Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 Seinnabindið erkomiðút MYLLU KOBBI, forlag Skemmuvegur6L, 200Kópavogur SÍMI: 91-7 47 99 0 a Electrolux % Constructor KERFISEM VEX MEÐ ÞÉR! Stærð: H210 B30 L100 ★ í bílskúrinn. ★ í geymsluna. ★ Á vinnustaðinn. ★ Á lagerinn. 0 náust Borgartúni 26, sími 62 22 62. / ...hjá okkurf GAMLA KOMPANÍIÐ'4«s KRISTJÁN SIGGEIRSSON Hesthálsi 2 - 4 mo Reykjavík. Simi 91-672110 Tvær stefnur eftir Halldór Kristjánsson Morgunblaðið birti 5. desember grein eftir Guðmund Örn Ingólfs- son, sem það kallar fulltrúa og seg- ir að hann hafi lengi starfað að áfengis- og vímuefnamálum. Höfundur virðist í besta lagi ánægður með sjálfan sig og sparar lítt ónot við aðra. Hann talar um „svokallaða bindindismenn", menn sem „lykti af ofstæki eða heims- frelsunarkomplexum". Þar virðist hann skipa sér í sveit þerira sem tala með óvirðingu um þá sem vilja bæta heiminn. Hér vil ég strax minna á að auð- vitað er það skylda hvers heiðarlegs manns að stefna að því að bæta heiminn og tilveruna. Hér er Guð- mundur þessi að ónotast við margs- konar jákvæð samtök svo sem kirkj- una, Rauða krossinn og Krabba- meinsfélagið svo að dæmi séu nefnd um hreyfingar haldnar „heimsfrels- unarkomplexum". Guðmundur Örn segir að SÁÁ viti allt sem vita þarf í sambandi við vímuefni og telur starfsmenn þar standa miklu framar „sjálfskip- uðum bindindismönnum". Þar væri ástæða til að spyija hvort frömuðir SÁÁ hafí ekki verið ,,sjálfskipaðir“ í fyrstu og séu það raunar enn. dlTTFm STERKA RYKSUGAN /ponix HATÚNI 6A SÍMI (91)24420 En snúum nú að kjarna málsins. Hér er um tvær stefnur að ræða. Lítum á þær. Lífsstefna verður helstefna Guðmundur Örn segir að tala beri til þeirra sem „heyra þyrftu, þ.e. áhættuhópa". Hér verður að minna á það að hann gerir ekki grein fyrir því hveijir séu í áhættu- hópi. Það erum við nefnilega öll. I fyrsta lagi kunna vísindamenn enn sem komið er ekki að segja fyrir um það hveijir verði háðir áfengi þegar þeir venjast því. Mér hefur skilist að samheijar Guð- mundar Arnar líti svo á að það verði að koma í ljós við neysluna og mikilsvert sé að finna sem fyrst hveijir séu fæddir alkóhólistar. Þá fyrst vita þeir hverjir séu í áhættu- hóp. Hér kemur líka að þeirri höfuð- villu að áfengisvandinn sé eingöngu bundinn við áfengissjúklinga. Áfengisneyslan er vandamál. Þeir voru ekki allir alkóhólistar sem nú liggja lamaðir vegna ökuslysa. Meira að segja voru sumir þeirra ódrukknir þegar á þá var ekið. Þeir voru í áhættuhóp vegna áfengis- neyslu enda þótt þeir neyttu ekki áfengis sjálfir. Guðmundur Örn virðist vita að í áhættuhópnum séu aðstandendur ofdrykkjumanna. Hvernig á að sjá hverir þann flokk fylla? Hver veit hveijir verða ástvinir þeirra sem illa fara vegna áfengisneyslu? Guðmundur Örn ætti að hafa vit á að sjá og játa að við erum öll í áhættuhóp gagnvart áfenginu. Eða hver er sá að ekki hafi þjáðst vegna áfengisógæfu einhverra? Sú stefna að allir venjist áfengi verður öðrum þræði helstefna. Hóp- ar manna lenda í óhöppum og slys- um. Nokkrir verða háðir áfengi og sumum þeirra verður ekki bjargað þrátt fyrir allt sem SÁÁ gerir. Onnur lífsstefna Við bindindismenn höfum aðra lífsstefnu. Við viljum að sem fæstir venjist áfengi. Við vitum að allir sigrar í heilbrigðismálum byggjast á sóttvörnum, að veija menn smiti. Guðmundur Örn talar um áhrifa- leysi bindindismanna sem komi í Halldór Kristjánsson „Menn verða að skilja að áfengisneyslan er þjóðfélagsleg ógæfa og vandinn er engan veg- inn einskorðaður við takmarkaðan hóp af- brigðilegra einstakl- inga.“ skóla einu sinni á ári. Eitthvað höf- um við heyrt um það að SÁÁ hafi sent menn í skóla og vitum ekki til að það hafi áorkað miklu um minni drykkju unglinga. Hér er við ramm- an reip að draga. Félagsskapur góðtemplara hefur haft forustu í bindindismálum hér á landi. Sá félagsskapur varð til um miðja síðustu öld þegar menn höfðu reynt hófsemdarfélög um stund og sömuleiðis bindindi á sterka drykki. Templarar vissu strax og kunnu það sem mestu máli skiptir í þessu starfi. Þeir treysta á bræðralagið. Fé- lagsskapur þeirra var fóstbræðra- lag. Þar studdi hve'r annan. Þar var hver annars vinur. I öðru lagi báðu menn saman. Menn geta þrætt fyrir það að unnt sé að ná til nokkurra afla sem ekki sjást. Þau séu engin til. En hinu verður þó ekki neitað að sameigin- legri bæn af hita og alvöru fylgir sefjun sem orka fylgir. Eg veit ekki betur en samtök AA-manna byggi á þessum gamlu grunni templara, -bræðralagi, and- legri samstillingu,^ bæn. Og ég hélt að SÁÁ teldi sig starfa á svipuðum grundvelli og AA. Hér er því byggt á grundvelli sem lagður var fyrir löngu. Menn tala um að ofdrykkjumenn sem komi til meðferðar séu nei- kvæðir í hugsun og tilfinningu og því þurfi að byggja þá upp og gera þá jákvæða. Hver ráð skyldu duga til þess fremur en bræðralag, vin- átta og trú á lífið og framhaldið? Þar verður enn að byggja á hinum gamla grundvelli templaranna. AA-menn helga sig eingöngu því starfi að hver styðji annan svo að þeir veijist áfengi í þjóðfélagi sem gegnsýrt er af eitrinu. Þeir skipta sér ekki af löggjöf eða þjóðfélags- málum. Vilji þeir eiga þátt í slíku verður það ekki undir nafni AA. Templarar hins vegar kröfðust frá upphafi löggjafar sem væri til verndar, hamlaði gegn framboði áfengis og neyslu. Sagan vottar að á vissum tímum og vissum svæðum hefur bindindis- hreyfingin haft mikil og góð áhrif. Þau hafa verið mest þegar sá skiln- ingur varð almennur að áfengistísk- an ræður mestu um það hvort áfengisböl er meira eða minna. Menn verða að skilja að áfengis- neyslan er þjóðfélagsleg ógæfa og vandinn er engan veginn einskorð- aður við takmarkaðan hóp afbrigði- legra einstaklinga. Gloppótt þekking hjá Guðmundi Guðmundur Örn segist ekki hafa heyrt neitt um foreldrasamtökin Vímulaus æska. Hann segir orð- rétt: „Engin foreldrasamtök hef ég heyrt um í skólum sem hafi sett vímuvarnir á oddinn og engar nefndir né bindindishreyfingar sem koma fram í takt við tímann með nútímalegum aðferðum." Auðvitað má deila um hvað sé „nútímalegt". Guðmundur Örn talar um nauðsyn forvarna en varast þó að gera grein fyrir því hveijar þær skuli vera. En þrátt fyrir allt tal um „raun- hæfan, nútímalegan hátt“ skulum við vita að manneskjan er enn í dag ósköp svipuð því sem hún hefur alltaf verið. Höfundur er frá Kirkjubóli. Hitar, nuddar og styður mjóhrygg og hrygg Teygjanlegl ver út prjónaðri 100% bómull. Heilsudýnan Hcilsudýna Bay Jacobsen.hefur tryggt hundruðum þúsunda manna um allan heim ánægjulegri tilveru. Æ fleiri stofnanir um heim allan nota yflrdýnuna að loknum ströngum og ftarlegum rannsókn- um. Hvarvetna sannreynast kostir hennar svo og árangur manna af notkun dýnunnar. Yfirdýnan er sett ofan á vcnjulega rúmdýnu undir lakió. Hún fæst í 70, 80 og 90 sm breiddum. Einnig fæst sérstök gerð í barnavagna og barnarúm. Dýnan hefur reynst sérlega vel fólki, sem á við bak- og vöðva- verki aó stríóa. Einnig athafnasömu fólki, sem vill hvílast vel á meóan það sefur. Ylra byröió er ' ur hvitu /00% bómuUarefni sem hleypur ekki. Bil sem tryggja loftstreymi. Gœðasvampur sem dreffir hita og þunga. Mjukar kúlur sem nudda og endurkasta hita. Fjaðurmagnaður gœðasvampur. 30 daga skilafrestur. Hcilsukoddinn er hannaður svo að hann veiti höfði og hnakka líffræðilega réttan stuðning - óháð því hvort legiö er á baki eða hlið. Innbyggt loftrásakerfi koddans tryggir þægilegt hitastig í koddanum allan ársins hring. Koddanum fylgir koddaver. I boði eru 3 gerðir. Stuttur koddi, sem hentar fiestum, langur koddi og sérlega þunnur koddi fyrir vatnsrúm. Hann hentar einnig börnum og fullorðnum, sem kjósa þunnan kodda fyrir venjuleg rúm. flaua/Assort Sundaborg 1,104 Reykjavík, sími 688085. 7 veigamestu eiginleikar heilsudýnunnar: O Lagar sig að líkamanum og dreifir þunga hans á heppilegan hátt. © Nuddarvöðvanaoglosarumspennu. © Örvar blóðrás svo að súr- og úrgangs- efni streymir óhindrað. O Endurvarpar likamshita svo komist verði hjá kulda og kælingu. © Styður mjóhrygg og hrygg. © Bætir loftstreymi vegna loftrásanna í dýnunni. © Tryggir hreyfifrelsi. ÚTSÖLUSTAÐIR: Vatnsrúm, Reykjavík, sími 688466 Bústoð, Kelfavík, 92-13377 Málningarþjónustan, Akranesi, sími 93-11799 Hátún, Sauðárkróki, sími 95-35420 Vörubær, Akureyri, sími 96-21410 Aldan, Seyðisfirði, sími 97-21319 KASK, Höfn, sími 97-81200 Reynisstaðir, Vestmannaeyjum, 98-11042 Sportbær, Selfossi, sími 98-21660 m BAY JACOBSEN ■aBMMMMMBWeS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.