Morgunblaðið - 18.11.1990, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NOVEMBER 19&0
5
f • \fS
—
Bolungarvík:
Bæjarstjórn
samþykkir
kaup á 56,51%
hlut í Græði
Bolungarvík.
BENEDIKT Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfyrirtæk-
isins Græðis í Bolungarvík hefur
gengið að tilboði því, sem bæjar-
stjórn gerði fyrirtækinu þann 7.
þessa mánaðar, í 56,51% hlut í
fyrirtækinu. Tilboð bæjarstjórn-
ar hljóðaði upp á 49,7 milljónir
króna. Eignir útgerðarfyrirtæk-
isins Græðis eru 204 lesta stálbát-
ur, Flosi ÍS, ásamt veiðiheimild-
um, sem eru rúmlega 600 þorsk-
ígildi, og þúsund fermetra fisk-
vinnsluhúsi. Eru eignir félagsins,
að meðtöldu lausafé, metnar á
um 175 milljónir króna.
Um þetta mál var ijallað fyrir
luktum dyrum á bæjarstjórn
arfundi sl fimmtudag. Samþykkt
var á fundinum, að fela lögmanni
bæjarins og bæjarstjóra að ganga
til samningagerðar á grundvelli til-
boðsins.
Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri,
sagði að tekist hefði góð samvinna
með bæjarstjórn og Verkalýðs- og
sjómannafélagi Bolungarvíkur í
þessu máli. Verkalýðs- og sjó-
mannafélagið leggi fram kr. 10
milljónir af þessu tilboði og bæjar-
sjóður 39,7 milljónir. Nú verði farið
að vinna að því, að stofna almenn-
ingshlutafélag, því ekki sé meining-
in að bæjarsjóður bindi fé í þessum
rekstri, heldur sé hér um að ræða,
að sporna við því að aflaheimildir,
og þar með atvinnutækifæri fyrir
íbúa staðarins, fari burt úr byggðar-
laginu. Það sé verkefni bæjarstjórn-
ar í þessu máli fyrst og fremst.
„Það er mín skoðun, og fjöl-
margra sveitarstjórnarmanna, að
sala skipa og veiðiheimilda, eins og
hún hefur verið undanfarið, geti
tröllriðið sjávarþorpum og bæjum
og ljóst er, að sveitarfélögin geta á
engan hátt tekið þátt í uppboðs-
markaði í samkeppni við fjársterka
aðila, sem eru jafnvel að nota sér
skattalög til hagræðingar fyrir önn-
ur fyrirtæki," sagði Ölafur Krist-
jánsson bæjarstjóri' Bolungarvíkur
að lokum.
Gunnar
íslendingar
margfaldir
sigurvegarar
ÍSLENDINGAR báru sigur úr
býtum í samkeppni norrænu
krabbameinsfélaganna „Hættum
að reykja - til vinnings". Sigruðu
íslendingar bæði á landsvísu og
í keppni þeirra norrænu vina-
bæja, sem valdir voru til þátt-
töku. Rúmlega tvö þúsund manns
tóku þátt í keppninni hér á landi.
Þeir einstaklingar, sem tóku þátt
í keppninni, skuldbundu sig til
að nota ekki tóbak í fjórar vikur.
Aðeins íslendingar og Svíar kepptu
á landsvísu og tóku hlutfallslega
fleiri þátt í keppninni hér á landi en
í Svíþjóð, eða 1,1% fullorðinna
landsmanna á móti 0,3%.
Auk þessarar landskeppni voru
þtjár „vinabæjakeðjur“ valdar sér-
staklega til þátttöku. Fyrir íslands
hönd tóku þar þátt Sauðárkrókur,
Selfoss og Kópavogur. í þessari
keppni kom Sauðárkrókur best út,
þar tóku 3,7% fullorðinna íbúa þátt
í keppninni, Selíbss næstbest, með
3,2% þátttöku og í þriðja sæti varð
Kópavogur, með 1,9% þátttöku.
Næst á eftir íslensku bæjunum kom
Kalmar í Svíþjóð með 1,6%.
Mismunur: kr. 102.350
w!3M
Brottför
Lengd ferða
Staða
,ð miðað
við 2 í íbúð
19. des.
Jólaferð
UPPSELT
11. jan.
4 vikur
Nokkur sæti laus
kr. 48.355
8. feb.
3 vikur
Laus sæti
kr. 48.925
1. mars
26 daaar
Laus sæti
kr. 57.355
Samviiiiiiilerðir-Lai][ls]/ii
Reykjavík: Austurstræti 12. S. 91 - 69 10 10. Innanlandsferðir. S. 91 • 6910 70.
Póstfax 91 - 2 77 96. Telex 2241. Hótel Sögu við Hagatorg. S. 91 - 62 22 77. Póstfax 91 - 62 39 80.
Akureyri: Skipagötu 14. S. 96 - 27 200. Póstfax 96 - 2 75 88. Telex 2195.
Verð með staðgreiðsluafslætti miðað við gengi 1. nóvember. Aimennt
verð er 5% hærra en staðgreiðsluverð
og er án flugvallarskatts.
SPARIB ALLT AD
102.350 KR.
Veljið vetrarsólina á
Benidorm og krækið ykkur í
ódýrt aukasumar!
Ferðirnar í vetrarsólina á Benidorm eiga sér enga hlið-
stæðu á markaðnum.
Þær eru mun ódýrari en allar aðrar sambærilegar ferðir og
auk þess sneisafullar af sketpmtilegu fólki og fjölbreyttri
afþreyingu. Boðið er upp á fyrsta flokks íbúðagistingu,
skoðunarferðir og skemmtidagskrá, sælkerakvöld,
sjóræningjakvöld og hreina afslöppun, allt eftir því sem
mönnum hentar. Hefur einhver efni á að sleppa svona
tækifæri?
Gerið verðsamanburð - það borgar sig...
Dæmi um sambærilegar 3ja vikna ferðir:
Kananíeyjap Benidonm
Brottför 30. jan. 3 vikur
kr. 100.100 staðgr.
miðað við tvo í íbúð,
Barbacan Sol.
Verð fyrir hjón
kr. 200.200
Brottför 8. feb. 3 vikur
kr. 48.925 staðgr.
miðað við tvo í íbúð,
Residence el Paraiso
Verð fyrir hjón
kr. 97.850
Tryggið ykkur rétta vetrarævintýrið í tíma
\v
Sífellt fleirum verður Ijós nauðsyn þess að blása nýju lífi í kroppinn
og endurreisa sálina með tilbreytingu og hollri útiveru. Þetta á ekki
síst við þegar skammdegið þjarmar að og Þorrinn bítur.
Eftirspurnin í skíðaferðir Samvinnuferða-Landsýnar til Austurríkis
eykst því ár frá ári og er vissara að hafa tímann fyrir sér og gera
nauðsynlegar ráðstafanir áður en skammdegið skellur á.
Nokkur dæmi um staðgreiðsluverð til vinsælla staða
í febrúar og mars:
Hotel Alpenhof 57.200 kr.
Hotel Norica 60.600 kr.
Rissbacherhof Hotel 49.280 kr.
4 í íbúð 54.700 kr.
E
Hotel Waldhof 59.500 kr.
Hotel Hubertushof 47.900 kr.
Hotel Ballunspitze 45.720 kr.
Hotel Savoy 55.930 kr.
4 í íbúð 45.650 kr.
Hotel Lárchenhof 54.920 kr.
Skemmtileg tilbreyting
- kynntu þér málið!
Innifalið í verði er flug og gisting með hálfu fæði í eina viku.
Verð er miðað við gengi 1. nóv. 1990 og erán flugvallarskatts.
Samvinauferðir-Landsýn
Reykjavik: Auslurstræli 12. S. 91 - 69 10 10. Innanlandsterðir. S. 91 • 69 10 70. . »
Póstlax 91 - 2 77 96. Telex 2241. Hótel Sógu við Hagatorg. S. 91 - 62 22 77. Pðstfax 91 • 62 39 80.
Akureyri: Skipagötu 14. S. 96 - 27 200. Póstfax 96 - 2 75 88. Telex 2195.