Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 8
86
oeei
DAGBÓK 'HWiföisuR': B: .RWemb
ER 1990
fk A /^*er sunnudagur 18. nóvember, 23. sd. eftirTrínit-
UÍWJ atis. 322. dagurársins 1990. Árdegisflóðí •
Reykjavík kl. 6.42, stórstreymi, flóðhæð 3,90 m. Síðdegis-
flóð kl. 18.55. Fjara kl. 0.28 ogkl. 12.56. Sólarupprásí
Rvík kl. 10.05 ogsólarlagk. 16.20. Myrkurkl. 17.21. Sólin
er í hádegisstað í Rvík kl. 13.13 og tunglið er í suðri kl.
14.05. (Almanak Háskóla íslands.)
Því að ef við vorum óvinir Guðs og urðum sættir við
hann með dauða sonar hans, því fremur munum vér
frelsaðir verða með lífi sonar hans, nú er vér erum í
sátt teknir. (Róm. 5,10.)
ARNAÐ HEILLA
n /\ ára afmæli.'Mánudag-
4 V/ inn 19. nóvember er
sjötugur Guðmundur Sig-
urður Siguqónsson,
Fagrabæ 1, Rvík. Kona hans
er Inga Sigríður Kristjáns-
dóttir. Þau verða að heiman
á afmælisdaginn.
ri rv ára afmæli. Á morg-
I U un, 19. þ.m., er sjötug-
ur Matthías Guðmundsson
húsasmíðameistari, Hring-
braut 104, Keflavík. Kona
hans er Friðbjörg Olína
Kristjánsdóttir. Þau verða að
heiman á afmælisdaginn.
frrvára afmæli. Næst-
OU komandi þriðjudag, 20.
nóvember, er fimmtugur Sig-
urður E. Þorkelsson, skóla-
stjóri Holtaskóla í Keflavík.
Hann og kona hans, Hildur
Harðardóttir, taka á móti
gestum í félagsheimili Karla-
kórs Keflavíkur, Vesturgötu
9 þar í bænum, á afmælisdag-
inn milli kl. 20 og 23.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
FRÉTTIR
ÞENNAN dag árið 1868
fæddist Einar Jónsson
myndhöggvari og árið 1909
fæddist Svavar Guðnason
listmálari.
HÁSKÓLI íslands. Mennta-
málaráðuneytið augl. í Lög-
birtingi lausa stöðu forstöðu-
manns Reiknistofnunar Há-
skólans. Þar segir að mennt-
unar- og hæfniskröfur miðist
við prófessorsstöðu með
áherslu á stjórnunarþátt
starfsins. Staðan verður veitt
til fjögurra ára frá 1. janúar
á næsta ári. Umsóknarfrestur
er til 29. þ.m. í sama Lögbirt-
ingi er augl. laus til umsóknar
lektorsstaða í sagnfræði við
heimspekideild Háskólans.
Umsóknarfrestur er settur til
29. þ.m.
KOSNINGARÉTTUR ísl.
ríkisborgara sem búsettir
eru erlendis heitir augl. frá
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu í Lögbirtingablaðinu
frá 9. þ.m. Þessi tilk. á erindi
við íslendinga sem búsettir
hafa verið erlendis og hafa
kosningarétt hér. Þeim rétti
halda þeir í átta ár frá því
þeir fluttust burt. Eftir það
falla menn sjálfkrafa út af
kjörskránni, segir í þessari
tilk., nema sérstaklega sé sótt
um um að fá að halda kosn-
ingarétti. Umsókn um slíkt
frá þeim sem búsettir hafa
verið erlendis lengur en átta
ár á að senda Hagstofu ís-
lands á sérstöku eyðublaði.
Sé umsóknin fullnægjandi
gildir skráningin í fjögur ár.
Umsókn um að komast á kjör-
skrá þarf að berast Hagstof-
unni fyrir 1. desember nk.
vegna kjörskrár fyrir næstu
kosningar. Umsækjendur
verða skráðir þar sem þeir
áttu seinast lögheimili,
samkv. þjóðskrá, segir að lok-
um í tilkynningunni.
KROSSGATAN
HR
9
33
13
TT
Hi~mz
■___
I22 23 24
LÁRÉTT: 1 rithöfundur, 5
báran, 8 þor, 9 Iævísa, 11
starfið, 14 dyl, 15 spaðann,
16 endurtekið, 17 skrúfur, 19
undiroka, 21 veita tign, 22
oft, 25 gyðja, 26 poka, 27
sefí.
LÓÐRÉTT: 2 grænmeti, 3
dæld, 4 þvaðrar, 5 þátttak-
endur, 6 herflokkur, 7 keyra,
9 þrjótur, 10 þjálfunin, 12
viðurkenndar, 13 kroppaði,
18 hafa i hyggju, 20 til, 21
frumefni, 23 varðandi, 24
fæði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: 1 slota, 5 hljóð, 8 ífæra, 9 magur, 11 akrar,
14 árs, 15 svörð, 16 annan, 17 aur, 19 erta, 21 magi, 22
utantil, 25 lár, 25 fat, 27 inn.
LÓÐRÉTT: — 2 lóa, 3 tíu, 4 afráða, 5 hrasar, 6 lak, 7 ósa,
9 Mosfell, 10 gröftur, 12 rangali, 13 runninn, 18 unna, 20
at, 21 mi, 23 af, 24 tt.
Kvennalistinn vill
Ég er með slæmar fréttir, stelpur. Það eru allir orðnir hundleiðir á þessu prjóna- og basar veseni
á okkur...
FÉL. eldri borgara Opið
hús í dag í Goðheimum við
Sigtún kl. 14. Fijáls spila-
mennska og tafl. Dansað kl.
20. Á mánudaginn er opið hús
í Risinu. Opnað kl. 14 en kl.
15 skáldakynning. Nokkur
skáld lesa þá úr bókum sínum
sem út koma fyrir jólin.
SAMTÖK um sorg og sorg-
arviðbrögð. Opið hús nk.
þriðjudagskvöld í safnaðar-
heimili Laugarneskirkju kl.
20-22. Á sama tíma veitt
uppl. og ráðgjöf í síma 34516.
BARÐSTRENDINGAFÉL.
Sunnudagsspilafundur í Skip-
holti 70 kl. 14 í dag. Kaffiveit-
ingar.
ITC-deildin ÝR heldur fund
mánudagskvöldið kl. 20.30 í
Síðumúla 17. Þær Anna, s.
611413, og Vigdís gefa nán-
ari upplýsingar. Fundurinn er
öllum opinn.
MIGRENSAMTÖKIN halda
fund mánudagskvöldið kl.
20.30 í Hlaðvarpanum Vest-
urgötu 3. Davíð Gíslason of-
næmislæknir talar um migren
og matarræði.
í EYJAFIRÐI. Oddviti Saur-
bæjarhrepps hefur tilk. í Lög-
birtingablaðinu að frá 1. nóv-
ember hafí verið bönnuð með
öllu lausaganga búfjár á
vegsvæðum þjóðvega í
hreppum. Gildistaka banns-
ins nær þó ekki til vegsvæða
Sölvadalsvegar. Hrepps-
nefndin hafí ákveðið að fresta
gildistökunni ótímabundið.
Oddviti Saurbæjarhrepps er
Sigurgeir Hreinsson.
MOSFELLSBÆR. Tækni-
fræðingur bæjarins tilk. í
Lögbirtingi að fram til 7. des-
ember liggi frammi í skrif-
stofu bæjarins tillaga að deili-
skipulagi fyrsta áfanga íbúð-
arbyggðar þar í bænum:
Vestan Tangahverfis. Samkv.
tilk. er fyrirhugað að á svæð-
inu rísi 20 einbýlishús, 53
íbúðir í raðhúsum og í fjölbýl-
ishúsum 15 íbúðir, eða sam-
tals 88 íbúðir á þessu svæði.
Hugsanlegum athugasemd-
um á að koma á framfæri við
bæjarstjórnina fyrir 7. des.
nk.
FRUMHUGMYNDIR. Fél.
ísl. hugvitsmanna tilk. í Lög-
birtingi að það hafi skráð
frumhugmynd í eigu Steins
Sigurðssonar, Steinaseli 1 í
Reykjavík, og íjallar hún um
hraðhrífu. Þá hefur félagið
skráð frumhugmynd Guð-
finnu Jónsdóttur, Hóla-
braut 13, Keflavík. Hún
fjallar um: Barnarúm og
homskáp.
JÓLABASAR Rauða kross-
ins, kvennadeildar í
Reykjavík, er í dag á Hótel
Lind við Rauðarárstíg og
hefst hann kl. 14. Ágóðinn
rennur til eflingar sjúklinga-
bókasafnanna í sjúkrahúsum
borgarinnar.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku-
lýðsfélagsfundur í kvöld kl.
20. Foreldrar ungra barna í
Ártúnsholti. Opið hús þriðju-
dagsmorgna kl. 10-12 í safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA. Æsku-
lýðsfundur í dag kl. 5.
GRAFARVOGSPRESTA-
KALL: Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn að lokinni
guðsþjónustu í dag, sunnu-
dag, kl. 3 í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Valið verður nafn á
kirkjuna. Verðlaunatillaga
arkitektanna Finns Björg-
vinssonar og Hilmars Þórs
Bjömssonar kynnt. Sýning á
6 tillögum úr lokaðri sam-
keppni um kirkjubyggingu í
Grafarvogi verður opin frá
kl. 17-22.
GRENSÁSKIRKJA: Fundur
í Æskulýðsfélagi Grensás-
sóknar í kvöld kl. 20.
NESKIRKJA: Mánudag:
Æskulýðsstarf 13 ára og eldri
kl. 19.30. Þriðjudag: Mömmu-
morgunn. Opið hús fyrir
mæður og börn .þeirra kl.
10-12. Æskulýðsstarf fyrir
10-12 ára þriðjudag kl. 17.
FELLA- og Hólakirkja:
Fundur í Æskulýðsfélaginu
mánudagskvöld kl. 20.30.
SELJAKIRKJA: Mánudag:
Fundur KFUK, yngri deild,
kl. 17.30, eldri deild kl. 18.
Æskulýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Opið hús fyrir
10-12 ára mánudag kl. 17.
Opið hús fyrir foreldra ungra
barna þriðjudag kl. 15-17.
MARÍUSYSTUR. Systir
Phanuela prédikar í guðsþjón-
ustu í Laugarneskirkju í dag
kl. 11 og í kvöld á samkomu
í kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58, á samkomu hjá
KFUM, kl. 20.30. Mánudag
kemur systir Phanuela á fund
í Kristilegu félagi heilbrigðis-
stétta í Laugarneskirkju kl.
20.30.
SKIPIN______________
RE YK JA VÍKURHÖFN:
í gær kom togarinn Jón
Baldvinsson inn af veiðum
og þá kom Jökulfell af
ströndinni.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: Á mánudag er
Svanur væntanlegur að utan.
í gær fór grænlenski togarinn
Simutaq, sem landaði bol-
fiskafla sínum.
ORÐABÓKIN
Að
Mikil óvissa er um notkun
smáorðanna að og af. með
sagnorðum. Oft má t.d. sjá
á prenti skrifað af gefnu
tilefni, þar sem hið rétta er
talið að gefnu tilefni. Þegar
Bretadrottning var hér á
ferð, hafði hún m.a. mikinn
áhuga á að skoða íslenzka
hestinn. Um það var komizt
svo að orði: Hún lét vel að
íslenzka hestinum. Ljóst
virtist samt af sambandinu,
að átt var við, að drottning
hafi látið vel af hestinum,
þ.e.a.s. borið honum vel aög-
una. Enn gera flestir mun
á orðasamb. að láta vel að
e-m og svo aftur láta vel
af e-m. í blaði var talað um
konu á tíræðisaldri, farna
af líkamlegum kröftum. Það
- «/
heitir hins vegar farinn að
kröftum, farinn að heilsu.
Þá hefur verið ruglazt á
samb. að gera mikið að e-u
og sett afí staðinn. í Þjóðv.
stóð þetta nýlega: „Það hef-
ur ekki mikið verið gert af
því og nánast ekki neitt.
Hér átti að standa gert að
því. Þá heitir það að dást
að e-u, en ekki af e-u, svo
sem oft má sjá og heyra.
Þá hef ég séð á prenti í
fyrirsögn: „Gengið að okkur
dauðum. “ í framhaldi stóð
svo þetta: „Ég get ekki séð
betur en það sé endanlega
verið að að ganga að okkur
dauðum." Hið rétta er vita-
skuld aðganga afe-m dauð-
um. = drepa e-n. JAJ