Morgunblaðið - 18.11.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1990
29
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Snyrtivöruverslun
Vanur starfskraftur óskast í hlutastarf í
snyrtivöruverslun.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
24. nóvember merktar: „Vanur - 8169“.
Prentari óskast
Okkur bráðvantar prentara sem fyrst í litla
prentsmiðju á landsbyggðinni. Þarf að vera
vanur offsetprentun og geta unnið sjálfstætt.
Góð vinnuaðstaða og góður tækjabúnaður.
Upplýsingar í síma 94-3223 og/eða 94-4554.
Skrifstofustarf
Fyrirtæki í útflutningi vill ráða starfskraft til
starfa við bókhald og ýmis önnur störf. Fullt
starf.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „B - 8763“, fyrir þriðjudagskvöld.
Bifvélavirki
Óskum eftir áhugasömum bifvélavirkja á
BOSCH-verkstæðið með reynslu í vélastill-
ingum. Viðkomandi verður þjálfaður í BOSCH
innsprautunarkerfum.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Laus störf
Ritari (618)
Fyrirtækið er traust innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík. Vinnutími frá kl. 9-17. Starfið er
laust strax.
Starfssvið: Almenn skrifstofu- og ritarastörf,
s.s. bréfaskriftir og skjalavarsla.
Við leitum að ritara, sem hefur góða kunn-
áttu í ensku og þýsku og getur starfað sjálf-
stætt. Hraðritunarkunnátta á þýsku æskileg,
en ekki skilyrði.
Vélvirki/Vélstjóri (494)
Fyrirtækið er stórt innflutningsfyrirtæki.
Starfssvið: Sala og afgreiðsla á varahlutum
í vélar og tæki á varahlutalager. Laust strax.
Umsjónarmaður (644)
Óskum að ráða starfsmann til þess að hafa
eftirlit með bílastæði við verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði í Reykjavík. Viðkomandi verður
að vera lipur, en ákveðinn í samskiptum.
Vinnutími á bilinu frá kl. 15-19 virka daga
og kl. 10-14 laugardag. Laust strax.
Prentsmiðja (647)
Prentsmiðja í Reykjavík óskar að ráða mann
til að annast filmu- og skeytingavinnu strax.
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé nákvæm-
ur, geti starfað sjálfstætt og hafi nokkurra
ára starfsreynslu.
Fagleg menntun á þessu sviði nauðsynleg.
Laun samkomulag. Starfið laust strax.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagva neurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Reksírarráðgjöf Skoðanakannanir |
Handknattleikssamband íslands
óskar að ráða
framkvæmdastjóra
Starfið felst í að annast daglegan rekstur
HSÍ, erlend samskipti og þjónustu við starfs-
nefndir og aðildarfélölg HSÍ. Önnur helstu
verkefni framkvæmdastjóra HSÍ eru:
★ Undirbúningur og framkvæmd fjáraflana-
verkefna og umsjón með fjármálum í
samvinnu við gjaldkera stjórnar HSÍ.
★ Framkvæmd samstarfssamninga við
stuðningsfyrirtæki HSÍ.
★ Skipulagning landsleikja hérlendis í sam-
vinnu við starfsnefndir og stjórn HSÍ.
★ Undirbúningur og framkvæmd ársþings
HSÍ.
Framkvæmdastjóri HSÍ tekur virkan þátt í
undirbúningi og skipulagningu heimsmeist-
arakeppninnar á íslandi árið 1995.
Handknattleikssambandið vill ráða áhuga-
saman og vel menntaðan framkvæmdastjóra
með góða tungumálaþekkingu og reynslu á
sviðið markaðs- og fjármála.
Skrifleg umsókn, með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf, sendist fyrir 25.
nóvember nk. til stjórnar HSÍ. Farið verður
með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Handknattleikssamband
íslands,
íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
104 Reykjavík, sími 685422.
Handknattleikssamband íslands er eitt af sérsamböndum ÍSÍ og aðili að
Alþjóða handknattleikssambandinu. Aðildárfélög HSÍ eru núna 37 og fer
fjölgandi með byggingu nýrra íþróttahúsa um land allt. Virkir handboltaiðk-
endur á íslandi eru um ellefu þúsund og leikir í öllum flokkum íslands-
móts eru um þrjú þúsund á ári. Landslið íslands í handknattleik eru átta
að tölu: 16,18 og 20 ára landslið pilta og stúlkna ásamt landsliði karla
og kvenna. ísland leikur samanlagt um sjötíu landsleiki á ári. Handknatt-
leikur er Ólympíuíþróttagrein og er iðkaður í 130 löndum. Á næsta ári
verður stofnað Evrópusamband, sem mun sjá um framkvæmd Evróþu-
keppni landsliða.
Handknattleikssambandið mun sjá um framkvæmd heimsmeistarakeppni
karla árið 1995 á íslandi og hefur sótt um að halda heimsmeistarakeppni
piltaárið 1993.
Meginmarkmið HSÍ er að efla áhuga unglinga á íþróttum og eiga landslið
í fremstu röð í heiminum, sem er góð landkynning fyrir ísland, land og
þjóð, menningu og atvinnulíf, útflutningsvörur og ferðaþjónustu.
Árleg velta HSÍ er um 80 milljónir króna, þar af koma um 5 milljónir frá
Lottógreiðslum ÍSÍ og 1,5 milljón sem kennslustyrkur frá ÍSÍ, mismunurinn
eða um 92% er sjálfaflafé HSÍ frá landsleikjum, landshappdrættum, ýms-
um fjáröflunum og áhugaverðum samstarfssamningum við íslensk og er-
lend fyrirtæki.
Hlutastarf óskast
37 ára kona óskar eftir skrifstofu- eða ritara-
starfi. Hefur 10 ára reynslu í öllum almennum
skrifstofustörfum. Tölvu-, ensku- og dönsku-
kunnátta fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 91-45312.
\
PAGVIST BAKWA
Stuðningsmaður
Óskað er eftir stuðningsmanneskiu á leik-
skólann Lækjaborg við Leirulæk í 4 klukku-
stundir á dag eftir hádegi eða eftir samkomu-
lagi.
Upplýsingar veita Einar Hjörleifsson, sál-
fræðingur, í síma 27277 og Guðrún Arnar-
dóttir, forstöðumaður, í síma 686351.
POaMiwö
KRÓKHÁLSI 6
Aðstoðarmaður
óskast nú þegar til starfa í pokadeild. Æski-
legur aldur 40-60 ára.
Væntanlegir umsækjendur mæti til viðtals
milli kl. 11-15 dagana 19.-20 nóv. 90.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Bragi Erlendsson.
VERK- OG KERFISFRÆÐISTOFAN HF
Bíldshöfða 14 • 112 Reykjavík • Sími (91) 68 75 00
Forval
VKS auglýsir hér með forval verktaka vegna
fyrirhugaðs útboðs á tölvuvæddu afgreiðslu-
kerfi fyrir póst- og símstöðvar.
Útboðið mun ná til vélbúnaðar, hugbúnaðar,
uppsetningar, viðhalds og þjálfunar starfs-
fólks vegna fyrsta áfanga afgreiðslukerfisins.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu VKS,
Bíldshöfða 14, næstu daga milli kl. 9.30 og
» 16.30.
Skilafrestur upplýsinga vegna forvalsins er
til kl. 14.00 þann 17. desember nk.
Tæknifræðingur/
rafeindavirki
Stórt þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða
tæknifræðing eða rafendavirkja til starfa við
hönnun, uppsetningu og rekstur á hinum
dreifða hluta tölvukerfis fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að hafa haldgóða þekkingu
á einmenningstölvum, tölvusamskiptum og
stöðluðum hugbúnaðarpökkum.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 1. desember nk.
CtUÐNTIÓNSSON
R ÁÐ C l Ó F fr R Á Ð N l N C A R h) Ó N U STA
TIARNARGÖTU 14. ÍOI REYKJAVÍK, SIMI62 13 22
Fræðslu- og
jafnréttisfulltrúi
Akureyrarbær auglýsir lausa til umsóknar
stöðu fræðslu- og jafnréttisfulltrúa.
í júní sl. ár samþykkti bæjarstjórn Akureyrar
jafnréttisáætlun til fjögurra ára og er verk-
svið fræðslu- og jafnréttisfulltrúa að vinna
að framkvæmd hennar.
Einnig er honum ætlað að sjá um fræðslu-
og endurmenntunarmál starfsfólks.
Starf þetta er hið fyrsta sinnar tegundar
hérlendis og því um spennandi brautryðj-
endastarf að ræða.
Krafist er a.m.k. þriggja ára háskólanáms,
t.d. á sviði félagsvísinda, uppeldis- og
kennslufræða eða sálarfræði. Reynsla af
kennslustörfum æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akur-
eyrarbæjar og STAK.
Meirihluti þeirra, sem nú gegna stjórnunar-
og ábyrgðarstöðum hjá Akureyrarbæ, eru
karlar, en stefnt er að því að jafna stöðu
kynjanna sb. 9. grein laga nr. 65/1985 um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Konur eru því hvattar til að sækja um starf-
ið.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hugrún
Sigmundsdóttir, formaður jafnréttisnefndar,
í síma 96-27461 eftir kl. 20.00 og starfs-
mannastjóri í síma 96-21000.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 7. desember nk. og
skal umsókn send starfsmannastjóra á um-
sóknareyðublöðum, sem fást hjá starfs-
mannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9,
sími 96-21000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.