Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
4-
30
Er framtíð Byggða-
stofnunar í hættu?
*
eftir Askel Einarsson
, Á sínum tíma byggði Fram-
kvæmdastofnun ríkisins á reikning
Framkvæmdasjóðs reisulegt hús
við Rauðarárstíg.
I þessum efnum er minnst stór-
hugs Sverris Hermannssonar og
Tómasar Árnasonar og framsýni
þeirra fyrir þörfum báknsins.
Þetta er veglegt framtak. For-
dæmi um að reisa yfír ríkisstofn-
anir byggingar, sem ber vott um
meistaratakta um byggingarstíl
og raunsætt mat á auknu lífsrými
fyrir báknið.
Þetta er bygging, sem setur
svip á höfuðborgina, en minnir um
leið á byggðavandann í landinu
og staðfestir að lausn hans er að
leita í stjórnhofum höfuðstaðarins.
Morgungjöf til
Byggðastofnunar
Á fyrra forsætisráðherraskeiði
Steingríms Hermannssonar þótti
ástæða til að endurskoða lög um
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Framkvæmdasjóður Islands fékk
á ný sérstaka tilveru. Þróunarfélag
íslands var stofnað, sem skyldi
leika stórt hlutverk til framfara í
landinu. Byggðadeild og Byggða-
sjóður, nefndust nú Byggðastofn-
un. Slík var rausn stjórnvalda við
Byggðastofnun að hún varð með
lagaboði helmingseigandi hússins
á Rauðarárstignum. Þetta var
rausnarlegt framlag Alþingis til
að tryggja vinnuaðstöðu þeirra er
skyldu kveða niður byggðavand-
ann á Islandi.
Fordæmi um stofnanatilfærslu
í landinu
Bæjarstjóm Akureyrar og
reyndar Fjórðungssamband Norð-
lendinga voru svo bláeygð stjóm-
arapparöt, að þau héldu að í hendi
væri, að flytja Byggðastofnun í
heilu lagi til Ákureyrar. Þetta var
fordæmi um stofnanaflutning úti
á land.
Hér risu úfar m.a. var bent á
hve góð starfsskilyrði stofnunin
hefði í Reykjavík, rúmt húsnæði
og góð tengsl við stjómkerfíð.
Færustu menn í þessari stofnun
neituðu búferlaflutningi. Hótað
var að Byggðastofnun á Akureyri
yrði án atgervis hæfustu manna á
Islandi á þessu sviði. Einn yfír-
manna Byggðastofnunar, vinsæll
maður á Akureyri, gerði sér ferð
til að tala um fyrir Akureyringum.
Þegar reyndi á stjórn stofnunar-
innar komu í Ijós þau sjónarmið
að verið væri að mismuna kjör-
dæmum, með staðarvali Byggða-
stofnunar' á Akureyri. Réttast
væri að hafa Byggðastofnun í
hveiju kjördæmi. Nýráðinn bæjar-
stjóri á Akureyri treysti sér því
ekki að fylgja þeim eftir, sem vildu
færa honum Byggðastofnun á silf-
urfati í upphafí starfstíma hans.
Samviskubit stjórnar
Byggðastof nunar
Eftir að stjóm Byggðastofnunar
synjaði um flutning Byggðastofn-
unar til Akureyrar, þótti rétt að
gera bragarbót. Stjómin ályktaði
svo til yfírboðara sinna þ.e. ríkis-
stjómar íslands:
„Stjóm Byggðastofnunar beinir
því til ríkisstjómarinnar að
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Þetta er saga frumheija í atvinnu-
lífí þjóðarinnar á síðustu áratugum
nítjándu aldar og fyrstu áratugum
þeirrar tuttugustu. Bfldudalskóng-
urinn er saga manns sem vann það
einstæða afrek að byggja upp frá
grunni öflugt sjávarpláss. Hann
kom þangað ungur að árum og fjár-
vana að einu íbúðarhúsi á staðnum
og einni jagt í nausti, en engum
íbúa. Þegar hann fór frá staðnum
finna hagkvæmar leiðir til að
efla og bæta þjónustu ríkisins
á landsbyggðinni. Leggur
stjórnin til að komið verði á
samstarfi opinberra stofnana
um starfsaðstöðu á ákveðnum
stöðum. Byggðastofnun segir
sig reiðubúna til að hafa for-
göngu um undirbúning slíks
samstarfs.“
Gallinn er sá að stofnunin ætl-
aði þetta verkefni ríkisstjórninni,
en ekki sjálfri sér, sem eðlilegast
var. Vitað er um að stjórn Byggða-
stofnunar hefur tryggt sér lóð á
Akureyri og leitað eftir lóð á Egils-
stöðum. Byggðastofnun hefur að
vísu tryggt sér aðstöðu á ísafirði
og Akureyri. Hér er ekki um
stjómsýslumiðstöðvar að ræða
eins og rætt var um í greinargerð
stofnunarinnar, með ályktun sinni
til ríkisstjómarinnar. ,
Háir húsnæðisleysi starfsemi
Byggðastofnunar?
Það vekur furðu að Byggða-
stofnun telji nauðsynlegt að
byggja hæð ofan á hús sitt við
Rauðarárstíg. Engin hreyfing er á
uppbyggingu stjómsýslumið-
vom húsin orðin 50, íbúarnir 300
og skútumar 20. Saga Péturs J.
Thorsteinssonar er hetjusaga
manns, sem þoldi mikil áföll og
marga þunga raun á athafnaferlin-
um og þó enn meiri í einkalífínu.“
Bíldudalskóngurinn er 446 bls.
að stærð auk myndaarka. Bókin var
sett og prentuð í Prisma, Hafnar-
fírði, en bundin í Félagsbókbandinu-
Bókfelli. Kápu hannaði og vann
Prisma, Hafnarfirði.
Athafnasaga Péturs
J. Thorsteinssonar
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bókina Bíldu-
dalskóngurinn - Athafnasaga Péturs Thorsteinssonar sem ásamt
Thor Jensen var mestur athafnamaður í sjávarútvegi á sínum tima.
Ásgeir Jakobsson skráði.
Áskell Einarsson
„Það vekur furðu að
Byggðastofnun telji
nauðsynlegt að byggja
hæð ofan á hús sitt við
Rauðarárstíg. Engin
hreyf ing er á uppbygg-
ingu stjórnsýslumið-
stöðva úti um land.“
stöðva úti um land. Hvað um
áform um sjálfstæða starfsemi
Byggðastofnunar í landshlutum?
Má skilja þetta á þann veg að
stjórn Byggðastofnunar sé hætt
við að byggja stjórnsýslustöðvar í
landshlutum?
Ásgeir Jakobsson
Kúvending stjórnar
Byggðastof nunar
Má vera að sú skýring sé rétt,
að stjórn Byggðastofnunar er að
verða vónlaus um uppbyggingu
stjómsýslumiðstöðva í landshlut-
unum. Hafi ekki lengur neinn vilja
til að ráðast í uppbyggingu þeirra.
Aumt er ef satt er.
Er Byggðastofnun að fara
á hausinn?
í þann mund þegar ég var að
ljúka þessu greinarskrifi kom í ljós
í fréttum, að formaður stjórnar
Byggðastofnunar taldi vá fyrir
dyrum hjá stofnuninni. Stofnunin
væri að éta sig út á gaddinn, þann-
ig að horfði til algjörs getuleysis
um að sinna hlutverki sínu. Þá er
likt komið með Byggðastofnun og
Framkvæmdasjóði. Það er því
hyggilegt að tryggja sér bygging-
arrétt til stækkunar á húsi þessara
stofnana, ef nú á tímum frjáls-
hyggju væri valinn sá kostur að
selja stjómarhofíð á Rauðarárst-
ígnum til að mæta skuldsetningu.
Framkvæmdasjóði má hola niður
í Seðlabankanum. Byggðastofnun
getur verið í leiguhúsnæði, hingað
og þangað um landið. Þetta er
ekki vitlausara en hvað annað, en
andvirði Rauðarárstígs 25 mætti
nota til byggðaaðgerða í landinu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Fjórðung-ssambands
Norðlendinga.
Pétur J. Thorsteinsson
Kristinn Pétursson alþingismaður:
Skuldbindingar ríkisins 40 milljörðum
meiri en fram kemur í ríkisreikningi
KRISTINN Pétursson alþingismaður telur að skuldbindmgar nk-
isins séu að minnsta kosti 40 miHjörðum kr. meiri en ríkisreikning-
ur sýnir. „Þessar vanfærðu skuldbindingar samsvara rúmlega
hálfri milljón á hveija einustu fjölskyldu í landinu," segir Kristinn
í samtali við Morgunblaðið. Meðal annars vegna ábendinga Krist-
ins er verið að endurskoða færslu ríkisbókhalds og hefur það
orðið til þess að ríkisreikningur 1989, sem átti að leggja fyrir
Alþingi við upphaf þings í haust, verður ekki lagður fram fyrr
en eftir áramót.
Kristinn segir að stærsti hluti
þeirra 40 milljarða sem hann
áætlar að skakki í ríkisbókhaldinu
sé vegna ófærðra skuldbindinga
lífeyrissjóðs opinberra starfs-
manna. Segir hann að þetta séu
raunverulegar skuldir, sem komi
til greiðslu í framtíðinni, og bend-
ir á að orðið hafí að reikna slíkar
skuldbindingar þegar Útvegs-
bankinn var seldur.
Hann segir að fyrir utan þetta
þyrfti að fá löggilta endurskoð-
endur til að meta tapaðar skuld-
bindingar sjóða eins og til dæmis
Atvinnutiyggingarsjóðs og Fram-
kvæmdasjóðs. Telur Kristinn að
þá kæmu í ljós verulegar fjárhæð-
ir til viðbótar sem hingað til hefði
ekki verið gert ráð fyrir við mat
á skuldbindingum ríkissjóðs í rík-
isreikningi.
Kristinn skrifaði forsetum Al-
þingis bréf fyrr á þessu ári og
bað um að Ríkisendurskoðun
svaraði ákveðnum spurningum
um þessi mál. Kristinn segir að
Ríkisendurskoðun hafí staðfest
athugasemdir sínar. í framhaldi
af því hefði færsla ríkisbókhalds
og uppgjör ríkisreiknings komið
til endurskoðunar í kerfínu. Sagð-
ist hann vonast til að sú athugun
leiddi til lagfæringa á þessum
hlutum.
„Bókhald á að vera upplýsinga-
tæki til markvissrar stjómunar,“
segir Kristinn. „Ef það er ekki
rétt fært verða allir þjóðhagsút-
reikningar sém á því eru byggðir
Kristinn Pétursson
rangir. Það er ástæðan fyrir því
að ég hef beitt mér í þessu máli.
Skipi verður aldrei siglt til hafnar
ef áhöfnin vill ekki viðurkenna
hvar skipið er statt,“ segir hann.
Kristinn segir að stjórnvöld
geti aldrei náð tökum á stjórn
efnahagsmála nema þau virði
grundvallaratriði eins og fjár-
málaákvæði stjórnarskrár og lög
um ríkisbókhald. „Fjármálaráð-
herra er óheimilt samkvæmt
stjórnarskrá að greiða fé úr ríkis-
sjóði nema með fyrirframgefinni
heimild í fjárlögum frá Alþingi.
Allir vita hvernig farið hefur ver-
ið eftir þessu ákvæði stjómar-
skrárinnar.
Einnig er óheimilt að taka lán
nema með heimild í lánsfjárlög-
um. I fjárlögum er ákvæði þar sem
fjármálaráðherra er heimilað að
efna til tímabundins yfirdráttar á
viðskiptareikningi í Seðlabanka.
Ég tel að Alþingi megi ekki með
þessum hætti framselja til ráð-
herra vald sem það hefur. Ég tel
að ógæfuheimild sé réttnefni á
yfirdráttarheimildinni. Hún leiðir
til seðlaprentunar og er aðal verð-
bólgufóðrið í þjóðfélagi okkar.
Skýrt dæmi um misnotkun fjár-
málaráðherra á yfírdráttarheim-
ildinni er að hann var 7,2 millj-
arða kr. yfir á viðskiptareikningi
ríkissjóðs í Seðlabankanum í lok
nóvembermánaðar síðastliðinn.
Tel ég að það sé ein af helstu
skýringunum á því að peninga-
magn í umferð hefur aukist um
20% umfram almennar verðlags-
hækkanir í landinu á árinu og að
þessi peningaprentun ógni þjóðar-
sáttinni. Það er því orðið ákaflega
brýnt að takmarka verulega yfír-
dráttarheimildina," segir Kristinn.
Á síðasta þingi lagði fjárveit-
ingarnefnd Alþingis fram frum-
varp, sem hún stóð öll að, um fjár-
greiðslur úr ríkissjóði. Kristinn
segist telja þetta mikilvægasta
frumvarp um fjárhagsmálefni rík-
issjóðs sem lengi hefði verið lagt
fram. „Meginefni frumvarpsins
er að fjármálaákvæði stjórnar-
skrár verði virt að öllu leyti. Þetta
á að vera sjálfsagt mál, enda eru
íjármálaákvæði stjórnarskrárinn-
ar jafngild mannréttindaákvæð-
unum. Það má líkja ástandinu nú
við það að dómsmálaráðherra teldi
sig geta, vegna hefðar, látið
stinga fólki í tugthúsið án þess
að leiða það fyrst fyrir dómara.
Páll Pétursson, þingflokksformað-
ur Framsóknarflokksins og form-
aður fjárhags- og viðskiptanefnd-
ar neðri deildar, settist á þetta
frumvarp á síðasta þingi og síðan
var því vísað til ríkisstjórnarinnar.
Nú situr fjármálaráðherra á því,“
segir Kristinn.