Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.12.1990, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 GOÐAR JOLAGJAFIR KVEN-, BARNA- OG KARLMANNASLOPPAR GLÆSILEGT ÚRVAL Egill Jacobsen Austurstræti 9 Rottur og kettir Hljómplötur Árni Matthíasson Langi Seli og Skuggarnir hefur verið ein skemmtilegasta rokksveit landsins síðan sveitin tróð fyrst upp síðla árs 1986. Hún er sprottin að mestu úr rokkabillígarði. Oxzmá sálugu og líkt og þeirri sveit er fátt henni heilagt í rokkinu. Frá Langa Sela og félögum hafa komið tvær tólftommur, en biðin eftir breiðskífu var orðin æði löng. Það gerir þó ekki mikið til nú loks þeg- ar platan, Rottur og kettir, en kom- in út, því biðin var vel þess virði. Eins og þeir fjölmörgu sem séð hafa sveitina á tónleikum vita leika sveitarmenn sér gjarnan að því að hræra saman klassískum popp- og rokkfrösum í taktfasta dansblöndu. Það ber og á því á plötunni og ýmsir munu hafa gaman af að spreyta sig' við að þekkja frasa sem bregður fyrir, t.a.m. í upphafi lag- anna Nautið og vatnið, Minni heimsins og Ertu frá þér og í öllu laginu Já, já, já. Þetta má þó ekki skilja sem svo að tónlistin sé ófrum- leg; hún er frumleg og hefðbundin og um leið stórskemmtileg áheyrn- ar. Lög sveitarinnar eru mörg án söngs og vel fallin til dansæfinga, en bestu lögin eru þau sungnu, því textar eru fyrirtak, raddsetningar allar til fyrirmyndar og framlag Axels „Sela“ framúrskarandi. Bestu lög plötunnar eru Einn á ísjaka, sérlega vel heppnað drífandi lag, Einmana dollaraseðill í Suður- Ameríku með Sergio Leone-blæ, Rabbi Rotta með skemmtilegum töffaratexta, Svik með bráðsmell- inni raddsetningu, Minni heimsins, Ertu frá þér, fyrsta íslenska hiphop- lagið sem ekki er aðhlátursefni en þó bráðfyndið, og eiginlegt lokalag plötunnar, Undir súð, skemmtilega væmið lag. Útsetningar laga á plöt- unni eru í höndum sveitarmanna og „tónlistarráðgjafans" Harðar Bragasonar, sem sýnir að hann er með afbrigðum útsjónarsamur og hugmyndaríkur. Vel væri að fleiri hefðu slíka ráðgjafa. Á geisladisk eru sex (!) aukalög, sem öll hafa áður komið út, þar á meðal hið klassíska Kane, hið stór- skemmtilega tónleikastuðlag Hálf- ur heimur og Breiðholtsbúgí, sem er á meðal bestu laga sveitarinnar. Rottur og kettir er tvímælalaust ein skemmtilegasta breiðskífa íslenskrar hljómsveitar síðustu ár og ekki er hægt að hlusta á hana án þess að fara allur á ið. Hún sýnir að klassískt rokk lifir góðu lífi — líka á íslandi. Klassískt gítarpopp o&VAk. cptL OG SPÁDÓMAR DULDIR KRAFTAR OG ÖRLÖG MANNA í bókinni Spil og spádómar eru lesendum kynntar ýmsar leiðir til að skyggnast inn í framtíðina, aðferðir sem menn hafa þekkt í aldaraðir. Hér er fjallað um spilaspár, stjörnuspeki, lófalestur, draumaráðningar og margt fleira. Stórfróðleg bók um dulda krafta og áhrif þeirra á örlög manna. í henni eru mörg hundruð myndir. Óskar Ingimarsson þýddi. SETBERG Hljómplötur Árni Matthíasson Síðan skein sól olli mörgum von- brigðum með síðustu breiðskífu sinni, því þó þar hafi verið að finna ýmis snjöll lög, vantaði nokkuð upp á að platan væri sannfærandi í heild og hún uppfyllti ekki þær vonir sem við sveitina voru bundn- ar. Nýjasta breiðskífa sveitarinnar, Halló, ég elska þig, er þó afbragðs plata og staðfestir stöðu sveitarinn- ar í fremstu röð íslenskra' popp- sveita. Á Halló, ég elska þig (stolið frá Doors?) snýr sveitin aftur í harðari tónlist og rokkaðri, eftir að hafa reynt fyrir sér með lágstemmt „kassarokk". Fyrsta lag plötunnar, Þau falla enn, er grípandi rokklag, þó ekki sé það eitt af þeirra bestu. Aftur á móti er annað lag plötunn- KONFEKTMOLAR fylltír med þuns- romm-, kirsuberja-, og koníakslíkjör. U SKÍWM)I, (ÍOIT 1 ar, Nóttin, hún er yndisleg, dæmi- gert fyrir sveitina, einfalt og um leið snúið grípandi klassískt gítar- popp. Svo er og um fleiri lög á plöt- unni, eins .og t.a.m. Þér er alveg sama, sem vinnur vel á við hveija hlustun, Stelpa, skemmtilegt klisju- lag, Halló ég elska þig, sem vísar í ýmsar áttir, Fyrir þig, sem er skemmtilega á skjön við það sem áður er komið, og „flipp'Tagið Þeir sjálfir, þar sem Helgi „Jagger" fer á kostum. Textasmíðar hafa tekið allmikl- um framförum hjá sveitinni og væmnin virðist á undanhaldi. Það er þó ljóður á að ekkert textablað fylgir. Síðan skein sól hefur löngu náð að skapa sér sérstakan stíl, sem felur í sér það besta úr ýmsum átt- um ekki síður en frá sveitarmönnum sjálfum, og þó Helgi hafi ekki mikla rödd, er hann er skólabókardæmi um smekklegan söng. Reyndar hef- ur hann að mínu mati ekki áður sungið betur en á þessari plötu. Aðrir standa sig eins og jafnan og víst er að Halló, ég elska þig er ein besta skífa sveitarinnar fram að þessu. Pennavinir Fjórtán ára júgóslavnesk stúlka með áhuga á íþróttum, tónlist og frímerkjum, vill skrifast á við pilta: Natasa Petresin, Javorjev Drevored 6, 61000 Ljublana, Jugoslavia. Tvítug tékknesk stúlka, tungu- málanemi, með áhuga á íþróttum, ferðalögum, tónlist, póstkortum o.fl.: Kamila Divisovo, Erbenova 2, 79701 Sumperik, Czechoslovakia. Dönsk kona, 27 ára, með áhuga á tónlist, bókalestri, safnar póst- kortum, vill skrifast á við 25-35 ára: Helle Christensen, Ostergade 14, ltv., 8300 Odder, Denmark. Japönsk stúlka, 22 ára, með áhuga á póstkortum, og peysudellu: Tamami Kubota, 7-13-2 Aoshima 4 chome, Miyazakishi, Miyazaki 889-22, Japan. Bandarískur 22 ára karlmaður með áhuga á íþróttum og ferðalög- um: Thomas P. Valerino, 41 High Street, Newton, N.J. 01860, U.S.A. Fimmtán ára þýsk stúlka með mikinn íslandsáhuga: Steffi Becker, Am Petermerer la, 2830 Bassum, Germany.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.