Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 18
18i
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
Husqvarna
SAUMAVÉLAR
iii' ÆL || fi MlllMíí.JP 1
-Ji.. 1
• 7 GERÐIR •
• ALLIR NYTJASAUAAAR •
• MYNSTURSAUMAR •
• STERKUR MÓTOR •
• SÆNSK GÆÐI •
• FRÁBÆRT VERÐ •
• NÁMSKEIÐ •
• VIÐGERÐARÞJÓNUSTA •
• SÝNIKENNSLA •
• ALLT Á SAMA SIAO • -
v; f VÖLUSTEINNhf
' -i:;Faxafen 14, Sími 679505
Ljóðræn dulúð
Bókmenntir
ErlendurJónsson
Friðarboðskapur Jesú Krists
eftir lærisveininn Jóhannes. 59
bls. Vísdóms-útgáfan. 1990.
Á síðari árum hafa sprottið upp
ótal trúarhreyfingar, sumar ná-
tengdar kirkjunni. Aðrar byggja á
svipuðum grunni, skilst manni, en
leggja áherslu á annars konar at-
riði. í formáia þessarar bókar, rituð-
um af Edmond Székely 1937, segir
meðal annars:
»Innihald bókar þessarar er að-
eins brot eða um áttundi hluti af
þeim handritum sem til eru í heild
sinni á arameísku í bókasafni Vatik-
ansins og á gamalli slavnesku í
Konunglega bókasafni Habsborg-
ara.«
Székely vill meina að orð Krists
séu afbökuð eins og þau koma fyrir
í Nýja Testamentinu; hér gefi aftur
á móti að líta »hin hreinu, uppruna-
legu orð Jesú«.
Undirritaður er ekki nógu lærður
til að leggja mat á sannleiksgildi
þessara staðhæfínga, hvað þá að
trúarlegu hliðinni verði hér gerð
skil, en telur sig þó nægilega lesinn
í kristnum fræðum til að greina að
texti þessarar bókar sé verulega
frábrugðinn texta guðspjallanna.
Kenningin er hér alþýðlegri og að
ýmsu leyti jarðbundnari. Heilræði
og lífsreglur eru sem fyrr felldar
inn í trúna. Að sjálfsögðu gildir hið
sama um flest ef ekki öll forn trúar-
brögð, kristindóminn þar með tal-
inn, svo það er ekkert nýtt. Trúin
fól í sér lögmál sem manninum bar
að fylgja í daglegu lífi sínu frá
vöggu til grafar. Hér ér t.d. brýnt
fyrir manni að gæta hófs í mat og
RENAULT
flytur virðisaukann í veltuna!
_____Renault Express & Trafie
Til afgreiöslu með framdrifi eða fjórhióladrifi
Flutningsrými allt að 7,8 rúmmetrar
Burðargeta allt að 1420 kg
180° opnun á afturhurðum
Lág hleðsluhæð
Hagstætt verð
Góð greiðslukjör
Renault Express
verð kr. 699.000.-
(án vsk., ryðv. og skr.)
Renault Traflc
verð frá kr. 1.079.000
(án vsk., ryðv. og skr.)
Krókhalsi 1-3
RENAULT
Fer á kostum
Edmond Székely
drykk, nytja náttúruna með gát og
lifa sáttur við guð og menn. Áhersla
er lögð á föstuhald. Satan er þarna
títt nefndur og stranglega við hon-
um varað. Og víða er talað um »okk-
ar Jarðnesku Móður«. Gefið er fyrir-
heit um eilíft líf: »Guð mun gefa
ykkur langt líf á jörðinni, til að þið
megið hafa ævarandi líf í ríki himn-
anna.« Og mikil áhersla er lögð á
hreinleika, bæði holds og anda.
Kunnuglegu táknmáli bregður víða
fyrir.
íslenskur texti bókar þessarar,
sem er verk þeirra, Ólafs Ragnars-
sonar og Óskars Ingimarssonar, er
ljóðrænn og býr yfir dulúð eins og
títt er um trúarrit. Útlit kversins
ber með sér að þeir, sem að því
standa, hafa viljað gerá það sem
best úr garði.
Önundur Björnsson
Ásgeir Guðmundsson
Bók um erindreka Þjóðverja
MEÐ KVEÐJU frá sankti-bern-
harðshundinum Halldóri heitir
bók eftir Önund Björnsson og
Ásgeir Guðmundsson, sem
Skjaldborg gefur út.
I kynningu útgáfunnar um bók-
ina segir:
„íslendingar fóru sannarlega
ekki varhluta af hremmingum
seinni heimsstyijaldarinnar, fremur
en aðrir. Meðal þeirra, sem hvað
harðast urðu úti, voru íslenskir sjó-
menn og íslendingar búsettir á
meginlandi Evrópu. Þjóðveijar sátu
um hvern þann Islending, sem þeir
náðu til, og flæktu í njósnanet sín
með klókindum eða hótunum.
í bókinni er fjallað ítarlega og á
lifandi hátt um íslendingana sem
komu hingað til lands með þýskum
kafbátum og var ætlað að reka
erindi Þjóðveija. Ekki höfðu þeir
erindi sem erfiði, því ýmist voru
þeir gripnir eftir nokkurra daga
hrakninga eða þeir gáfu sig án taf-
ar fram við yfirvöld. Dvölin heima
varð skammvinn, því leið þeirra lá
beint í bresk fangelsi."
Bókin er 320 blaðsíður að stærð,
prentuð hjá G.Ben. prentstofu hf.
MELISSA
örbylgjuofn
kr. 16.995
NOVA
djúpsteikingarpottar
frákr. 8.200
KITCHEN AID
hrærivélar
kr. 22.686
MARK
vasadiskó
frákr. 2.200
$ SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VK> MIKLAGARÐ