Morgunblaðið - 13.11.1990, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Togarinn Þórshamar við höfnina í Þórshöfn.
Nóg að gera á Þórshöfn:
Unnið í loðnuverk-
smiðjunni á vöktum
Þórshöfn.
ÞAÐ var líf í tuskunum við Þórshafnarhöfn föstudaginn 25. október,
eða eins og best gerist í litlu sjávarþorpi. Þórshamar var að landa
fullfermi af ágætri loðnu, síldarbátur rétt farinn, togarinn Stakfell
nýkominn inn og ríkisskip við enda hafnargarðsins. Haustblíðan var
ljúf og sjómenn i finu skapi.
Loðnuverksmiðjan hér er nú keyrð
á fullu enda skilyrði ágæt og er
unnið allan sólarhringinn á 12 tíma
Félagsvist í
Trékyllisvík
Trékyllisvík.
Fimmtudagskvöldið 8. nóvemb-
er var haldin félagsvist í sam-
komuhúsi Árneshrepps. Mæting
var mjög góð, um 60 manns, börn
og fullorðnir, spiluðu saman á 12
borðum alls 24 umferðir.
Veitt voru þrenns konar verðlaun.
1. verðlaun karla hlaut Gunnsteinn
kaupfélagsstjóri í Norðurfírði, Silla
í Krossnesi hlaut 1. verðlaun kvenna.
Eva hótelstýra í Djúpavík hlaut
skammarverðlaun kvenna en Sigfús
í Stóru Árvík hlaut skammarverð-
laun karla, hann hlaut einnig setu-
verðlaun karla en þaulsetnust
kvenna var Jóhanna í Árnesi II.
Félagsvistin var haldin í fjáröflun-
arskyni vegna skólaferðalags eldri
deildar Finnbogastaðaskóla. Alls
söfnuðust um 12 þúsund krónur.
- V.Hansen.
vöktum. Átta menn skipta með sér
vöktunum og fara 600 tonn af loðnu
í gegn á sólarhring. Búið er að taka
á móti 6.773 tonnum af loðnu á
þessari haustvertíð og er það 1.500
tonnum meira en í fyrra. Fjórir
loðnubátar hafa landað hér og hefur
Þórshamar vinninginn með tæp
2.500 tonn. Súlan landaði þrisvar
og kom með rúm 2.029 tonn, Órninn
kom tvisvar með rúm 1.487 tonn
og Björg Jónsdóttir tvisvar með rúm
827 tonn. Tveir síldarbátar hafa lagt
upp hér og kom Keflvíkingur með
rúm 449 tonn og Amþór með rúm
144 tonn og hefur þá Hraðfiystistöð-
in fengið samtals um 594 tonn af
síld í haust. Af því fóru í frystingu
um 240 tonn og hitt í bræðslu.
Afli heimabáta hefur verið sæmi-
legur miðað við að ekki hafa nema
3 bátar verið á sjó undanfarið og
eru þeir á dragnótaveiðum.
Hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar
vinna nú rúmlega 50 manns að
loðnuverksmiðju meðtalinni. Atvinna
hér hefur verið stöðug og er aðeins
einn á atvinnuleysisskrá, skv. uppl.
á sveitarskrifstofu.
Þórshafnarbúar hafa það því ág-
ætt, eins og er, og una vel við sitt
og verður vonandi framhald á því.
- L.S.
Morgunblaoið/bteinunn
Nýuppsteyptu bílskúrarnir sem steyptir voru í staðinn fyrir þá sen
brunnu.
Tveir bílskúrar í A-Land-
eyjum brunnu til grunna
Austur-Landeyjum.
AÐFARANOTT laugardagsins
3. nóvember brunnu tveir sam-
byggðir bílskúrar við Gunnars-
hólm í Austur-Landeyjum.
Tveir menn voru að rafsjóða bíl
sem þeir voru að gera við þegar
eldur varð skyndilega laus. Ekki
fékkst við neitt ráðið og urðu
skúrarnir brátt alelda. Slökkviliðið
frá Hvolsvelli kom á staðinn 20
mínútum síðar og mátti ekki tæp-
ara standa að tækist að bjarga
tveimur timbureinbýlishúsum sem
standa við hlið skúranna.
Tilfinnanlegt tjón varð af eldin-
um því auk bílsins brann dráttar-
vél, tvö fjórhjól sem stóðu fyrir utan
og mikið af verkfærum og tækjum.
Ekki var þetta tryggt nema að
hluta. Þegar fréttaritari var á ferð-
inni í Landeyjum viku eftir brunann
vakti það athygli að búið var að
steypa upp nýja bílskúra.
Þingsályktunartillaga um aðstoð við unglinga
sem flosnað hafa upp úr skóla:
Ungmenni á vergangi
- segir framsögumaður, Guðrún J. Halldórsdóttir
ÞINGMENN úr öllum flokkum
standa að þingsályktunartillögu
sem var til umræðu í sameinuðu
þingi í gær. Lagt er til að Al-
þingi beini því til ríkisstjórnar-
innar að koma á fót samstarfshóp
á vegum ráðuneyta þeirra sem
fjalla um fræðslumál, uppeldis-
mál, félagsmál, heilbrigðismál og
lögreglumál að gera tillögur um
samræmdar aðgerðir sem miði
að því að aðstoða þau ungmenni
sem flosnað hafa upp úr skóla
og eru nú vegalítil og sum á ver-
gangi. Samstarfshópurinn fjalli
einnig um sameiginlegar for-
varnir gegn þessum vanda.
Guðrún J. Halldórsdóttir (SK/Rv)
hafði framsögu fyrir tillögunni en
meðflutningsmenn eru Salóme Þor-
kelsdóttir (S/Rn), Unnur Hauks-
dóttir (A/Vf), Skúli Alexandersson
(Ab/Vl), Guðmundur Ágústsson
(B/Rv), Ólafur Þ. Þórðarson (F/Vf)
og Stefán Valgeirsson (SFJ/Ne).
í máli Guðrúnar kom fram að sá
hópur unglinga sem hyrfi frá námi
fyrr en lög leyfðu færi stækkandi
og það væri álit þeirra sem til
þekktu að þær brautir sem slíkt
gæti leit á væru enn hálli en fyrr.
Því valdi aukin vímuefnaneysla ung-
mennanna og henni fylgdi vergang-
ur þegar verst færi. Guðrún gat
góðs starfs ýmissa aðila til að halda
ungmennum að skóla og frá lausa-
gangi. En ræðumaður taldi ljóst að
meira þyrfti að koma til, e.t.v. væri
í athugasemdum við frumvarpið
segir m.a. að það sé að stofni til
byggt á frumvarpi sem var unnið
í iðnaðarráðuneytinu árið 1987, en
með nokkrum breytingum þó. Skýrt
er kveðið á um að sala hlutabréfa
geti aðeins komið til ef Alþingi veiti
til þess samþykki með lagabreyt-
ingu, einnig er kveðið á um sér-
staka samráðsfundi verksmiðju-
stjórnar og bæjarstjórnar Akranes-
bæjar. Ennfremur er kveðið á um
að sérstök samstarfsnefnd starfs-
manna og stjórnenda starfi við
verksmiðjuna.
í frumvarpinu segir m.a: „Fast-
ráðnir starfsmenn Sementsverk-
smiðju ríkisins skulu hafa rétt til
að starfa hjá hinu nýja hlutafélagi
og skal þeim boðið sambærilegt
30-40 unglingar á vergangi og gera
þyrfti stórátak til að veita þessum
ungmennum og foreldrum þeirra
aðstoð. Einnig hvatti framsögumað-
ur til þess að forvörnum yrði betur
sinnt því blikurnar sæjust oft á lofti
áður en veðrið skylli á. Guðrún lagði
til að málinu yrði vísað til félags-
málanefndar.
Mjúku málin
Salóme Þorkelsdóttir (S/Rn) sté
í ræðustól, horfði yfir salinn og taldi
sig merkja að nú væru rædd hin
„mjúku málin“. Að þingforseta,
Guðrúnu Helgadóttur, og ræðu-
manni frátöldum væru fjórir þing-
menn i fundarsal, þar af væru þrír
kvenkyns og einn góður skólamað-
ur. (Danfríður. Skarphéðinsdóttir
(SK/Vl), Anna Ólafsdóttir Björns-
son (SK/Rn) og Guðrún J. Halldórs-
dóttir, Björn Gíslason (A/Vf) vara-
þingmaður var einnig viðstaddur).
Salóme sagði þingmenn um of hafa
fest í umræðu um hörð gildi, hag-
vöxt og framleiðni. En það væri
ekki nóg að auka framleiðnina, hag-
vöxtinn og koma verðbólgunni niður
ef börnin yrðu ekki í stakk búin til
að uppskera þann ávinning.
Björn Gíslason (A/Vf) tók ein-
dregið undir tillöguna og hvatti til
þess að vel yrði unnið að málinu í
nefnd.
Anna Ólafsdóttir Björnsson
(SK/Rn) flutti einnig tölu, m.a.
starf hjá félaginu og þeir gegndu
áður hjá Sementsverksmiðju ríkis-
ins. Ákvæði 14. gr. laga nr.
38/1954, um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins,_ á því ekki við
um þá starfsmenn.“ í athugasemd-
um við frumvarpið kemur fram að
um 20 af starfsmönnum Sements-
verksmiðju ríkisins séu í Lífeyris-
sjóði starfsmanna ríkisins og haldist
réttindi þeirra óbreytt við þessa
formbreytingu.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að ríkisstjórnin láti fara fram ná-
kvæmt mat á eignum Sementsverk-
smiðju ríkisins til að hafa til viðmið-
unar við ákvörðun um upphæð
hlutaijár hins nýja hlutafélags. Öll
hlutabréfin verða í eigu ríkissjóðs
nema Alþingi samþykki annað.
sagði hún samfélagið ekki hafa
komið til móts við hið óhóflega
vinnuálag sem fjölskyldufólk yrði
að þola.
Að endingu þakkaði framsögu-
maður, Guðrún J. Halldórsdóttir,
þeim þingmönnum sem viðstaddir
voru fyrir að hafa gert sér ómak
og gefíð sér tíma til að taka þátt í
umræðum.
Ófullnægj-
andi mæting
þingmanna
Guðrún Helga-
dóttir boðar
aukafund
EKKI tókst að afgreiða mál til
nefnda vegna manneklu á fundi
sameinaðs þings í gær.
í upphafi þingfundar kl. 14 var
fyrsta mál afgreitt, Ingunn Anna
Jónasdóttir frá Akranesi var kjörin
í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar
íslands í stað Margrétar S. Björns-
dóttur. Einnig tókst að afgreiða til
utanríkismálanefndar þingsálykt-
unartillöguna um viðurkenningu á
fullveldi Eystrasaltsríkjanna með
33 samhljóða atkvæðum. En eftir
því sem leið á síðdegið fækkaði í
þingliði.
Forseti sameinaðs þings, Guðrún
Helgdóttir, gerði tvær tilraunir til
að halda atkvæðagreiðslu um þau
mál sem voru á dagskrá en hafði
ekki erindi sem erfiði, sem fólst í
ítrekuðu bjölluspili í Alþingishúsinu
og símhringingum þingþjóna á
skrifstofur þingmanna.
Þingforseti harmaði að svo marg-
ir háttvirtir þingmenn skyldu vera
fjarverandi, að vísu væru margir
við skyldustörf erlendis en það
væri ekki næg skýring. — En eins
og vant væri, forseti læsi yfír þeim
sem viðstaddir væru. — Guðrún
beindi þeim tilmælum til formanna
þingflokkanna að þeir ræddu við
háttvirta þingmenn um það að þeir
mættu á þingfundi svo afgreiðsla
mála í nefndir drægist ekki úr
hömlu. í lok þingfundar upplýsti
forseti að hún hefði fengið góðfús-
legt leyfi forseta neðri og efri deilda
til að halda fund í sameinuðu þingi
kl. 2 síðdegis í dag en það er hefð-
bundinn fundartími í deildum. Þeim
fundum verður frestað, en Guðrún
Helgadóttir ætlar að freista þess
að fá þingmál afgreidd til nefnda.
Sementsverksmiðj-
an verði hlutafélag
Frumvarp lagt fram í gær
í GÆR var útdeilt frumvarpi um stofnun hlutafélags um Sements-
verksmiðju ríkisins. Gert er ráð fyrir því að Sementsverksmiðjan
hf. yfirtaki rekstur og eignir 1. janúar 1992.
Frumvarp til laga
um listamannalaun
ÚTDEILT var í gær frumvarpi um listamannalaun, m.a. er gert ráð
fyrir því að starfslaun miðist við lektorslaun II við Háskóla Islands
en ekki laun framhaldsskólakennara.
Frumvarp þetta er samið af
nefnd sem menntamálaráðherra
skipaði hinn 20. júlí 1989. í frum-
varpinu er m.a. gert ráð fyrir því
að almenn listamannalaun verði
veitt úr fjórum sjóðum, Launasjóði
rithöfunda, Launasjóði myndlistar-
manna, Tónskáldasjóði og Lista-
sjóði sem er almennur sjóður allra
listgreina. Þriggja manna stjórn
listamannalauna hefur yfirumsjón
með sjóðunum. Stjórnin skal skipuð
af menntamálaráðherra, einum
samkvæmt tilnefningu Bandalags
íslenskra listamanna; einum til-
nefndum af Háskóla Islands, en af
Listaháskóla, ef stofnaður yrði, og
loks einum án tilnefningar. Stjórnin
úthlutar fé úr Listasjóði en sérstak-
ar úthlutunarnefndir fyrir hvern
hinna sérgreindu sjóða veita fé úr
þeim.
Samanlögð starfslaun miðast við
840 mánaðarlaun en síðan bætast
við 60 mánaðarlaun á ári næstu 5
ár. Mánaðarlaunin skiptast þannig:
Launasjóður rithöfunda fær 360
mánaðarlaun, árleg viðbót 24 mán-
aðarlaun næstu 5 ár, myndlistar-
menn fá sem svarar 240 mánaðar-
launum og bætast við 16 mánaðar-
laun á ári. Tónskáldasjóður veitir
sem svarar 60 mánaðarlaunum en
8 mánaðarlaun bætast við árlega.
Listasjóður veitir 180 mánaðarlaun
og árleg viðbót verður 16 mánaðar-
laun.
Samkvæmt gildandi kjarasamn-
ingum má gera ráð fyrir að fram-
lagið úr sjóðunum verði um 60 millj-
ónir króna en til samanburðar má
geta þess að á árinu 1989 voru
veitt listamannalaun og starfslaun
úr Launasjóði rithöfunda og enn-
fremur af fjárveitingu til starfs-
launa listamanna að jafngildi 764
mánaðarlauna, alls um 45 milljónir.
í frumvarpinu segir einnig að
Alþingi veiti tilteknum listamönn-
um heiðurslaun og skuli nýir heið-
urslaunahafar hafa náð 65 ára
aldri.