Morgunblaðið - 14.12.1990, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 14.12.1990, Qupperneq 64
Ö68Í H3HM3830 .11 -HUDÁQUTBO'i QlQÁlHMUOflOR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 Guðrún Olafs- dóttir - Minning Fædd 25. maí 1895 Dáin 5. desember 1990 Þeim fækkar nú óðum sem fædd- ust fyrir síðustu aldamót, og fyrr en varir man enginn okkar á meðal eftir sér fyrir þá tæknibyltingu, sem breytti íslenzku þjóðféiagi úr kyrr- stæðu miðaldasamfélagi í tækni- vætt undir, sem þreytir án afláts kapphlaupið um lífsgæðin — eða dansinn kringum gullkálfinn. Sjálfsagt eru þetta ekki mjög tímabærar hugleiðingar, en þær eru meðal þess sem mér flýgur í hug, þegar ég munda pennann til þess að festa á blað hinztu kveðjur til aldraðrar frændkonu, sem ég hef þekkt eins lengi og ég man eftir mér. Guðrún Ólafsdóttir fæddist á Brekkum í Hvolhreppi. Tveggja ára gömul fluttist hún með foreldrum sínum, Ingibjörgu Guðmundsdóttur frá Brekkum og Ólafi Sigurðssyni frá Torfastöðum í Fljótshlíð, að Kirkjulandi í Austur-Landeyjum. Þar ólst hún upp í hópi sex systk- ina, sem upp komust. Ung að árum hélt Guðrún til Vestmannaeyja í atvinnuleit að dæmi margra sunnlenzkra ung- menna í þá daga. Þar kynntist hún mannsefni sínu, Lárusi Einarssyni úr Reykjavík. Þau giftust 1919, settust að í Reykjavík og þar átti Guðrún síðan heima til æviloka. Lárus var lengst verkstjóri hjá Eimskipafélagi íslands. Hann féll frá á besta aldri 15. apríl 1939, en fæddur var hann 6. nóv. 1893. Þau hjónin höfðu þá nokkrum árum áður reist sér hús við Hringbraut, nú nr. 102. Reyndi nú mjög á þol- gæði og þrek Guðrúnar að halda þessari eign, þegar bóndans og fyr- irvinriunnar missti svo skjótlega við. En hún reyndist vandanum vaxin, auk þess sem batnaði í árh um atvinnu og tekjuöflunarleiðir eftir harðræði kreppuáranna al- ræmdu. Einkabarn þeirra Guðrúnar og Lárusars er Óskar Arnar, bifreiða- stjóri. Hann er kvæntur Þórhöllu Guðnadóttur úr Landeyjum. Börn þeirra eru Lárus Ymis, kvikmynda- leikstjóri og Helga Guðrún, mynd- listarnemi. Barnabarnabörnin eru orðin tvö. Með þessum fáu orðum ætla ég að lýsa sér í stórum dráttum ytra borðinu á lífshlaupi þessarar íslensku alþýðukonu, sem alla ævi neytti krafta sinna í þágu bús og barna, í hinu svokallaða brauð- striti. En bak við annir hinna virku daga Iifði þó áhugi á að blanda gerði við aðra og vinna með þeim að hugðarmálum, sem ekki voru beinlínis tengd lífsbaráttunni. Árum saman var Guðrún virk í störfum Thorvaldsensfélagsins og góð- templarareglunni. Fram á áttræðisaldur vann Guð- rún við hreingerningar í skipum Eimskipafélagsins og enn lengur prjónaði' hún vettlinga og aðrar flíkur, sem hún síðan seldi eða gaf. í húsinu sínu við Hringbraut bjó hún þangað til í ágústmánuði sl. og þar varð hún 95 ára í vor. En síðustu mánuðina hafði hún aðeins fært sig um set, og hún dó á Elli- heimilinu Grund hér í bæ 5. desemb- er í ár. t Ástkær dóttir mín og systir okkar, HRÖNN JÓNSDÓTTIR, lést 10. desember í Svíþjóð. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Kristjónsson og systkini hinnar látnu. t INGIMAR SIGURÐSSON garðyrkjubóndi, Fagrahvammi, Hveragerði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum 5. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Börnin. t Systir okkar, fóstursystir og stjúpmóðir, ELÍN S. SÖLVADÓTTIR, Mávahiið 10, Reykjavík, andaðist á Borgarspítalanum 7. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. ingibjörg Sölvadóttir, Jón Sölvason, Sæunn Guðmundsdóttir, Hörður Hjartarson og aðrir vandamenn. t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför sonar okkar, bróður og mágs, GUÐLAUGS H. EINARSSONAR, Húnabraut 30, Blönduósi. Einnig færum við okkar dýpstu þakkir og virðingu starfsfólki á deild A-7, Borgarspítalanum, fyrir einstaka hjúkrun og umönnun í langri sjúkralegu hans. Einar Guðlaugsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Skarphéðinn H. Einarsson, Jón Karl Einarsson, Ágústa Helgadóttir, Kári H. Einarsson, Ingunn Þorláksdóttir, Magdalena Rakel Einarsdóttir. Fyrir hugskotssjónum mínum stendur þessi frænka mín sem bjart- leit, hraust og tápmikil kona, glöð og reif á góðri stund, en gat líka verið æði þungbúin, þegar svo bar undir. Hún var höfðingi heim að sækja, mikill vinur vina sinna, og reisn sinni hélt hún til síðustu stundar. Bergsteinn Jónsson Minningin um ömmu mína nær aftur til frumbernsku ára minna. Tilvist hennar var svo sjálfsögð að þegar ég reyni að riija upp eitthvað sérstakt, lendi ég í hálfgerðum vandræðum. Amma mín átti heima í stóru húsi þar sem mér fannst gaman að koma þegar ég var barn. Þetta var hálfgert ævintýrahús þar sem úði og grúði af hinu ýmsasta dóti: hannyrðum (amma mín var mikil hannyrðakona), myndum, óskiljanlegum eldhúsáhöldum o.fl. o.fl. Hún amma mín pijónaði falleg- ustu vettlinga sem ég hef séð og sá allri íjölskyldunni fyrir bæði vettiingum og vetrarsokkum, nýr forði birtist á hveijum vetri, óform- lega, sem og í jólagjafir. Amma mín var örlát köna og fengum við barnabörnin og barna- barnabörnin þegar þau komu, sér- staklega að njóta þess. Ein fyrsta setningin sem ég lærði að mynda var: Amma gemmér nammi og brást það ekki að amma lumaði á nammi í poka. í ömmuhúsi var mikið af spenn- andi skápum með dósum og boxum af öllum stærðum, gerðum og litum, með ýmsu innihaldi, spennandi sæl- gæti, smákökum, dúkum, servett- um og jafnvel jólaskrauti. Hafði ég ótrúlegt frelsi til að grandskoða það sem ég komst yfir, ég held ég hafí komist yfír mesta lagi helminginn. Minningin um ömmu mína tengj- ast sem sagt aðallega æskuárunum og þá er hún drottningin í ævintýra- húsinu sem gaf nammi, dúkkur og vettlinga. Þannig var hún í augum barnsins og þannig vil ég muna hana. Eg þakka ömmu minni fyrir öll árin sem hún var með okkur hér. Megi hún hvíla í friði. Helga Guðrún Oskarsdóttir Ég minnist ömmu minnar sem var að deyja 95 ára gömul. Fyrir löngu man ég eftir henni sitjandi á teppi úti á bletti með andlitið upp í sólina. Ég man eftir að ég fann fugl sem hafði flogið á girðingu og þegar ég kom með hann í peysunni minni heim til ömmu var hann dáinn og við hjálpuðumst að við að jarða hann. Ég man að hún gaf mér fyrsta tvíhjólið mitt — blátt með breiðum dekkjum. t Móðir mín, ELLA K. JÓHANNESSON, Sólheimum 23, sem andaðist 7. desember, verður jarðsungin frá litlu kapellunni í Fossvogi mánudaginn 17. desember kl. 13.30. Sólveig J. Eysteinsdóttir. t Minningarathöfn um DÍÖNU ÁSMUNDSDÓTTUR, Ytri-Múla, Barðaströnd, verður í Bústaðakirkju í Reykjavik í dag, föstudaginn 14. desember kl. 10.30. Útförin verður gerð frá Haga þriðjudaginn 18. desember. Einar Sigurbrandsson og vandamenn. t Áskær bróðir okkar og vinur, KÁRI KRISTJÁNSSON frá Kárastöðum, Skagaströnd, er lést á Héraðshælinu, Blönduósi, 11. desember, verður jarð- sunginn frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 15. des- ember kl. 14.00. Systkini og aðstandendur. + Sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON (BÓBÓ), bifreiðastjóri, Hábergi 3, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Halldór Jónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Guðlaugur Nielsen, Guðmundur Guðmundsson, Guðrún Óskarsdóttir, Valdimar Guðmundsson, Þórunn Kristjánsdóttir, Dóra K. Guðmunsdóttir, Þórhallur Bjarnhéðinsson, Jón E. Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ég man hvernig hún laumaðist til að gefa mér gotterí þó hún ætti vísar skammir frá pabba fyrir vikið. Ég man eftir appelsínutertunni sem hún bakaði alltaf, sú með ljós- brúna kreminu og rifnum app- elsínuberki ofan á. Ég man eftir að ég fékk einu sinni sjö jólagjafir frá henni sömu jólin. Ég man eftir öllum þeim mikla fjölda fjölskyldumynda sem hún hafði í stofunni hjá sér þar af ellefu af mér á ýmsum aldri. Ég man eftir hvað það var erfítt að gefa henni afmælisgjafir af því að hana vanhagaði ekki um neitt. Og þegar niðurstaðan kom út úr pakkanum man ég að hægt var að sjá á henni nákvæmlega hvað henni fannst um gripinn. Ég man eftir útpijónuðu vettling- unum — þeir fínustu í bænum — sem hún gaf mér á hveiju ári og skildi svo ekki af hveiju ég var ekki eins hrifínn að fá þá eftir að ég var kominn með bítlahár. Ég man að henni þótti feitt kjöt betra en magurt. Ég man að hún átti alltaf Mack- intosh-konfekt á meðan hún vann í skipunum. Ég man að henni þótti það óprýða konur að hafa hár niður í augabrún- ir og karla að hafa skegg. Ég man þegar hún kom í heim- sókn til okkar til Svíþjóðar eld- hress, áttatíu og fímm ára gömul , og hafði mestar áhyggjur af hvern- ig við kæmum líkinu til íslands ef hún hrykki upp af á meðan á dvöl- inni stæði. Ég man að einu sinni datt okkur Höllu dóttur minni það snjallræði í hug að gefa henni sína fyrstu máltíð á fínum veitingastað í jóla- gjöf. Ég man að henni þótti gaman níræðri hvað þjónarnir stjönuðu í kringum hana. Og ég man líka hvað okkur þótti öndin ólseig sem við fengum að borða. Ég man fyrir nokkrum dögum þegar hún hélt í höndina á mér með báðum sínum, lokaði augunum og mér fannst hún væri að reyna að deyja. Ég minnist ömrriu minnar með hlýju. Lárus Ýmir Óskarsson Kveðja frá Thorvaldsensfé- laginu Guðrún Ólafsdóttir gekk til liðs við Thorvaldsensfélagið í.Reykjavík árið 1937. Fimmtíu og þriggja ára starf í sama félagi skilur eftir marg- ar minningar í hugum félags- kvenna, sérstaklega þegar minnst er félaga sem starfaði alla tíð af trúmennsku og dugnaði. Guðrún var einstaklega hlý manneskja og umtalsfróm. Alls staðar lagði hún gott til mála. Fet- aði götu lífsins af meðfæddum næmleika til að bæta og gleðja umhverfi sitt. Guðrún vann störf sín fyrir Thor- valdsensfélagið hávaðalaust en af festu í trú á sigur góðra málefna. Á seinni árum eftir að hún hætti að geta unnið í verslun félagsins kom hún með pijónavörur sínar til sölu. Það var hreinasta unun að horfa á handbragð þessarar full- orðnu konu, það vitnaði bæði um listfengi og vandvirkni. Öll viljujn við ná háum aldri en hugsum ekki út í að þá verðum við að horfa á eftir vinum og ættingjum og oft á tíðum að einangrast. I góðu félagi einangrast enginn, þar vinna saman allir aldurshópar. Yngri félagar læra af þeim eldri og umgangast þá með virðingu og þakklæti fyrir vel unnin störf, og þeir eldri eru áiram þátttakendur í starfinu þótt svo að kraftar þverri til stærri verkefna. Þannig var það með Guðrúnu, hún var alltaf lifandi af áhuga um framgang Thorvald- sensfélagsins. Krafðist einskis sjálfri sér til handa, en var þakklát vináttu félagskvenna sem hún átti óskipta til síðasta dags. Thorvald- senskonur kveðja því í dag góðan félaga og mikla heiðurskonu. Bless- uð sé minning hennar. Ingibjörg Magnúsdóttir, formaður Thorvaldsens- félagsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.