Morgunblaðið - 14.12.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 14.12.1990, Síða 2
MORGUN:BI.ÁDIÐ FÖáfl’DÁÍÍÍ’R 14. DESEMBER 1990 FRÁMLEIÐSLA kindakjöts í síðustu sláturtíð nam tæplega 9.200 tonnum, og er það um 5% minni framleiðsla en árið 1989, en þá nam hún tæplega 9.700 tonn- um. Að sögn Gísla Karlssonar, framkvæmdastjóra Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins, voru áætlað- ar birgðir kindakjöts um síðustu mánaðamót um 8.000 tonn, 'sem er svipað magn og innanlands- neyslan var á síðasta verðlagsári. Á sama tíma í fyrra voru birgðirn- ar um 9.200 tonn, eða um 13% Lúsíuráhátíð Morgunblaðið/Sverrir HIN árlega Lúsíðuhátíð var haldin í Norræna húsinu í gærkvöldi. Það eru Norræna húsið, sænsk-íslenska félagið og sænska félagið sem stóðu að hátíðinni. Kór Kársnessskóla söng undir stjóm Þórunnar Jónsdóttur og Reynir Jónasson lék á dragspil. Um 300 gestir gæddu sér síðan á kaffi og Lúsíubrauði. Fiskifélag íslands býst við 325 þúsund tonna þorskafla í ár: mein en nu. Að sögn Gísla er allt kindakjöt af framieiðslu ársins 1989 nú uppselt hjá afurðastöðvum, en eitthvað er enn til af því í verslunum og hjá vinnslustöðvum. Birgðir eldra kjöts á sama tíma í fyrra voru um 800 Stefnir í að þorskaflinn verði ineiri en reiknað hefur verið með tonn. í haust hafa verið flutt út um 300 tonn af kindakjöti, aðallega til Fær- eyja, og sagði Gísli að gert væri ráð fyrir að um 1.000 tonn yrðu flutt út til viðbótar til Færeyja, Svíþjóðar og Finnlands, eða samtais um 1.300 tonn. Er það nokkuð minni útflutn- ingur en var til þessara landa í fyrra, en þá nam hann tæplega 1.600 tonn- um, auk þess sem gefin voru tæplega 600 tonn af eldra kjöti til Rúmeníu. Útflutningsverðmæti botnfisks um 11% meira en í fyrra „ÞAÐ STEFNIR allt í að þorsk- aflinn verði um 325 þúsund tonn á þessu ári, miðað við óslægðan físk,“ sagði Ingólfur Amarson hjá Fiskifélagi Islands í samtali við Morgunblaðið í gær en þá gaf Fiskifélagið út bráðabirgða- tölur yfir afla fyrstu 11 mánuð- ina í ár. „í ár er heimilt að veiða 260 þúsund tonn af þorski, mið- að við slægðan fisk með haus, sem þýðir 325 þúsund tonna óslægðan afla,“ sagði Ingólfur Arnarson. Ef þorskaflinn verður 325 þús- und tonn á þessu ári verður hann Ný ríkisskuldabréf á nafnvöxtum: Fj órði valkosturinn til að lána ríkissjóði ÚTGÁFA ríkisskuldabréfa á nafnvöxtum í upphafi næsta árs, sem rædd var í ríkisstjóm síðastliðinn þriðjudag, yrði fjórði valkostur fjár- magnseigenda til að lána ríkissjóði fé. Fyrir eru spariskírteini ríkis- sjóðs, ríkisvíxlar og svonefnd ríkisbréf, sem verið hafa til sölu undan- farna rúma tvo mánuði. Þau bréf sem rædd voru í ríkisstjórn yrðu í meginatriðum sambærileg spariskírteinum, að öðru leyti en því að þau væru óverðtryggð. Spariskírteini ríkissjóðs eru verð- tryggð bréf með föstum vöxtum, gefín út í flokkum þar sem hver flokkur er ákveðin heildarupphæð og bréfin eru einnig ákveðinnar upp- hæðar og til ákveðins tíma. Fyrir þessi bréf er svokallaður eftirmark- aður, þau geta gengið kaupum og söium og er gengi þeirra skráð á Verðbréfaþingi íslands. Hin nýju bréf sem rætt hefur ver- ið um eru frábrugðin að því leyti að þau eru óverðtryggð. „Því hefur verið veifað bæði af Seðlabankanum og viðskiptaráð- herra að taka upp óverðtryggð mark- aðsverðbréf ríkissjóðs eins og spari- skírteini, óverðtryggð spariskírteini, gefin út í flokkum með stöðluðum upphæðum og föstum vöxtum og og hægt að mynda eftirmarkað fyrir þau,“ segir Már Guðmundsson efna- hagsráðgjafi fjármálaráðherra. „Við höfum líka verið að skoða þetta hér og í raun og veru er hægt að gera þetta aiveg óháð lánskjaravísitölu: máiinu ef menn vilja. Þar á milli þurfa ekki endilega að vera tengsl," segir Már. Hann^segir enga ákvörðun hafa verið tekna um þessa útgáfu óverðtryggðra spariskírteina ennþá. í byrjun október síðastliðins hófst vútgáfa svonefndra ríkisbréfa. „Það eru bréf með breytilegum vöxtum með viðmiðun við vexti bankanna mínus eitt til tvö prósent eftir upp- hæðum og síðan eru upphæðimar sniðnar eftir þörfum bankanna eða þess sem er að kaupa," segir Már. Lágmarksupphæð þessará bréfa er 100 þúsund krónur. Pétur Kristinsson á Þjónustumið- stöð ríkisverðbréfa segir ríkisbréfið miðað við vegið meðaltal útlánsvaxta á hveijum tíma að frádregnum tveimur prósentum og er. ársávöxtun þess nú skráð 11,8%. „Vegna skráningarreglna á Verð- bréfaþingi íslands fær ríkisbréfið ekki skráningu, vegna þess að það er ekki gefið út í samkynja flokkum, heldur með breytilegum upphæðum," segir Pétur. Hann segir að þótt bankar séu helstu kaupendur, séu ríkisbréfin einnig seld fyrirtækjum og einstakl- ingum. Hann segir þau hafa verið gefin út til þess að taka við þar sem ríkisvíxlum sleppir, en lánstími ■ ríkisvíxla er frá 45 dögum upp í fjóra mánuði. Lánstími ríkisbréfanna er frá fjórum mánuðum upp í þrjú ár. í ríkisstjóm var útgáfa óverð- tryggðra spariskírteina rædd sem lið- ur í afnámi lánskjaravísitölu, sam- kvæmt frétt Morgunblaðsins á mið- vikudag. um 29 þúsund tonnum, eða 8,2%, minni en í fyrra. Vegna lélegra afiabragða í haust hafa menn hins vegar talið að þorskaflinn yrði ekki nema um 300 þúsund tonn í ár. Verð á aflakvótum hefur fallið undanfarið vegna þess að margir hafa talið að þeim tækist ekki að veiða þann kvóta, sem leyfilegt er að veiða á þessu ári og til dæmis hefur verð á þorskkvóta fallið úr 45 krónum fyrir kílóið í 15 krónur. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélagsins var botnfiskaflinn 572 þúsund tonn frá janúar til nóvember í ár, eða 39 þúsund tonn- um (6,4%) minni en á sama tíma í fyrra. Botnfiskaflinn var 697 þúsund tonn árið 1989 og hann verður um 652 þúsund tonn í ár ef aflasamdrátturinn verður 6,4%. Á hinn bóginn er reiknað með að meðalverð á botnfiski á erlend- um mörkuðum verði 17% hærra á þessu ári en á síðastliðnu ári en þá var útflutningsverðmæti botn- fisks 43,2 miiljarðar króna. Sam- kvæmt þessum forsendum yrði útflutningsverðmæti botnfisks að minnsta kosti 10,6%, eða 4,6 mill- jörðum, meira í ár en í fyrra en botnfískbirgðir í landinu eru nú mun minni en um síðustu áramót. Heildaraflinn fyrstu 11 mánuð- ina í ár var 1,389 milljónir tonna, sem er 32 þúsund tonnum (2,3%) meiri afli en á sama tíma í fyrra. Mestur var ársafli íslenskra skipa 1987, eða um 1,622 milljónir tonna. síðastliðnu ári. Veidd voru um 84.400 tonn af karfa, sem er 5.400 tonnum (6,9%) meira en í fyrra og ufsaaflinn var rúm 84 þúsund tonn, eða 16.700 tonnum (24,7%) meiri en á síðastliðnu ári. Hins vegar var grálúðuaflinn tæp 33 þúsund tonn fyrstu 11 mánuðina í ár, eða 22 þúsund tonnum (40,2%) minni en á sama tíma í fyrra. Smábátakvótinn: Ráðherra svararídag Þorskaflinn var rúm 295 þúsund tonn fyrstu 11 mánuðina í ár, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Fiskifé- lagsins, eða 27 þúsund tonnum (8,4%) minni en á sama tíma í fyrra. Ysuaflinn var rúm 55 þús- und tonn, eða um 4 þúsund tonnum (8,3%) meiri en á sama tíma á HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra segir að hann muni í dag svara bréfí Jóns Helgason- ar, forseta efri deildar Alþingis, þar sem komið er til skila óskum nefndarmanna í sjávarútvegs- nefnd deildarinnar um að fá í hendur lista yfir þá eigendur og útgerðarmenn smábáta, sem fengið hafa bréf frá sjávarút- vegsráðuneytinu um áætlaðan fiskveiðikvóta. Bréf Jóns Helgasonar var skrifað í framhaldi af bréflegri beiðni nefndarmanna um að hann beitti sér fyrir því að sjávarútvegsráð- herra léti listann af hendi. „Við í sjávarútvegsráðuneytinu höfum reynt af fremsta megni að sinna upplýsingaskyldu okkar gagnvart sjávarútvegsnefndinni. Eg hef efasemdir um að nokkurt annað ráðuneyti hafi gert það í jafn ríkum mæli. Við munum halda því áfram, en ég mun svara þessu bréfi á morgun, sagði Halldór Ásgríms- SOn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagðist ekki telja rétt að greina frá efni svars síns áður en Jóni Helgasyni bærist það í hend- Flug: Védís fljót til Lundúna VÉDÍS, ein flugvéla Flugleiða, var aðeins tvær klukkustundir og átj- án mínútur að fljúga frá Keflavík til Lundúna á miðvikudaginn og er það líklega nýtt met á þessari gerð véla. Áætlaður flugtími til Lundúna er venjulega tvær klukkustundir og fjörutíu mínútur en á miðvikudaginn var mikill meðvindur og því var vélin tuttugu og tveimur mínútum skemur á leiðinni. Védís er af gerðinni Boeing 737 og er heldur hægfleygari en þær vélar sem áður voru notaðar á þess- ari flugleið. Kindakjöts- birgðir 13% minni en á síðasta ári Framleiðsla dregst saman um 5%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.