Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 48
í*8 MORGUNBLAÐID. VIDSKIPriAIVPgfyij^ 18, .^Sj^BjEjR, 19.90 Fjölmiðlar Islenska útvarpsfélagið færábaukinn í FUNDI Siðanefndar um auglýsingar i fyrri viku var tekin fyrir kæra Ríkisútvarpsins á hendur útvarpsstöðvunum Bylgjunni og Stjörnunni. I kæru Ríkisútvarpsins kom fram að þeim þótti villandi samanburður á útvarpshlustun og gildi auglýsinga hjá mismunandi útvarpsrásum í kjölfar könnunar sem Gallup á íslandi gerði í byrjun nóvember. Samanburðurinn hefur birst í blaðaauglýsingum og dreifi- riti frá Bylgjunni og Stjörnunni sem unnið var af Auglýsingastof- unni Góðu fólki og taldi Ríkisútvarpið að hann byggðist á rangfærsl- um og fölsunum á niðurstöðum Gallup. Á fundi Siðanefndar lágu fyrir greinagerðir frá Góðu fólki og Islenska útvarpsfélaginu. I niðurstöðum Siðanefndarinnar var í fyrsta lagi gerð athugasemd við orðalagið „að nokkrum mínútum í hádeginu undanskildum“. í niður- stöðu nefndarinnar segir að sam- kvæmt könnun Gallup á íslandi sé hlustun á hádegisfréttir RUV sam- anlögð 28% í þær 25 mínútur sem fréttalestur stendur yfír. Orðalagið „að nokkrum mínútum í hádeginu undanskildum" sé því villandi og ámælisvert, einkum með tilliti til þess að hádegið er annar mikilvæg- asti auglýsingatími sólarhringsins. Þetta orðalag telst því brot á 4. gr. siðareglna um auglýsingar. Siðanefndin gerði einnig athuga- semdir við línurit sem sýnd eru í dreifiritinu og innihalda tölulegar upplýsingar um hlustun útvarps- stöðva. I niðurstöðunni segir að þar séu tölur um hlustun á Bylgjuna og Stjömuna lagðar saman eins og um væri að ræða samtengdar út- sendingar, en hið sama væri ekki gert hjá RUV. Þá segir að séu aug- lýsingar ekki lesnar á sama tíma á báðum stöðvum sé ekki hægt að láta mælingar á einum tímapunkti segja til um gildi eða verðmæti flutnings. Samlagning með þessum hætti sé því vísvitandi rangfærsla og fölsun og því brot á 4. gr. siða- reglna um auglýsingar auk þess sem framsetningin bijóti í bága við 5. gr. siðareglnanna. I þriðja lagi segir í úrskurði Siða- nefndar að í dreifiritinu sé brotið í bága við 2. tl. 4. gr. siðareglnanna þar sem áhersla er lögð á að rétt sé farið með tölulegar upplýsingar. Á línuriti um hlustun hjá aldurs- hópnum 15 til 75 ára er í dreifirit- inu miðað við hlustun á klukkutíma fresti. Niðurstaða Siðanefndarinnar er að með þessari aðferð é komist hjá því að sýna hámarkshlustun samkeppnisaðila. Þannig hafi hlust- un á Rás 1 í hádegisfréttatíma ver- ið sýnd sem 7% þrátt fyrir að mæl- ast 17% og hlustun Rásar 2 á sama tíma var sýnd sem 5% í stað 11% samkvæmd mælingum. Þá segir að 4. og 5. grein siðareglna hafi verið brotnar þar sem í línuritinu hafi lóðréttur ás verið hafður það stutt- ur að hámarkshlustun á Rás 1 og Rás 2 hafí ekki komið fram. Auk ofangreindra kæruatriða var í niðurstöðu Siðanefndar um aug- FRESTUR AÐ RENNA ÚT TIL AÐ TRYGGJA SÉR LÆKKUN Á TEKJUSKATTI Sérstök ákvæöi skattalaga heimila þeim sem fjárfesta í hlutabréfum vissra fyrirtækja, að draga frá skattskyldum tekjum aö ákveönu hámarki kaupverð hlutabréfanna. Viö höfum í sölu hlutabréf í nokkrum traustum fyrirtækjum. Veriö velkomin í afgreiðslu okkar aö Suöurlandsbraut 18 eða aö hringja í síma 688568. Viö gefum ykkur góö ráö. uerðbrEfauiðskipti SAMUINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18 • SÍMI 688568 Skjglaskápar J Skjalaskapar Skjalaskápar H. OLAFSSON öc BERNHOFT VATNAGARÐAR 18 104 REYKJAVÍK S: 82499 lýsingar bent á að yfirskrift línurita í umræddu dreifíriti hafi gefíð til kynna að þau væru unnin af Gallup á íslandi. Þetta mun vera rangt og því brýtur framsetningin í bága við 4. gr. siðareglanna. Páll Þorsteinsson, útvarpstjóri Islenska útvarpsfélagsins, sagði að þar væru menn ósáttir við þennan úrskurð Siðanefndar. Stjórn félags- ins hafði ekki komið saman til form- legs fundar og því taldi Páll ekki tímabært að láta hafa nokkuð eftir Ijölmiðlum. ser TOYOTA — Nýlega náði Toyota umboðið á íslandi þeim áfanga að selja fímmtán hundraðasta bílinn á árinu. Ingibjörg H. Helgadóttir og Sigurður Benediktsson keyptu bílinn. Á myndinni sést sölumaður- inn Tryggvi Gunnarsson afhenda þeim blóm og gjafir af því tilefni. Stefnumótun Stefnumótunarverkefni Hag- vangs og samstarfsaðila lokið HAGVANGUR hf., Price Water- house og Iðnlánasjóður hafa ný- lokið samstarfsverkefni um stefnumótun fyrir íslensk fyrir- tæki. Þátttakendur í verkefninu voru Hampiðjan hf., Héðinn hf., og Marel hf. Einnig naut DNG á Akureyri góðs af verkefninu, en Hampiðjan er stór eignaraðili að því fyrirtæki. Stefnumótunarverkefnið hófst í byijun mars síðastliðnum og tók vinnsla þess um 12 vikur. í fréttatil- kynningu frá Hagvangi kemur fram að nú sé nýlokið eftirliti með fram- kvæmd þeirra áætlana sem voru teknar í kjölfar verkefnisins. Verk- efnið hófst með sameiginlegu nám- skeiði fyrir fyrirtækin þar sem farið var yfír aðferðafræði sem síðan var fylgt. Þátttakendur á námskeiðinu voru 17. Eftir námskeiðið hófst hin eigin- lega vinna hjá fyrirtækjunum sjálf- um við skilgreiningu á núverandi stöðu og ytri og innri greiningu. Starfsmenn voru þjálfaðir í að vinna á skipulegan hátt að söfnun upplýs- inga og vinnslu þeirra. Einn mikil- vægasti þátturinn í stefnumótunar- verkefninu var gerð tímasettra framkvæmdaáætlana sem tryggja eiga nauðsynlegar framkvæmdir til þess að koma fyrirtæki úr núver- andi stöðu í þá framtíðarstöðu sem mörkuð er. I frétt frá Hagvangi segir að með aðstoð Iðnlánasjóðs og Price SENDUM UM ALLAN HEIM Blómakvedja til vina og viöskiptamanna. Bankastracti 4. Símar 25656 og 16690 K Dags. 18.12 1990 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4543 3700 0000 2678 4543 3700 0001 5415 4929 541 675 316 4548 9000 0021 2540 4548 9000 0027 9424 Kort frá Kuwait sem byrja á nr.: 4506 13** 4966 66** 4509 02** 4507 13** 4921 04** 4921 90** 4547 26** 4552 41** 4560 31** 4508 70** 4507 77** 4966 82** Afgreiðslufólk vinsamlegast takiö ofangreirid kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA Í5LAND K Waterhouse hafí tekist að byggja upp þekkingu og reynslu hér á landi sem nýst getur fleiri íslenskum fyr- irtækjum. Þjónusta Miðlun býð- ur úrklipp- urúrljós- vakamiðlum MIÐLUN hf., sem hefur um tíu ára skeið boðið úrklippuflokka úr dagblöðum, býður nú upp á nýja þjónustu, þ.e. „ljósvaka- úrklippur", sem felst í því að hægt er að kaupa handrit af frétt- um ljósvakamiðlanna. Örn Þóris- son framkvæmdastjóri Miðlunar segir þetta eðlilegt framhald af þeirri þjónustu sem fyrirtækið hefur boðið hingað til. „Samkvæmt skoðanakönnunum Gallups á íslandi, í október sl. á notkun ljósvakamiðla tvo virka daga, horfír eða hlustar u.þ.b. 60% þjóðar- ihnar á fréttir ljósvakamiðlanna," sagði Örn. „Við vinnum handrit úr aðalfréttatímum Ríkissjónvarpsins og útvarpsins, Stöðvar 2 og Bylgj- unnar og afhendast þau daginn eftir útsendingu. Með þessari þjónustu getur Miðlun veitt viðskiptavinum sínum fullkomna þjónustu úr öllum helstu fréttamiðlum þjóðarinnar." Aðspurður sagði Örn að æ fleiri fyrirtæki væru farin að nýta sér úrklippuþjónustuna. Mikið væri um að stærri fyrirtæki söfnuðu saman öllu því sem skrifað væri um þau. Bæði væri það gert til þess að halda upplýsingunum saman á aðgengileg- an hátt, en einnig til þess að geta fylgst með hvernig ímynd þeirra væri út á við. V terkur og U hagkvæmur auglýsingamiöill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.