Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
Er „hatækmlæknis-
fræðin“ dýr á íslandi?
eftirÁsmund
Brekkan
Meðal þýðingarmestu læknis-
fræðiframfara 'síðustu áratuga má
tvímælaláust teljá skurðaðgerðir á
kransæðum, í þeim tilgangi að
tryggja hjartavöðva blóðnæringu í
þeim tilvikum er kransæðar lokast
eða þrengjast. Slíkar aðgerðir eru
nú mjög algengar og árangursrík-
ar, enda þótt þeim fylgi sem öðrum
skurðaðgerðum ákveðin áhætta.
Hér á ■ Landspítalanum hafa fram
til þessa frá miðju ári 1986 verið
gerðar um 420 slíkar aðgerðir, en
vegna aðstöðuleysis hefur ekki ver-
ið hægt að sinna þeim þörfum til
fulls, þannig að enn er nokkur ijöldi
sjúklinga sendur erlendis til krans-
æðaaðgerða.
Kransæðavíkkanir án
skurðaðgerða
Vegna tiltölulega langs legu- og
endurhæfingartíma sjúklinga, svo
og vegna álags umfram afkasta-
getu var fyrir rúmum áratug víða
farið að reyna fyrir sér að útvíkka
kransæðar í tengslum við þræðing-
ar og röntgenrannsóknir æðanna.
Arangur af slíkum aðgerðum varð
fljótlega svo ágætur, að æðavíkkun
er nú beitt í sívaxandi mæli í mörg-
um þeim tilvikum, sem fyrr voru
gerðar skurðaðgerðir. Talsverður
fjöldi sjúklinga hefur verið sendur
héðan, aðallega til Bretlands, til
slíkra aðgerða, og yfirleitt með
góðum árangri.
Kransæðavíkkanir á
Landspítala
Tilefni þessara hugleiðinga er,
að um þessar mundir hafa verið
gerðar á röntgendeild Landspítal-
ans rúmlega tvöhundruð slíkar
æðavíkkanir frá miðju ári 1987, og
langflestar á yfirstandandi og
síðasta ári. Lækiiisfræðilegur
árangur hefur verið frábær í hönd-
um Einars Jónmundssonar yfir-
læknis á Röntgendeild og Kristjáns
Eyjólfssonar, sérfræðings á
hjartadeild Landspítalans, en þeir
hafa þróað aðferðina hér og fram-
kvæmt flestar aðgerðirnar saman.
Fræðilegum árangri verða gerð
skil á öðrum vettvangi.
Eins og áður var getið hefur tals-
verður fjöldi íslenzkra sjúklinga
farið erlendis til æðavíkkunarað-
gerða, bæði áður en þær hófust hér
og eins eftir, sökum-þess að ekki
hefur ávallt verið hægt að sinna
„eftirspurn“, vegna ónógrar að-
stöðu.
Kostnaðarsamanburður
Það er því forvitnilegt að bera
saman kostnað, eins og hann leggui'
sig hjá okkur, við þann kostnað,
sem slík aðgerð erlendis hefur í för
með sér.
í þeim tilgangi hefí ég skoðað
og metið all nákvæmlega alla inn-
lenda kostnaðarliði og borið saman
við „erlendan" kostnað. Forsendur
þær, sem ég reikna út frá eru eftir-
farandi:
1) Meðaltími rannsóknar og
aðgerðar eru 120 mínútur.
2) Mannaflaþörf eru tveir
læknar með 3-4 sérhæfðum
aðstoðarmönnum (hjúkrunar-
fræðingar, röntgentæknar,
meinatæknar)
3) Rannsóknarstofa og tækja-
búnaður: Afnotakostnaður er
þannig fenginn, að metið er
nýkaupaverð tækja (N),
reiknað með 10 ára æviskeiði
(ár), 7% vaxtakostnað á fjár-
festingu (vx) og viðhalds-
kostnaður (+ rekstur) 4%.
Loks ársnotkun í mínútum,
(ca. 6,5 st. í 250 vinnudaga
= ca. 100000)
Fjármagnskostnaður á mín-
útuverðurþá:
Viðhaldskostnað má reikna
eftir sömu formúlu.
Tækjabúnaður á hjarta- og
æðarannsóknarstofu röntg-
endeildar myndi í dag kosta
55 milljónir króna. Saman-
lagður fjármagns- og rekstr-
arkostnaður á mínútu er
58.85 + 57.20, eða krónur
13.932 fyrir 120 mínútur.
4) Brúttólaunakostnaður þess
mannafla, sem upp er talinn
að ofan, eru um 18.000 krón-
ur (til gamans má geta þess,
að nettólaun hvors læknis
um sig við þessa vandasömu
aðgerð samsvara sextíu og
fimm bandaríkjadölum!)
5) Allur efniskostnaður
(skuggaefni, þræðingaleggir,
víkkunarbelgir, filmur, lyf og
einnotavara) er um 90.000
krónur (í þeirri upphæð er
THOMSON O |
HÁGÆÐA SJÓNVÖRP
MIKIÐ ÚRVAL
HAGSTÆÐ VERÐ
^ SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 55 50 - 6812 66
KAUPSTADUR
ÍMJÓDD
Ásmundur Brekkan
„Landspítalinn hefur á
þessum tvöhundruð að-
gerðum „sparað“
Tryggingastofnun út-
gjöld sem nema um
fimmtíu o g fimm millj-
ónumkróna.“
innifalinn virðisaukaskattur,
sem Landspítalanum er gert
að greiða af öllum aðföngum).
6) Þá mætti bæta við fasta-
Áslaug Ragnars
kostnaði fyrir ljós, hita, ræst-
ingu, húsvörslu o.fl., sem ég
tel hátt metinn á 15 krónur
hveija mínútu = 1.800 krón-
ur.
Þá er upptalinn allur útlagður
kostnaður fyrir hveija kransæða-
rannsókn en við þetta bætast að
jafnaði tveir legudagar á spítalan-
um, samtals 40.000 krónur.
Niðurstöður
Ríflega reiknað er því heildar-
kostnaður við hveija kransæðavíkk-
un á Landspítala 163.650 krónur.
Sambærilegt gjald á Bretlands-
eyjum, sem Tryggingastofnun ríkis-
ins greiðir fyrir íslenzka sjúklinga,
er um 440.000 krónur.
Ef við lítum þannig eingöngu til
þessára útgjalda, þá er mismunur-
inn rúmlega 276 þúsund krónur
á hverja aðgerð, eða með öðrum
orðum: Landspítalinn hefur á
þessum tvöhundruð aðgerðum
„sparað“ Tryggingastofnun út-
gjöld sem nema um fimmtíu og
fimm milljónum króna.
Dálaglegur skildingur það, ef
hann fengi að ganga þangað, sem
honum ber, til viðhalds og end-
urnýjunar rannsókna- og læknin-
gatækja Landspítalans.
Ég leiði hjá mér að reikna út
kostnað vegna fylgdarmanna svo
og að fjölyrða um stytta sjúkrahús-
dvöl, auðveldari endurhæfingu og
aukin lífsgæði þeirra, sem aðgerð-
anna njóta.
Höfundur er prófessor.
Louis E. Marshall
Minningar um her-
þjónustu á Islandi
ÍSAFOLD hefur sent frá sér
bókina Hernámið - hin hliðin
eftir Louis E. Marshall, fyrrum
ofursta í Bandaríkjaher, en
hann gegndi herþjónustu á ís-
landi á árunum 1943-1945. Ás-
laug Ragnars bjó bókina til
prentunar.
í Texas, leik, starfi og herkvaðn-
ingunni. Þá víkur sögunni til and-
stæðanna; ísland í snjó og kulda.
Höfundur segir frá þvi sem honum
fannst sérstakt við íslenskt þjóðlíf
frá sjónarmiði hermannsins eins
og nafn bókarinnar gefur til
kynna.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Louis E. Marshall er 87 ára
að aldri og hefur starfað sem lög-
maður í San Antonio í Texas-
fylki. Fyrir nokkrum árum öðlaðist
hann doktorsnafnbót í hagfræði.
I bókinni Hemámið - hin hliðin
segir fyrst frá uppvexti höfundar
Louis E. Marshall er einn þeirra
hermanna sem eiga íslenskt barn.
I bókinni segir hann frá sambandi
sínu við konuna sem ól honum
barnið og samskiptum við það ára-
tugum seinna.“
Bókin er að öllu leyti unnin í
ísafoldarprentsmiðju hf.
Gjöf til glasafijóvgunar
KVENNADEILD Landspítalans
barst nýlega peningagjöf að
upphæð 1,1 milljón krónur, sem
verja skaí til kaupa á tækjum
til glasafrjóvgunarmeðferðar.
Gjöfin er frá einstaklingi sem
ekki vill láta nafn síns getið.
„Forstöðumenn Kvennadeildar-
innar þakka þessa gjöf, sem kem-
ur sér ákaflega vel, nú þegar unn-
ið er að undirbúningi þessarar
þjónustu,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Kvennadeild Landspítal-
ans.
1 ttttgtm] b
Meira en þú geturímyndaó þér!
I-
[
i
t
L
I
t
C
I
€
■
i
I