Morgunblaðið - 13.11.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NOVEMBER 1990
Fyrsta ársþing HIS:
Reglur um dómstól, dóm-
arafélag og innanhúss-
keppni meðal samþykkta
Hestar
Valdimar Kristinsson
Heslarnemi héldu sitt fyrsta
þing á laugardaginn undir
merkjum íþróttasamtakanna.
Var það fyrsta ársþing Hesta-
íþróttasambands íslands sem
haldið var í Borgarnesi. Sérsam-
bandið var stofnað fyrir um einu
og hálfu ári en rétt þótti að
íþróttaráð Landsambands hesta-
mannafélaga lyki starfinu á
síðasla ári og þvi ekki haldið
þing fyrr en nú.
Þinghaldið var með nokkuð líku
sniði og ársþing íþróttaráðs vorú
en þó mátti sjá ný vinnubrögð und-
ir öruggri stjórn Sigurðár Magnús-
sonar framkvæmdastjóra ÍSI sem
var annar tveggja þingforseta.
Gestir þingsins voi-u Kári Arnórs-
son, formaður LH, Sveinn Björns-
son, forseti ISI, og Sigurður Magn-
ússon sem áður var getið.
Um 30 mál vöru tekin fyrir á
þinginu sem stóð aðeins í einn dag
og þurfti snör handtök svo ljúka
mætti dagskrá á réttum tíma. Fjár-
hagsáætlun upp á tvær og liálfa
milljón var samþykkt en velta sér-
sambandsins var um 850 þúsund.
Nokkur umræða varð um einn lið
í reikningum sem var prentun á
keppnisreglum. Illjóðaði upphæðin
upp á r.úm níutíu þúsund en fram
kom að prenta þarf reglurnar aftur
þar sem að sá er átti að yfirfara
reglurnar fyrir prentun gleymdi að
setja inn samþykktir frá ársþingi
1988. Af tillögum sem samþykktar
voru má nefna að samþykkt var
reglugerð fyrir dómstól HÍS. f>á
skipaði þingið nefnd sem falið var
að undirbúa stofnun félagsskapar
hestaíþróttadómara.
Nokkuð var fjallað urn svokallaða
bráðabana í úrslitum og var sam-
þykkt að afnema þá nerna tveir
keppendur væru jafnir í fyrsta og
öðru sæti. Reglur um félagaskipti
voru samþykkt og gilda nú svipaðar
reglur hjá hestamönnum og öðrum
íþróttamönnum. Akveðið var að
fram færi endurskoðun á keppnis-
reglum sambandsins í því augna-
miði að samræma þær reglum
FEIF. Tvær tillögur komu fram um
svokölluð B-úrslit á íslandsmótum
og var samþykkt að ekki skuli boð-
ið upp á þau nema keppendur.í
greininni séu 30 eða fleiri.
Fjórar fastanefndir verða fram-
vegis starfandi á vegum HIS milli
þinga, landsliðsnefnd, fjáröflunar-
nefnd, unglinganefnd og laga og
leikreglunefnd. Þá skipaði þingið
þriggja manna nefnd sem hefði það
hlutverk að semja sérreglur fyrir
hestaíþróttakeppni innanhúss.
Jafnframt var samþykkt að heimilt
sé að halda innanhússkeppni þar
sem notast er við utanhússreglurn-
ar meðan aðrar reglur liggja ekki
iyrir. Þá mun sérsambandið beita
sér fyi'ir að lialdin verði skóla-
keppni í hestaíþróttum þannig að
um yrði að ræða keppni milli
i'ræðsluumdæmanna og kæmu átta
keppendur frá hveiju þeirra.
Fram kom fyrirspurn um hvort
núverandi Islandsmeistari í tölti og
ijórgangi væri löglegur meistari þar
sem hún væri ekki íslenskur rfkis-
borgari en í reglum ÍSÍ en þar seg-
ir að einungis Islendingar geti geti
orðið íslandsmeistarar og skipað
sæti í íslensku landsliði. Ekki var
talin ástæða til að gera neitt í
málinu þar sem ekki hefði borist
nein kæra. Þá kom einnig fram í
þessari umræðu að einn stjórnar-
manna í HÍS er ekki íslenskur ríkis-
borgari.
Þingið slaðfesti ákvörðun síðasta
þings íþróttai'áðs LH um að næsta
Islandsmót yrði haldið í Húnaveri í
A-Húnava_tnssýslu. Þá var sam-
þykkt að íslandsmótið 1992 skyldi
haldið hjá Fáki á Víðivöllum.
í stjómarkjöri voru Iveir nýir
menn kjörnir, Magnús Lárusson úr
Skagafirði og Jón G. Olsen úr Mána
á Suðurnesjum, en þeir koma inn
fyrir Þorstein Hólm Stefánsson og
Hrafnkel Guðnason. Aðrir í stjórn
eru Hákon Bjarnason, gjaldkeri,
Lisbeth Sæmundsson, ritari og Pét-
ur Jökull Hákonarson, formaður.
Morgimblaúið/ Valdimar Knstinsson
Nýkjörin stjórn Hestaíþróttasambands íslands ásamt framkvæmdastjóra ÍSÍ, Sigurði Magnússyni, sem
er lengst til vinstri, næst honnm er Lísbet Sænnmdsson þá Hákon Bjarnason, Pétnr Jökull Hákonar-
son, Magnús Lárusson og Jón G. Olsen.
INHIMÁLHIHG WRflUR
M UPPmU ÝMSAR KRÖIUU
1. Hún þarf að vera lyktarlítil.
2. Hún þarf að vera létt í meðförum
og ýrast lítið.
3. Hún þarf að uppfylla kröfur um
mismunandi gljástig fyrir
mismunandi aðstæður.
4. Hún þarf að þekja vel.
5. Hún þarf að fást í miklu litaúrvali.
6. Hún þarf að halda vel lit sínum.
33 RANNSÓKNARMERKISJAFNAR.
disícÐ
SE RANNSÓKNARMERKISJAFNAR A MALNINGUNNIÞINNI
ÞÁ UPPFYLLIR HÚN ALLAR ÞESSAR KRÖFUR.
UTSOLUSTAÐIR :
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
Álfhóll ■ Burstafell • Byggingamarkaóur Vesturbæjar • Byko •
Litabær • Litaver • Lækjarkot
UTAN ÞESS:
Málningarþjónustan, Akranesi • G. Sæmundsson, ísafirbi • Sigurður
Fanndal, Siglufirði • ísbúðin, Akureyri • Skapti hf., Akureyri •
Brimncs, Vestmannaeyjum • Vörusala SÍS, Vestmannaeyjum •
Málmey, Grindavik
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT:
Járn og Skip, Keflavík • K.Á., Selfossi • K.R., Hvolsvelli og Rauðalæk
• K.A.S.K., Höfn Hornafirði og Djúpavogi • K.S., Stöbvarfirbi og
Breiðdalsvík • K.F., Fáskrúðsfirði • K.H.B., Egilsstöðum og
Reyðarfirði • Kf. Fram, Neskaupstaö • K.V., Vopnafirði • K.L.,
Raufarhöfn og Þórshöfn • K.Þ., Húsavík • K.E.A., Lónsbakka
Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Grenivík • K.S., Sauðárkróki og
Hofsósi • K.H., Blönduósi og Skagaströnd ■ K.V.H., Hvammslanga •
K.S., Norðurfirði • K.H., Boröeyri • K.D., Þingeyri • Ástubúb,
Patreksfirði (K.V.B.) ■ K.K., Króksfjarðarnesi ■ K.H., Búðardal
(Dalakjör) • K.S., Skriðulandi • K.B., Borgarnesi •
NYTT UTAKORT MEÐ TÍSKUUTUM
í INNIMÁLNINGU ER NÚ KOMIÐ
Á ALLA ÚTSÖLUSTAÐL
fsiöfrp