Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 54

Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 54
54 MOEGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DBSEMBER 1990 ri ÍMJÓDD íMi u§& m m P?'|l ijjíS) mé M *!»] Ws ’iMfí KSiSl AfmæKskveðja: Karólína Sveinsdóttir í dag, 14. desember, er frú Kar- ólína Sveinsdóttir, Dyngjuvegi 10 í Reykjavík, 95 ára. Það eru viðburð- aríkir tímar, sem þessi indæla móð- ursystir mín hefur lifað í nær því heila öid, og sé einhvern tíma ástæða til að staldra við og þakka liðin ár, er það við tímamót á svo háum aldri. En þegar setzt er niður til að festa orð á blað, þá verða þau fátækleg miðað við það þakklæti og hlýju tilfinningar, sem bornar eru í bijósti. Karólína fæddist í Reykjavík í húsinu nr. 11 við Smiðjustíg. Það stendur enn á sínum stað, þar sem faðir hennar byggði það, en seinni eigendur munu þó hafa stækkað það nokkuð. Húsið var stórt og rúmgott á þeirra tíma mælikvarða, og þar átti Karólína góða æskudaga í samlyndum systkinahópi. Öllum ber saman um, að heimilislífið á Smiðjustíg 11 hafi verið til fyrir- myndar að ölium brag, ástríki og umhyggju, glaðværð og góðlyndi. Þar heyrðist aldrei styggðaryrði, enda foreldrarnir hið mesta geð- prýðisfólk. Þeir voru Sveinn Ólafs- son Jónssonar,-bónda að Stokks- eyrarseli, og Sigríður Rögnvalds- dóttir Jónssonar, útvegsbónda á Eystra-Reyni á Akranesi og síðar á Skálatanga. Þau Sigríður og Sveinn eignuðust 8 börn, en eitt þeirra dó í frum- bernsku, hið næsteizta. Hin voru: Rögnvaldur, Anna Guðný, Júlíus, Sumarliði, Karólína, Guðríður og Sigríður Emilía. En sorgin knúði einnig dyra á hinu glaðværa heim- ili. Rögnvaldur lézt á Akureyri 1907, aðeins 24 ára gamall, nýkom- inn frá námi í málaraiðn í Dan- mörku og Svíþjóð. Og Sigríður Emilía lést á Vífilsstöðum á 14. aldursári. Hin komust öll á efri ár, en nú er Karólína ein á lífi þeirra systkina, 95 ára. Þau bjuggu öll í Reykjavík nema Sumarliði, sem fór til Vesturheims og ílentist þar. Hann bjó fyrst í Kanada, en fluttist síðar til Bandaríkjanna og bjó lengst í Long Beach, þar sem hann var vel metinn fasteignasali. Hann kvæntist íslenzkri konu, sem fædd var vestra, Ólöfu Gunnarsdóttur, og munu margir kannast við þau hjón undir nöfnunum Olla og Sumi Swanson. Sumariiði ætlaði ekki að vera nema hálft annað ár vestra, en hann kom ekki til íslands fyrr en 33 árum síðar — í sína fyrstu heimsókn af mörgum, og þá gat hann ekki lagzt til svefns þrátt fyr- ir langa ferð, fyrr en hann hefði gengið niður á Smiðjustíg til að líta æskustöðvarnar augum. En ævintýri utanlandsferðar beið Karólínu einnig. Vinafólk hennar í Stafangri í Noregi hvatti hana ein- dregið til að koma og dvelja hjá sér, og vorið fyrir fyrri heimsstyij- öld hélt hún utan til Gamla heims- ins, en þaðan kom hún samkvæmt áætlun árið eftir. Dvölin í Noregi var henni til mikillar ánægju og minntist hún hennar æ síðan með tregablandinni gleði. Hún vann þar fyrir sér í stórri verksmiðju og gat sér þar hið bezta orð. En þegar hún kom heim aftur, lá leiðin ekki heim á Smiðjustíg 11, þó að henni væri það ríkast í huga, því að þá var búið að selja húsið, heldur til elztu systur sinnar, Önnu Guðnýjar, og manns hennar, Þorláks Ófeigsson- ar, foreldra undirritaðs, en þau bjuggu þá í Vinaminni í Mjóstræti. Karólína bjó síðan í nokkur ár hjá þeim ásamt Sigríði, móður sinni, en hún dvaldi hjá þeim til æviloka, 1935. Sveinn Ólafsson lézt 1910. Ég veit, að Karólína var móður minni ómetanleg hjálparhella áy þessum árum. Karólína var ávallt og er enn létt í lund og gædd frá- bærri kímnigáfu, og henni fylgdi birta og gleði, hvar sem hún fór. Áður en langt um leið, eftir að hún kom frá Noregi, var hún búin að fá eitt eftirsóttasta starf, sem ung- ar stúlkur gátu fengið á þeim tíma í Reykjavík: Hún varð símastúlka SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI D <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.