Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990 "1—;; . ’. ;f i? fV- ‘ý;;*1 •■> ■> 11 ASÍ, BSRB, Guðmundur Jaki og fleiri góðir menn. Ég er ekkert að segja að þetta sé ekki ágætis klúbbur, en þeir mega alveg hafa hann út af fyrir sig. Við sjómenn erum ekkert að sækjast eftir aðild að honum.“ — Það er líka staðreynd að þið sjómenn hafið fengið kjarabætur á þessu ári vegna stórhækkaðs fiskverðs, langt langt umfram það sem aðilar þjóðarsáttarinnar hafa mátt telja upp úr sínum launaumslögum. Er ykk- ur stætt á kröfum ykkar í ljósi þessa? „Við höfum fengið talsvert miklar hækk- anir, sérstaklega í botnfiskveiðum. Engar hækkanir í loðnu, rækju og síld, sem eru þó talsverður hluti af tekjum sjómanna. Loðnu- og síldarsjómenn hafa mátt búa við lækkandi tekjur síðustu tvö þijú ár.“ Kaupmáttur aukist á þessu ári — Samt sem áður hefur kaupmáttur ykk- ar fyrstu átta mánuði þessa árs miðað við sama tíma í fyrra aukist um á milli 10 og 20%, ekki satt? „Alls ekki, þetta er bara ekki rétt. Fisk- verðið er ekki allt. Ef þú lítur á tímabilið frá því í febrúar og til dagsins í dag, þá má tala um aukningu sem er eitthvað yfir 10%. En ef þú lítur tvö þijú ár aftur í tím- ann, þá sést að aflaheimildirnar hafa dregist saman um a.m.k. 10% þijú ár í röð og jafn- framt hafa fiskverðsbreytingar ekki verið okkur sjómönnum í hag. Ef þetta dæmi er skoðað til lengri tíma, þá er ekki nokkur leið að finna því stað að á öllu tímabilinu hafi sjómenn borið eitthvað virkilega meira úr býtum en aðrir. Það er rétt að kjörin hafa batnað til muna á þessu ári, vegna botnfiskveiðanna, en sjómenn hafa hins veg- ar tekið á sig kjaraskerðingu vegna olíu- verðshækkunarinnar og munu ekki fá hana til baka um sýnilega framtíð.“ — Samt sem áður étur kjaraskerðingin vegna olíuverðshækkunar ekki upp kaup- máttaraukningu ykkar, vegna hækkunarinn- ar á fiskverðinu. „Nei, sem betur fer étur hún hana ekki alla upp, en við búum við þetta markaðs- sveifluverð og ef fiskverð lækkar, þá munum við þurfa að taka það á okkur. Kauptöxtum í landinu mun ekki verða breytt út á það, enda hefur það aldrei gerst. Þegar verðsveifl- ur upp á við verða á erlendum fiskmörkuð- um, þá gerist það oft að sjómenn njóta henn- ar fyrstir, en sama á við um þegar verðlækk- anir verða, þá verða sjómenn að taka á sig lækkunina.“ — Á formannafundi FFSÍ á ísafirði tókuð þið þá ákvörðun, átta menn, eins og Kristján Ragnarsson segir, að bera tilboð Landsam- bands íslenskra útvegsmanna ekki undir at-' kvæði félagsmanna. Getið þið átta axlað ábyrgðina á því að flotinn stöðvist, að Vest- fjörðum undanskildum, vegna atriðis sem er í raun og veru ekki neitt kjaraspursmál fyrir ykkur? Getið þið réttlætt það fyrir ykk ur sjálfum að þið gerið allt þetta fólk atvinnu- laust sem undanfarin misseri hefur verið að taka á sig þær kjaraskerðingar sem þið haf- ið sloppið við? „Kristján er alveg snillingur í því að setja svona upp fyrir þjóðina og terigja það við einhveija átta menn hjá FFSÍ. Hann hins vegar getur ekkert um það að þessir átta formenn, sem voru á móti, eru fulltrúar fyr- ir stéttarfélög fleiri hundruð manna. Jafn- framt má benda á að ákvarðanir hjá LÍÚ eru teknar með nákvæmlega sama hætti af stjórn LÍÚ.“ Hefði ekkert þýtt að bera tilboð LÍÚ undir félagsmenn — Hvers vegna máttu ekki félagarnir í stéttarfélögunum sjálfir greiða atkvæði um þetta tilboð? „Þeir voru búnir að greiða atkvæði um svona samning og fella hann. Það eina sem var nýtt í þessu tilboði LÍÚ var ný olíuverðs- viðmiðun. Það var mat manna, sem eru í forystu fyrir þessi stéttarfélög, að ekkert þýddi að bera þetta tilboð undir félagsmenn þar sem aðeins var boðið upp á eitt atriði af fjórum sem samdist um í Vestfjarðasamn- ingnum. Það hefði verið kolfellt." — Nú er áratuga hefð fyrir því að samn- ingar sjómanna á Vestfjörðum eru öðru vísi en annars staðar á landinu. Hvers vegna þarf samanburður nú við þá fyrir vestan, að stefna afkomumöguleikum þúsunda í voða? „Menn eru ekki að bera beint saman Vest- ijarðasamninginn og aðra samninga. Það var samið fyrir vestan um lausn á þessari sér- stöku deilu og inni í þeirri lausn eru fjögur atriði. Fyrst hægt var að leysa málið þar, með þessum fjórum atriðum, þá verður líka að semja um þessi sömu fjögur atriði við aðra.“ Þrjóska og þvermóðska — Þú hefur sjálfur sagt að þessi deila snúist ekki lengur um peninga, heldur grund- vallaratriði, þ.e. að þið fáið nákvæmlega eins lausn og fékkst fyrir vestan. Er það ekki meiriháttar þvermóðska og stífni af hálfu beggja aðila að stofna svona gríðarlegum hagsmunum í hættu, fyrir það sem nánast ekkert er? „Ég bendi nú bara á, að þtjóskan og þver- móðskan getur engan veginn talist vera bara okkar megin. Ég álít að útvegsmenn og forystumenn þeirra séu að beita okkur fyrir sig og setja málið þannig fram að við með okkar kröfum séum að fremja einhver illvirki. Útgerðarmenn og forysta þeirra, sem eru búnir að lýsa því yfir að sú lausn, sem fékkst á Vestfjörðum, hafi verið gerð með fullri vitund þeirra og vilja, eru einfaldlega ekki tilbúnir til að bjóða öðrum sjómönnum upp á samskonar lausn. Það er ekki hægt að una því að samið sé um ákveðin atriði fyrir vestan, en ekki við aðra landshluta. Félagar í FFSÍ geta ekki unnið sömu störf og félagar þeirra í Bylgjunni á Vestfjörðum, en verið verðlagðir á annan hátt, þegar þeir eru á tímakaupi eða slippfararkaupi." Legg sjálfan mig að veði — Gagnrýnendur þínir hafa sagt við mig að þú hafir breyst upp á síðkastið og kenna þeir pólitíkinni um. Þeir hafa sagt að ekki sé lengur á það að treysta, að gamli, góði, freki en hreinskiptni Addi Kitta Guj leiði Fjölsfeylduleifcur feaupþings Svarseðill Rétt svar við myndagátunni er Nafn: (merktu með x í viðeigandi reit): □ Einingabréf eru innleysanleg nær hvenær sem er. Hehnilisfang: □ Einingabréf má kaupa fyrir hvaða upphæð sem er. □ Einingabréf eru örugg og arðbær sparnaðarleið. □ Einingabréf eru seld á 80 stöðum á Islandi. __________ Símanúmer: Leiktu til vinnings með Einingabréfum 1. verðlaun: Einingabréf fyrir 50.000 krónur. 2. verðlaun: Einingabréf fyrir 20.000 krónur. 3. verðlaun: Einingabréf fyrir 5.000 krónur. i I myndagátunni hér til hliðar er fólgin ein af setningunum á svarseðlinum sem lýsir höfuðkostunum við Einingabréf. Þegar þú hefur leyst úr myndgátunni, fyllirðu út svarseðilinn og sendir hann til okkar. Utanáskriftin er: Fjölskylduleikur Kaupþings Kaupþing hf. Kringlunni 5 103 Reykjavík. Sendu okkur svarið í pósti eða komdu með það á afgreiðslu Kaupþings x Kringlunni 5, Reykjavík, eða til Kaupþings Norðurlands, Ráðhústorgi 1 á Akureyri. Skilafrestur er til 1. desember. Úrslitin verða birt í Morgunblaðinu fimmtudaginn 6. desember. KAUPÞING HF Kringlunni 5, stmi 689080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.