Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FOLK B FRfc I I UjMiHgiN&lÆDAGUK 18i NÓVE.M13KIÍ ?99Q-
^ Morgunblaðið/Þorkell
Gestir á íslandskynningu fyrir erlenda nemendur við Haskóla íslands.
ISLANDSKYNNING
Um 200 erlendir stúd-
*
entar við nám í H.I.
Islandskynning fyrir erlenda
nemendur við Háskóla íslands
var nýlega haldin á vegum Há-
skólans, menntamálaráðuneytis
og utanríkisráðuneytis. Kynning-
in var vel sótt og komu nemend-
ur víða að, m.a. frá Kína, Ma-
rokkó, Póllandi og Júgóslavíu.
Háskóli íslands hefur á undan-
fömum árum lagt aukna áherslu á
alþjóðasamskipti í starfi sínu. Er-
*— Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Bjarni Sævar fyrir miðju ásaml byggingarmönnum sínum.
HOFN
Byggingaráfanga fagnað
NYALDARFRÆÐI
Flest erum við
hrein vélmenni
Bjarni Sævar Geirsson bygging-
armeistari og menn hans
drógu fána að hún í tilefni þess að
sperrur eru komnar á blokkina er
þeir eru að reisa við Sandbakkaveg
lendir námsmenn við skólann eru
mikilvægur þáttur í eflingu sam-
skiptanna, en þeir hafa aldrei verið
fleiri en í ár, eða tæplega tvö hundr-
uð, þar af heimingur nýnema.
Á kynningunni voru stúdentarnir
fræddir um jarðsögu íslands og
náttúrulegar auðlindir, íslenska fé-
lagsgerð, efnahagslíf og stjórnmál
auk þess sem sag'a og menning ís-
lendinga var kynnt.
á Höfn. Það er þó ekki fyrr en
næsta haust að væntanlegir eigend-
ur komast inn en þá skilar Bjarni
húsinu fullkláruðu af sér.
- JGG.
MIKIÐ er rætt um svokallaða
nýöld þessi misserin og ýmis
teikn þykja vera á lofti um að heim-
ur batnandi fari fyrir tilstilli nýrra
áherslna í mannsandanum. Nýaldar-
fræðin eru margvísleg og ekki verð-
ur hér farið út í skilgreiningar. Hins
vegar getið þess að um þessar mund-
ir er stödd hér á landi dr. Paula
Horan, 37 ára gömul bandarísk
kona, doktor í sálfræði, sem hefur
lagt fyrir sig og tileinkað sér fyrir-
bæri sem heitir „reiki“. Um það
hefur hún haldið fyrirlestra og nám-
skeið og í febrúar er hennar aftur
von hingað til lands til frekari
menntunar íslendinga í nýaldar-
fræðum. Morgunblaðið ræddi aðeins
við Paulu fyrir skömmu, bað hana
fyrst að útlista hvað „reiki“ eiginlega
væri. Hún svaraði á þessa leið:
„Til að svara þessu verður fyrst
að líta aðeins á upprunann. Þannig
var, að í kringum 1840 var doktor
að nafni Mikao Usui skólastjóri við
lítinn kristinn háskóla í Kyoto í Jap-
an. Dag einn komu nokkrir nemenda
Usuis að máli við hann og spurðu
hvort hann tryði á biblíuna í bókstaf-
legum skilningi. Hann svaraði ját-
andi. En ungmennin bentu honum
þá á frásagnir um lækningamátt
Krists og þau orð hans að mernirn-
ir myndu gera slíkt hið sama og
meira að segja stórkostlegri hluti.
Hvers vegna væru þá ekki slíkir
kraftaverkamenn að störfum um
heim allan? Báðu ungmennin Usui
um að kenna sér þessi fræði sem
biblían segði svo vandlega frá. Svo
sem dæmigert var fyrir Japana, var
heiður Usuis að veði. Hann varð að
finna svör við spurningum nemenda
sinna og sagði starfi sínu lausu við
skólann nokkru síðar til þess að leita
sannleikans. Þar sem flestir kennara
hans voru frá Bandaríkjunum hóf
hann eftirgrennslanir sínar þar, nán-
ar tiltekið í Chicago. Ekkert fann
hann í doðröntum þar, né heldur í
fræðiritum búddatrúarmanna í Jap-
an eða í gömlum trúarfræðum
Kínveija. Það var ekki fyrr en hann
var kominn til Tíbet að hann rakst
á nokkuð sem vakti athygli hans í
helgiritum í klaustri einu. Það var
nokkurs konar lýsing á virkjun þess
sem á japönsku kallast reiki og
gæti á íslensku útlagst alheims
lífskraftur.
En hvað er reiki? „Reiki er mjög
einfalt og allir geta lært það. Meira
að segja börn. Það er einfaldlega
lykill mannshugans að því að bæta
hluti. Sjálfslækningar, bæði andlegs
og líkamlegs eðlis, stilling sorgar og
kvíða. Það eykur jafnvægi mannsan-
dans og hjálpar fólki til að skilja
betur lífið sjálft. Allt of margir vaða
villu þar um og eru á flótta frá lífinu,
en það er allt að breytast og mun
taka stakkaskiptum næstu 20 til 30
árin. Teiknin eru á lofti og breyting-
arnar eru að komast á mikinn skrið.“
- Getur þú útskýrt þetta aðeins
betur?
„Reiki snýst um að gera okkur
meðvitaðri um þessa alheimsorku
sem við öil búum yfir. Þannig lærum
við að opna fyrir hana og beisla
hana til eflis og næmari skilnings á
umhverfinu. Það er alltaf að koma
mér meira og meira á óvart hvað
reiki fær áorkað og athyglisvert á
hve mörgum sviðum hægt er að
virkja þessa orku. Flestir kynnast
reiki er þeir eiga við einhvers konar
heilsuleysi að stríða og vilja reyna
óhefðbundnar leiðir til að fá bót
meina sinna. Fjölmargir hafa af því
mjög góða reynslu og á því sviði
sannar reiki sig best eins og dæmin
sanna.
„Þín er von í febrúar á nýjan leik
og þá stendur til að Tjalla um fyrir-
bærið kjarnefli. Getur þú útskýrt
hvað þar er á ferðinni?"
„Með kjarneflinu vinnum við með-
vitað að því að breyta þeim þáttum
persónuleika okkar sem skapa okkur
þjáningu. Við rífum okkur út úr fast-
mótuðum mynstrum sem ráða nán-
ast öllu okkar lífi og viðbrögðum og
förum að taka virkan þátt í að skapa
Dr. Pauia Horan
okkur þá framtíð sem við kjósum
sjálf. Lífsstíll okkar, einkum á
Vesturlöndum, hefur fallið í ákveð-
inn rótgróinn farveg síðustu ára-
tugi. Það hefur verið lífsgæðakapp-
hlaup og ör tækniþróun. Flestir hafa
farið í far sem þeir fara ekki úr.
Ótrúlega margt á dæmigerðum degi
verður hugsunarlaust, hreinn vani,
og smám saman þarf ekki mikla
vitund til að lifa heilu lífi. Það er
hart að segja það, en flestir eru
hrein vélmenni. Þessu hefur einnig
fylgt mikil firring, sem meðal ann-
ars hefur leitt til lífsflótta fjöl-
margra, ekki síst í gegnum vímu-
efni. En okkur er ekki alls varnað.
Segja má að veruleiki okkar mótist
af lífsskynjun okkar og viðhorfum.
Með kjarneflinu getum við breytt
hvaða viðhorfí sem er, og þar með
veruleikanum sem við upplifum.
Hvers vegna þá öll þessi þjáning?
Það getur borið með sér mikla neyð
og mikinn sársauka er menn standa
frammi fyrir sjálfum sér og tilfinn-
ingum sínum en geri menn það losna
þeir úr ánauðinni. Því getur fylgt
mikill sársauki og eitt það sem mað-
urinn er seigastur við, er að halda
fast við venjur og rótgróin kerfi.
Fæðingin verður því erfið, en upp-
skeran að sama skapi ríkuleg. Mað-
urinn er fæddur í þennan heim með
frjálsan anda og lífsins nýtur hann
ekki til fulls ef sá andi er á einhvern
hátt heftur. Þetta er óumflýjanleg
þróun mannkynnsins í átt til frelsis
og betra mannlífs.
INTERNATIONAL
MASA fyrirtækið býður mikið úrval íbúða, raðhúsa
og einbýlishúsa, eða milli 35-40 mismunandi gerðir
og stærðir, allt frá litlum „studíó“-íbúðum upp í glæsi-
leg einbýlishús og á verði sem erfitt er að slá út. 10
ára ábyrgð er á öllum byggingum fyrirtækisins. Verð
á húsum og íbúðum MASA er mjög mismunandi, eða
allt frá ísl. kr. 1.500.000,- og upp í rúmar 8.000.000,-
fyrir glæsilegt einbýlishús á stórri lóð og allt þar á
milli. Allar lóðir eru eignarlóðir og eru innifaldar í
uppgefnu verði. Farnar eru skoðunarferðir til Spánar,
dvalið á eigin hóteli MASA og verið í 4-5 daga. Fullt
fæði er innifalið. í ferðinni eru skoðuð þau 5 svæði,
sem fyrirtækið nú er að byggja á og eru húsin og
íbúðirnar sýndar tilbúnar með öllum húsgögnum og
fullbúnu eldhúsi. 2-3 daga tekur að skoða þetta allt
og einnig eru í söludeild fyrirtækisins góðar ljósmynd-
ir til að skoða nánar, t.d. á kvöldin í rólegheitum eftir
að heim á MASA hótelið er komið. Það skal tekið
þjónustu. Sundlaugar, tennisvellir, minigolf og keilu-
vellir eru einnig til staðar. Margt annað mætti upp
telja, svo sem að allar götur eru malbikaðar, allar
gangstéttar frágengnar, götulýsing og „græn svæði"
eru 40% af hverju hverfi. Allt þetta er framkvæmt
af MASA fyrirtækinu og húseigendur flytja í fullgert
hverfið. Allar nánari upplýsingar ásamt 24ra síðna Iit-
myndalista frá MASA fyrirtækinu eru hjá umboðsaðil-
um. Sendum um allt land. Gjörið svo vel og leitið
upplýsinga,
Næsta skoðunarferð auglýst fljótlega.
spænska stórfyrírtækið á Suður-Spáni, nánar tiltekið við
bæinn Torrevieja, hefur haldið innreið sína á ísiandi með
íslenskum umboðsaðilum, ásamt íslensku starfsfólki í
þjónustumiðstöð fyrirtækisins
á Spáni, sem erjafnan opin.
fram, að MASA byggir í öllum hverfum þjónustu-
kjarna, svo sem heilsugæslu, kjörbúðir, verslanir af
ýmsu tagi, veitingastaði, o.fl., o.fl. 1-2 bankar eru
einnig í hverfunum svo ekki þarf að fara langt í þá
fyrirtækið hefur einnig hafið byggingaframkvæmdir á hinum undurfagra staö, CALA D’OR
á suðausturhluta Mallorca og verða sýningarhúsin tilbúin nú í desember.
Þar er sérstaklega glæsileg aðstaða fyrir golf- og siglingaáhugafólk.
Nánar verður auglýst síðar skoðunarferð til Mallorca.
UMBOÐIÐ Á ÍSLAIUDI,
Pósthólf 365, 202 Kópavogi, sími 44365.