Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 13.11.1990, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1990 45 Eftir að afi dó árið 1969 bjó amma í 3 ár á Akureyri en í októ- ber 1972 fluttist hún suður til okk- ar. Þrjú síðustu æviárin dvaldist hún á hjúkrunarheimilinu Skjóli, í góðu yfirlæti. Að alast upp með ástríka ömmu á heimilinu er nokkuð sem við systkinin vildum ekki hafa farið á mis við. Alltaf var amma tilbúin að hjálpa okkur, hvetja og hugga, hvort sem var í leik eða starfi og getum við ekki ímyndað okkur hvernig heimilislífið hefði verið ef hennar hefði ekki notið við. Engin orð eru nógu sterk til að lýsa því hvernig kona amma í raun var, en allir sem kynntust henni vita hvern mann hún hafði að geyma. Húsmóðirin heimaranni helgaði störfin ævi langa. Börnunum og bóndamanni brást ei hennar fórnarganga. Hin góða kona vakti á verði - veit ég það er mála sannast, og heimili sitt góðþekkt gerði, garð sinn kunni vel að annast. (G.S. Hafdal, Stundir skins og skýja) Blessuð sé minning hennar. Dótturbörn eða þar til dauðinn sótti þau heim. Frændi lést í sumar og það var því ekki langt á milli systkinanna, að- eins 4 mánuðir. 85 ár verða að telj- ast nokkuð hár aldur og má hver teljast sæll sem fær að lifa svo lengi, en á stundum sem þessum sækir söknuður að og mikill er miss- ir góðrar frænku. Guð varðveiti Guðfinnu frænku mína og blessuð sé minning hennar. Þóra B. Valsteinsdóttir HENNAPLUS VÍTAMÍN HÁR- SNYRTIVÖRUR ERU KRAFTAVERK FYRIR HÁRIÐ ... NÁTTÚRULEGA Hennaplus eru mjög mildar hársnyrtivörur eingöngu unnar úr náttúrulegum efnum og lausar við öll skaðleg efni. Innihald: 1. ALOE VERA hreint plöntuefni sem gefur þurru og upplituðu hári nýtt líf, lyftingu og glans. 2. PRO-VITAMIN B5 D-PANTHENOL endurnýjar skemmt hár. 3. HENNA styrkir, litar og nærir. Gefur „Hennaglans". 4. JOJOBA nærir hársvörðinn og verndar hárið gegn hættulegum U.V. geislum. Hennaplus vörur: • fyrir Ijóst hár • fyrir brúnt hár • fyrir svart hár • fyrir rautt hár • fyrir grátt hár • einnig til: flösu shampoo, silki- og jurta-shampoo. shampoo fyrir feitt og þurrt hár. HENNA ALOE VERA, J0J0BA PRO-VITAMIN B5 D-PANTHENOL Hennaplus Vitamin hársnyrtivörur fyrir rautt hár. 1. Glans shampoo rautt hár 2. Vítamín hárnæring rautt hár 3. Vítamín djúpnæring 4. Litaduft rautt 5. Kraftaverkanæring (ekki skoluð úr) 6. Kraftaverkahársprey 7. Sprey fyrir þurrt-fínt hár 8. Stíft gel Bætir skemmt hár ef notað reglulega. Ph sýrustig 4,5-6. Fæst ( stórmörkuðum, snyrtivöruverslunum og apótekum. HEILDVERSLUN SlMAR: 21020-25101 P&Ó/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.