Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
55
andi vel á fólkið og umfram allt á
Karólínu.
Þau Asgeir og Karólína eignuð-
ust sex börn og höfðu átt þau öll
er þau fluttu að Rauðarárstíg 3
(síðar 19), sem var hið reisulegasta
hús þar sem nú er Búnaðarbanki
við Hlemm, og þar stóð hið fjöl-
menna og gestkvæma heimili þeirra
í 18 ár, en þá, árið 1950 fluttu þau
í hús, sem þau höfðu byggt í Laug-
arásnum, á Dyngjuvegi 10 þar sem
Karólína býr enn í skjóli barna
sinna. Þegar þau bjuggu á Rauðar-
árstígnum, var stutt á milli hinna
samhentu systra og barna þeirra
og samgangur mikill. Er ljúft að
minnast þeirra samskipta á æskuár-
unum.
Börn Karólínu og Ásgeirs eru:
Ásgeir Þór, verkfræðingur, Sveinn,
hagfræðingur, Guðmundur, rekur
Viðskiptaþjónustu á Neskaupstað,
Birgir, lögfræðingur, en hann lézt
1984, Bragi, listmálari, og Hrefna,
húsmóðir. Afkomendur Karólínu og
Ásgeirs eru nú 30. Ásgeir lézt 1978
nær 81 árs að aldri.
Elsku Kalla mín. Nú ávarpa ég
þig eins og við börnin gerðum. Þú
hefur kunnað að taka jafnt erfiðum
stundum sem góðum, og þú ert
gæfumanneskja. Börnin hafa verið
þér til sóma og fríður flokkur niðja
fyllir þrjá tugi. Þú varst fögur og
glæsileg svo af bar, og ég get gert
orð skáldsins að mínurn: Enn ertu
fögur sem forðum. Öll erum við
stolt af þér. Nú streyma til þín árn-
aðaróskir og hlýjar hugsanir víðs
vegar að úr veröldinni. Konan mín
og við systkinabörn þín þökkum
alla þína alúð -á liðnum árum og
megi ævikvöldið reynast þér milt
og ljúft.
Rögnvaldur Þorláksson
FJADÐADTI6RAJN
Bæjarhrauni 20, Hafnarfirði
Full búð af
fallegum jólafatnaði
Verið velkomin
i
i
I
i
' á Miðstöð. Landsíminn var þá í
Pósthússtræti, þar sem síðar var
lögreglustöðin, og þar var í vissum
skilningi slagæð þjóðfélagsins. Hún
var ein af stelpunum á Stöðinni“,
en þær gegndu bókstaflega lykil-
hlutverki í bæjarlífinu, því að allir,
sem vildu ná símsambandi við aðra,
urðu að biðja símadömurnar á Stöð-
inni um að gefa sér það. Og menn
voru misjafnlega þolinmóðir þá eins
og nú, en símadömurnar urðu alltaf
að vera kurteisar og vingjarnlegar,
hvernig sem símnotandinn lét. Þetta
var fyrir tíma sjálfvirkninnar, og
þá gátu menn skeytt skapi sínu á
stelpunum á Stöðinni, þegar illa
gekk að ná sambandi. Það batnar
ekki allt með tækniframförum. En
símastúlkunum hefur öllum borið
saman um það, að andrúmsloftið
hafí verið létt og gott á þessum
vinnustað og samheld'nin mikil. Það
var viðburður, ef einhver hætti þar,
nema ef hún gifti sig. En þá þótti
það ekki viðeigandi, að giftar konur
ynnu úti.
Og Karólína hætti þar heldur
ekki fyrr en hún gifti sig, 1924.
Sumarliði, bróðir hennar, sem ílent-
ist í Vesturheimi, réð óafvitandi
nokkru um það, _að leiðir systur
hans og Ásgeirs Ásgeirssonar frá
Fróðá lágu saman. Snemma áþriðja
áratugnum fór tengdamóðir hans,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Hún-
vetningur að ætt, í heimsókn til
íslands og hafði mikinn áhuga á
að kynnast ættfólki tengdasonar
síns, sem hún hafði mikið dálæti
á. En Ingibjörg var móðursystir
Ásgeirs, sem þá var fulltrúi á Vega-
málaskrifstofunni og hún naut að-
stoðar hans við að komast í sam-
band við móður og systkini Sumar-
liða. Og honum leizt líka alveg ljóm-
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, áð minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Róðgátan
eftir Susan Cooper
Þrír krakkar eru í
sumarleyfi í Comwall á
Englandi, á heimaslóðum
þjóðsögunnar um Artúr
konung og riddara
hringborðsins. Þau finna
ævafomt landakort, sem
leiðir þau á slóð þess
sama Artúrs konungs.
Hann reynist vera
raunverulegri persóna en
haldið var. Spennandi
ævintýrabók. Við segjum
í garnni að hún sé fyrir
ungt fólk frá tíu ára til
tfræðs.
Hundalif
eftir Guðrúnu Petersen
Markmið bókarinnar er að
vera handbók
hundaeigenda og
hundavina og miðla þeim
skemmtun og fróðleik um
þessi heillandi dýr. Við
höfum ástæðu til að ætla
að þessi bók verði biblía"
hundaeigenda á íslandi um
langa framtíð, svo víðfem
er hún.
Réttarhald
reiðinnar
eftir J.A. Jancc
Gæða spennusaga.
J. A. Jance hefur oft
verið líkt við Hammett
eða aðra karla, sem
semja safaríka
töffarareifara. Þar er
hún þeim svo sannarlega
enginn eftirbátur, en
bætir við næmni og
innsæi. Nú í fyrsta sinn á
íslensku
Hin hlið íslands
eftir Ara Trausta Guðmundsson og
Hrein Magnússon
Listræn og fögur bók. Höfuðáhersla er
lögð á Ijósmyndir af afskektum stöðum
og þeim fylgir stuttur, ljóðrænn texti á
íslensku, ensku og þýsku.
Hreinn Magnússon er verslunarstjóri í
Ljósmyndavöruverslun Hans Petersen,
Austurveri, Reykjavík.
Ari Trausti Guðmundsson er
jarðfræðingur. Hálendi íslands og
fjallamennska er höfuðáhugamál þeirra
beggja.
LÍF OG SAGA
GÓÐAR BÆKUR
Honmbal Valdimarsson
og samtíð hans eftir Þór Indriðason
Vönduð bók um einn þekktasta og jafnframt einn umdeildasta
stjómmálamann aldarinnar. Úr texta á bókarkápu: Ásmundur
Stefánsson: „Saga Hannibals er samofin sögu
verkalýðshreyfingar..." Benedikt Gröndal: „Svipmikill leiðtogi,
sem alltaf gustaði um." Matthías Bjamason: „Hann var
hressilegur, vígfimur og oft ósvífinn í málflutningi." Svavar
Gestsson: „Hannibal á spor í þjóðarsögunni, sem þarf að muna
og þekkja."
A rero um nrmgvegiitn
eftir Ara Trausla Guðmundsson
Sneisafull bók af litmyndum, teikningum og fróðleik, þar
sem sagt er á lifandi hátt frá athyglisverðum stöðum, sem
ber fyrir augu ferðalangs á ferð um hringveginn; í huganum
heima eða í bílnum. Farið er suður um land, um
sunnanverða Austfiröi, Norðurland, Vesturland og endað í
Elliðaárdal. Góð bók fyrir þá, er unna íslenskri náttúra, sögu
og ferðalögum.