Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 31 Morgunblaðið/Þorkell Líkan að Grafarvogskirkju, verðlaunatillögu arktitektanna Finns Björgvinssonar og Hilmars Þórs Björnssonar. Verðlaun veitt fyrir til- lögu að Grafarvogskirkju VERÐLAUN voru afhent í gær í félagsheimilinu Fjörgyn í Grafar- vogi vegna samkeppni um teikningar að kirkju fyrir Grafarvogssöfn- uð. Arkitektarnir Finnur Björgvinsson og Hilmar Þór Björnsson hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína sem þótti áhugaverð og nýst- árleg. Valdar voru upphaflega þijár til- lögur úr sex sem bárust og að end- ingu varð tillaga Finns og Hilmars Þórs fyrir valinu. Ágúst ísfeld, formaður sóknarnefndar Grafar- vogssóknar, sagði að verðlaunatil- lagan væri líklega ódýrasti kostur- inn auk þess sem allt fyrirkomulag innan dyra væri mjög hagkvæmt. „Það verða ekki miklir erfiðleikar að koma fyrir tveimur til þremur athöfnum í einu og hægt verður að aðskilja mikið rýmið. Kirkjuskip- ið sjálft verður ekki mjög stórt, inn- an við 300 manns í sæti, en það er hægt að tvöfalda þann fjölda með því að taka í notkun þá sali að það rými sem fyrir hendi eru,“ sagði Ágúst. Hann sagði að þetta væru aðeins hugmyndir ennþá og engin kostnað- aráætlun hefði verið gerð. Auk þess væri eftir að útfæra ýmis atriði í tillögunni, eins og til dæmis endan- lega stærð kirkjunnar og hvort gert verði ráð fyrir útibúi Borgarbóka- safnsins í kjallara hennar eður ei. Það hefði verið lagt fyrir borgarráð en svar hefði enn ekki borist. Ágúst sagði með öllu óljóst hven- ær bygging kirkjunnar gæti hafist. Kirkjan kemur til með að standa neðan við götuna Fjörgyn, sem stendur Logafold og Hverafold saman, skammt frá Gullinbrú. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA 1 12. nóvember. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(st) 115,00 • 81,00 94,43 90,834 : B.577.216,80 Þorskurjósl.) 85,00 63,00 83,76 2,167 181.514,00 Ýsa (sl.) 120,00 67,00 95,35 14,142 1.348.467,00 Ýsa (ósl.) 86,00 71,00 78,10 8,192 639.763,00 Blandað 26,00 20,00 24,19 2,000 48.376,00 Gellur 350,00 350,00 350,00 3 1.050,00 Karfi 42,00 32,00 34,84 768 27.454,00 Keila 400,00 24,00 17,16 1,264 21.687,00 Kinnar 255,00 170,00 223,17 115 25.665,00 Langa 78,00 35,00 68,76 6,229 428,286,00 Lúða 410,00 260,00 357,26 1,167 416,920,00 Lýsa 20,00 18,00 18,25 1,3113 23.960,00 Skata 45,00 45,00 45,00 16 720,00 Steinbítur 62,00 53,00 57,87 1,114 64.472,00 Ufsi 49,00 35,00 47,92 13,568 650.246,60 Undirmál 75,00 28,00 67,88 3,388 229.994,00 Samtals 86,71 146.301 12.685.791,40 FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - YTRA I SKIPASÖLUR í Bretlandi 5.-9. nóvember Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð Magn Heildar- (kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.) Þorskur 167,79 110,300 18.506.880,07 Ýsa 138,76 19,700 2.733.477,09 Ufsi 68,31 28,400 1.940.012,07 Karfi 54,76 1,300 71.181,69 Koli 90,60 850 77.010,69 Grálúða 0,00 0,00 0,00 Blandað 139,29 12,110 1.686.822,66 Samtals 144,88 172,660 25.015.384,27 Selt var úr Garðey SF 122 og Sunnutindi SU 59. GÁMASÖLUR í Bretlandi 5.-9. nóvember Þorskur - 167,47 337,730 56.561.321,88 Ýsa 156,73 304,125 47.664.393,72 Ufsi 72,86 41,795 3.045.125,85 Karfi 80,44 27,500 2.212.183,27 Koli 110,03 250,368 27.547.990,27 Grálúða 130,34 17,850 2.326.645,82 Blandað 123,25 138,714 17.096.327,68 Samtals 139,93 1.118,083 156.454.074,09 VESTUR-ÞÝSKALAND 5.-9. nóvember Þorskur 123,39 12,752 1.573.446,58 Ýsa 97,76 930 90.916,53 Ufsi 81,25 84,599 6.873.788,82 Karfi 103,89 490,297 50.937.285,82 Koli 0,00 0,00 0,00 Grálúða 130,48 25,137 3.279.803,44 Blandað 51,66 53,743 2.776.276,99 Samtals 98,18 667,458 65.531.518,19 j Selt var úr Rán HF 4, Hauk GK 25, Skafta SK 3 og Hoffelli SU 80. Frá sundmóti Rangæinga á Hvolsvelli. Hvolsvöllur: Morgunblaðið/Steinunn Baldur vann Rang- æingamótið í sundi llvolsvelli. RANGÆINGAMÓT í sundi var haldið á Hvolsvelli 3. nóvember sl. Þrjú félög sendu lið til keppni, þ.e. ungmennafélögin Baldur, Hvolhreppi, Hekla Rangárvallahreppi og Trausti, V-Eyjafjalla- hreppi. Baldur vann mótið með nokkrum yfirburðum, fékk 224 stig, en Hekla varð í 2. sæti með 176 stig. Vaxandi sundáhugi er nú í hér- Hvolsvellinga undanfarna mánuði aðinu enda nýlegar sundlaugar bæði á Hellu og Hvolsvelli. Ung íþróttakennarahjón, þau Harpa Rós Björgvinsdóttir og Auðunn Guðjónsson, voru ráðin til starfa á Hvolsvelli sl. vor. Harpa Rós 'fur þjálfað hið unga sundlið og er starf hennar þegar farið að skila árangri. Lið Baldurs lenti í öðru sæti á sundmóti sem haldið var á Sel- fossi nýlega og þykir það góður árangur. - S.Ó.K. Systir Plianúela og Margrét Hróbjartsdóttir kristniboði. Maríusystur á ferð Afmælis- tónleikar Steina hf. í TILEFNI af 15 ára afmæli Steina hf. verða haldnir þrennir tónleikar á Púlsinum, Vitastíg 3, Reykjavík. Þriðjudaginn 13. kemur fram hljómsveitin Ný dönsk, 14. nóvember hljómsveitin Todmobile og Bubbi Morthens 15. nóvember. Allir þessir flytjendur munu flytja lög, sem út koma á vegum Steina hf. núna í nóvember. í fréttatilkynn- ingu frá Steinum hf. segir, a tón- leikarnir verði teknir upp og úr þeim unnir þrír 30 mínútna þættir sem sendir verði út á Stöð 2 og hafi Egill Eðvaldsson verið ráðinn sérstaklega sem upptökustjóri vegna þessarar þáttagerðar. Einnig verði hljómleikarnir teknir upp á 24 rása segulband og jafnvel fyrir- hugað að hlutar þeirra verði gefnir út á hijómplötu síðar meir. Einungis 100 miðar verða seldir á hverja tónleika og er forsala á þeim í hljómplötuverslun Steina hf. í Austurstræti 22. -----• ♦ ♦ Skáís fyrir Stöð 2: Sjálfstæðis- flokknr fengi 30 þingmenn SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fengi rétt röskan helming at- kvæða og 30 þingmenn, ef nú væri kosið til Alþingis, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar, sem Skáís hefur gert fyrir Stöð 2. Framsóknarflokkurinn fengi 18% atkvæða og 14 þingmenn, Alþýðu- flokkur 11,2% og 7 þingmenn, Al- þýðubandalagið 10,4% og 8 þing- menn og Kvennalistinn 6,5% og 4 þingmenn. Af þeim sem tóku afstöðu til ríkis- stjórnarinnar voru 56,9% á móti henni og 43,1% stuðningsmenn. Þeir sem tóku afstöðu til ríkis- stjórnarinnar voru 82,1% þeirra, sem spurðir voru, en 63,3% aðspurðra tóku afstöðu til stjórnmálaflokka. ■ Á HORNl Hverfisgötu og Snorrabrautar, þ.e. Hverfisgötu 105, hefur ný verslun verið opnuð, Nýmagasin. Verslunin opnaði leggur áherslu á listrænar vörur. Áhersla er iögð á sem flestar vöru- tegundir og má þar nefna smáar FORYSTUSYSTIR hinna evang- elísku Maríusystra á Norðurlönd- um, systir Phanúela, og systir Jósuana frá Noregi verða hér á og stórar styttur og vasa, kertastj- aka, eyrnalokka, nælur og nytsama hluti s.s. áhöld fyrirtómstundariðju, smíðaáhöld til heimilisnota o.fl. Einnig er verslunin með hljómplöt- ur, bækur og fatnað fyrir alla ald- urshópa. landi dagana 14.-22. nóvember. Stuðningshópur systrasamfé- lagsins hér á landi hefur starfað síðan 1983. Heimsókn systranna hefst að þessu sinni með almennri samkomu í Neskirkju fimmtudag- inn 15. nóvember kl. 20.30 og kvöldsamkomur verða á ýmsum stöðum öll kvöld heimsóknarinnar nema laugardagskvöldið. Systir Phanúela talar auk þess við guðs- þjónustu í Laugarneskirkju sunnu- daginn 18. nóvember kl. 11.00. I fréttatilkynningu segir að mönnum gefist kostur á að ganga í stuðningshóp systranna. ■ ÞANN 13. nóvember kl. 17.10 flytur Snjólfur Olafsson dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskól- ans erindi um aðferðir til að auð- velda ákvarðanir um flókin mál. Margar ákvarðanir verður að taka án þess að nauðsynlegar upplýsing- ar séu fyrir hendi. Áuk þess geta þær upplýsingar sem til eru verið vafasamar og misvísandi og mikil óvissa ríkir oftast um framtíðina. Þegar yfirsýn yfir málið er ónóg og hópur manna þarf að komast að sameiginlegri niðurstöðu getur Olíuverö á Rotterdam-markaði, síðustu tiu vikur, 31. ág. - 9. nóv., doliarar hvert tonn verið ærið vandasamt að rata á réttu lausnirnar. Það eru ýmsar leiðir færar til að auðvelda ákvarð- anatöku um flókin viðfangsefni, ein þeirra er að nota nýlegar aðferði'r aðgerðarannsókna. Þessar aðferðir má nota án sérþekkingar á stærð- fræði og ættu að henta mörgum. I fyrirlestrinum verður gefið yfirlit yfir þessar aðferðir, þijár þeirra kynntar með dæmum og útskýrt hvernig og hveijum þær geta kom- ið að gagni. Fundarstaður er stofa 101 í Odda, húsi Háskóla íslands, á móts við Norræna liúsið. Fund- urinn er öllum opin. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.