Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 40
4^;JMORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1S. NÓVEMBER 19IK) Isafjörður: Kvenfélag kirkjunnar 30 ára en kirkjan í leiguhúsnæði * ísafírði. ^ '"'“*KVENFÉLAG ísafjarðarkirkju hélt upp á 30 ára afmæli sitt 4. nóvemb- er, en það var stofnað 17. maí 1960. Jónas Tómasson tónskáld og kirkjuorganisti var helsti hvata maður að stofnun félagsins til að treysta innviði hins kirkjulega starfs. Fyrsti formáður félagsins var Lára Eðvarðardóttir, eiginkona þáverandi formanns sóknarnefndar, Elíasar Pálssonar. Félagið hefur ætíð síðan séð um frágang í kirkjunni og konur hafa séð um flestar skreytingar vegna jarðarfara og síðan notkun fenningarkirtla var tekin upp hafa 'vkonurnar séð um frágang þeirra ásamt mörgu öðru. . Séra Karl Matthíasson sóknar- prestur sagði að konurnar ynnu mjög mikilvægt og fórnfúst starf fyrir söfnuðinn og því næðust betri tengsl milli safnaðarins og kirkjunnar. Fjórar konur hafa gegnt störfum formanns félagsins á eftir Láru, þær Margrét Hagalínsdóttir, þáverandi prestfrú séra Sigurðar Kristjánsson- ar, Guðrún Vigfúsdóttir veflistamað- ur og nú Geirþrúður Charlesdóttir, sem um tíma gegndi starfi safnaðar- systur. Hún sagði að því miður væru of fáar konur í félaginu, því nóg væri að starfa, en alvarlegast væri að söfnuðurinn á enga kirkju. Frá því ísafjarðarkirkja brann hafa flestar kirkjulegar afhafnir far- ið fram í samkomusal menntaskól- ans, sem þýðir að fjarlægja þarf alla kirkjumuni strax á eftir, auk þess sem nemendur sem eru að koma úr tímum þurfa að ganga í gegnum salinn. Það mundi því efla safnaðar- starfið mikið ef tækist að koma upp nýrri kirkju, en vegna mikils ágrein- ings um staðsetningu kirkjunnar hefur enn ekki tekist að hefja smíðina. - Úlfar Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Stjórn kvenfélags Isafjarðarkirkju ásamt sóknarpresti, sóknarnefnd- armanni og kirkjuverði. Geirþrúður Charlesdóttir formaður kvenfé- lags Isafjarðarkirkju er á milli sóknarprestsins séra Karls Matthias- sonar og Inga Jóhannessonar kirkjuvarðar. I aftari röð eru stjórnar- konurnar Kristín Einarsdóttir, Auður Hagalín, Herdís Þorsteinsdótt- 'ir og Sigríður Sigurðardóttir ásamt Gunnlaugi Jónassyni varafor- manni sóknarnefndar. Verklok við vatnsveitu. Verktakar og starfsmenn Hvammstangahrepps við kaffitjald verktakanna (en vegna hagstæðs veðurs hafði (jaldið verið fellt). Ný vatnsveita á Hvammstang'a Hvammstangi. Á UNDANFÖRNUM mánuðum hefur verið unnið að lagningu nýrrar vatnsveitu fyrir Hvammstanga úr Vatnsnes- fjalii. Lögnin var tengd veitu- kerfinu sl. föstudag. Haukur Ámason tæknifræð- ingur sveitarfélagsins sagði Morgunblaðinu að ráðist hefði verið í framkvæmdina vegna auk- innar vatnsnotkunar á staðnum á síðustu árum. Nýja lögnin sem er um 11,5 km að lengd, mun flytja um 18-20 sekúndulítra, sem er um tvöföldun á því vatni sem vatnsveitan fékk áður. Verkið var unnið af heimamönnum, Ólafi Stefánssyni, Pétri Daníelssyni og Pétri Jóhannessyni og tók um 4 mánuði. Rörin í veitunni eru 160 mm og 110 mm og er 310 metra hæðarmunur á vatnsbólum í Mjóadal og birgðatanki við Hvammstanga. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Tveir af verktökum vatnsveitu, Ólafur Stefánsson og Pétur Jó- hannesson. Kostnaður við framkvæmdina muni ekki hrjá íbúa né fyrirtæki er 17-18 milljónir króna.. Þykir á Hvammstanga í bráð. hafa vel til tekist og vatnsskortur - Karl Guðlaugur Arason Ljóðabók eftir Guð- laug Arason ÚT ER komin hjá Máli og menn- ingu Ijóðabókin Blint í sjóinn eft- ir Guðlaug Arason og er það hans fyrsta ljóðabók. Ikynningu útgefanda segir m.a: „í ljóðum bókarinnar er víða að finna hversdagsmyndir af sjó- mannalífinu, sjávarilmurinn, tjöru- lyktin, vélarhljóðið, veltingurinn. Meðal annarra yrkisefna eru sökn- uðurinn, erfiði og mannraunir og ástin. Ljóðin einkennast af nær- færnum og mildum tóni, þótt kímni sé sjaldan langt undan. Guðlaugur Arason (f. 1950) hef- ur stundað jöfnum höndum sjó- mennsku og ritstörf og er kunnur fyrir skáldsögur sínar. Bókin er 73 bls., prentuð í Prent- smiðjunni Odda. Jón Reykdal hann- aði kápu. Bókin er bæði gefin út innbundin og í kilju. Doktor í stjameðl- isfræði GUNNLAUGUR Björnsson lauk sl. vor doktorsprófi í stjarneðlis- fræði frá háskólanum í Illinois í Bandaríkjunum. Fór doktors- vörnin fram þann 6. apríl. Doktorsritgerðin nefnist A Study of Electron-Positron Pair Equilibria in Models of Compact X- and Gamma-Ray Sources. Hún fjallar um hlutverk rafeinda og and-rafeinda í líkönum af svonefndum virkum vetrar- brautum, en það eru mjög aflmik- il og fjarlæg fyrirbæri sem talið er að hýsi risavaxin svarthol. Fyrsti hluti ritgerðarinnar fjallar um hugsanlegan þátt rafeindanna í ljósaflsbreytingum slíkra vetrar- brauta en meginhluti verksins Ijallar um nýja leið til athugunar á svonefndum efnisskífum sem talið er að myndist umhverfis svartholin í miðju vetrarbraut- anna. Varpað er nýju ljósi á eigin- leika slikra kerfa og sýnt fram á að líkönin er notuð hafa verið til lýsingar á þeim eru að miklu leyti ófullnægjandi, sér í lagi hvað varð- ar háorkuútgeislun þessara fjar- lægu fyrirbæra. GunnlaugUr er fæddur þann 7. maí 1958 á Akranesi. Hann er sonur hjónanna Gígju Gunnlaugs- dóttur og Björns H. Björnssonar. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1978 og BS-prófi í eðlisfræði frá Dr. Gunnlaugur Björnsson Háskóla íslands 1982. Hann stundaði framhaldsnám við Uni- versity of Illinois, Urbana, 1984- 1986, og lauk þaðan MS-prófi 1986. Frá 1986-1989 var Gunn- laugur handhafi rannsóknarstyrks við Nordita (Nordisk Institut for Teoretisk Atomfysik) í Kaup- mannahöfn þar sem hann starfaði undir handleiðslu prófessors Ro- land Svensson. Niðurstöður þeirra rannsókna voru lagðar fram til doktorsprófs við háskólann í Ulinor is. Frá 1989 hefur Gunnlaugur haldið áfram rannsóknum á virk- um vetrarbrautum í samvinnu við Roland Svensson og hefur hlotið til þess styrki úr vísindasjóði, frá Nordita og Nordiska Forskar- stipendier. Gunnlaugur er nú búsettur í Lundi í Svíþjóð. Hann er kvæntur Ástríði Jóhannesdóttur svæfinga- lækni og eiga þau tvær dætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.