Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990 BEST VÆRIAÐ GERA KmiumuREFm BÓKIMMÁ ÍSLAAIDI eftir Bryndísi Kristjónsdóttur „Mér hafa verið að berast óskir frá alvarlega sjúku fólki sem átt hefur skammt eftir ólifað um að fá a lesa framhaldið af bókaflokknum Börnum Jarðar áður en það dæi. Það er regla að leyfa aldrei almenn- ingi að lesa handrit af óútkomnum bókum, en í þess- um tilfellum gerði ég undantekningar og ég veit um tvo sem náðu því að lesa nýjustu bókina í handriti áður en þeir dóu,“ sagði metsöluhöfundurinn Jean M. Auel í einkaviðtali fyrir Morgunblaðið á dögunum og þessi frásögn hennar lýsir því vel með hvílíkri óþreyju beðið hefur verið eftir fjórðu bók hennar, Seiði sléttunnar. Auel var þá stödd i Bandaríkjunum þar sem hún var að kynna þessa nýjustu bók sína, en hún hefur annars aðalbækistöð í Frakklandi um þessar mundir. Fimm ár eru liðin síðan þriðj a bókin í bóka- flokknum kom út í Bandaríkjunum og það er ekki fyrr en nú í haust sem sú fjórða fer loks á markað um allan heim, hér á íslandi hafa bækurnar um Jarðar- börnin notið mikilla vinsælda og langt er síðan fólk fór að hringja til Vöku-Helgafells, sem gefið hefur bækurnar út í íslenskri gerð, og spytja um næstu bók. yfirleitt þykir það mjög slæmt þegar svo langur tími líður á milli framhaldsbóka, en í þessu tilviki virðast menn ekki ótt- ast að lesendur hafi snúið baki við Jean Auel og sögum hennar enda segir upphæðin sem hún fékk greidda fyrir handritið sína sögu. Fram til þessa hefur rithöfundurinn Stephen King, sem víðkunnur er fyrir hroll- vekjubæk- ur sínar, verið talinn hæstlaun- aði rithöf- undur í heimi, en nú hefur Jean M. Auel a.m.k. náð honum eða slegið honum við, því sagt er að þegar hún gekk frá samn- ingum við Crown-útgáfufyrirtækið í New York nú síðsumars, hafi hún fengið greitt sem svarar 2,4 milljörðum íslenskra króna sem fyrirframgreiðslu fyrir handritin að þrem síðustu bókunum í þessum vinsæla bókaflokki. — Hvers vegna leið svona langur tími á milli bókanna? „Það eru ýmsar ástæður fyrir því,“ sagði Jean, er við héldum sam- talinu áfram. „Fyrst og fremst er þetta mjög löng bók, í ensku útgáf- unni eru 315.000 orð og flestar þýð- ingar eru um 700 blaðsíður í stóru broti. Rannsóknarvinnan tók síðan afar langan tíma, en hana vinn ég alla sjálf; skrifa glósur, skrifa úr- drátt, skrifa upp aftur og aftur þar til ég er ánægð. Að vísu er ég alltaf með ritara þegar ég er komin á fullt að skrifa bók og til að hjálpa mér með b'réfaskriftir, en ég held að það hljóti að vera óskaplega leið- inlegt starf að vera ritari hjá rithöf- undi — sérstaklega rithöfundi eins og mér sem skrifar svona langar bækur. Nú, svo hefur farið mjög mikill tími í að ferðast og kynna bækurnar og halda um þær fyrir- lestra, auk þess vorum við hjónin að byggja nýtt hús. En ég get sagt þér að ég var farin að fá í meira lagi undarleg bréf á þessum langa tíma; bréf sem í stóð að Auel væri ekki búin að skrifa næstu bók vegna þess að hun væri dáin, mikið veik, fráskilin eða hefði lent í stríði við útgefanda sinn — en ekkert af þessu er satt!“ — En ertu efnað- asti rithöf- undur í heimi? ,<Égef- astum það,“ svar- ar Jean al- varleg í bragði. „Það eru aðrir betur stæðir en ég, eins og t.d. Steph- en King, því hann sendirfrá sér miklu fleiri bækur en ég; það kemur út ný bók eftir hann á hálfs árs fresti. Eg hef hitt hann og met hann mikils. Hann er einn af þeim rithöfundum sem lifir fyrir að skrifa. Hann byijar um leið og hann er kominn á fætur og á hveijum degi situr hann við skriftir marga klukkutíma á dag. Hann sagði mér að honum fyndist hann vera lánsam- ur maður að geta sett martraðir sín- ar á blað og lifað af þeim! Ég skrifa mikið þegar ég er heima, en mikið af tíma mínum fer í undirbúnings- rannsóknir fyrir bækurnar — en þegar ég byija að skrifa, þá skrifa ég og skrifa.“ Metsöluhöfund- urinn Jean M. Auel í einkavib- tali vib Morgun- blabib Skjótt brugbist vib Guðjónsdóttur. Margir fleiri lögðu hönd á plóginn við samanburð, samræmingu og ráðgjöf um sér- fræðileg atriði, til dæmis úr náttúrunni, og með mikilli og góðri hópvinnu tókst að ná því takmarki að bókin kæmi út á ís- lensku á svipuðum tíma og í öðr- um löndum, en hún verður vænt- anlega komin í verslanir um allt land í lok nóvember. ins og fram kemur í viðtalinu -B-J var mikið kapp lagt á að nýja bókin kæmi út á svipuðum tíma í öllum löndum, en það var ekkert áhlaupaverk því Jean lét útgefendur ekki fá handritið í hendur fyrr en í sumarbyijun. í bandarísku útgáfunni er bókin yfir 750 blaðsíður og þá átti eftir að þýða í hinum löndunum. ís- lenski útgefandinn er sem fyrr Vaka-Helgafell og þegar handrit- ið barst þangað í sumar var brugðist skjótt við og fundinn fljótvirkur og vandvirkur þýðandi, að sögn útgefenda. Alfheiður Kjartansdóttir tók að sér verkið og um mánaðamótin september- október lauk hún við að þýða síð- ustu kafiana. Jafnóðum og hún skilaði af sér þýðingum fóru þær í handritalestur til Maríu Grétu II

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.