Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 14. DESEMBER 1990
59
Minning:
Guðniimdur Halldórs-
son bifreiðastjóri
Fæddur 24. desember 1926
Dáinn 6. desember 1990
í dag kveðjum við hinstu kveðju
bróður okkar, Guðmund Halldórs-
son, bifreiðastjóra í Reykjavík.
Hann var fæddur að Kanastöð-
umí Austur-Landeyjum og var
næstelstur fimm barna foreldra
okkar, Guðríðar Jonsdóttur frá Eyr-
arbakka, d. 3. maí 1981, og Hall-
dórs Jonssonar frá Ey í Vestur-
Landeyjum, sem lifir son sinn og
er nú tæpra 95 ára.
Guðmundur eða Bóbó, eins og
hann var jafnan kallaður, var til-
finningaríkur, hafði létta lund og
átti gott með að umgangast fólk,
en var dulur um eigin hagi og flíkaði
lítt tilfínningum sínum.
Hann var kvæntur Halldóru
Valdemarsdóttur, ljósmóður frá
Raufarhöfn, en hún lést í júní 1983,
aðeins 53 ára að aldri. Þau hjónin
byggðu sér hús í Langagerði 6 í
Reykjavík og bjuggu þar lengst af,
— eða þar til Halldóra lést. Þau
eignuðust sex börn og eiga nú orð-
ið stóran hóp afkomenda.
Bóbó starfaði lengst af við bif-
reiðaakstur og byrjaði ungur að
vinna hjá BSR og var þar nú síðustu
árin. Einnig ók hann um áraraðir
hjá SVR og söng lengi með karla-
kór þeirra. Þau hjónin voru mjög
söngelsk og gott söngfólk og nutu
utanlandsferða með kór S.V.R.
Eignuðust þau marga góða vini á
þeim ferðum.
Öll geymum við með okkur dýr-
mætar minningar allt frá barnæsku
og varðveitum þær, þakkiát fyrir
samfylgd góðs bróður og vinar.
Hann heilsaði lífinu á aðfangadag
jóla, og nú, ,er sú mikla ljóssins
hátíð fer í hönd, kveður hann sáttur
við Guð og menn.
Ó, virstu, góði Guð, þann frið,
sem gleðin heims ei jafnast við,
í allra sálir senda,
og loks á himni lát oss fá
að lifa jólagleði þá,
sem tekur aldrei enda.
(Þýð. H. Hálfd.)
Guð blessi minningu góðs drengs.
Systkinin
«Fjallhress í hlýrri
) og þægilegri
angóruull
o
Nærfatnaður úr 100% angóruull heldur á
þér hita í köldum vetrarferðum. Angóruull
gefur meiri einangrun en aðrar ullartegundir
en þrátt fyrir það andar húðin óhindrað
í gegnum angóruullina. Angóruullin
hrindir vel frá sér vatni, hún er
fínni og léttari en aðrar ullar-
tegundir og orsakar ekki kláða
eða óþægindi.
Það jafnast ekkert á við nær-
fatnað úr 100%
angóruull þegar farið er
til fjalla í kalsaveðri.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍKi GARÐABÆR: HEIJJSSANDUR: BLÖNDUÓS: SEYÐISFJ ÖRÐUR:
Apótek Austurbœjar Apótek Garðabœjar Virkið Apótek Blönduóss Versl. E.J. Waage
Alafossbúðin HAFNARFJÖRÐUR: BÚÐARDALUR: SAUÐÁRKRÓKUR: NESKAUPSTAÐUR:
Árbœjarapótek Apótek Norðurbœjar Dalakjör Skagfirðingabúð 5. Ú. N.
Borgarapótek Hafnarfjarðaraptótek PATREKSFJÖRÐUR: VARMAHUÐ: EGILSSTAÐIR:
Breiðboltsapótek KEFLAVÍK: Versl. Ara Jónssonar Kf. Skagfirðinga Kf. Héraðsbúa
Ellingsen Samkaup TÁLKNAFJÖRÐUR: SIGLUFJÖRÐUR: ESKIFJÖRÐUR:
Garðsapótek KEFLAVÍKURFLUG- Bjamabúð Versl. Sig. Fanndal Sportv. Hákons Sójúss.
Háaleitisapótek VÖLLUR: BHDUDALUR: ÓLAFSFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Holtsapótek tslenskur markaður Versl. Edinborg Valberg Kf. Fáskrúðsfjarðar
Ingólfsapótek MOSFELLSRÆR: FLATEYRI: DAI.VIK: STÖÐVARFJÓRÐUR:
Laugavegsapótek Mosfellsapótek Brauðgerðin Dalvíkurapótek Kf Stöðvarfjarðar
Lyfjabúðin Iðunn Verslunin Fell ÞINGEYRI: Versl. Kotra BREIÐDALSVÍK:
Rammagerðin Verksmiðjuútsala Álafoss KauþJ. Dýrfirðinga AKUREYRI: Kf. Stöðvarjjarðar
Reykjavíkurapótek AKRANES: SÚGANDAFJÖRÐUR: Versl. París HÖFN:.
Skátabúðin Bjarg Suðurver Eyfjörð Kf. A-Skajlfellinga
Sportval Sjúkrahúsbúðin BOLUNGARVÍK: HUSAVÍK: VESTMANNAEYJAR:
Ull oggjafavörur BORGARNES: Einar Guðfinnsson Bókav. Þórarins St. Apótek Vestm.eyja
Útilíf Kf. Borgfirðínga fSAFJÖRÐUR: REYKJAHIÍÐ: Sandfell
Veiðihúsið OLAFSVÍK Sporthlaðan Verslunin Sel HELLA:
SELTJAHNARNES: Sölusk. Einars Kr. HÓLMAVÍK: RAUFARHÖFN: Rangárapótek
Sportlíf STYKKISHÓLMUR: Kf. Steingrímsfjarðar Snarlið SELFOSS:
KÓPAVOGUR: Hólmkjör HVAMMSTANGI: VOPNAFJÖRÐUR: Vöruhús K.Á.
Kópavogsapótek GRUNDARFJÖRÐUR: Vöruh. Hvammst. Kaupf. Vopnafjarðar HVERAGERÐI:
Hvönn Ölfusapótek