Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 14
14
MORÖUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGÚR 14. DESEMBER 1990
Landkynning í
myndum og máli
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Island er nafn þitt.
Ljósmyndir: Erich Spiegelhalter.
Sambúð lands og lýðs: Sig. A.
Magnússon.
Fjölvaútgáfan, Reykjavík 1990.
ísland er nafn þitt nefnist ljós-
myndabók um ísland frá Fjölvaút-
gáfunni. Höfundar eru ekki af lak-
ari endanum: Erich Spiegelhalter,
„einn allra færasti ljósmyndari
Þýskalands" eins og segir í formála
og Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur. Á bókarkápu ségir að ljós-
myndarinn hafí ferðast „Hringinn"
og heillast af landinu okkar.
Fyrstu 30 blaðsíðurnar af þessari
112 síðna bók (í stóru broti) er texti
Sigurðar A. Magnússonar: Sambúð
lands og lýðs. Hann skiptir ritgerð
sinni í sex kafla og fjallar þar um
gróðurfar, örnefni, þjóðtrú og sitt-
hvað fleira, t.a.m. eru birtar ástar-
játningar skálda og annarra lista-
manna til íslands og íslenskrar
náttúru. Mjög er vitnað í ljóð og
laust mál. Texti Sigurðar eins og
vænta mátti áferðarfagur og vel
gerður, en varla nýstrárlegur fyrir
sæmilega bóklæsa íslendinga. Þess
má geta að bók þessi er gefin út á
fjórum tungumálum: ensku, þýsku
og frönsku, auk íslensku. Fylgir
sérstakur inngangstexti hverri út-
gáfu. Hafa verið vaidir til verksins
„bestu stílmeistarar á hverju tungu-
máli, en jafnframt menn af hinum
ólíku þjóðernum, sem hefðu haft
náin kynni af landi og þjóð“.
Meginuppistaða bókarinnar eru
ljósmyndir hins þýska ljósmyndara,
sem „fór um landið að elta sólar-
geisla og skugga". Ekki verður
annað sagt en að hann hafi haft
erindi sem erfiði. Margar eru mynd-
imar gullfallegar og teknar af mik-
illi kunnáttu og smekkvísi. Fer ekki
á milli mála að Spiegelhalter er
listamaður og mjög fær fagmaður.
Sjáanlegt er að myndirnar eru mik-
ið unnar og að lögð hefur verið
áhersla á vandaða litgreiningu og
prentun. Samt er þess ekki að dylj-
' ast að ein og ein „dauð“ mynd er
þarna innanUm.
Fyrir „innfædda" kann að vera
áhugavert að sjá hvernig útlending-
ur sér og skynjar land okkar. Sagt
er að glöggt sé gests augað. Hinum
útlenda ljósmyndara verða mótíf
eins og gömul ryðbrunnin bílhræ.
jafn áhugaverð að festa á filmu og
hinir fegurstu fossar og fjöll. Land-
kynningarbók er þessi bók kynnt
og henni er ætlað víða að fara. Hún
er væntanlega liður í markaðssetn-
ingu hins fátæka íslands? Hún hlýt-
ur því að höfða til þess sem ætla
má að útlendingar vilji sjá. Kannski
er forvitnilegast fyrir þá að sjá
þessa undarlegu veiðimannaþjóð
sem þó er hætt að drepa hvali og
getur státað af fulltrúum fornaldar
og ásatrúar í andlitsgervi Svein-
björns Beinteinssonar?
Víst er þetta fögur og velgerð
bók. Sem listaverk stendur hún fyr-
ir sinu. Hins vegar er leyfilegt að
velta því fyrir sér hvort listgildi
bókar og landkynningargildi hennar
fari ávallt saman. Ef bókin á að
Heimur tilfinninga
Bækur
Sigurður A. Magnússon
vera almenn landkynning getur
maður spurt hvort ekki vanti nokk-
uð á þegar slepp't er Vestfjörðum,
Akureyri og Mývatnssveit í kynn-
ingunni, svo að eitthvað sé nefnt.
Frá landkynningarsjónarmiði
kunna menn einnig að vera missátt-
ir við þær áherslur sem hér eru
Iagðar. Sem listaverk er þessi bók
vafalaust með þeim bestu, en land-
kynningarrit tel ég að við eigum
önnur jafngóð.
Eðvarð Ingólfsson
Guðmundur Ólafsson:
Emil, Skundi og Gústi.
Vaka-Helgafell 1990.
Guðmundur Ólafsson fékk verð-
laun fyrir bókina Emil og Skundi í
fyrstu handritasamkeppninni sem
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka efndi til árið 1986. Hann hef-
ur nú sent frá sér sjálfstætt fram-
hald þeirrar bókar og ber heitið
Emil, Skundi og Gústi.
Gústi, vinur Emils, gegnir miklu
hlutverki í nýju sögunni. I ljós kem-
ur að hann hefur verið að fást við
ritstörf í laumi og er m.a. að skrifa
leikrit. Þeir Emil verða síðan aðal-
hvatamenn að stofnun leikfélags til
að geta komið því á fjalirnar. Ann-
ar veigamikill þáttur sögunnar
snertir einnig Gústa. Leyndardóm-
urinn um föður hans er afhjúpaður
og Emil fær að líta hann augum í
fyrsta sinn.
Það er margt ákaflega vel gert
í þessari bók. Höfundi tekst að
blanda hæfilega saman alvöru og
gamni - og sagan er spennandi.
Hún er rituð á léttu og lipru máli
og spinnur sig vel áfram. Persónu-
sköpunin er mjög góð. Auk aðalper-
sónanna eru nokkrar skemmtilegar
aukapersónur sem láta að sér
kveða.
Guðmundur hefur afar næman
skilning á hugarheimi barna. Per-
sónur hans lifa ekki í afmörkuðum
og einangruðum heimi eins og oft
er í barnasögum heldur eru þær
samofnar umhverfi sínu. Aðstæður
Gústa eru gott dæmi um það. Móð-
ir hans er einstæð og vinnur langan
vinnudag. Hann ber því aðalábyrgð
á uppeldi Gunnu systur sinnar,
kemur henni í og úr leikskóla og
hefur ofan af íyrir henni þar til
móðir þeirra kemur heim á kvöldin.
Hann kvartar ekki, lítur á þetta sem
sjálfsagða skyldu því að annars
gæti mamma þeirra ekki séð heimil-
inu farborða. Sjóndeildarhringur
hans er líka víðari en hjá mörgum
börnum. Hann hefur vaxið af
ábyrgð sinni.
Frásögnin af Gústa og föður
hans er mjög áhrifarík. Hann er
forfallinn drykkjumaður, reikar um
Tár, bros og takkaskór
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Þorgrímur Þráinsson
Lestur handrita og prófarka:
Guðlaug Konráðsdóttir
Kápuhönnun: Helgi Sigurðsson
Prentun: G. Ben. prentstofa hf.
Útgefandi: Fróði hf.
Það leggja fáir þessa bók frá
sér, fyrr en hún er lesin öll. Kemur
þar margt til. Fyrst er það efnið:
Kiddi og Tryggvi eru leiddir inná
sviðið, heilbrigðir, elskulegir snáð-
ar, á hvolpaaldri en með karlagrobb
á vörum. Lífið er fótbolti og frami
á þeirri braut. Nú, næst kynnumst
við Skapta Gastor, sem sannar, að
margur er knár, þótt hann sé smár.
Skapti er sonur uppfinningamanns,
heimili hans sveipað dulúð, hugviti
pabbans virðast fáar skorður sett-
ar. Móðir hans hafði orðið að leggja
ballettskóna á hilluna, eftir slys, en
sér drauma sína rætast í syninum,
því hann stundar dansinn af kappi.
Undarlegur, skemmtinn snáði, sem
söguna alla er að koma vinum
sínum meir og meir á óvart, svo
undra fjölhæfur sem hann er. Þá
er það Ágnes, nýja telpan í bekkn-
um, með djúp og seiðandi augu, sem
hreinlega halda Kidda föngnum.
Agnes æfir sund af kappi. Já, allt
eru þetta krakkar sem eru efni í
nýta þegna, leikir þeirra barnslega
saklausir, þroskandi, vináttan sönn
og heillandi. Þau eru enn aðeins
draumur um menn, því erfitt að
draga fram skýra mynd af þeim,
og vel að höfundur fellur ekki í þá
gryfju að reyna slíkt. Ný slys hend-
ir. Ut úr myrkrinu kemur ökufant-
ur, keyrir Kidda og Agnesi niður.
Á slysstað, og síðar, kemur í ljós,
að fanturinn er ekki aðeins í skjóli
skuggans, heldur er sál hans í
greipum hans líka. Kiddi meiðist,
nær sér. Agnes deyr. Hér hefst
glíma ungs drengs við sektarkennd,
reiði, efa, örvilnun. Viðbrögðum
ungs kennara, Maríu, er fagurlega
lýst. Heillandi mynd.
Já, efnið svíkur engan, hér er
heilbrigð æska á för, sem ekki þarf
skrílslæti til þess að vekja á sér
athygli.
Höfundur segir frá af mikilli
leikni, stfli hans er gáskafullur,
þróttmikill og ákaflega lipur.
Kannske um of gáskafullur á stund-
um fyrir gamlingja: „Ógeðslega
þægilegt"; „Þetta er alveg sjúk-
legt“; „Kýlum á það“; „Alveg á
tæru“. En svona tala unglingar,
sem vilja sýnast menn, og sjálfsagt
nöldur að amast við.
En svo snjall höfundur sem
Þorgrímur er, þarf ekki slík orða-
skrípi, það sannar hann í seinni
hluta bókarinnar. Ég óska honum
til hamingju með vel unnið verk,
leiðandi, þroskandi bók.
Þorgrímur Þráinsson
Guðlaug hefir unnið verk sitt af
mikilii nákvæmni.
Mynd Helga falleg, full af hlýju.
Hafi allir er að unnu þökk fyrir.
STEIKARSTEINN
kr. 3.480
SVISSNESK
FONDUSETT
OKisag
Switzerland BV
Switzerland
Frábær gæði.
Varist eftirlíkingar.
Verð aðeins kr. 9.990
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
afBBpP