Morgunblaðið - 18.11.1990, Side 2
I có
oeei namzivóz .m kvomy.vay.u?. Jia/ua/'.ioíioi/.
MORGUNBLAÐIÐ SL7NNUI)AGIIR 18. NÓVEMBER T990
EFNI
2 FRÉTTIR/8NNLENT
>
Oþarft að breyta verð-
lagningu fasteigna
- segir formaður Félags fasteignasala
ÞOROLFUR Halldórsson, formaður Félags fasteignasala, segir bæði
óþarft og ógerlegt að breyta grundvelli verðlagningar á fasteigna-
markaði. Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Kaupþings sagði í Morg-
unblaðinu í gær, að sviptingar á húsbréfamarkaði kölluðu á að fast-
eignir verði verðlagðar á núvirði. Þórólfur segir meginhluta hús-
bréfa ganga manna í milli í fasteignaviðskiptum og engin afföll verði
í þeim viðskiptum.
etta hefur verið þannig að það
■ er ekki fyrr en á endapunkt-
inum sem verða einhver afföll,"
segir Þórólfur. „Kaupandi íbúðar
fær fasteignaveðbréf sem er þing-
lýst og seljandi skiptir því yfír í
húsbréf, engin afföll verða við þau
skipti. Þá er seljandi kominn með
húsbréf í hendurnar og ætlar að
kaupa sér aðra eign, hann framsel-
ur þessi húsbréf, á reiknuðu verði,
til þess sem hann kaupir af, og
sætir engum afföllum."
Þórólfur segir mjög mikið vera
um að fólk noti húsbréf á þennan
hátt. „Ég man ekki eftir einu ein-
asta dæmi hjá mér þar sem menn
hafa í svona áframhaldandi við-
skiptum þurft að sæta afföllum,“
segir hann. „Meðan þetta er gert
er ekki nokkur þörf á því að fara
út í breyttar verðlagningaraðferð-
ir.“
Þórólfur segir að þrátt fyrir að
húsbréfin séu mjög algeng, sé enn
í gildi samanburður milli hefðbund-
inna kjara og húsbréfakaupa. Þá
séu kauptilboð núvirt og það sé
gert í vaxandi mæli. „Ef á að fara
að breyta verðlagningunni þarf að
fara út í miklu róttækari aðgerðir
með hliðsjón af fleiri þáttum eins
og aldri, ástandi og viðhaldi hús-
næðisins, staðsetningu, eftirspurn
á viðkomandi svæði, það eru svo
margir slíkir þættir sem hafa áhrif
á verðlagninguna."
Alþýðuflokkurinn:
Opið prófkjör
í Reykjavík
eftir áramót
„ÉG MUN leggja fram tillögu á
kjördæmisþingi um að prófkjör
verði í Reykjavík með sama hætti
og venjulega, það er að segja
opið prófkjör," segir Birgir Dýr-
fjörð, formaður Fulltrúaráðs al-
þýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
Kjördæmisþingið verður haldið á
næstunni, en Birgir segir ekki
vera búið að tímasetja það.
Birgir segist telja einsýnt aðpróf-
kjör verði haldið í Reykjavík,
hann heyri ekki annað en að víðtæk-
ur stuðningur sé við það. Hann telur
líklegt að prófkjörið verði haldið í
janúar næstkomandi. Reglur um
kosningarétt eru að sögn Birgis í
megindráttum þær, að þeir sem ekki
eru félagar í öðrum stjórnmálasam-
tökum eigi rétt á að kjósa.
Framsóknarflokkurinn:
Framboðið í Reykjavík
deilumál á flokksþingi
Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður sagði á flokksþingi
Framsóknarflokksins að ef sljórn fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík
vildi ekki ógilda skoðanakönnun um framboðslista, sem fram fór
um síðustu helgi, þá myndi hann hugsa vel sinn gang. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra skoraði hins vegar á Guðmund að
taka 2. sæti á lista fiokksins í Reykjavík, í samræmi við niðurstöðu
skoðanakönnunarinnar.
Guðmundur G. Þórarinsson sagði
við Morgunblaðið, að .sér
kæmi ekki á óvart þótt stjóm full-
trúaráðsins staðfesti niðurstöðu
prófkjörsins, enda væri hún vanhæf
tii að skera úr þessu máli. Hann
sagði að ekki væri tímabært að
ræða hvernig hann myndi bregðast
við slíkri niðurstöðu. A flokksþing-
inu sagði hann hins vegar, að þar
sem drengskapur væri ekki til stað-
ar fyndist sér þröngt að sitja. Hann
ætti ákaflega erfitt með að sætta
sig við að orð stæðu ekki, og var
þar að vísa til samkomulags sem
hann segir þá Finn Ingólfsson hafa
gert um að Guðmundur yrði í efsta
sæti listans. Finnur Ingólfsson mót-
mælti því á flokksþinginu að slíkt
samkomulag hefði verið gert.
Steingrímur Hermannsson sagði
að prófkjörum í Reykjavík hefðu
oft fylgt sárindi og sagði að sár
vegna prófkjörs árin 1987 og 1983
væru enn ekki gróin. Hann sagði
að ekki væri um nema eitt að ræða,
að listann nú ætti að skipa í sam-
ræmi við niðurstöður prófkjörsins
og Guðmundur G. Þórarinsson ætti
að skipa 2. sæti listans.
Ýmsir flokksmenn tóku óstinnt
upp ummæli Guðmundar um óheil-
indi við prófkjörið. M.a. mótmælti
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi
slíkum ásökunum.
Iðnfyrirtæki og verktakar í viðbragðsstöðu fyrir væntanlega byggingu áivers:
Verða íslendingar útund-
an í alþjóðlegu stórútboði?
Á NÆSTU vikum og mánuðum ræðst hvort ráðist verður í
stærstu framkvæmd sem um getur hér á landi, byggingu 200
þúsund tonna álvers á Keilisnesi, sem verði gangsett 1994. Fjár-
festing í álveri, virkjunum og línulögnum verður um 100 milljarð-
ar króna. Verkin verða boðin út á alþjóða markaði, væntanlega
í lokuðu útboði, og verður bygging álvers undir stjórn
alráðgjafa, að öllum líkindum alþjóðlega verkfræðifyrirtækisins
Bechtel, sem nú vinnur að lokaathugun á aðstæðum og kostnaði
við bygginguna á Keilisnesi. Hugmyndir hafa komið fram um að
stytta byggingartíma álversins í tvö ár og segir Jóhannes
Nordal, formaður álviðræðunefndarinnar, að Atlantsál hafi það
nú í athugun við endurskoðun á kostnaðaráætlunum.
Samkvæmt nýjum hugmyndum
Bechtel er áætlað að mann
aflaþörf á byggingartíma álvers-
ins verði 2.918 ársverk, sem er
nokkur aukning frá fyrri áætlun-
um. íslensk fyrirtæki eru í við-
bragðsstöðu því erlendir aðilar
hafa þegar hafíð undirbúning til-
boða. Málmiðnaðarfyrirtæki hafa
snúið bökum
saman í einu
samstarfs- w
fyrirtæki,
Sámeinuðum
iðnverktökum
hf., gagngert í
þeim tilgangi
að ná álitlegum verkþáttum við
stóriðjufrarpkvæmdirnar, og unn-
ið er að samvinnu fleiri fyrirtækja
í eitt stóriðjunet, þar sem vitað
er að íslensk smáfyrirtæki eiga
enga möguleika þegar um svo
tröllaukið verkefni er að ræða.
Enn hefur þó engin ákvörðun
um álver verið tekin og það skap-
ar vaxandi spennu. Gunnar Birg-
isson, formaður Verktakasam-
bands íslands, segir verktaka lítið
geta aðhafst þar sem ákvörðun
liggi ekki fyrir. „Það er ekki held-
ur vitað hvernig Atlantsál ætlar
að standa að útboðum. Á að
semja við einn verktaka eða á að
bjóða út? Við höfum farið fram á
það við forráða-
menn Atlantsáls
að þeir búti
þessa verkþætti
niður svo ís-
lenskir verktak-
ar geti ráðið við
þá,“ segir hann.
Áætlanir hafa til þessa rniðast
við þriggja ára byggingartíma og
vinna við álverið sjálft hefjist
næsta haust. Verði byggingar-
tíminn hins vegar styttur minnka
möguleikar íslendinga enn frekar
á þátttöku í framkvæmdunum.
Sameinaðir iðnverktakar hf. vinna
nú m.a. að því að erlendir starfs-
menn við bygginguna verði ráðnir
í -gegnum íslensk fyrirtæki, að
sögn Ingólfs Sverrissonar, fram-
kvæmdastjóra Félags málmiðnað-
arfyrirtækja.
Jóhannes Nordal segir að gert
sé ráð fyrir útboði við álversfram-
kvæmdir og áhersla sé lögð á að
því verði hagað þannig að Islend-
ingar eigi kost á að bjóða í verk-
ið. Margir óttast nú að hingað
komi mikið af ódýru erlendu
vinnuafli sem geri litlar kröfur og
að verktakar freistist til að halda
því hér eins lengi og hægt er,
færi starfsmenn á milli verka og
framkvæmi þannig verkhluta sína
á sem ódýrastan hátt.
Þrátt fyrir að upphafi fram-
kvæmda við byggingu álversins
verði seinkað fram á árið 1992,
ef byggingartíminn styttist, er
þegar farið að vinna að undirbún-
ingi á svæðinu. Starfshópur um
stóriðjumál á Suðurnesjum hefur
nú lokið störfum, að sögn Odds
Einarssonar, starfsmanns nefnd-
arinnar. Hann segir að Atlantsáls-
menn hafi upphaflega óskað eftir
að sveitarfélögin á svæðinu tækju
að sér ýmis verkefni við byggingu
álvers. „Undir lok samningavið-
ræðna sneru þessir aðilar við blað-
inu og vildu framkvæma þessi
verkefni sjálfir. Vatnsleysu-
strandarhreppur hefur því mynd-
að eigin nefnd sem er í samvinnu
við þessi fyrirtæki varðandi ýmsar
framkvæmdir á svæðinu, svo sem
vegna hafnargerðar, vegagerðar
og vatnsveitu," segir hann. Að
undanförnu hefur Bechtel verið í
samstarfi við Verkfræðistofu Sigr
urðar Thoroddsen og Hönnun hf.
við undirbúning vegna hafnar-
framkvæmda o.fl. verkefna og
hafa öldumælingar hafist. Áætlað
er að kostnaður við þessar fram-
kvæmdir verði á bilinu 1-1,5 millj-
arðar króna.
Heyrst hefur að erlendir aðilar
hafi kynnt sér möguleika á hent-
ugu húsnæði hér á landi og hafi
m.a. kannað húsnæði þrotabús
Stálvíkur í Garðabæ, en íslensku
samstarfsfyrirtækin hafa einnig
haft augastað á því.
Verkefnið er tröllaukið að
stærð. í hugmyndum Bechtel um
mannaflaþörf á rúmlega tveggja
ára byggingartíma kemur fram,
að þegar framkvæmdir standa
sem hæst muni samtals 2.100
manns starfa við þær. Þar af má
nefna að gert er ráð fyrir að á
árinu 1993 muni rúmlega 200
pípulagningarmenn vinna við
verkið, 417 verkamenn, 316 tré-
smiðir, 120 vélvirkjar, 466 raf-
virkjar og 224 vélsmiðir. Ætli ís-
lensk fyrirtæki að eiga möguleika
á tilboðum í stærri hluta þessara
verka er ljóst að það tekst aðeins
með markvissum undirbúningi og
samstarfi í einu, samkeppnishæfu
stóriðjuneti.
BMiSVIÐ
eftir Ómar Frióriksson
Addi Kitta Guj
► Agnes Bragadóttir ræðir við
Guðjón A. Kristjánsson, forseta
Farmanna og fiskimannasam-
bands Islands/10
Sótt að Járnfrúnni
►Guðmundur Heiðar Frímansson,
fréttaritari Morgunblaðsins í Bret-
landi skrifar um stöðu Margrétar
Thatcher forsætisráðherra Breta,
sem berst fyrir endurkjöri á þriðju-
dag./14
Best að gera kvik-
myndirnar á ísiandi
►Metsöluhöfundurinn Jean M.
Auel í einkaviðtali við Morgunblað-
ið/16
Dagar í Jemen
►Jóhanna Kristjónsdóttir heldur
áfram frásögn sinni af dvölinni í
Jemen nýverið. /20
Hreyfingarleysi barna
►Anton Bjarnason, lektor í íþrótt-
um við Kennaraháskóla Islands,
hefur vakið athygli á hreyfíngar-
leysi barna á forskólastigi og bent
á leiðir til úrbóta./22
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-24
IMýtt byggingarsvæði í
Kópavogi
►Viðtal við Björn S. Hallsson,
arkitekt/14b
Þá riðu hetjur
um héruð
► Sveinn Guðjónsson ræðir við
Ottar Guðmundsson lækni um ást-
ir að fomu og nýju, áfengissýki
og sitthvað fleira/1
Hárvöxturkvenna
►Sagt frá hatrammri baráttu
kvenna gegn óæskilegum hárvexti
hérogþar/6
Erlend hringsjá
► Macmillan fær uppreisn æru /12
II Palio
►Lensuriddarar, gunnfánar, ópr-
úttnir knapar og blessuð hross í
einstökum kappreiðum á Italíu /14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Fjölmiðlar 18c
Dagbók 8 Kvikmyndir 20c
Hugvekja 9 Dægurtónlist 21c
Leiðari 24. Menning.st. 22c
Helgispjall 24 Minningar 24c
Reykjavíkurbréf 24 Bíó/dans 26c
Fólk í fréttum 42
Karlar 42
Útvarp/sjónvarp 44 Áfömumvegi 28c
Gárur 47 Samsafnið 30c
Mannlffsstr. 8c Bakþankar 32c
INNLENDARFF tÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4