Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990
Tilboð ríkissljórnar í GATT-viðræðum:
Bindur hendur okk-
ar ekki á neinn hátt
- segir landbúnaðarráðherra
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra, segir að glanna-
lega hafi verið farið í túlkun á samningstilboði ríkisstjórnarinnar,
sem lagt hefur verið fram í GATT-viðræðunum um landbúnaðar-
mál. Hann segir að tilboðið bindi á engan hátt hendur ríkisstjórnar-
innar, og segir ekkert til um hver endanleg niðurstaða í samninga-
viðræðunum gæti orðið.
Steingrímur sagði að varðandi
þann þátt samningstilboðsins sem
snýr að innflutningi landbúnaðar-
vara þá hefði verið farin sama leið
og flestar aðrar þjóðir í sambæri-
legri stöðu hefðu farið. „I raun og
veru spiluðum við mjög varlega út
í því máli, og bindum hendur okkar
ekki á nokkurn hátt. Við segjumst
vera tilbúnir innan mjög skýrra tak-
marka að rýmka eitthvað þær regl-
ur sem gilt hafa hjá okkur um inn-
flutning, en nefnum engar sérstak-
ar vörur eða vöruflokka. Þá eru
heldur ekki nefndar neinar tölur í
þessu sambandi, en þess má geta
að þær þjóðir sem eru í sambæri-
legri stöðu og við hvað þetta snert-
ir telja sig vera bjóða 1-2% af mark-
aðshlutdeild. Það er því ljóst að til-
boðið er tiltölulega opið og segir
ekkert um það hver endanleg niður-
staða gæti orðið," sagði hann.
„Framkvæmd þessara mála verð-
ur auðvitað eftir sem áður að veru-
legu leyti í höndum landbúnaðar-
ráðuneytisins eins og er í gildandi
lögum, og það er rétt að það sé
haft í huga vegna þess að menn
hafa stundum verið með býsna
miklar yfirlýsingar um forræði í
Svavari Gests-
syni boðið til
Frakklands
JACK Lang menntamálaráð-
herra Frakklands hefur boðið
Svavari Gestssyni menntamála-
ráðherra í opinbera heimsókn til
Frakklands.
í bréfi til Svavars ítrekar Lang
þakkir fyrir þær móttökur og þá
menningarstarfsemi sem hann
komst í snertingu við hér á landi
og ítrekar vilja til að standa að
sameiginlegur verkefnum Islands
og Frakklands á menningarsviðinu.
þessu máli. Undir búvörulögin falla
innflutnings- og útflutningsmálefni
allra þeirra landbúnaðarvara sem
eru hefðbundnar búvörur í skilningi
laganna, og þetta gerir það að verk-
um að að óbreyttum lögum þá -er
mjög mikið forræði þessara mála á
höndum landbúnaðarráðuneytis-
ins.“
Steingrímur sagðist ætla að eiga
fund með forystumönnum bænda-
samtakanna á næstunni um samn-
ingstilboðið. „Ég vænti þess að þeg-
ar ég hef skýrt fyrir þeim þá af-
stöðu sem ég tel liggja til grundvall-
ar þessu tilboði, þá verði þeir sáttir
við það vegna þess að í öllum grund-
vallaratriðum þá er það í ágætu
samræmi við þær meginlínur, sem
lagðar hafa verið til grundvallar í
viðræðum ríkisvaldsins og bænda-
samtakanna um framtíðarstefnu-
mörkun í landbúnaði."
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Ólafsvík:
Gamla félagsheimilið rifið niður
Ólafsvík.
NÚ ER búið að rífa gamla félags-
heimilið í Ólafsvík. Það mun hafa
verið byggt um 1905 og var orð-
ið ónýtt.
Margir vegfarendur hægðu á
ferð sinni og fylgdust með þegar
vélar brutu niður bygginguna sem
verið hafði miðdepill alls félagslífs
í byggðinni á annan mannsaidur.
Rif þessa gamla húss lætur fæsta
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
*
Hringsól Alfrúnar og Bréf-
bátarigning Gyrðis tilnefndar
SKÁLDSAGAN Hringsól eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, sem út kom
1987, og smásagnasafnið Bréfbátarigningin eftir Gyrði Elíasson, sem
vár gefið út 1988, eru bækurnar sem tilnefndar eru af íslands hálfu
til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem veitt verða á Norður-
landaráðsþingi í Kaupmannahöfn á næsta ári.
Dönsku bækumar, sem eru til-
nefndar, eru smásagnasafnið Mell-
em himmel og jord eftir Svend ge
Madsen og Fortællinger um natten
eftir Peter Hoeg. Frá Finnlandi er
tilnefnd skáldsagan Vinterkrigets
tid eftir Eeva Kilpi og Ijóðasafnið
Stádren eftir Gösta gren. Af hálfu
Noregs er tilnefnd skáldsagan Fad-
er Armod eftir Arvid Hansen og
ljóðasafnið Meditasjoner over Ge-
orges de La Tour eftir Paal-Helge
Haugen. Sænsku bækurnar, sem
keppa um verðlaunin, eru Knivkast-
arens kvinna, prósalýrísk frásögn
eftir Kerstin Ekman, og leikritið
Endagsvarelser eftir Lars Norén.
Færeyingar tilefna ljóðasafnið
Hvorgiskin eftir Carl Jóhan Jansen
og Grænlendingar söguljóðið Nun-
anni Avani eftir Hans Anton Lynge.
Dómnefnd fyrir samiska mótsvæðið
tilnefnir í annað sinn ljóðasafnið
Solen, min far eftir Nils-Aslak
Valkeapáá.
Dómnefnd mun ákveða á fundi
sínum í Tromsö 25. janúar næst-
komandi hver ofangreindra bóka
hlýtur verðlaunin. Upphæð verð-
launaíjárins er 150.000 danskar
krónur, eða um hálf önnur milljón
íslenzkra króna. Verðlaunin verða
veitt við hátíðlega athöfn í tengslum
við Norðurlandaráðsþingið í Kaup-
mannahöfn 26. febrúar á næsta
ári. Af hálfu íslands sitja í dóm-
nefndinni Dagný Kristjánsdóttir
dósent og Sigurður A. Magnússon
rithöfundur.
HELGARRISPUR I NOVEMBER OG DESEMBER
Skemmtilegasta borg Skandinavíu. Verslanireru
opnará laugardögum. Góðirveitingastaðir,
jass og bjórstofur.
Kaupmannahöfn er París Norðurlandanna.
Þar er sagan, ævintýrin, menningin,
mannlífið og náttúrufegurðin.
Frábær hótel á vægu verði.
FLUGLEIÐIR
Þegar ferðatögin liggja íloftmu
ADMIRAL
FRÁ KR. 26.060,-
IMPERIAL
FRÁ KR. 30.792,-
SHERATON
FRÁKR. 31.086,-
COSMOPOLE
FRÁ KR. 27.558,-
ABSALON
FRÁ KR. 27.470,-
*Miöað við gistingu í tvíbýli
Í3 nætur.
Söluskrifstofur Fluleiða:
Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i sfma 690 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Ólsara ósnortna með öllu. Með fólki
bærast minningar liðinna ára allt
frá þvt að hafa verið krakki á
þijúbíó til þess að hafa átt þar
fyrstu kynni við lífsförunaut. Börn
þessa fólks munu svo heilsa nýrri
öld í öðru húsi. Svo mikið er víst
að starfsemi þessa horfna húss
markaði spor í líf margra einstakl-
inga og með ýmsum hætti.
Þess má geta að í Lionsklúbbi
Ólafsvíkur er nú rætt um að safna
sögu hússins á myndband og virkja
til þess minni fólks sem man marg-
þætta starfsemi sem í húsinu hefur
verið.
Þeir elstu muna langt. Þeir muna
t.d. vel þegar lag Ólsarans Olivers
Guðmundssonar Hvar ertu vina
varð frægt og ómaði á dansleikjum
í húsinu við ðlafsvíkurgil sem enn-
þá streymir áfram eftir hvarf húss-
ins eins og ekkert hafi í skorist.
- Helgi.
Opinn fundur
náttúrufræði-
félagsins
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
(HÍN) heldur opinii fund í Odda,
Hugvísindahúsi Háskólans,
stofu 101, mánudaginn 19. nóv.
kl. 20.30 um Hið íslenska nátt-
úrufræðifélag, Náttúrufræði-
stofnun og Náttúruhús.
HÍN er áhugamannafélag með
hart nær tvö þúsund meðlimi sem
hefur það að markmiði að efla
náttúrufræði í landinu og styrkja
ánægjuleg samskipti alþjóðar við
náttúru landsins, með fróðleik og
náttúruskoðun. Þetta hefur félagið
stundað þau 100 ár, sem það hef-
ur starfað (stofnað 1889). Nátt-
úrufræðistofnun Islands gegnir
sambærilegu hlutverki af hálfu
stjórnvalda: Að halda til haga og
auka þekkingu okkar á náttúru
Islands og miðla þeim fróðleik til
alþjóðar með safnahaldi, sýning-
um og útgáfu.
Flutt verða fjögur stutt fram-
söguerindi á fundinum: Freysteinn
Sigurðsson, um viðhorf HIN, Ey-
þór Einarsson, um Náttúrufræði-
stofnun íslands, Sveinbjörn
Björnsson, um Náttúruhús, og
Hjörleifur Guttormsson um nefnd-
arálit þau er fyrr er getið. Síðan
verða almennar umræður.
(Fréttatilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!