Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 43

Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 43
MORGU\'B1.A01Ð FÖSTUDAGUR 14. ©ES'EMBER 1990 ^3 Formaður fjárveitinganefndar við aðra umræðu fjárlaga: Aukning’ ríkisútgjalda verður æ illviðráðanlegri „Halli ríkissjóðs árin 1988-1991 30 milljarðar kr.“, segir Pálmi Jónsson. FRUMVARP til fjárlaga fyrir árið 1991 var rætt öðru sinni í sameinuðu þingi í gær. Tillögur til hækkunar nema 890,5 inilljón- um. Ymsir stórir málaflokkar s.s. málefni byggingarsjóðanna og viðgerðir opinberra bygginga bíða þriðju umræðu. „Efnahagslífinu ekki sljórnað með tilskipunum“ Sighvatur Björgvinsson (A-Vf) formaður fjárveitinganefndar gerði að umtalsefni að nú hefðu menn gert sér grein fyrir því að efna- hagslífinu yrði ekki stjórnað með tilskipunum og stjórnvaldsaðgerð- um en jafnframt væri mönnum ljós- ara hve miklu fjárlagagerðin skipti um framvindu efnahagsmála; mikil- vægasta tækið til að hafa bein áhrif á framvindu efnahagsmálanna væru fjárlögin. Ræðumaður benti á að margt hefði verið fært í fijáls- ræðisátt og því yrði að fylgja eftir með breytingum á starfsháttum Alþingis þegar fjallað væri um efna- hagsmál og afgreiðslur þeim tengd- ar. Hann taldi ábyrgðir ríkisins á lántökum sveitarfélaga, fyrirtækja og sjálfstæðra ríkisstofnana út í hött. Sighvatur sagði tekjuöflunar- kerfi ríkissjóðs hafa verið stórlega bætt á síðustu ánim; tekjuskatts- kerfið og virðisaukaskattskerfið væri á margan hátt betra og ein- faldara en nágrannaþjóða. Sighvat- ur varaði við því að „skjóta göt“ í virðisaukaskattskerfið. Sighvatur fór nokkrum orðum um erfiðleika við að halda kostnaði í ríkisrekstrinum í skeijum. Alþingi sjálft samþykkti fjöldann allan af lögum sem köiluðu á viðbótar- greiðslur. Og sparnaður reyndist erfiður í framkvæmd; á umliðnum árum hefðu bundin útgjöld, þ.e.a.s. óhjákvæmilegar greiðslur, aukist, s.s. launakostnaður, tilfærslur og vaxtagreiðslur sem hluti af heildar- útgjöldum ríkissjóðs. Rekstrarút- gjöld næmu um 40% af ríkisútgjöld- um. Hlutur menntakerfis, heilsu- gæslu og sjúkrahúsa væri þar þrír fjórðu. Tilfærslurnar væru önnur 40%, meginútgjaldaliðir þar væru almannatryggingar, niðurgreiðslur landbúnaðai-vara og útflutnings- bætur. Á Sighvati var að skilja að hann teldi niðurskurð á þessum sviðum njóta takmarkaðs stuðn- ings. Vaxtagreiðslur næmu 9% ríkisútgjalda og þess tæpast'kostur að setja lög á erlendar lánastofnan- ir til að lækka þann liðinn. Viðhald á fasteignum ríkisins næmi 2% og ástand ýmissa opinberra bygginga gæfi ekki tilefni til að ætla að þar væri mikið svigrúm til sparnaðar. Eftir væru opinberar fjárfestingar; framkvæmdir í höfnum, vegum, sjúkrahúsum, skólum o.fl. og þar Stuttar þingfréttir: Geymdur arfur í fyrirspurnartíma í gær spurði Eiður Guðnason um arð Skógrækt- ar ríkisins af húseigninni Sunnuvegi 6 í Hafnarfirði sem Skógræktin hafði verið arfleidd að fyrir 18 árum. Skógræktinni var ætlað að nota arðinn af umræddri eign til að efla tijágróður í Dalasýslu. Það kom m.a. fram í svari landbúnaðar- ráðherra að leigutekjur námu á árunum 1975-80 515,1 þús. gamlar krónur. 1981-89 voru leigutekjur 847,8 þúsund nýkrónur. Þessum tekjum hefur ekki verið varið til skógræktar í Dalasýslu heldur til endurbóta og viðgerða á húseign- inni. Nú er húsið leigt fyrrum skóg- ræktarstjóra. Húsaleiga er 11,3 þúsund krónur á mánuði. Sighvatur Björgvinsson. Pálmi Jónsson. hefði sparnaðarviðleitnin á undan- förnum árum einna helst birst. Ræðumaður hvatti til þess að gjaldahliðin yrði tekin til gaumgæfi- legrar endurskoðunar. Aukning ríkisútgjalda yrði æ illviðráðanlegri og ef ekki væri vilji ti! að draga úr útgjöldum yrði að auka tekjúr og þar væri verið að tala um fjár- hæðir sem jafngiltu hækkun á tekjuskatti um þriðjung eða hækk- un á virðisaukaskatti úr 24,5% í 28,5-29%. Framsögumaður greindi frá störfum fjárveitinganefndar og taldi m.a. þörf á því að hún sæti allt árið. Sighvatur drap á í sinni ræðu að skráðum stöðugildum hefði fjölgað um 567 en af þeim væru 500 störf tilkomin vegna breyttrar verkaskiptingar ríkis og sveitarfé- laga. Ræðumaður taldi kostnaðar- auka ríkissjóðs vegna þeirra skipta nema hundruðum milljóna fram yfir áætlanir. — Reyndar teldu sveitarfélögin sig einnig hafa orðið fyrir kostnaði umfram áætlanir. Var þetta eina dæmi þess sem Sig- hvatur vissi um að báðir aðilar töp- uðu í hnífakaupum. Ræðumaður fór í gegnum breyt- ingartillögur þær sem fjárveitinga- nefnd gerir. Þótt nefndin standi öll að þeim áskilji minnihlutinn sér rétt til að gera fyrirvara um eín- stakar greinar. Það kom fram í máli Sighvats að breytingartillögur til hækkunar hefðu verið grannt skoðaðar og ekki rýmilega skammt- að. Gerð er tillaga varðandi lands- bókasafn íslands um eina og hálfa milljón vegna tímabundinnar stöðu við að skrá og yfirfara handrit Halldórs Laxness. Fjárveiting til lögreglustjórans á Keflavík'urflug- velli hækkar um eina og hálfa millj- ón vegna Fríhafnarinnar. Fríhafn- arstjórinn sagðist treysta sér til að hafa í hágnað tífaldan þann kostnað sem væri af því að opna Fríhöfnina fyrr 'og á þeim tímum er hann ósk- aði eftir en fríhöfnin hefur einungis verið opin í 45 mín. fyrir brottför flugvéla. Þessi viðbótargreiðsla er tengd því að verslun Fríhafnarinnar verði opnuð þegar forstjórinn óskar eftir og er gert ráð fyrir að auknar tekjur af vörusölu nemi tífaldri þessari upphæð. Framsögumaður vék að sjúkra- húsunum í Reykjavík, fjárveitinga- nefnd leggur til að sjúkrahúsin þtjú í Reykjavík verði tekin inn í fjárlög- in á ný með sín gömlu fjárlaganúm- er. Fjárlagaliðurinn sjúkrahús í Reykjavík verður þó áfram og eru til hans ætlaðar 154 milljónir í rekstur og 20 milljónir í stofnkostn- að. Nefndin vill láta á það reyna hvort unnt verður að ná árangri til lækkunar kostnaðar með samræm- ingu á starfsemi sjúkrahúsanna eins og nýframkomið frumvarp heil- brigðisráðherra stefnir að. Sighvatur lét þess getið að end- anlegar kostnaðartölur sjúkrahús- anna lægju fyrir um áramótin og þá muni nefndin taka þær til skoð- unar og beita sér fyrir því að nauð- synlegar viðbótargreiðsluheimildir yrðu veittar í fjáraukalögum fyrir árið 1990. Framsögumaður dró ekki dul á að allmörg mál biðu þriðju umræðu bæði vegna þess að um álitamál væri að ræða og ennfremur boðaði ríkisstjórnin ýmsar breytingar á tekjuhliðinni sem tengdust einnig gjaldahliðinni sem enn væru ekki fram komnar. Þá biðu einnig þriðju umræðu málefni byggingarsjóð- anna, málefni Þjóðleikhússins, Þjóð- arbókhlöðu o.fl. „Skattar hækka«Mr“ Pálmi Jónsson (S-Nv) fór nokkr- um almennum orðum um feril ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum undanfarin ár og vat- sú lýsing held- ur ólofleg. Svo hefði verið komið að ábyrgir aðilar vinnumarkaðarins hefðu í febrúarmánuði ekki unað þessu lengur; mótað nýjan efna- hagsgrundvöll; fært ríkisstjórn þjóðarsátt á silfurdiski. Ætla hefði mátt að ríkisstjórnin notaði þetta tækifæri til að laga til í þjóðfélag- inu og ríkisrekstrinum en það hefði gjörsamlega brugðist. Pálmi las langt syndaregistur, m.a. að frá og með 1988 til 1991, miðað við fjár- lagafrumvarpið og verðlag þess árs, hafa skattar til ríkissjóðs verið hækkaðir um 15,5 milljarða. Sam- safnaður halli ríkissjóðs árin 1988- 1991 verði yfir 30 milljarðar króna. Erlendar skuldir þjóðarbúsins aldrei verið hærri eða 51,6% af landsfram- leiðslu en voru 40,3% 1987. Pálmi sagði fjárlagafrumvarpið bera með sér að ríkisstjóminni hefði mistekist í fjármálum ríkisins, m.a. gerði frumvarpið ráð fyrir nýjum sköttum um 2.200 milljónir. Rekstr- arútgjöld aukist um 2% af raungildi milli ára. Frumvarpið boðaði gífur- legan vanda í fjármálum ríkisins í framtíðinni vegna'hallarekstrar og skuldbindinga sem falla í gjalddaga og vegna vanda ýmissa samfélags- legra sjóða. Ræðumaður gagnrýndi einnig ýmsa nýja skatta, t.a.m. hafnarskattinn sem væri lands- byggðinni til mikillar bölvunar. Utþensla ríkiskerfins, „bákns- ins“, var harðlega gagnrýnd, t.d. var kostnaður við ráðuneytin gagn- rýndur. Útgjöld fjármálaráðuneytis hafa hækkað um 112% á tveimur árum þegar útgjöld ríkissjóðs í heild hafa hækkað um 54% og þætti flest- um nóg um. Pálmi gagnrýndi einn- ig kostnað og óhóf við utanfarir en lét þess þó getið að svo virtist sem fjármálaráðherrann hefði ekki mis- notað aðstöðu sína í þessum efnum — og ætti lof skilið. Var þetta hið eina jákvæða sem Pálmi sagði um fjármálaráðherrann í gær. í ræðulok fór Pálmi Jónsson enn nokkrum orðum um þann vanda Málmfrður Sigurðardóttir. i ■sem ríkisstjórnin kysi að loka aug- unum fyrir og fresta til framtíðar. Ríkisstjórnin skildi eftir sig byrðar sem þjóðin þyrfti að axla og næmu 47-48 milljörðum. Það væru 960 þús. króna á hveija fimm manna fjölskyldu sem ríkisstjórn ráðleysis og sóunar skildi eftir. Blikur á lofti Málmfríður Sigurðardóttir (SK-Ne) gagnrýndi m.a. fjárlaga- hallann sem stefndi í að verða 2,2% af landsframleiðslu. Ræðumanni þótti margt óvíst við væntanleg fjárlög, t.d. væri allt í lausu lofti varðandi fyrirhugað hafnargjald og tryggingaiðgjald. Framkvæmd þeirrar skattheimtu væri enn ekki skipulögð né útfærð og fleiri stór- mál biðu þriðju umræðu s.s. vandi byggingarsjóðanna, viðgerðir opin- berra bygginga, t.a.m. Þjóðleik- hússins og Bessastaða. Málmfríður sá ýmsar blikur á lofti. Peningamagn í umferð væri vaxandi og samkeppni ríkissjóðs um fjármagn á lánamarkaði ylli því að ekki tækist að lækka vexti svo neinu næmi. Ræðumaður gagnrýndi vinnslu fjárlagafrumvarpsins; þegar það var lagt fram var gengið framhjá málum sem augljóslega varð að taka á í vinnslu fjárveitinganefndar og leiða til hækkunar. Fjármálaráð- herrann myndi svo firra sig ábyrgð og varpa henni á Alþingi og fjárveit- inganefnd. Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) lagði til að Hið íslenska þjóðvinafé- lag yrði undirliður á fjárlögum og vildi að því yrðu veittar 500.000 krónur þannig að ljúka mætti þriðja og síðasta bindi bókar sem inniheld- ur bréf til Jóns Sigurðssonar. Hún lýsti einnig þeirri skoðun sinni að of mikið álag væri á fjár- veitinganefnd, sem væri ætlað að afgreiða mál á allt of stuttum tíma. Alexander Stefánsson (F-Vl) og Friðjón Þórðarson (S-Vl) tóku í sama streng og Guðrún varðandi fjárveitinganefnd. Alexander ræddi einnig um virðisaukaskatt og sagði í því sambandi að aðeins þriðjungur þeirra fyrirtækja sem ættu að vera með sjóðsvélar væru með þær í fullkomnu lagi. Hann sagðist geta fullyrt að ef þetta yrði lagað gæti það skipt milljörðum í lægri skött- um fyrir landsmenn. Alexander sagði meðferð land- búnaðarráðherra á málefrium Bún- aðárfélags íslands við fjárlagagerð- ina trúnaðarbrot við bændur. Hann sagði eðlilegt að ráðherra tryggði framgang þessara mála í fjárlaga- gerðinni. Danfríður Skarphéðinsdóttir (Kl-Vl) vildi helst stokka allt frum- varpið upp, en sagði að Kvennalist- inn hefði af hógværð gert örfáar tillögur til lagfæringar. Hún sagði að konur hefðu ekki farið höndum um ríkiskassann og því væru þær ekki ábyrgar fyrir ástandi hans. Ásgeir Hannes Eiríksson (B-Rv) sagði að Pálmi Jónsson væri nú kominn af fjalli með fjár- málaræðuna sína, sem væri reyndar ekki hans ræða heldur Jóns Þor- lákssonar. Hann hefði flutt þessa ræðu meðan hann var á þingi og því væri hún nú flutt í 46. sinn. Hann benti á að í umræðunni um fjárlög kæmu fram ótal tillögur um aukin útgjöld ríkissjóðs, en það væri of algengt að þingmenn legðu ekki fram neinar tillögur um hvern- ig afla ætti tekna á móti. Hann vildi að menn yrðu skikkaðir til slíks. Næstur á mælendaskrá var Halldór Blöndal (S-Ne) og kvart- aði undan því að ekki væri hægt að ná í ráðherra því þeir væru ekki í húsinu. Hann taldi best að skrifa þeim, þannig væri tryggt að erindi það sem hann ætti við þá kæmist til skila. Hann sagði þessi vinnu- brögð ekki ganga. Hann taldi einnig furðu sæta að fjármálaráðherra skyldi ekki hafa tekið til máls í annarri umræðu um fjárlögin. Forseti sameinaðs þirtgs benti honum þá á að fjármálaráð- herra væri næstur á mælendaskrá. Forseti frestaði fundi kl. 19.30 um tíu mínútur en þegar fundur var settur á ný hafði enginn kvatt sér hljóðs þannig að fundi var slitið. Utandagskrárumræða: Endurvinnsla og kjamorkuúrgangur Endurvinnslustöðin í Doun- reay og fréttir um að forráða- menn þar ætli að auka starfsem- ina urðu tilefni til umræðna utan dagskrár í sameinuðu þingi í gær. Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) bað um þessar umræður. Hjörleifur Guttormsson minnti á ályktanir og mótmæli Alþingis gegn starfseminni í Do- unreay og innti umhverfisráðherra eftir því til hvaða ráðstafana yrði gripið í ljósi síðustu frétta um að forráðamenn endui-vinnslustöðvar- innar og sænskir aðilar væru ekki langt frá samkomulagi um að stöð- in tæki geislavirkan úrgang frá Svíþjóð til endurvinnslu. Forráða- menn í Dounreay teldu það mikil- vægt að afla nýrra verkefna. Gegn þessu yrði að bregðast nú þegar og krefjast þess af sænskum stjórnvöldum að þau stöðvuðu slík áform. Júlíus Sólnes umhverfisráð- herra sagði starfsemina í Dounre- ay valda sér áhyggjum, ekki síst þau áform Breta að byggja neðan- jarðargeymslu fyrir geislavirkan úrgang við ströndina. Júlíus greindi frá því að hann hefði margítrekað hreyft þessu máli á fundum kollega erlendis og við- brögð sumra þeirra hefðu valdið sér vonbrigðum. Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra rakti nokkuð sögu þessa máls og aðgerðir utanríkisráðu- neytisins fram til þessa. Það kom fram að íslenska sendiráðinu í Stokkhólmi hefur verið falið að spyija sænsk stjórnvöld nánar um ' hvaða áform eru uppi. Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) og Hjörleifur Guttormsson ítrek- uðu^ að frettir af starfseminni í Dounreay væru uggvænlegar í hæsta máta. Hjörleifi fannst ekki nægur baráttuhugur í ráðherrun- um, það þyrfti að taka snarplega á þessu máli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.