Morgunblaðið - 13.11.1990, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990
GÍRÓ-SEÐÍLl.
S2
SSS«
>l> -----
«• oa
0910S4-3119
•^rTooo—
---700
/XGÖTO
m,
Jte
53
Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar:
Þjónusta við fatlaða í nálæg'ð
við einstakling og fjölskyldu
Næstu vikur verður á Hótel Holti sér-
stakt tilboð í hádeginu, sem samanstend-
ur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver velur að vild.
Þríréttaður hádegisverður á viðráðanlegu
verði, án þess að slakað sé á gæðakröfum.
Bergstaðastrœii 37, Strni 91-25700
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi frá Þroskahjálp:
í tengslum við fulltrúafund
Landssamtakanna Þroskahjálpar
var haldið málþingþann.19. og 20.
október sl. undir yfirskriftinni Auk-
in ábyrgð sveitarfélaga í þjónustu
við fatiaða.
Viðfangsefni þetta var valið með
tilliti til þess að verið er að endur-
skoða lög um málefni fatlaðra nr.
41/1983 auk þess sem frumvarp
til laga um félagsþjónustu sveitar-
félaga mun verða endurflutt á kom-
andi þingi.
Liðinn er u.þ.b. áratugur síðan
lög um aðstoð við þroskahefta voru
sett, en þau mörkuðu tímamót í
þjónustu hins opinbera við þroska-
hefta og reyndar fatlaða alla. Það
fyrirkomulag, að ríkið sæi að mestu
um alla þjónustu við fatiaða, sem
við upphaf þessatímabils þótti sjálf-
sagður hlutur, vekur nú efasemdir
margra ekki síst þeirra sem nota
þurfa þessa þjónustu, fatlaðra
sjálfra og aðstandenda þeirra. Því
fannst stjórn og framkvæmdaráði
Landssamtakanna Þroskahjálpar
tímabært að hefja umræðu um
aukna ábyrgð sveitarfélaganna í
þjónustu við fatlaða þrátt fyrir að
ný lög um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga hafi enn aukið skyldur
ríkisins, sem ber nú alfarið ábyrgð
á allri sérstakri þjónustu við fatlaða.
Til þess að hefja þessa umræðu
fengu samtökin til liðs við sig
stjórnmálamenn úr sveitarstjórnum
og af Alþingi auk þess sem fulltrú-
ar foreldra fatlaðra fjölluðu um
reynslu sína af þjónustu við fatlaða.
Til fundarins var boðið stórum
hóp fólks auk fulltrúa aðildarfélag-
anna, foreldrum, fólki starfandi í
sveitarstjórnum, fulltrúum þing-
flokka o.fl. Um 100 manns sóttu
málþingið sem sýnir þann mikla
áhuga sem er á þessu viðfangsefni.
Við setningu málþingsiris flutti
Jóhanna Sigurðardóttir, ráðherra
málefna fatlaðra og sveitarstjórnar-
mála, mjög greinargott ávarp, þar
sem hún m.a. fjallaði um endur-
skoðun laga um málefni fatlaðra
og hvernig þeirri vinnu miðaði. Hún
kom einnig inn á vandkvæði þau
sem skapast við framkvæmd ýmissa
velferðarmála í sveitarfélögum
vegna smæðar þeirra. Enn fremur
ræddi ráðherra um ýmsa vankanta
núverandi laga um málefni fatlaðra,
m.a. það fyrirkomulag að svæðis-
stjórnir eru í senn eftirlits- og
rekstraraðilar stofnana fyrir fatlaða
en slíkt skapar einatt hagsmuna-
árekstra.
Eftirfarandi frummælendur
töluðu á sjálfu málþinginu:
Birgir ísleifur Gunnarsson al-
þingismaður og fyrrverandi borgar-
stjóri í Reykjavík, Ellen Andersen,
móðir og þroskaþjálfanemi, Guðrún
Zoéga, formaður félagsmálaráðs
Reykjavíkurborgar, Gunnhildur
Bragadóttir, móðir og sjúkraliði,
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti
bæjarstjórnar í Hafnarfirði, Mar-
grét Frímannsdóttir, alþingismaður
og fyrrverandi oddviti Stokkseyrar-
hrepps, Itannveig Guðmundsdóttir,
alþingismaður og fyrrverandi bæj-
arfulltrúi í Kópavogi. Valgerður
Magnúsdóttir sálfræðingur, Akur-
eyri, fulltrúi Kvennalistans, og Val-
gerður Hilmarsdóttir oddviti,
Fremstagili, Engihlíðarhreppi, í
stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
í ágætUm fyrirlestrum sínun
nálguðust fí'ummælendur efnið á
mjög margbreytilegan hátt þannig
að áheyrendur fengu greinargóða
mynd af ýmsum sjónarhornum
þeirra sem starfa í stjórnmálum og
þeirra sem nota þá þjónustu sem
stjórnmálamenn hafa komið á lagg-
irnar.
Það er þó skemmst frá því að
segja að allir framsögumennirnir
voru á þeirri skoðun, að þjónustu
við fatlaða sé best fyrir komið í sem
mestri nálægð við einstaklinginn
sjálfan og fjölskyldu hans.
Bæði alþingis- og sveitarstjórn-
arfólkið var sammála um að vinda
beri bráðan bug að því að flytja
ýmsa þjónustu við fatlaða frá ríkinu
til sveitarfélaganna. Mismunandi
áhersla var á hversu fljótt og í
hversu miklum mæli menn vildu sjá
þetta gerast en allir lögðu áherslu
á að jafnframt þyrfti að tryggja
sveitarfélögunum tekjustofna til
þess að standa undir þjónustunni.
Einungis komu fram efasemdir hjá
einum framsögumanni um að það
breytti þjónustunni hver veitti hana.
Fulltrúar foreldra lögðu áherslu
á niikilvægi þess að fá þjónustuna
í heimabyggð, þar sem þar væri oft
skilningur og þekking á aðstæðum
sem ekki er mögulegur þegar um
meiri miðstýringu er að ræða.^
Að loknum fyririestrunum hófust
umræður, bæði almennar og pall-
borðsumræður. í umræðunum
komu fram svipuð viðhorf og hjá
framsögumönnum, þótt einstaka
rödd léti í ljósi efasaemdir um áhuga
og/eða kunnáttu sveitarstjórnar-
manna til þess að taka þetta verk-
efni að sér. margir bentu þó á að
besti skólinn, bæði til þess að axla
ábyrgð og öðlast þekkingu á mál-
efninu, sé einmitt að fá verkefnið
í hendur og vinna að því.
Að loknu málþinginu hófst hinn
eiginlegi fulltrúafundur, þar sem
m.a. var fjallað um viðfangsefni
málþingsins. í lok fulltrúafundarins
var eftirfarandi ályktun samþykkt
samhljóða:
Ályktun
Fulltrúafundur Landssamtak-
anna Þroskahjálpar haldinn 20.
október 1990 beinir þeim tilmælum
til stjórnvalda, að við setningu laga
og skipulagningu þjónustu við fatl-
aða verði að því unnið að færa þjón-
ustuna frá ríki til sveitarfélaga eða
samtaka þeirra. Sérstaklega skal
þess gætt þegar um er að ræða
almenna þjónustu sveitarfélaga við
íbúa sína.
Jafnframt verði sveitarfélögum
tryggður fjárhagslegur stuðningur
til að veita þjónústuna.
Fundurinn lýsir yfir ánægju sinni
með framkomið frumvarp um fé-
lagslega þjónustu sveitarfélaga sem
framfaraspor en leggur áherslu á
nauðsyn öflugrar löggjafar um al-
hliða félagsmálaþjónustu.
Fundurinn beinir þeim tilmælum
til félagsmálaráðlierra að hann beiti
sér fyi'ir því að komið verði á fót
starfshópi er móti tillögur um að
markvisst verði unnið að því að
færa félagsleg verkefni frá ríki Lil
sveitarfélaganna og því lokið fyrir
árið 2000.
AGREIÐENDU1
EINDAG!
STAÐGREIÐSLUFJÁR
ER 15. HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt
að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar.
Munið að gera skil tímanlega!
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
h
»
I
»
»
k
►.
»
>
f
i
►
►
»
I-