en dó um þremur klukkustundum síðar. Lögreglan hefur ekki tekið skýrslu af lækni sem var á vakt. Yfirlæknir sjúkrahússins vildi ekki tjá sig um málið í gær. Rannsóknarlögreglan í Vestmannaeyjum á von á því að málið verði sent landlækni til frekari athugunar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.