Morgunblaðið - 14.12.1990, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ •! IÞRÓTTSR -í’öá^^Sl^ÉESEMBE® 1
1980
75:
KNATTSPYRNA / HM
Þijú lið
frá Afríku
á kostnað
Evrópu
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, ákvað í gær að
fjölga liðum frá Afríku í úrslita-
keppni HM 1994. Tvær Afríku-
þjóðir hafa átt fast sæti í
úrslitakeppninni, en glæsileg
frammistaða Kamerún á Ítalíu
í sumar varð til þess að um-
rædd ákvörðun var tekin.
Kamerún varð fyrst Af ríku-
þjóða til að komast í átta liða
úrslitHM.
Þá var ákveðið að gefa þriðja
liði frá Mið- og Norður-
Ameríku tækifæri á að leika í úrsli-
takeppninni, en það kemur til með
að leika um sætið við sigurvegara
Eyjaálfuriðils. Þriðja liðið fr'
aSuður-Ameríku hafði þennan rétt
FRJALSAR
Fjögur met
Bima María Gunnarsdóttir, ÍR,
setti tvö met í stepnaflokki 12
ára og yngri á innanfélagsmóti ÍR,
sem fram fór í Baldurshaga í fyrra-
kvöld. Hún hljóp 50 metra grindahlaup
á 6,6 sekúndum og bætti metið um
tvö sekúndubrot. Þá stökk hún 9,57
m í þrístökki, sem er met í flokknum.
Vigdís Torfadóttir, HSK, stökk 9,65
m í þrístökki, sem er met í flokki
telpna 13-14 ára, og Hildur Ingvars-
dóttir, ÍR, bætti met sitt í þrístökki í
flokki 15 - 16 ára meyja, stökk 10,76
m, en fyrra metið var 10,47 m.
<*
Anton Sigurðsson, ÍR, setti per-
sónulegt met í langstökki í fiokki 15
- 16 ára sveina, stökk 6,40 m. Jórunn
Atladóttir fékk tímann 9,1 sek. í 50
m grindahlaupi telpna, og Jónas Jón-
asson, ÍR, nálgast unglingametið í
þrístökki 13 - 14 ára pilta (11,48 m),
stökk 11,39 m.
URSLIT
Körfuknattleikur:
ísland - Malta 114:64
Cardiff í Wales, Smáþjóðaleikarnir í körfu-
knattleik, fimmtudaginn 18. desember
1990.
Gangur leiksins: 12:0, 20:2, 26:4, 34:12,
45:17, 51:22, 61:26, 80:42, 90:60, 102:60,
114:64.
ísland: Magnús Matthíasson 19, Albert
Óskarsson 18, Pálmar Sigurðsson 15, Sig-
urður Ingimundarson 15, Pétur Guðmunds-
son 12, Jón Arnar Ingvarsson 10, Jóhannes
Sveinsson 9, Jón Kr. Gíslason 6, Teitur
Örlygsson 4, ívar Ásgrímsson 4, Friðrik
Ragnarsson 2.
NBA-deiIdin í körfuknattleik:
Boston Celtics - Bucks......129:111
San Antonio - Charlotte..... 92: 81
LA Clippers - Cleveland.....100: 90
Atlanta Hawks - Miami Heat..118: 93
Houston - Philadelphia......108:100
Seattle - Indiana........... 99: 90
Dallas - LA Lakers..........112: 97
Knattspyrna
UEFA-KEPPNIN:
Lissabon, Portúgal:
Sporting - Arnhem (Hollandi)....2:1
Douglas Menezes 2 (26., 67.) — .Van Arun
(78.) 40.000
BSporting vann samanlagt 4:1.
VINÁTTULANDSLEIKUR:
Los Angeles, Bandaríkin:
Brasilia - Mexíkó...............0:0
25.000.
síðast — Kólumbía lék gegn Israel
um sætið og sigraði.
Ósk Asíu um þijú lið var hafnað
vegna slakrar frammistöðu Suður-
Kóreu og Sameinuðu arabísku
furstadæmanna á HM í sumar.
„Heimsmeistarakeppnin er keppni
hinna bestu og þátttaka verður að
byggjast á árangri en ekki eftir
landslegu eða fjölda íbúa,“ sagði
Sepp Blatter, framkvæmdastjóri
FIFA.
Við þessa breytingu verða 12
þátttökuþjóðir frá Evrópu á HM í
Bandaríkjunum 1994, en voru 13
áður. tvær þjóðir koma frá Suður-
Ameríku, tvær eða þijár frá Mið-
og Norður-Ameríku, tvær frá Asíu,
ein eða engin frá Eyjaálfu auk
ríkjandi heimsmeistara og gest-
gjafa.
Roger Milla og samheijar í Kamerún hafa fengið enn eina rósina.
Breytingar reyndar
í Bandaríkjunum?
Alan Rothenberg, formaður
Knattspymusambands
Bandaríkjanna, sendi Alþjóða
knattspymusambandinu, FIFA,
bréf í fyrradag, þar sem hann
hvetur FIFA til að reyna nýjar
reglur, sem rætt hefur verið um
og kunni að leiða til meiri sóknar-
knattspymu og fleiri marka. Rot-
henberg bauð FIFA að gera til-
raunir í þessa vem í knattspyrnu-
mótum í Bandaríkjunum.
Færri mörk vom gerð á HM í
sumar en áður og í framhaldi
ákvað FIFA að kanna leiðir til að
bæta um betur. „Á þessu stigi
emm við ekki talsmenn ákveðinna
breytinga,“ segir í bréfi formanns-
ins til FIFA, „en við mælumst til
að ýmsar tillögur verði reyndar
eins og stærri mörk, bann við
varnarvegg í aukaspymum,
breytingar á rangstöðureglu,
bann við sendingu aftur til mar-
kvarðar og svo framvegis til að
fá úr því skorið hvort þær verði
til þess að mörkum ijölgi.“
I bréfinu segir ennfremur að
að mikill áhugi sé í Bandaríkjun-
um að reyna ýmsar breytingar,
sem geti orðið knattspyrnunni þar
til framdráttar,-en HM 1994 fer
fram í Bandaríkjunum.
Knattspyrna hefur átt vaxandi
fylgi að fagna í Bandaríkjunum
og eru þátttakendur fleiri en 15
milljónir. Hins vegar hefur verið
erfitt að viðhalda áhuganum, þeg-
ar ofar dregur og komið út í at-
vinnumennsku, og er almennt
sagt að fá mörk séu helsta hindr-
unin.
Starfshópi komið á
Stjóm FIFA ákvað í gær að
koma starfshópi á laggirnar, sem
á að kanna hvernig bæta má
knattspyrnuna. Sepp Blatter,
framkvæmdastjóri FIFA, neitaði
að ræða um hvaða breytingar
ætti að skoða sérstaklega og gaf
ekkert út á fyrri yfirlýsingar þess
efnis að til greina kæmi að stækka
mörkin eða fækka leikmönnum í
10, en sagði að unnið yrði að því
að gera leikinn meira spennandi
og áhugaverðari.
„Við verðum að einbeita okkur
að sóknarleiknum, því knatt-
spyma snýst um að koma boltan-
um í netið,“ sagði hann. Starfs-
hópurinn kemur saman í febrúar
á næsta ári.
KORFUBOLTI / LANDSLEIKUR
Yfirburðasigur
Islenska landsliðið vann yfír-
burðasigur, 114:64, gegn Möltu
á Evrópuleikum smáþjóða í Wales
í gærkvöldi. Þetta er einn stærsti
sigur íslands í körfuknattleik.
„Liðið mætti einbeitt til leiks og
spilaði sem liðsheild megnið af
leiknum,“ sagði Torfí Magnússon,
þjálfari. „Vömin var spiluð eins og
fyrir var lagt. Munurinn á þessum
leik og leiknum gegn Kýpur var að
nú var enginn taugaóstyrkleiki til
staðar. Sóknarkerfín gengu mjög
vel upp og við fengum auðveld skot.
En hraðupphlaupin voru aðal liðsins
ásamt sterkum varnarleik.“
íslenska liðið hóf leikinn af mikl-
um krafti og náði yfírburðastöðu
strax í byijun. „Þetta var hættulega
lítil mótspyi’na, en baráttan í vörn-
inni setti mótheijana út af laginu,“
sagði Pálmar Sigurðsson, sem sýndi
gamla takta.
Pétur Guðmundsson var mjög
sterkur á þessum tíma og hirti vel
flest varnarfráköst. „Helsta breyt-
ingin frá fyrsta leik var varnarleik-
urinn og einnig var hittnin betri.
Þetta fylgist að — um leið og varn-
arleikurinn verður betri tekur sókn-
in við sér,“ sagði Teitur Örlygsson.
Maður þessa leiks var að öðrum
ólöstuðum Albert Óskarsson.
Magnús Matthíasson átti einnig
góðan leik, var sterkur í vöm og
sókn.
ísland leikur gegn Wales í dag
og Jón Kr. Gíslason, fyrirliði, er
öruggur um sigur og þar með fyrsta
sætið í riðlinum. „Við byrjuðum
mjög vel og þegar við höfðum náð
góðu forskoti varð leikur liðsins
afslappaðri. Við náðum upp góðu
tempói og þeir gáfust upp í hálf-
leik. Þetta lið vann Wales og sam-
kvæmt því eigum við að ná efsta
sæti riðilsins.“
Ikvöld
HANDKNATTLEIKUR: Einn leikur
verður í 1. deild karla í handknattleik
í kvöld. Fram og KA leika í Laugardals-
höll og hefst viðureignin klukkan 20.
Leik ÍBV og ÍR var enn frestað í gær-
kvöldi vegna þess að ekki var flogið
til Eyja og fer sennilega ekki fram
fyrr en á næsta ári.
Þrír leikir verða í 2. deild karla. Þór
og ÍBK leika á Akureyri kl. 20:30,
UMFN og ÍS í Njarðvík kl. 20 og
UMPA og Ármann í Mosfellsbæ kl. 20.
FOLK
■ KRISTJÁN Arason getur ekki
leikið með landsliðinu á fjögurra
þjóða móti í Laugardalshöllinni
fyrir áramót, en aftur á móti leikur
hann einn leik gegn Svíum, 27.
desember, eða daginn áður en mótið
hefst.
H KRISTJÁN þarf að leika með
Teka í móti í Þýskalandi á sama
tíma.
I SIGURÐUR Sveinsson úr KR
er kominn í landsliðshópinn. Hann
mun fara með landsliðinu til Þýska-
lands í stað Valdiinars Grímsson-
ar, sem getur ekki ekki leikið.
■ LEIKIRNIR í Þýskalandi fara
fram í Liibeck 21. desember og í
Schwerin 22. desember.
H ÓVÍST er hvort að Júlíus Jón-
asson geti tekið þátt í landsleikjun-
um sem framundan eru, en hann
er að leika í Frakklandi.
■ SVÍAR koma með alla sína
sterkustu leikmenn til íslands
nema hvað Mats Olsson, markvörð-
ur kemur ekki - hann er að leika
með Teka á sama tíma.
■ EINAR Örn Stefánsson tekur
við framkvæmdastjórastarfi HSÍ
um helgina. Einar Örn mun sjá
um daglegan rekstur sambandsins,
erlend samskipti og þjónustu við
starfsnefndir og aðildafélög sam-
bandsins. Á verksviði hans eru m.a.
fjáröflunarverkefni og umsjón með
fjármálum í samvinnu við gjaldkera
stjórnar HSI, samstarfssamingar
við stuðningsfyrirtæki sambands-
ins, skipulagningu landsleikja og
þátttaka í undirbúningi og skipu-
lagningu heimsmeistarakeppninnar
á Islandi 1995.
Einar Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ.
■ KVENNALANDSLIÐ fra
Portúgal og Spáni koma hingað
til lands í næsu viku og taka þátt
í móti með unglingalandsliði ís-
lands og a-landsliði. Mótið fer fram
í Reykjavík og Keflavík.
H GÚSTAF Björnsson þjálfar
kvennalandsliðið. 35 stúlkur æfa
nú undir hans stjórn. Undirbúning-
ur fyrir C-keppni á Italíu 1991 er
hafinn og eru stúlkurnar í landslið-
inu tilbúnar til að æfa átta til tíu
sinnum í viku næsta sumar.
■ KORNELÍUS Sigmundsson,
forsetaritari, datt í lukkupottinn.
Hann vann tvær millj. kr. í happ-
drætti HSÍ. „Við erum mjög án-
ægðir með að vinningurinn gekk
út,“ sagði Jón H. Magnússon,
formaður HSÍ.
Morgunblaðii/Þoricell
Kornelíus Sigmundsson með vinningsmiðann. Jóni H. Magnússon, form-
anni HSI, óskar honum til hamingju.