Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 45
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 45 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Óperan, ríkið og Reykj avíkurborg "■^íkisstjórnin hefur ákveðið að tv beita sér fyrir 25 milljóna króna framlagi til Islenzku óperunn- ar til þess að tryggja rekstur hennar og ber að fagna því. Hins vegar nægja þessir fjármunir ekki og þarf a.m.k. 15 milljónir króna til viðbótar til þess að standa undir eðlilegri starfsemi. Að auki skortir óperuna fé til þess að greiða upp skuldir frá fyrri tíð. í kjölfar þessarar ákvörðun- ar ríkisstjórnarinnar hafa hafízt umræður á opinberum vettvangi, sem eru dæmigerðar fyrir umræðu- venjur of margra íslenzkra stjóm- málamanna og lýsa vel þeim músar- holusjónarmiðum, sem um of ein- kenna þetta þjóðfélag. Morgunblaðið birti hinn 12. ágúst sl. forystugrein um vandamál ís- lenzku óperunnar. í forystugrein þessari sagði m.a.: „íslenzka óperan var sett upp af miklum vanefnum og ótrúlegri bjartsýni. Listamennirn- ir, sem haldið hafa uppi starfsemi hennar, hafa unnið afrek, sem lengi verður í minnum haft. Þar er Garðar Cortes fremstur í flokki. Óperan hefur átt mikinn þátt í að efla áhuga ungs fólks á að leggja út á þessa listabraut. Nú er svo komið, að íslenzkir söngvarar vekja vaxandi athygli á alþjóðavettvangi og eru kallaðir til að syngja í fremstu óperu- húsum veraldar, þ. á m. í Scala í Mílanó, en margir telja, að lengra verði ekki komizt en að fá tækifæri til að syngja þar. En fyrst og fremst hefur íslenzka óperan auðgað menn- ingarlíf okkar íslendinga með alveg sérstökum hætti. Nú er kominn tími til að óperunni verði tryggður rekstrargrundvöllur til frambúðar með sameiginlegu átaki margra aðila. Eðlilegt er, að ríkið gangi á undan með góðu for- dæmi og mestu fjárframlagi. En íbú- ar sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu njóta ekki sízt góðs af starf- semi óperunnar. Þess vegna er eðli- legt, að Reykjavíkurborg, Kópavogs- kaupstaður, Garðabær, Hafnarfjörð- ur, Seltjamarneskaupstaður og Mos- fellsbær leggi einnig fram sinn hlut. Að auki má búast við, að fjársterk einkafyrirtæki verði nú sem fyrr reiðubúin til að leggja eitthvað af mörkum ... Með sameiginlegu átaki opinberra aðila og einkaaðila verður hægt að tryggja rekstur Islenzku óperunnar til frambúðar. Þess vegna eiga menn nú að láta hendur standa fram úr ermum til þess, að undirbún- ingur að vetrarstarfi óperunnar geti hafizt sem fyrst.“ Frá því að þessi forystugrein var skrifuð hefur það gerzt, að ríkis- stjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir ofangreindu framlagi úr ríkis- sjóði. Jafnframt hefur það komið fram í þessum umræðum, að ríkið leggur Leikfélagi Reykjavíkur til 15 milljónir króna á ári. Davíð Oddsson, borgarstjóri, hefur lýst því yfir, að Reykjavíkurbo'rg sé reiðubúin til að létta þessum útgjöldum af ríkissjóði og auka framlag sitt til Leikfélags Reykjavíkur sem þessu nemur, þannig, að ríkið geti á móti aukið framlag sitt til óperunnar um þessar sömu 15 milljónir, eins og skýrt er frá í frétt í Morgunblaðinu í dag. Hér er því um útgjaldaauka fyrir Reykjavíkurborg að ræða en ekki ríkið. Hins vegar hefur borgarstjóri sagt, að hann væri ekki tilbúinn til að greiða þetta framlag beint til óperunnar, á þeirri forsendu, að ríkinu væri ætlað lögum samkvæmt að standa undir óperustarfsemi og vísar þá til laga um Þjóðleikhúsið. Nú hefði mátt ætla, að árlegur rekstrarvandi óperunnar væri leyst- ur. Hugmynd um óbeinan stuðning borgarinnar hafði fengið góðar und- irtektir borgarstjóra og ekki ástæða til að ætla annað en málið væri leyst. Þá komu hin sérkennilegu músarholusjónarmið íslenzks samfé- lags til sögunnar! Forráðamenn Leikfélags Reykjavíkur töldu ókosti samfara því, að Leikfélagið ætti allt undir Reykjavíkurborg og hefði ekki til annarra að leita. Þar strandar málið og Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, kemur fram í sjónvarpi og lýsir því, sem hann kallar „menningarfjandsamlega af- stöðu“ borgarstjórans í Reykjavík! Þessi afstaða Leikfélags Reykjavíkur er ekki frambærileg. Reykjavíkurborg hefur afhent félag- inu til rekstrar leikhúsbyggingu, sem á núvirði kostar áreiðanlega 2-3 milljarða króna, ef ekki meir. Jafn- framt stendur Reykjavíkurborg að verulegu leyti undir föstum kostnaði við starfsemi Leikfélagsins. Þetta merka menningarfélag, sem hefur hlotið svo ótvíræðan stuðning höfuð- borgarinnar og þá ekki sízt núver- andi borgarstjóra, sem gerði það að einu fyrsta stefnumáli sínu í emb- ætti að Ijúka leikhúsbyggingunni á nokkrum árum, þarf ekki að óttast um sinn hag nema síður sé með því að allt fjárframlag opinberra aðila komi úr borgarsjóði. Á grundvelli þessarar yfirlýsingar borgarstjóra eiga fjárveitinganefnd Alþingis og fjármálaráðherra - sem lýsti því yfír í sjónvarpi í fyrrakvöld, að hann vildi styðja stefnu Morgun- blaðsins í málinu - að taka borgina á orðinu og nota þær 15 milljónir, sem ætlaðar voru Leikfélaginu til þess að auka stuðning við óperuna upp í 40 milljónir. Útgjaldaauki ríkisins er enginn, en útgjaldaauki Reykjavíkurborgar er 15 milljónir. Sá aðili, sem þá mundi borga væri Reykjavík. Jafnframt er full ástæða til að þau sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, önnur en Reykjavíkurborg, sem nefnd voru í forystugrein Morgun- blaðsins í ágústmánuði sl., leggi fram fjárframlag til þess að borga eldri skuldir óperunnar að einhveriu eða öllu leyti. Peningarnir til þess að leysa ár- legan rekstrarvanda óperunnar og tryggja starfsemi hennar eru fyrir hendi. Er ha:gt að ætlast til þess, að íslenzkir stjórnmálamenn og menningarfrömuðir rísi upp úr lág- kúrunni og afgreiði málið án frekara vafsturs? Innflutningur á bensíni frjáls frá áramótum; Yerðlagsráð fjallar um afnám sameigin- legrar verðákvörðunar olíufélaganna Óljóst hvort olíufélögin halda áfram samvinnu um innflutning INNFLUTNINGUR á bílabensíni frá 1. janúar næstkomandi var gef- inn frjáls í gær, samkvæmt ákvörðun Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð- herra. Jafnframt hefur hann sem starfandi utanríkisráðherra skipað starfshóp til þess að fjalla um greiðsluskil og fjármögnun útflutn- ings til Sovétríkjanna og annarra Austur-Evrópuríkja. Talsmenn olíu- félaganna fagna því að innflutningurinn verði frjáls og segja þetta vera fyrsta skrefið í átt til frelsis í olíuviðskiptum. Hins vegar ber þeim ekki saman um hvort áframhald verður á samstarfi félaganna við innflutninginn. Á morgun, miðvikudag, verður fjallað um bensín- verðákvörðun í verðlagsráði og segir viðskiptaráðherra að þá verði rætt að afnema sameiginlega verðjöfnun allra olíufélaganna, þannig að hvert félag fyrir sig geti þá selt- bensín á verði, sem yrði óháð verði hinna félaganna. Eftir sem áður yrði hvert félag um sig þó að selja bensín á sama verði um allt land. Vilhjálmur Jónsson for- sljóri Olíufélagsins hf. segir þetta geta leitt til verðsamkeppni félag- anna. Ástæða ákvörðunar viðskipta- ráðherra er, að samningaviðræðum við sovéska olíufélagið Sojuznefte- export um bensínkaup á árinu 1991 lauk án þess að samkomulag tæ- kist um verð. Með því er þó ekki lokið olíuviðskiptum við Sovét- menn, því að þann 20. nóvember síðastliðinn voru undirritaðir samn- ingar í Moskvu um kaup íslendinga á gasolíu og svartolíu af Sovét- mönnum. í tengslum við ákvörðun um frjálsan innflutning á bensíni ákvað Jón Sigurðsson að skipa starfshóp með fulltrúum frá utanríkis-, sjáv- arútvegs- og viðskiptaráðuneytum ásamt fulltrúum bankakerfís. Jón sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hópurinn ætti að fjalla um greiðsluskil og fjármögnun útflutn- ings til Sovétríkjanna og annarra Mið- og Austur-Evrópuríkja, sem nú eru að breyta efnahagskerfi sínu í átt til markaðsbúskapar. „Þessi hópur á að kanna hvaða leiðir séu best til þess fallnar að tryggja fjár- hagsgrundvöll viðskiptanna við þessar breyttu aðstæður. Þetta er að sjálfsögðu ákvörðun sem ég tek sem starfandi utanríkisráðherra, en ég vil að þetta verði samferða,“ sagði Jón. Fijáls verðlagning „Síðan geri ég ráð fyrir því að verðlagsráð fjalli um bensínverð- ákvarðanir í framhaldi af þessum tíðindum, væntanlega á miðviku- dag, þá geri ég ráð fyrir því að menn ræði þar þá hugmynd að bensínverðlagningin verði frjáls, þó þannig að hvert olíufélag ákveði sama verð fyrir allt land, það verði sem sagt jöfnun hver hjá sér. Að öðru leyti verða innkaupin á bensíni bara þau sem hagkvæmust gerast og það er auðvitað ekki úti- lokað að Rússar endurnýi tilboð sín,“ sagði Jón Sigurðsson. . Bensín á bíla hefur verið, eins og annað olíueldsneyti, háð sér- stökum leyfum um innflutning. Af hálfu ríkisvaldsins hefur verið sa- mið um bensínkaup af Sovétmönn- um undanfarin ár og olíufélögunum falið að annast innflutning þess, dreifingu og sölu hér á landi, í hlut- falli við markaðshlutdeild félag- anna. Verðlagsráð hefur ákveðið verð á bensíni. Þá hefur verið, og er enn, sjóðakerfi sem jafnar verð á landinu og verðsveiflur í innflutn- ingi. Um er að ræða innkaupajöfn- unarreikning, sem jafnar sveiflur í innflutningi, og flutningsjöfnunar- reikning, sem jafnar verð á milli landshluta. Sjóðir þessir og framlög í þá eru samkvæmt lögum og þarf því lagabreytingar til að leggja þá niður eða breyta hlutverki þeirra. Undantekningar frá samningum um bensínkaup af Sovétmönnum hafa verið súperbensín, sem keypt hefur verið í Vestur-Evrópu, og flugvélabensín, sömuleiðis keypt í Vestur-Evrópu. Þessar tegundir eru einnig undanþegnar verð- ákvörðun verðlagsráðs. Ánægðir með frelsið Morgunblaðið ræddi í gær við forsvarsmenn olíufélaganna um breyttar aðstæður í kjölfar ákvörð- unar viðskiptaráðherra. „Við hér hjá Skeljungi erum ósköp ánægðir með að vera búnir að fá frelsið," sagði Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs hf. í gær. „Ég lít á þetta sem fyrsta áfangann á langri leið til þess að þetta verði nú allt frjálst." Kristinn kvaðst ekki eiga von á að þessi ákvörðun ein og sér hefði í för með sér skyndilegar eða stór- ar breytingar á markaðnum hér. „Það er auðvitað ekki búið að gefa verðlagninguna fijálsa. Það er enn- þá Verðlagsstofnun sém ákveður verð á bensíni. Þessi sameiginlegu innkaup hafa gert það að verkum að þetta hefur allt verið tiltölulega einfalt. Nú fer þetta auðvitað eftir því hvernig félögin kaupa inn, við erum að meta það núna.“ Hann sagði að ekkert hefði verið ákveðið um hvort haldið verði áfram sameiginlegum innkaupum. „Ég geri ráð fyrir því hins vegar að menn muni ræða málið, sérstak- lega í ljósi þess að bæði flutningur og annað skipta verulegu máli. Það skiptir miklu máli hvort við erum að taka sex eða átta þúsund tonna skip eða 25 þúsund tonna. Þetta er vissulega mjög mikil breyting hvað það varðar. Við hjá Skeljungi erum búnir að ganga úr skugga um það, að það verða engin vand- ræði að fá bensín.“ Sj óðafyrirkomulagið hlýtur að riðlast Kristinn sagði að þessi ákvörðun viðskiptaráðherra hljóti að hafa það í för með sér að sjóðafyrirkomulag- ið muni riðlast og jafnvel afleggj- ast á einhveijum tíma. „Manni finnst að það sé eðlilegt að þegar ríkið losar um okkur í þessari stál- greip sinni, að þeir ættu þá jafnvel að halda áfram. En, ég er hins vegar á þeirri skoðun að það sé betra að vera vel undirbúinn og menn viti hvað þeir eru að gera, heldur en að hlaupa til og skilja sjálfa sig eftir einhvers staðar," sagði hann. Á óvissutímum eins og nú eru á olíumörkuðum, þegar verð sveifl- ast, jjafnvel mikið, frá degi til dags, skiptir tímasetning innkaupanna verulegu máli. Kristinn sagði inn- kaupin hafa verið í föstum skorðum áður, pantað hafí verið eitthvað ákveðið magn af bensíni í skip, verðið var ákveðið meðaltal af Rott- erdamverði útskipunardaginn og næstu tvo daga fyrir og eftir, eins og það var á hverjum tíma. „Núna er þetta allt annað, við erum komn- ir í alvöruna. Nú þurfum við að segja: Eigum við að kaupa í dag á þessu verði sem er núna, það skipt- ir höfuðmáli hvort við erum að kaupa á 240 dollara eða 440, svo- leiðis að þetta kallar á miklu nieiri athugun á markaðnum, heldur en oft hingað til. Að vísu höfum við gert þetta, því að við höfum jú keypt súperbensínið alveg frá upp- hafí og við erum að kaupa flugvéla- bensínið og hluta af gasolíunni að vestan líka, þannig að við erum í rauninni engir viðvaningar hvað þetta varðar. En, það er rétt, að þetta eykur mikilvægi þess að rétt- ar ákvarðanir séu teknar.“ Örari verðsveiflur Kristinn segir að við blasi örari sveiflur í verði, í takt við sveiflur á heimsmarkaði, einkum ef verð- lagning verður gefin fijáls. „Ég sé það fyrir mér að um leið og við erum orðnir sjálfir og einir ábyrgir fyrir verðlagningu á vörunni, þá auðvitað kallar það á að við þurfum að endurskipuleggja mjög mikið vinnuaðferðir hér. Þá geri ég ráð fyrir að við förum að fylgja heims- markaðnum miklu örar og hraðar heldur en við gerum núna. Þegar lætin bytjuðu vegna írak, þá vorum við hérna bara brosandi með ódýr- ustu olíuna í marga mánuði og tók- um við ekki við okkur fyrr en löngu seinna. Sama núna þegar verðið lækkar, þá erum við með dýrari olíu af því að hún er í raun og veru dýrari. Það er langtum eðli- legra að þetta fylgi heimsmarkaðn- um, verðið hér hækki þegar það hækkar á heimsmarkaði og öfugt.“ Skref í rétta átt Hörður Helgason framkvæmda- stjóri markaðssviðs Olís hf. sagði ákvörðun viðskiptaráðherra þýða að héðan í frá verði innkaupin í höndum félaganna, án milligöngu ráðuneytisins. Hann kvaðstekki sjá að þessi ákvörðun breyti neinu á næstunni varðandi bensínmarkað- Davíð Oddsson um rekstrarvanda Islensku óperunnar: Einhvers konar fjárkúg- un gagnvart borginni Ríkið lætur ekki óperuflutning leggj- ast af, segir Olafur Ragnar Grímsson DAYÍÐ Oddsson borgarstjóri segir að ríkisstjórnin hafi jekki rætt við borgaryfirvöld um fjárstuðning Reykjavíkurborgar til Islensku ópe- runnar og segir hann að ekki hafi verið staðið eðlilega að þessu máli af hálfu ríkisstjórnarinnar. Davíð segir að mennta- og fjármálaráð- herra sé meira í mun að koma pólitísku höggi á sig en treysta hag óperunnar. Ríkisstjórnin hefur lagt fram 25 milljóna kr. styrk til óperunnar á fjárlögum næsta árs og auk þess gefið vilyrði fyrir frek- ari stuðningi, allt að 5 millj. kr. á móti öðrum framlögum sem kynnu að berast Islensku óperunni. Islenska óperan þarf að lágmarki 35 milljónir kr. í opinbera styrki til að starfsemin geti gengið. Svavar Gestsson menntamálaráðherra sagði það rétt, að lögum samkvæmt ætti Þjóðleikhúsið að setja upp óperur en hins vegar tilheyrði Is- lenska óperan ekki Þjóðleikhúsinu. „Það hefur ekkert verið rætt um þetta við okkur utan hvað Svavar Gestsson ræddi málið við mig í 20-30 sekúndur fyrir hálfum mán- uði. Ríkisstjórnin skipaði nefnd sem starfaði á hennar vegum og lofaði að leysa þetta mál. Þeir ijúka síðan upp til handa og fóta með einhvers- konar fjárkúgun á hendur borginni sem hefur engar sérstakar skyldur í þessu efni. Það er eins og fjár- mála- og menntamálaráðherra sé það eitt í mun að koma pólitísku höggi á borgina, mig sérstaklega, en sé nokkuð sama um óperuna," sagði Davíð Oddsson. Hann sagði að borgin hefði litið svo á að þetta væri mál ríkisins. Ríkinu beri samkvæmt lögum um Þjóðleikhús að sjá fyrir óperuflutn- ingi. Hann sagði að tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu lofað að bjarga þessu máli en þeir geri það ekki með því að skjóta því til Reykjavíkurborgar. Borgarstjórinn lcvaðst fyrir löngu hafa lýst sig fylgjandi þeirri hug- mynd að ríkið drægi til baka 15 milljón kr. framlag til Leikfélags Reykjavíkur gegn því að sú upphæð rynni í staðinn til Islensku óper- unnar og borgin yki framlag sitt um samsvarandi upphæð til LR. „Þetta eru ekki stórar upphæðir, miklu minni en þær sem fjármála- ráðherra hefur verið að gefa vinum sínum í Svörtu á hvítu og hér og þar. En ég er ekki tilbúinn til að fara út í samkrullsrekstur með ríkinu, það væri eins og að skrifa upp á óútfyllta víxla,“ sagði Davíð. LR vonast eftir hækkun á ríkisstyrk Stjórn íslensku óperunnar hefur átt fund með stjórn LR fyrir at- beina Davíðs Oddssonar þar sem stjórn LR lýsti því sjónarmiði sínu að hún væri því andvíg að þiggja styrk einungis frá einum aðila í stað tveggja. Sigurður Karlsson, formaður stjórnar LR, sagði að ríkið ætti ekki að losna undan því að styrkja Leikfélagið enda væri það fest í leiklistarlögum að ríkið veiti fé á fjárlögum til LR. Ríkisframlög til Leikfélagsins á þessu ári námu 15 milljónum kr. og sagði Sigurður að LR gerði sér vonir um að hækkun yrði á ríkisframlaginu við afgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár. Styrkur borgarinnar til LR er á þessu ári 75 milljónir kr. „Við gerum okkur vonir um að ríkisstyrkurinn hækki nú og teljum líklegra að svo verði en að borgin hækki þessi framlög tæki hún við þeim af ríkinu," sagði Sigurður. Hann sagði að forsvars- menn Islensku óperunnar hefðu sýnt sjónarmiðum LR skilning. Hann kvaðst vera þeirrar skoðunar að það væri í verkahring ríkisins að styrkja óperuna og að það ætti ekki að vera skilyrði fyrir myndar- legum stuðningi ríkisins við óper- una að það hætti að styrkja Leikfé- lagið. Samvinnuverkefni Svavar Gestsson menntamála- ráðherra kvaðst vera afar óánægð- ur með afstöðu borgarinnar. „Ég teldi eðlilegt að litið væri á þetta sem samvinnuverkefni, rétt eins og Listahátíð og læikfélag Reykjavíkur sem ríki og borg hafa átt samvinnu um í mörg ár,“ sagði Svavar Gests- son. Hann sagði það rétt að lögum samkvæmt ætti Þjóðleikhúsið að setja upp óperur en hins vegar til- heyrði íslenska óperan ekki Þjóð- leikhúsinu. Hann sagði að ríkið hefði axiað sína ábyrgð ríflega með því að leggja peninga til óperunnar sérstaklega, langt umfram það sem ella hefði verið lagt til Þjóðleikhúss- ins. „Ríkisstjórninni hafa verið kynntar hugmyndir óperunnar og niðurstöður athugana embættis- manna á framtíðarskipan fjármála óperunnar og þær tillögur sem aðal- lega hafa verið til umfjöllunar er þríþætt lausn á vanda óperunnar. I fyrsta lagi aukið ríkisframlag, í öðru lagi að Reykjavíkurborg komi inn í það að auðvelda rekstur óper- unnar og í þriðja lagi að atvinnufyr- irtæki styrki einstakar sýningar óperunnar líkt og gerist erlendis. Ég hef verið fylgjandi þessari þríþættu leið. Það er hægt að setja einhveijar almennar reglur eins og borgarstjórinn gerir, til dæmis að það eigi ekki að blanda saman fjár- hag ríkis og Reykjavíkurborgar en því er nú blandað saman á fjölmörg- um sviðum,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson íjármálaráðherra. Hann sagði að það væru sér mikil vonbrigði að borgarstjórinn vildi ekki ljá máls á þessu. Hann sagði að sér skildist að stjórn óper- unnar hefði lagt fram formlegt er- indi fyrir Reykjavíkurborg í gær og óski eftir því að málið verði tekið formlega fyrir í stofnunum borgar- innar. „Við munum þá skoða það næstu daga hvort við getum fundið leið til þess að auka enn hlut ríkis- ins til bráðabirgða. Það er nauðsyn- legt að á næstu mánuðum fari fram viðræður milli óperunnar, borgar- . innar og ríkisins um þessa fram- tíðarskipan því ég trúi því ekki fyrr en fullreynt er að Reykjavíkurborg ætli að hafa þessa afstöðu til fram- búðar,“ sagði Ólafur. Hann sagði að sá galli væri á tillögu Davíðs Oddssonar um flutn- ing á framlagi ríkisins frá LR til óperunnar að Leikfélagið hefði lýst sig andvígt þeim tillögum, auk þess sem það hefði verið á fjárlögum meirihluta þessara aldar. Hann taldi þau rök borgarstjóra að það væri í verkahring ríkisins að styrkja óperuflutning hér á landi skringileg inn hér á landi. „Þetta er í raun- inni aðeins hluti af dæminu og hinn hlutinn er verðlagningin sem er í sama horfi og hún hefur alltaf ver- ið. Hins vegar er þetta skref í rétta átt.“ Hann sagði það vera í höndum ríkisvaldsins að ákveða breytingar á reglum um verðlagningu. „Það er auðvitað eðlilegt að viðskipti með olíu verði í sama horfí og við- skipti með aðrar vörur,“ sagði Hörður. „Það er auðvitað alveg ljóst að ef þessi lög um innkaupajöfnun og flutningsjöfnun frá 1986 verða felld úr gildi og verslunin með olíu- vörur gefín frjáls eins og verslun með allar aðrar vörur, þá leiðir það til þess að verðlag á olíuvörum verður mismunandi eftir stöðum og verðsamkeppni kemur sterkar inn í myndina.“ Hörður kvaðst ekki geta á þessu stigi sagt neitt um líkindi fyrir áframhaldandi samstarfi olíufélag- anna um bensínkaup, en sagðist reikna með að það haldi áfram, það væri hagkvæmara. Eðlilegt framhald Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf. sagði ákvörðun viðskiptaráðherra vera eðlilegt og sjálfsagt framhald af því sem gerst hefur. „Það hafa auðvitað verið hafðar vissar hömlur á innflutningi vegna þess að stjórnvöld hafa viljað beina kaupunum á þessum vörum frá Sovétríkjunum til þess að greiða fyrir sölu á íslenskum afurðum. Þegar svo ekki næst samkomulag þarna um einn þátt og auk þess að sölur þangað eru nú í hálfgerðu uppnámi, þá fínnst mér það auðvit- að sjálfsagður hlutur að gefa þetta fijálst og ekkert nema gott eitt um það að segja.“ Samstarfið búið Hann var spurður hvort hann byggist við áframhaldandi sam- starfí olíufélaganna um bensín- kaup. „Nei, ég býst ekki við því, ég á von á að þau verði hvert fyr- ir sig með það.“ Hann var þá spurður hvort hann ætti von á samkeppni frá einhveij- um fleiri aðilum en núverandi keppinautum. „Nei, það sé ég ekki, því að til þess að geta selt bensín hér á markaðnum þá þarf í fyrsta lagi að hafa innflutningsbirgða- stöðvar og svo þarf að byggja bensínstöðvar og það er ekki hlaup- ið að því.“ Verðsamkeppni Vilhjálmur segir að verði reglur um verðlagningu rýmkaðar, geti alltaf komið upp sú staða að olíufé- lögin fari að keppa sín í milli með verðlagningu. „Áuðvitað höfum við keypt til dæmis bensínið á heims- markaðsverði frá Sovétríkjunum hingað til og á sama hátt munum við kaupa það, það er ekki sá mun- ur hvort við kaupum af Pétri eða Páli á heimsmarkaðnum. Það getur auðvitað komið upp á mismunandi tímum með mismunandi verð. Hins vegar á þessum litla markaði hér er útilokað að það geti verið mis- munandi verð á til dæmis sömu tegund af bensíni hjá olíufélögun- um. Ef eitt félagið lækkar verðið þá er það nákvæmlega sama og hefur gerst hér í kringum okkur, þá fara hin olíufélögin í sama far- ið, eða kannski niður fyrir, og það leitar svo jafnvægis. En, að það sé mismunandi verð hjá félögunum á markaðnum, það getur aldrei orðið nerna bara augnablik,“ sagði Vil- hjálmur Jónsson. Frumvarp til breytinga á skattalögum: Persónuafsláttur hækkar í 22.831 kr. um áramót Afturvirkni á breytingum á vaxtabótum leiðrétt PERSÓNUAFSLÁTTUR í staðgreiðslu verður 22.831 kr. á mánuði fyrri liluta næsta árs og rúmlega 23.800 kr. síðari hluta ársins, sam- kvæmt frumvarpi um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Persónuafslátturinn er nú 22.114 krónur á mánuði en var 21.482 kr. að meðaltali á mán- uði yfir allt árið. Samkvæmt þessu hækka skattleysismörk úr tæpum 54 þúsundum að meðaltali á mánuði á þessu ári í 58.600 á mánuði á því næsta. Breytingar á skattalögunum mið- ast við að skattbyrði einstaklinga verði óbreytt á milli áranna 1990 og 1991, í samræmi við markmið fjárlagafrumvarpsins. Áætlað er að meðallaun á mann hækki um 8,5% því í flestum löndum í kringum okkur væri það stolt borganna að efla tónlist og óperuflutning í sínum borgum. Hann minnti jafnframt á að Islenska óperan væri ekki hluti af Þjóðleikhúsinu og engin lög væru til um skyldur ríkisins gagnvart henni. „Ef það er afstaða meiri- hluta borgarstjórnar að borgin hafi engar skyldur gagnvart óperuflutn- ingi í borginni þá liggur það fyrir og ríkið mun ekki láta óperuflutning á íslandi leggjast af. En okkur finnst eðlilegt að höfuðborg lands- ins hafi skyldur umfram önnur sveitarfélög. Það er ekki okkar stefna að láta óperuflutning leggj- ast niður,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Lifum enn í voninni „Staðan er mjög flókin en við lifum ennþá í voninni," sagði Guð- mundur Eiríksson, formaður stjórn- ar íslensku óperunnar. Guðmundur sagði að lágmarksþörf opinberra styrkja til íslensku óperunnar væri 35 millj. kr. og væri þá gert ráð fyrir að framlag frá einkaaðilum og tekjur af rekstri næmu 45 millj. kr. Reksturinn miðast við 75-80 millj. kr. á ári. Hann sagði að frá degi til dags væri tekin ákvörðun um hvort hætta bæri að leggja í kostnað vegna undirbúnings óper- unnar Rigoletto sem ráðgert er að frumsýna annan í jólum. Guðmund- ur áréttaði að ekki væri ætlun for- svarsmanna óperunnar að leggja áherslu á þessa einu sýningu heldur að afstaða yrði tekin til framtíðar- starfsemi óperunnar í heild sinni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins má reikna með að um 23 millj. kr. renni til hins opinbera af starfsemi óperunnar í formi skatta, þannig að nettóstyrkur miðað við 35 millj. kr. framlag er um 12 millj. kr. á næsta ári og heildartekjur heimil- anna um 10-11%. í samræmi við það er áætlað að tekjuskattur hækki um svipað hlutfall, að helstu frádráttar- og afsláttarliðir svo sem persónuafsláttur, barnabætur og vaxtabætur hækki í- samræmi við laun. Skattvísitala fjárlagafrum- varpsins hækkar um 9,5% og allar fjárhæðir skattalaganna sem henni eru tengdar hækka því um það hlut- fall, nema skattfrelsismörk eignar- skatts sem hækka meira, eða um 12%, til samræmis við hækkun fast- eignamats á milli ára. í frumvarpinu er lagt til að breyt- ing verði gerð á gildistíma breyt- inga sem gerðar voru á skilgrein- ingu vaxtagjalda í lok síðasta árs og náði til ráðstafana sem fólk gerði allt árið. Nú er lagt til að breyting- in öðlist gildi ári seinna, það er um næstu áramót og taki því ekki til þeirra manna sem seldu íbúðarhús- næði á árinu 1989 og á því hvíldi lán sem kaupandi yfírtók með upp- söfnuðum áföllnum verðbótum né til þeirra sem á árinu 1989 greiddu uppsafnaðar áfallnar verðbætur á lán umfram ákvæði viðkomandi skuldabréfs. Þessi afturvirka skattalagabreyting var gagnrýnd mjög við álagningu skatta síðastlið- ið haust. Þó er talið óhjákvæmilegt að þeir sem telja sig eiga rétt á leiðréttingu sæki um hana til skatt- stjóra þar sem ekki liggi fyrir hveij- ir eigi hlut að máli. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram áð ákveðið hefur verið að fresta álagningu hátekjuskatts til að standa undir greiðslu húsa- leigubóta. Segir að komið hafí í ljós að verulegur skortur sé á áreiðan- legum upplýsingum um leigumark- aðinn og því erfítt að meta áhrif á hag leigjenda'og kostnað við húsa- leigubætur. Þess vegna hafi verið ákveðið að nota skattframtöl næsta árs til að afla upplýsinga um húsa- leigumarkaðinn. I frumvarpinu eru ekki gerðar tillögur .um breytingu á skattlagn- ingu fyrirtækja. Tekjuskattshlutfall félaga er því áfram 50%, en lækkar ekki í 45% eins og nefnd fjármála- ráðherra hafði lagt til, og frádrátt- arliðir haldast óbreyttir. í greinar- gerðinni segir að nauðsynlegt sé að vinna áfram að tillögugerð um þessi mál á næstu vikum, þar sem m.a. verði hugað að breytingum á ákvæðum um verðbreytingar- færslu. Þá er ekki gerð tillaga um niðurfellingu aðstöðugjalds til sveit- arfélaga eins og einnig hafði verið rætt í umræddri nefnd en viðræðum haldið áfram við fulltrúa sveitarfé- laganna með það að leiðarljósi að hrinda þeim hugmyndum í fram- kvæmd. Eldur í Viðey Slökkvilið Reykjavíkur var kvatt að togaranum Viðey í Reykjavíkur- höfná sunnudag. Þar hafði komið upp eldur í ljósavél og lagði frá mikinn reyk. Reykkafarar slökktu eldinn á skömmum tíma en einn þeirra hlaut 1. og 2. stigs brunasár í viðureign við eldinn, sem olli tals- verðum skemmdum í kompu á milli- dekki togarans. /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.