Morgunblaðið - 18.11.1990, Síða 38
MOUr.UNlihAIMD, SUNNUPAGLiR >18.-N'ÓYEMBBR 18>9Q
ALDREI
. AFTUR
I MEGRUN
GR0NN
FYRILESTUR
Mánudagskvöldiö 26. nóv.
kl.21.00 í Risinu, .
Hverfisgötu 105,
Reykjavík.
Aöganaur ókeypis og
opinn öllum sem áhuga
hafa á heilbrigðum
lífsháttum.
QR0NN
NAMSKEIÐ
16 klst. GR0NN-námskeið
veröur síöan haldið
dagana 28. nóv.-1. des.
fyrir þá sem eiga viö
matarfíkn aö stríöa og vilja
breyta neyslumunstri sínu.
Skráning fer fram strax
aö loknum fyrirlestrinum
í Risinu.
Jlk
MANNRÆKTIN
Vesturgötu 16, Rvk. Sími: 91-625717
MMM
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VK> MIKLAGARÐ
& KAUPFÉLÖGIN
mýtt sínaanOmer
biaðaafgreiðslo
Verðlaunatillagan að kirkju í Grafarvogi;
Kirkjuskipið er tákn
um vegferð mannsins
-segja arkitektarnir Finnur Björgvinsson o g Hilmar Þór Björnsson
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Verðlaunalíkan af Grafarvog-skirkju. Þetta er tillaga að klassískri þrískipa kirkju og miðskip hennar
er tákn um vegferð mannsins frá vöggu til grafar og áfram til eilífðar.
„Kirkjan tekur mið af umhverfi
sínu, ritningunni og hefða í
kirkjubyggingum. í tillögunni er
brúað bil á milli klassískrar
þriskipa kirkju og nútimans.
Kirkjurýmið sjálft er rúmlega
400 fermetrar í 2500 fermetra
húsi þar sem áherslan er lögð á
félagslegan þátt safnaðarstarfs-
ins,“ segja arkitektarnir Finnur
Björgvinsson og Hilmar Þór
Björnsson, í samtali við Morgun-
blaðið, um verðlaunatillögu
þeirra að kirkju fyrir Grafar-
vogssöfnuð.
eir segjast hafa sett sér það
markmið að hanna guðshús
sem jafnframt því að uppfylla
ítrustu kröfur sem gerðar eru til
slíkra húsa nú á dögum, yrði ódýrt
og einfalt í uppbyggingu og rekstri.
„Við nutum ráðgjafar úr presta-
stéttinni, fengum þá séra Pálma
Matthíasson og séra Karl Sigur-
björnsson til að veita okkur aðstoð.
Pétur Jónsson, landslagsarkitekt,
var einnig með í ráðum og Heigi
Bollason var samstarfsmaður okk-
ar,“ segja Finnur og Hilmar.
Svarar kröfum nútímans
„Kirkjan , svarar öllum kröfum
nútíma safnaðarstarfs," segir sókn-
arprestur Grafarvogssóknar, séra
Vigfús Þór Árnason. „Hún er mjög
hagkvæm. Kirkjuskipið tekur 300
manns en það er hægt að stækka
það. Þá má nefna að gert er ráð
fyrir sal fyrir æskulýðsstarf,
kennsluherbergi og fleira auk þess
sem nú liggur fyrir borgarráði til-
laga um áð koma fyrir útibúi frá
Borgarbókasafninu í kjallara og
hefur borgarstjóri tekið þeirri hug-
mynd vel,“ sagði hann.
Vigfús benti á að fjölgað hefði í
sókninni um 700 manns frá 1. des-
ember á síðasta ári. „Sóknin er
orðin álíka stór og Akranes eða
Vestmannaeyjar,“ segir hann.
„Via Sacra“
I tillögu sinni greina arkitektarn-
ir frá þeim hugmyndum sem teikn-
ingin byggist á. Miðskip kirkjunnar
vísar til „hins heilaga vegar - VIA
SACRA - sem er tákn um vegferð
mannsins frá vöggu til grafar og
áfram til eilífðar. Við enda vegarins
er hringurinn, sem er söfnuðurinn.
Hann er opinn á móti eilífðinni, þar
sem er altarið; borð drottins. „Þarna
sameinast tveir helstu pólar í kirkju-
arkitektúr; vegurinn og hringurinn.
Eins og í dómkirkjum miðalda
tengjast miðskipinu ótal rými og
kapellur sem þjóna margvíslegum
þörfum líðandi stundar. Þó húsið
sé lítið að grunnfleti er það áber-
andi í byggðinni végna samspils
forma og efnisvals þar sem falla
saman þungt dökkt form miðskips-
ins og ljósir og léttir byggingahlut-
ar hliðarskipanna. Þessar andstæð-
ur, þungir og léttir byggingahlutar,
minna á andann og efnið,“ segja
höfundar í tillögu sinni.
11 metra hár gluggi
Þegar kemur inn um aðalinn-
gang, skv. teikningu, blasir við enda
miðskipsins stór steindur gluggi
sem er um 6 metrar á breidd og
11 metrar á hæð. Veggir og gólf
verða klædd íslenskum steinflísum
af sömu gerð og notaðar eru utan
á húsinu. í loftið verður hengdur
hvítur japanskur pappír eða lín sem
hefur ákveðinn stíganda að altarinu
við enda skipsins. Ofan við voðina
er lýsing sem er ofuriítið óregluleg
og fer vaxandi þar til komið er að
altari þar sem hún nær hámarki í
hæð og ljósmagni. Þetta er skýr-
skotun til himinsins. Forkirkjan og
miðskipið allt er lífæð hússins þar
sem hátíðlegt yfirbragð mun aukast
eftir því sem innar dregur.
I tillögunni er gert ráð fyrir að
á aðalgólfi verði sjálf kirkjan með
safnaðarheimili. Safnaðarsalirnir
eru í raun tveir og er gert ráð fyr-
ir að hægt verði að renna niður flek-
um á milli og loka þá frá miðskipi
kirkjunnar. En einnig er hægt að
tengja safnaðarsalina við kirkju
með því að draga frá hljóðeinangr-
aða veggi. Við það stækkar kirkju-
rýmið úr um 300 sætum í rúmlega
700 sæti.
Við aðalinngang á að vera að-
staða kirkjuvarðar, fatahengi,
snyrtingar, stigi og hjólastólalyfta.
Brúðarherbergi er í nánd við eldhús
og búr. Á efri hæðum er skrifstofu-
álma og rými vegna loftræstibúnað-
ar. Samkvæmt tillögunni á einnig
að vera hægt að byggja húsið án
kjallara endir hliðarskipunum og
yrði þá einungis kjallari undir mið-
skipinu. Kapella er á aðalgólfí og
tekur hún 50 - 70 manns. Glervegg-
Tvö í einu!
Rétta rafsuðu-
tækið
fyrir bændur
og minni
verkstæði
Magma 150 er ekki einungis afar
öflugt jafnstraums-rafsuöutæki
fyrir pinnasuöu heldur einnig
kröftugt mig/mag suðutæki með
rafknúinni þráðstýringu (EFC).
Hafðu samband við sölumenn
okkar sem veita þér faglega
ráðgjöf.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 624260
Minninga-
gjöf inn verk-
fræðinga
STARFSSJÓÐI Verkfræði-
stofnunar Háskóla íslands hef-
ur borist 100 þúsund króna gjöf
frá Stofnendasjóði Grundar til
minningar um eftirtalda verk-
fræðinga:
Emil Jónsson, f. 27. okt. 1902,
d. 30. nóv. 1986.
Finnbogi Rútur Þorvaldsson, f.
22. jan. 1891, d. 6. jan. 1973.
Helgi H. Eiríksson, f. 3. maí
1890, d. 10. okt. 1974.
Helgi Sigurðsson, f. 15. mars
1903, d. 22. sept. 1971.
Jakob Gíslason, f. 10. mars
1902, d. 9. mars 1987.
Jakob Guðjohnsen, f. 23. jan.
1899, d. 11. okt. 1968.
Steingrímur Jónsson, f. 18. júní
1890, d. 21. jan. 1975.