Morgunblaðið - 13.11.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990
Vígsla Akihitos keisara í Japan:
Hásætisgöngu mótmælt
með fluerskeytaárásum
Tókío. Rpnfpr. ^
HÁSÆTISGANGA Akihitos Japanskeisara fór fram í höll hans í
Tókíó í gær að viðstöddum 2.500 gestum, þar af 65 þjóðhöfðingjum.
Nokkrar sprengingar urðu í Tókíó er róttækir vinstrimenn skutu
heimatilbúnum flugskeytum til að mótmæla athöfninni.
Á meðal gesta við athöfnina voru
Baidvin Belgíukonungur, Karl
Bretaprins, Richard von Weizsacker
forseti Þýskalands, Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands og Dan
Quayle varaforseti Bandaríkjanna.
Akihito, sem er afkomandi Sólgyðj-
unnar samkvæmt hinni fornu
shinto-trú Japana, flutti stutt ávarp
áður en hann gekk til hásætis síns.
Hann sórþess eið að virða í hvívetna
stjórnarskrána sem Bandaríkja-
menn sömdu eftir heimsstyrjöldina
síðari, en þar var keisarinn sviptur
alræðisvöldum og aðeins sagður
„tákn ríkisins og einingar þjóðar-
innar“. Ráðherrar og hirðmenn
keisarans hrópuðu að því loknu
þrisvar sinnum „Banzai!“ eða „Meg-
ir þú lifa í þúsund ár!“
Keisarahjónin settust síðan í há-
sæti sín, sem hulin voru tjaldi. Hirð-
menn börðu bumbur er tjöldin voru
dregin upp.
Skömmu áður en athöfnin hófst
sprungu fimm heimatilbúin flug-
skeyti á götum Tókíó-borgar, um
kílómetra frá keisarahöllinni. Eldur
braust einnig út í þremur neðan-
jarðarlestum og talið er að kveikt
hafi verið í þeim að yfirlögðu ráði.
Þá brunnu tvö shinto-hof til kaldra
kola og tvö til viðbótar skemmdust
alvarlega í eldi. Áður hafði flug-
skeytum verið skotið á fjórar stöðv-
ar japanska hersins í grennd við
Tókíó og á bandarískan herflugvöll
vestan við höfuðborgina. Enginn
varð fyrir meiðslum í árásunum.
Gestir við hásætisgönguna urðu
ekki varir við árásirnar. Gífurlegar
öryggisráðstafanir voru gerðar
vegna athafnarinnar, um 37.000
öryggisverðir gengu um götur
Tókíó og þyrlur flugu yfir borgina,
auk þess sem loftbelgir voru notað-
ir til eftirlits.
Keisarahjónin létu árásirnar ekki
aftra sér frá því að fara í hálfrar
klukkustundar ökuferð um borgina
í þaklausum Rolls Royce-bíl eins
og ráðgert hafði verið. Um 110.000
manns fylgdust með ferð þeirra en
gert hafði verið ráð fyrir mun fleira
fólki, eða um 300.000.
Akihito tekur formlega keis-
aravígslu 22. nóvember. Róttækir
vinstrimenn í Japan eru andvígir
vígslunni þar sem þeir telja hana
eiga rætur að rekja til skuggalegrar
hemaðarfortíðar. Margir venjulegir
skattgreiðendur eru henni einnig
mótfallnir þar sem hún kostar um
12,3 milljarða jena, 6,3 milljarða
ÍSK.
Viðræður Gorbatsjovs og Jeltsíns:
Líkur á samkomulagi
um valdaskiptingu
Moskvu. Reuter. ■*“ V—/
Reuter
Akihito Japanskeisari og kona hans, Michiko, ganga út úr keisara-
höllinni í Tókíó eftir hásætisgöngu þeirra í gær.
VIÐRÆÐUR Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og Borís Jeltsíns,
forseta Rússlands, á sunnudag hafa aukið vonir um að þeim takist
að semja um ágreiningsefni sín, að sögn TASS-fréttastofunnar sov-
ésku. Takist það ekki er hætta á öngþveiti og harkalegum átökum
eftir áramót er Moskvustjórnin og stjórnvöld í Rússlandi fara að
reyna að innheimta skatta og önnur gjöld af sömu fyrirtækjum.
TASS, er dregur taum Gor-
batsjovs, sagði að Jeltsín virtist
hafa áttað sig á því að án stuðn-
ings Gorbatjovs yrði engum um-
bótaáformum hrundið í framkvæmd
í Rússlandi. Rússneska þingið hefur
ákveðið að koma á róttækum um-
bótum í átt til markaðsskipulags,
svonefndri Sjatalín-áætlun, en Gor-
batsjov og Níkolaj Ryzhkov forsæt-
isráðherra hafa með samþykki sov-
éska þingsins ákveðið að fara mun
hægar í sakirnar. Jeltsín og sam-
verkamenn vilja algert sjálfstæði
Rússlands í efnahagsmálum. Auk
þess hefur Jeltsín hótað að Rússar
taki sér síðar víðtækari völd, jafn-
vel í utanríkismálum. Gorbatsjov
hefur samþykkt að einstök lýðveldi
fái aukin völd í eigin málum en
heimtar m.a. að yfirstjórn fjárlaga-
gerðar, auðlinda og bankamála
verði áfram í höndum Moskvu-
manna.
Er Jeltsín ræddi við rússneska
embættismenn í gær sagðist hann
hafa fullvissað Gorbatsjov um að
hann vildi ekki sundra sovéska sam-
bandsríkinu. Samkomulag hefði
orðið um að setja á laggirnar nefnd
er kanna skyldi skiptingu valda
milli Sovétstjómarinnar og ein-
stakra lýðvelda en mörg þeirra hafa
þegar krafist fulls sjálfstæðis.
Rússland er langstærst og fjöl-
mennast lýðveldanna og auðugast
af náttúruauðlindum.
Makedonía:
Kröfur um að þingkosningam-
ar verði úrskurðaðar óefildar
Skopje. Reuter.
SEX stjórnmálaflokkar í júgóslavneska lýðveldinu Makedoníu kröfð-
ust þess í gær að fyrri umferð fyrstu fijálsu þingkosninganna í lýð-
veldinu í 45 ár, sem fram fór á sunnudag, verði lýst ómerk þar sem
margir Makedoníumenn af albönskum uppruna hafi greitt atkvæði
oftar en einu sinni.
Utvarpið í Zagreb í Króatíu sagði
að kjörstjórn hefði ákveðið að heim-
ila Makedoníumönnum, sem starfa
erlendis, að greiða atkvæði ef þeir
framvísuðu vegabréfum. Fólk af
albönskum uppmna hefði misnotað
þessa heimild með því að greiða
atkvæði á fleiri en einum kjörstað.
Erlend eftirlitsnefnd sagðist ekki
hafa séð neitt athugavert við kosn-
ingarnar. Sex flokkar makedon-
ískra þjóðemissinna kröfðust þess
hins vegar að kosningarnar yrðu
gerðar ógildar vegna viðamikils
kosningasvindls Albana og stuðn-
ingsmanna kommúnistaflokksins í
lýðveldinu.
Þúsundir manna söfnuðust sam-
an í tveimur borgum lýðveldisins
til að mótmæla meintum kosninga-
svikum Albana. Um þúsund Alban-
ir fóru hins vegar í mótmælagöngu
í borginni Struga til að krefjast
þess að lögreglan skilaði vegabréf-
um 39 Albana, sem grunaðir eru
um að hafa komið sér hjá því að
gegna herþjónustu. Ekki var vitað
hvort til átaka hefði komið.
Talsmenn kommúnistaflokksins
og Bandalags umbótaaflanna, undir
forystu Ante Markovics, forsætis-
ráðherra Júgóslavíu sem er Make-
doníumaður, sögðu líklegt að kosn-
ingarnar yrðu endurteknar á nokkr-
um svæðum lýðveldisins.
Ráðgert er að síðari umferð kosn-
inganna fari fram 25. nóvember.
Evrópuþingið:
Vilja kanna möguleikana á um-
fangsminni samningum við EFTA
Brassel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í SÍÐUSTU viku var haldinn sameiginlegur fundur þingmanna
frá EFTA-ríkjunum og þingmanna úr þeirri nefnd þings Evrópu-
bandalagsins (EB) sem fer fram með samskipti við ríki utan banda-
lagsins. Á fundinum, sem haldinn var í Lúxemborg, skiptust þing-
menn á skoðunum um samskipti Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) og EB. í máli þingmanna EB kom m.a. fram að ef til
vill ættu bandalögin að leita umfangsminni samninga en stefnt
er að í fyrirhugaðum samningum um Evrópska efnahagssvæðið
(EES).
Fulltrúi framkvæmdastjómar
EB, Robert Cohen, gerði grein
fyrir stöðu viðræðnanna við EFTA
og sagði að framkvæmdastjórnin
væri hóflega bjartsýn á árangur.
Segja mætti að samkomulag væri
um rúmlega 90% af þeim reglum
EB sem eru til umræðu en mikið
bæri á milli hvað varðaði fyrirvara
- EFTA-ríkjanna sem væra alltof
margir og umfangsmiklir. Ljóst
væri að ekki væri hægt að upp-
fylla kröfur EFTA um fríverslun
með sjávarafurðir nema tekið
væri mið af hinni sameiginlegu
fiskveiðistefnu EB, sama gilti um
landbúnaðarafurðir. Cohen sagði
ljóst að EB hefði styrkt EFTA
mjög með kröfu sinni um að aðild-
arríki þess hefðu sameiginlegan
talsmann í viðræðunum. Það væri
hins vegar ekki nóg, koma þyrfti
á fót stofnunum innan EFTA sem
dyggðu til eftirlits og aðhalds inn-
an EES.
Samkvæmt óstaðfestum heim-
ildum í Genf er gert ráð fyrir því
að bæta þurfi 900 starfsmönnum
við þá rúmlega eitt hundrað sem
nú starfa á vegum EFTA ef af
EES verður.
Þingmenn EB lögðu áherslu á
að einhvers konar samráð við
EFTA um ákvarðanir væri æski-
legt en ekki kæmi til greina neins
konar bein aðild að ákvörðunum.
Flestir töldu að samningaviðræð-
unum yrði ekki lokið fyrr en í
fyrsta lagi næsta vor en sá tími
sem þá verður til stefnu fram að
1. janúar 1993 ætti að nægja til
að samningurinn hljóti staðfest-
ingu bæði Evrópubandalagsins og
þjóðþinga EFTA-ríkjanna.
Tvö aðildarríkja EB hafa gert
fyrirvara um að hugsanlega þurfi
að leggja samninginn fyrir þjóð-
þing þeirra, Spánn og Grikkland.
Ef af því verður gæti gildistaka
EES samkomulags tafist nokkuð.
Þingmenn EFTA-ríkjanna
lögðu áherslu á að EFTA hefði
engan hug á að hafa afskipti af
innri ákvörðunum EB heldur ein-
ungis ákvörðunum sem varða
EES. Þingmenn EB sögðu að það
kæmi í sama stað niður. Willy de
Clercq, formaður nefndar Evrópu-
þingsins, sagði augljóst að mikill
misskilningur ríkti í röðum EFTA,
hann lagði áherslu á orð sín með
upplestri úr samþykktum Evrópu-
þingsins um samskipti EB við
EFTA en þar kemur skýrt fram
að ekki kemur til greina af hálfu
þingsins að fallast á neins konar
aðild EFTA að ákvörðunum innan
EB. Giorgio Russetti, talsmaður
nefndar EB-þingsins í málefnum
EFTA, sagði að þingmenn vildu
umfram allt treysta samskipti við
EFTA en miklar efasemdir væru
um ágæti EES. Það væri í raun-
inni miklu heppilegra að EFTA-
ríkin sæktu um aðild. Hann sagði
að nefndarmönnum virtist sem
ágreiningur væri innan EFTA og
miklar hræringar væru innan
Fríverslunarbandalagsins í um-
ræðum og afstöðu til mögulegrar
aðildar að EB. Ef það blasti við
að flest EFTA ríkjanna vildu
sækja um aðild að EB væri best
að hætta EES viðræðunum sem
yrðu enda gagnslausar þá. Aðrir
þingmenn sögðu að EFTA-ríkin
yrðu að skilja að þegar rætt væri
um frelsin fjögur væri átt við fjög-
ur en ekki þrjú. EFTA-ríkin virt-
ast ekki hafa áttað sig á því að
EB snýst um fólk en ekki einung-
is innflutningskvóta og fyrirtæki.
Það væri óhugsandi að semja upp
á einhveijar undanþágur hvað það
varðaði. Þess vegna væri ef til
vill affarasælla að leita einhverra
annarra lausna á samskiptum
EFTA og EB en fælust í EES.
Hugsa mætti sér einhveija út-
þynnta útgáfu af EES, eins konar
viðbót við gildandi fríverslunar-
samninga. Gera mætti aðgreinda
samninga um sérhvert atriði við
EFTA-ríkin í heild eða hvert í sínu
lagi. Flestir þingmenn Evrópu-
þingsins virtust þeirrar skoðunar
að til að ná markmiðum sínum
yrðu EFTA-ríkin að sækja um
Willy de Clercq.
aðild en henni myndu allir fagna.
EFTA-ríkin litu á samninginn um
EES sem áfanga á leið til ein-
hvers annars, eitt skref í átt til
aðildar. Það virtist ekki skynsam-
legt að setja á laggirnar eitthvað
1. janúar 1993 og eitthvað allt
annað hugsanlega ári seinna.
Aðspurðir um fundinn sögðu
margir þingmanna að fulltrúi ís-
lands hefði flutt mál sitt á skel-
eggastan hátt, það væri engum
vafa undirorpið hver afstaða ís-
lendinga væri sem ekki væri alveg
ljóst hvað aðra varðaði. Næsti
sameiginlegi fundur þingmanna
verður að öllum líkindum haldinn
á Hótel Sögu í Reykjavík í júní á
næsta ári.