Morgunblaðið - 14.12.1990, Qupperneq 51
k
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGURIT4. DESEMBER 199D
5Bc
Lofthellir í Mývatnssveit er 10 m á hæð og hæð hæstu ísmyndana hálfur fjórði metri. Björn og félag-
ar hans litu þetta djásn fyrstir manna augum í fyrra.
ugt. Venjulegt vasaljós. er ágætt, ef
þess er gætt að hafa með varaperu
og vararafhlöðu, svo ekki komi fyrir
að maður standi uppi í myrkrinu.
En grundvallarreglan er að hafa góð
og örugg ijós og gæta þess að vera
vel skóaður til að detta ekki. Þá er
engin hætta. En við erum ekki með
nákvæma staðsetningu í bókinni á
4-5 hellum, sem eru of dýrmætir,
en reynum að kynna þá á ýmsa lund
með myndum þar til fólk hefur betur
lært að umgangast þá.“
Við tölum um hvílíkt ævintýri það
þykir alls staðar að fara í hella. Þar
stöndum við ekki framarlega, að því
er Björn segir. Aðeins ár síðan fyrsta
hellafélagið var stofnað hér á landi.
I flestum löndum eru starfandi mörg
félög, til dæmis eru þau 70 talsins
í Tékkóslóvakíu. í nóvember í fyrra
gekkst Björn fyrir stofnun Hella-
félagsins og mættu 35 á stofnfund-
inn. Laugardaginn 8. desember
áfonnuðu félagar að fara í Raufar-
hólshelli með svarta poka og tína
rusl. Hellar hafa þann kost að hægt
er að fara í þá á öllum árstímum.
„Þar er alltaf sama veður, hitinn frá
fjórum stigum og niður í eins stigs
frost, aldrei rok og mjög lítil úr-
koma, rétt fellur í dropatali. Vegna
þessara skilyrða varðveitist allt svo
vel í hellunum. Þeir geta haldist
óbreyttir í árþúsundir,“ segir Björn.
Og hann bendir á að bændur geti
brugðið sér ofan í þá, hlýjað sér og
beðið af sér veður, ef þeir viti hvar
þeir eru. Einnig getur það komið sér
vel fyrir rjúpnaskyttur. í Þingvalla-
sveit eru t.d. 20 hellar. Þetta eru
upplögð sæluhús, segir hann. Sjálfur
hefur hann lagst til svefns í hellum.
„Þetta er svo fallegur og fræðandi
heimur. Alger þögn nema þegar
dropar falla. Og algert myrkur. Mað-
ur sér ekkert þótt maður opni aug-
un, ekki einu sinni þótt hendinni sé
veifað fyrir framan nefið á manni —
ekki fyrr en kveikt er ljós.“
Að lokum segir Bjöm að í hella-
skoðun sinni fari saman rannsóknir
í vísindagrein hans, áhugamálið sem
er ljósmyndun og svo fylgir útivist
við að skoða fagran heim.
E.Pá.
SIEMENS
Eigendur SIEMENS
hrærivéla athugið!
Smákökumótin í SIEMENS
hrærivélarnar eru komin.
Munið umboðsmenn okkar víðs
vegar um landið.
SMrTH&NORLAND
NÓATÚNI4-SÍMI28300
3 ODYRASTIR
yóCafcorta-
myncCatötqir
9ívar fczrðu myndatöíqi
og 30 jóíakort af baminu /
Börnunum þínum á aðeins ,
/r. 5.000.-
5íjá okfur - tekið í dag
og tdBúið á morgun.
Ljósmyndastofan Mjmd
sími 5 42 07
Barna- og fjölskylduljósmyndir
sími 1 26 44
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 4 30 20
Aðeins únrals iqöt J y j j^
KAUPSTAÐUR
A1IKUG4RDUR