Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990 ERLENT IIMIMLENT Óróleiki á hús- bréfamarkaði Óróleiki hefur verið í vikunni í viðskiptum með húsbréf. Á mið- vikudaginn ákváðu Landsbréf hf., viðskiptavaki með húsbréf, að hætta að kaupa bréfín þar sem viðmiðunarmarki um húsbréfa- kaup fyrirtækisins í nóvember hafði verið náð. Þessi ákvörðun leiddi til þess, að á fimmtudaginn hættu aðrir verðbréfamarkaðir að taka við húsbréfum nema í um- boðssölu, að Kaupþingi hf. frá- töldu. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, fundaði á fimmtudag með forsvarsmönnum Landsbréfa hf., Húsnæðisstofn- unar ríkisins og bankastjórn Landsbankans og varð niðurstaða þess fundar sú að Landsbréf hófu aftur húsbréfaviðskipti og að ávöxtunarkrafa við kaupin urðu breytileg frá degi til dags. Á föstudaginn var ávöxtunarkrafan þannig '7,45% þegar markaðir opnuðu en lækkaði niður í 7,35% þegar leið á daginn. Gísli Sigurðsson til Bagdad Frá því var greint um síðustu helgi, að Gísli Sigurðsson, lækn- ir í Kúvæt, væri kominn til Bagdad höfuðborgar íraks. í vik- ERLEIMT Thatcher fær mótframboð Margaret Thatcher verður ekki ein í kjöri þegar þingmenn breska íhaldsflokksins kjósa leiðtoga sinn og þar með forsætisráðherra á þriðjudag. Á miðvikudag tilkynnti Michael Heseltine fyrrum vamar- málaráðherra mótframboð sitt og hélt því fram að hann hefði þá þegar tryggt sér stuðning rúm- lega 100 þingmanna. Til þess að knýja fram aðra umferð og opna þar með möguleika fyrir framboð annarra þarf Heseltine 159 at- kvæði miðða við að allir 372 þing- mennirnir kjósi. Thatcher segist sigurviss og sagðist á fimmtudag myndu halda ótrauð áfram sem forsætisráðherra. Stuðningsmenn hennar hafa gagnrýnt framboð Heseltines og telja hana munu vinna kosninguna á þriðjudag ör- uggleg. Útiloka aðilda EFTA að ákvörðunum EB Utanríkisráðherrar Evrópu- bandalagsríkjanna (EB) útilokuðu aðild Fríverslunarbandalags Evr- ópu (EFTA) að ákvörðanatöku EB er þeir ræddu við fulltrúa EFTA um evrópska efnahags- svæðið (EES) á fundi í Brussel sl. mánudag. Samkomulag varð hins vegar um að EFTA-ríkjunum verði gefínn kostur á að fylgjast með ákvörðunum með samráðs- fundum allra aðildarríkja banda- laganna tveggja á fyrstu stigum ákvarðana. Ryzhkov setur Eystrasaltsríkjunum úrslitakosti NÍKOLAJ Ryzhkov forsætis- ráðherra Sovétríkjanna setti leið- togum Eystrasaltsríkjanna þriggja úrsiitakosti á fundi í Moskvu um síðustu helgi. Hótaði hann ríkjunum hörðum efnahags- þvingunum ef þau féllu ekki innan unni kom síðan fram, að Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, hefði skrifað Yass- er Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestíu, bréf þar sem hann var beðinn að aðstoða við lausn Gísla. Prófkjör sjálfstæðismanna á Reykjanesi Sjálfstæðismenn í Reykjanes- kjördæmi_ efndu til prófkjörs um helgina. Ólafur G. Einarsson og Salóme Þorkelsdóttir alþingis- menn flokksins í kjördæminu lentu í fyrsta og öðru sæti og Árni M. Mathiesen dýralæknir í því þriðja. Hreggviður Jónsson, sem kjörinn var á þing fyrir Borg- araflokkinn í síðustu kosningum en gekk til liðs við þingflokk sjálf- stæðismanna á kjörtímabilinu, hafnaði í 12. sæti í prófkjörinu. Finnur Ingólfsson efstur hjá Framsókn í Reykjavík Framsóknarmenn í Reykjavík efndu til skoðanakönnunar um helgina. Þar náði fyrsta sæti Finnur Ingólfsson, aðstoðar- maður heilbrigðisráðherra, en Guðmundur G. Þórarinsson, al- þingismaður, hafnaði í öðru sæti. Deilur vegna GATT-viðræðnanna Á miðvikudag var greint frá því að í tilboði íslensku ríkisstjóm- arinnar í yfírstandandi viðræðum innan GATT um viðskipti með búvörur hefði hún Iýst sig reiðu- búna til að draga úr lögbundnum takmörkunum á innflutningi unn- inna landbúnaðarafurða og beita þess í stað jöfnunargjöldum til að vega upp mismun á niðurgreiddu heimsmarkaðsverði og verði á heimamarkaði. Talsmenn bænda- samtakanna hafa lýst yfir áhyggj- um af því að komi til slíks inn- flutnings muni það rýra innlenda framleiðslu. viku frá áformum um að fara eig- in leiðir í efnahagsmálum og sam- þykktu efnahagsstefnu Sovét- stjórnarinnar. Eistar, Lettar og Litháar höfnuðu afarkostum Ryz- hkovs þegar í stað og Kazimiera Prunskiene forsætisráðherra Lit- háens sagði eftir fundinn að til- gangslaust væri að ræða frekar við Ryzhkov og stjórn hans um sjálfstæðismál Eystrasaltsríkj- anna. Eina vonin úr þessu væri að tala beint við Míkhaíl Gor- batsjov Sovétleiðtoga. Gorbatsjov og Jeltsín semja Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi og Borís Jeltsín forseti Rússlands gerðu samkomulag á þriðjdag sem er í því fólgið að mynduð verði nokkurs konar þjóðstjórn með þátttöku fulltrúa Rússlands og annarra Sovétlýðvelda. Sagðist Jeltsín ekki ætla að sundar so- véska ríkjasambandinu heldur vildi hann leysa deilur um skipt- ingú valds milli miðstjómarvalds- ins í Moskvu og lýðveldanna. Hafna leiðtogafundi araba Áskorun Hassans Marokkókon- ungs til Ieiðtoga arabaríkja um að þeir hittust á fundi til þess að freysta þess að koma í veg fyrir hernaðarátök um Kúvæt hlaut nær engar undirtektir. Hassan taidi leiðtogafund araba vera síðasta tækifærið sem eftir væri til þess að tryggja friðsamlega lausn stríðsástandsins við Persaf- lóa. Afstaða íraka sjálfra gerði út um vonir um að halda fundinn og önnur Persaflóaríki sögðust ekki mæta nema áður lægi fyrir samþykki íraka við að fara með innrásarheri sína frá Kúvæt. Njósna um íraka Bandaríkjamenn skutu geim- feijunni Atlantis á loft á fimmtu- dagskvöld og hvíldi mikil leynd yfír ferðinni en heimildir hermdu að um borð hefði verið nýr og fullkomin njósnahnöttur sem m.a. væri ætlað það hlutverk að njósna um hernaðarumsvif innrásarhetja íraka í Kúvæt. Bandarískar rannsóknir á kransæðasjúklingum; Stöðug umönnun brýn eftir sjúkrahúsaðgerð Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. KRANSÆÐASJÚKLINGAR, sem eiga aðgang að hjúkrun allan sólar- hringinn og nákvæmri lyfjagjöf, eiga sér lengri lífsvon en þeir, sem gangast undir aðgerð í sjúkrahúsi og halda svo eftirlitslítið eða eftir- litslaust aftur út I lífið. etta kom fram á fundi American Heart Association (sem kannski mætti kalla „Hjartavinafélag Banda- ríkjanna") sem nú stendur yfir í Dallas í Texas. Kransæðasjúkdómar hijá nú um 3 milljónir Bandaríkja- manna og leggja um 200 þúsund að velli árlega. Hjartasjúkdómstilfellum fjölgar jafnt og þétt bæði vegna hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar og vegna þess að læknum tekst oft- ast að lengja lífdaga hjartasjúklinga. Allt þetta er þjóðfélaginu mjög dýrt. Þetta kom m.a. fram á fundinum í Dallas. Og þar var lýst niðurstöðu athyglisverðrar rannsóknar. Rannsóknin náði til 50 hjartasjúkl- inga, sem náð höfðu 65 ára aldri. Helmingur þeirra var lagður inn á heilsugæslustöð. Þar nutu þeir góðr- ar hjúkrunar og nákvæmrar — og meiri lyfjagjafar en venjulega. Einnig var betur fylgst með þeim með ýms- um tækjabúnaði. Aðstandendum þeirra var veitt fræðsla um einkenni sjúkdómsins og meðferð sjúklingsins. Eftir að sjúklingamir voru sendir heim gátu þeir kallað á hjúkrunar- hjálp hvenær sem var sólarhringsins og fengið ráðgjöf um hvaðeina varð- andi sjúkdóminn. Hinn helmingurinn var lagður í sjúkrahús til aðgerðar og hlaut þar venjulega meðferð en enga umönnun eftirá. í ljós kom að fyrmefndi hópurinn þurfti helmingi sjaldnar að leita neyðarhjálpar. Eftirköst af einhveiju tagi og dauðsföll voru einnig u.þ.b. helmingi færri en hjá „spítalahópn- um“ eða 10% á móti 19% á fyrstu átta mánuðum eftir heimkomu. Næsta verkefni er að kanna hvort Um 12.000 Rúmenar hafa sótt um hæli í Austurríki sem pólit ískir flóttamenn frá því í desember í fyrra er rúmenska einræðisherran- um Nicolae Ceausescu var steypt af stóli. Um 1.500 þeirra hafa fengið hæli í landinu og 3.500 til viðbótar hafa fengið þar búsetu- og starfs- leyfi. „Hinir geta ekki sest að í Aust- urríki og verða sendir heim,“ sagði talsmaður austurríska innanríkis- ráðuneytisins. Talsmaðurinn sagði að rúmensk stjórnvöld hefðu lofað að flóttamönn- unum yrði veitt aðstoð til að hefja unnt sé'að draga úr dauðsföllum af völdum hjartasjúkdóma þegar til lengri tíma er litið. Eins og er deyja 50% hjartasjúklinga áður en fímm ár eru liðin frá því sjúkdómsins varð vart. Fram kom einnig, að sú með- ferð sem bandarískir hjartasjúkling- ar fá byggðist á „forvömum byggð- um á heilbrigðri skynsemi", sem unnt er að veita á hvaða sjúkrahúsi sem er og þarf ekki sérfræðinga til. nýtt líf í Rúmeníu. Austurrískur stjórnarerindreki yrði sendur til að kanna hvort staðið yrði við það. Græningjaflokkurinn austurríski fordæmdi þessa ákvörðun harðlega og sagði aðgerðirnar ómannúðlegar. Rúmenar hafa streymt til Vestur- landa frá byltingunni í desember vegna efnahagskreppunnar í landinu og af ótta við að fyrrum kommúnist- ar ráði þar enn ríkjum. Vörðum við landamæri Austurríkis að Ungveija- landi var fjölgað mjög í ágúst ti! að stemma stigu við flóttanum. 7.000 Rúmenar send- ir heim frá Austurríki Vín. Reuten STJÓRNVÖLD í Austurríki hafa ákveðið að senda um 7.000 Rúmena til heimalands síns en þeim hefur verið neitað um hæli í landinu sem pólitískir flóttamenn. EB leggur til atlögn við einokun á sviði fjarskipta EF fyrirhugaður innri markaður Evrópubandalagsins (EB) árið 1993 á að geta keppt við markaði í Bandaríkjunum og Japan verður að brjóta niður þá einokun þjóðríkja sem ríkir í fjarskipt- um innan EB og opna aðgang og afnot af fjarskiptahnöttum fyr- ir fyrirtæki og almenning. Þetta er m.a. niðurstaða grænnar bókar sem framkvæmdastjórn EB kynnti í Brussel í vikunni. Til- gangur bókarinnar er að vekja umræður innan bandalagsins um tillögur frá framkvæmdasljórninni sem miða að því að fólk og fyrirtæki hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem veita má í gegnum gervihnetti. Framkvæmdastjórnin leggur til að öllum verði heimilt, án tak markana, að kaupa og setja upp diska til móttöku á sjónvarpsefni þannig að öll einkaieyfí á því sviði verði felld niður. Sama á að gilda um móttöku á annars konar efni. Hveijum sem er skal heimilt að sækja um aðgang að fjarskipta- hnetti til að dreifa í gegnum hann upplýsing- um eða öðrum gögnum. Þessi leyfi skulu þó eftir atvikum BAKSVIÐ Reiknað er með því að ef evr- ópsk tækni á sviði fjarskipta- hnatta yrði markaðssett án hindr- ana mætti lækka stofnkostnað um 40% og að sama skapi er búist við að aukin notkun gæti lækkað neytendakostnað um rúmlega 60%. Framkvæmdastjórnin gerir og ráð fyrir að rýmri reglur og greiðari aðgang- ur að fjarskipta- hnöttum stækk- aði markaðinn þar sem hann er Kristófer M. Kristinsson skrifarfrá sérhæfðastur um Brussel 66%. háð skilyrðum t.d. hvað varðar tækni til að tryggja sérstök rétt- indi og nauðsynlega leynd. Lagt er til að tækni innan EB verði að fullu samhæfð og tekið verði mið af möguleikum evrópskra fyrir- tækja til að selja þjónustu utan bandalagsins. í bókinni er lögð áhersla á að Evrópumarkaður fyr- ir fjarskiptahnetti nái bæði til ríkja Fríverslunarbandalags Evr- ópu (EFTA) og ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu. Sérstaklega er bent á nauðsyn þess að fyrir- tæki innan EB geti sinnt brýnum þörfum ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu á þessu sviði. For- senda allra framfara í fjarskiptum um gervihnetti sé að ríkisstjómir aðildarríkjanna losi um tökin þannig að fyrirtæki geti notið góðs af stærri markaði sem óhjá- kvæmilega muni leiða til minni stofnkostnaðar og lægri notenda- gjalda en nú tíðkast. Fjarskiptahnettir innan EB hafa fyrst og fremst verið notaðir til að koma áleiðis símtötum. Um 44% af tekjum af fjarskiptahnött- um eru símtöl, annar stór liður er dreifíng á sjónvarpsefni sem skilar um 46% af tekjunum en þjónusta við fyrirtæki nemur ein- ungis um 10% af tekjum af fjar- skiptahnöttum. Um þessar mundir em 32 fjar- skiptahnettir á lofti sem ná að senda geisla yfir aðildarríki EB, árið 1993 er gert ráð fyrir að þeir verði 56. Um 850 þúsund diskar eru í notkun innan banda- lagsins, langstærstur hluti þeirra tekur á móti sjónvarpsefni fyrir heimili eða rúmlega 700 þúsund diskar. Einungis 10 þúsund diskar eru notaðir til að taka á móti upplýsingum fyrir fyrirtæki. Það er fyrst og fremst fyrirtækja- markaðurinn sem framkvæmda- stjórnin vill leggja áherslu á. Til Nær 500 tonna þungri, franskri Ariane-eldflaug skotið á loft frá Guyana í Suður-Ameríku í júlí sl. Um borð voru tveir fjar- skiptahnettir, annar franskur og hinn þýskur. þess verður að auðvelda fyrirtækj- um aðgang að nýrri þjónustu s.s. að senda og taka á móti upplýs- ingum sem varða viðskipti, sjón- varpsfundahöldum um gervihnetti og söfnun upplýsinga t.d. frétta frá mörgum stöðum í sömu andrá. Með grænu bókinni hyggst framkvæmdastjórnin vekja stjórnvöld í aðildarríkjunum til umhugsunar og umræðu um þessi efni en ljóst er að framtíðin ræðst að mestu af því hversu fast hald- ið verður í einokun ríkisrekinna fyrirtækja. > ) i j j I í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.