Morgunblaðið - 18.11.1990, Qupperneq 1
104 SIÐUR B/C
263. tbl. 78. árg.
SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
/
Sekt og sakaskrá
fyrir keðjubréf
SVISSLENDINGAR sem taka þátt í
keðjubréfinu „Aætlun sjálfsbjörg“ eiga
allt að 250 svissneskra franka (10.750
ÍSK) sekt yfir höfði sér og lenda á saka-
skrá í stað þess að græða 300.000 franka
(12,9 milljónir ÍSK) eins og keðjubréfið
lofar. Bréf þetta er nú í gangi í þýsku-
mælandi hluta Sviss og dómsvaldið hef-
ur nóg að gera. Einum þátttakenda, sem
hafði sent 100 keðjubréf og efsta manni
30 franka (1.290 ÍSK) eins og til var
ætlast, brá heldur í brún þegar honum
barst bréf frá lögreglunni í stað þúsund-
anna sem hann átti von á. Keðjubréf sem
þetta eiga yfirleitt rætur sínar að rekja
til Þýskalands eða Austurrikis en þar
eru peningabréf leyfileg og ekki bönnuð
með lögum eins og í Sviss.
Sænskirjafnaðar-
menn undir 30%
NÝ skoðana-
könnun DN/
Temos í Svíþjóð
gefur til kynna
að stjórnarflokk-
ur jafnaðar-
manna Ingvars
Carlssons for-
sætisráðherra
njóti nú fylgis
29,5% kjósenda. Er þetta minnsta fylgi
flokksins frá því að skoðanakannanir
hófust á fjórða áratugnum. Könnunin
leiddi einnig í ljós að síðustu tillögur
stjórnvalda til lausnar efnahagsvand-
anum hafa aukið enn á fylgistapið.
Hægrimenn (moderaterna) eru með
svipað fylgi og í siðustu könnunum,
26,5%, en Kristilegir demókratar
standa betur en nokkru sinni fyrr með
um átta af hundraði. Þingkosningar
verða í september á næsta ári.
Tólf ára baráttu
um letingja lokið
'TALSMENN Ford Motor Co., naést-
stærsta bilaframleiðanda Banda-
ríkjanna, sögðust á föstudag myndu
greiða Robert Kearns, 63 ára verkfræði-
prófessor sem sestur er í helgan stein,
10 milljónir Bandaríkjadala (um 550
milljónir ÍSK) fyrir uppfinningu „let-
ingjans" á bílrúðuþurrkum. Verður þá
bundinn endi á málaferli sem staðið
hafa í 12 ár. Kearns fékk einkaleyfi á
uppfinningu sinni árið 1967 og var hún
fyrst notuð í Ford-bíla árið 1969. Kearns
höfðaði mál gegn Ford og meira en 20
öðrum bílaframleiðendum og fór fram
á himinháar upphæðir í skaðabætur fyr-
ír misnotkun á einkaleyfi sínu.
BRESKIR ÍHflLOS-
fl TÍMAMQTUM
TiIIaga Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétforseta í Æðsta ráðinu:
Ríkisstjórn heyri beint
undir embætti forseta
Moskvu. Reuter.
MIKHAIL S. Gorbatsjov Sovétforseti vili að forsetaembættið fái úrslitavald í öllum
málum ríkissljórnar landsins sem nú er undir forystu Níkolajs Ryzhkovs. „Ég legg til
að gerð verði þegar í stað grundvallarbreyting á skipulagi framkvæmdavaldsins og
það verði látið heyra beint undir forsetann," sagði Sovétforsetinn á skyndifundi Æðsta
ráðsins í gær. Ryzhkov og samverkamenn hans hafa sætt þungum ásökunum róttækra
umbótasinna sem telja stefnu stjórnarinnar í efnahagsmálum vera að lama allt samfé-
lagið. Óttast margir að hungursneyð verði sums staðar í Sovétríkjunum síðar í vetur.
Ryzhkov sagðist í gær sammála tillögunum þótt embætti forsætisráðherra yrði úr sög-
unni ef Gorbatsjov fengi sínu framgengt eins og allt benti til í gær.
Gorbatsjov sagði að hann vildi breyta Sam-
bandsráðinu, þar sem sitja fprsetar lýð
veldanna 15, í virka stofnun með fram-
kvæmdavald í samvinnu við forsetann og
ætti það að samræma aðgerðir miðstjórnar-
valdsins í Kreml og staðbundinna stjórnvalda.
Leiðtogar margra lýðveldanna hafa kvartað
undan þvi að Sovétstjórnin hafi ekki ráðfært
sig við þá áður en gripið var til ýmissa ráða
til að koma á lögum og reglu og bæla niður
átök þjóðernishópa. Ráðgjafahóp forsetans,
Forsetanefndinni, verður nú breytt í þjóðarör-
yggisráð, samkvæmt tillögum Gorbatsjovs.
I ræðu sinni sagði Gorbatsjov brýnt að
koma þegar á stöðugleika í landinu svo að
hægt yrði að undirrita nýjan samning um
tengsl lýðveidanna við Moskvuvaldið. Forseti
Moldovu, Mircea Snegur, sagði þingmönnum
Æðsta ráðsins að íbúar lýðveldanna ættu
sjálfir að ákveða hvort þeir vildu að Iöndin
yrðu áfram í Sovétríkjunum. Ef sá kostur
yrði valinn ættu þeir einnig að geta ákvarðað
ÞAKKA FYRIR
AÐ VERA EKKI
s
FIMM ARA
skilyrðin. Nær öll lýðveldin hafa lýst yfir full-
veldi gagnvart Moskvustjórninni og eitt
þeirra, Litháen, fullu sjálfstæði. Eystrasalts-
löndin þijú hafa ekki sent fulltrúa til viðræðn-
anna um nýja gerö sambandsríkis, þau krefj-
ast öll sjálfstæðis. Úkraína, næstíjölmennasta
lýðveldið, sendir aðeins áheyrnarfulltrúa til
að leggja áherslu á sjálfsákvörðunarrétt
landsmanna. Gorbatsjov sagðist í ræðu sinni
myndu berjast gegn upplausn ríkjasambands-
ins. „Ég er algerlega andvígur því að landinu
verði skipt, á móti.því að ný landamæri verði
dregin. Við getum ekki fetað þá braut,“ sagði
forsetinn við mikil fagnaðarlæti þingmanna.
Róttækur umbótasinni, þingmaðurinn Júríj
Afanasíjev, sagði í gær að Gorbatsjov hefði
nú loksins tekið á sig á rögg. „Mikilvægast
er að þetta virðast vera ígrúndaðar tillögur,"
sagði Afanasíjev.
C-blad ÞAR RlflU 3 ,V
HETJUR UM HÉRUfl... Óttar Gubmundsson