Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 Meulenberg Bókmenntir ErlendurJónsson MARTEINN MEULENBERG Hólabiskup. 159 bls. Þorlákssjóð- ur. Reykjavík, 1990. Til minningav um fyrsta biskup kaþólskra á Islandi eftir siðaskipti, stendur á titilsíðu. Hér er sem sagt ekki um samfellda biskupasögu að ræða, aðeins minningarrit. Safnað hefur verið saman greinum sem skrifaðar vom um Meulenberg bjsk- up, lífs og liðinn, eftir sundurleitan hóp höfunda. Sumt er tekið upp úr blöðum. Svo er t.d. um tvær grein- ar sem Jónas Jónsson skrifaði í Tímann 1940 og 1941. Þær heita Kaþólskur kirkjuhöfðingi og Landa- kotskirkja. Þó Jónak væri. sam- vinnumaður mat hann einstaklings- framtak. Flest skrif hans fjölluðu um menn, einkum afreksmenn á ýmsum sviðum. Söguhyggja var líka runnin honum í merg og bein. Þannig leitaðist hann einatt við að sjá fyrir sér hvernig sagan mundi dæma menn og málefni. Hann dáð- ist að Meulenberg vegna fram- kværhda þeirra sem hann stóð fyr- ir. Kaþólska kirkjan á Landakots- hæð þótti honum bera vitni um stór- hug og skörurigskap. Ekki höfðu þá risið veglegri hús í Reykjavík. Hafði þessi útlendingur ekki þar með skráð nafn sitt á spjöld íslands- sögunnar? Og ekki spillti að Guðjón Marteinn Meulenberg Samúelsson hafði teiknað. En verk Guðjóns voru Jónasi mjög að skapi. Vissulega var framtak Meulen- HLJÓMPLATA, KASSETTA OC CEISLADISKUR Björk Guðmundsdóttir ósamt Triói Guómundar Ingólfssenar flytja perlur úr safni islenskrar dægurtónlistar. Lögin hljóta nýtt iif i meóförum fjórmenninganna. Hér gefst mönnum tækifæri til aó upplifa ógleymanleg dægurlög meó einstökum listamönnum. Smekkleysa, pósthólf 710, 121 Reykjavík Gling \ - Björk Cuðmundsdóttir & tríó Gubmundar Jngól SMEKKLEYSA KYIUIUIR Gling-gló bergs því lofsamlegra að söfnuður kaþólskra í Reykjavík var þá enn næsta fámennur. Jónas var í eðli sínu rómantískur. Skrautið í kaþ: ólsku kirkjunum heillaði hann. í samanburði við þær væru mót- mælendakirkjurnar einungis »fund- arsalir«. Þá eru ekki síður merkilegar endurminningar þær sem séra Sig- urður Pálsson ritaði um Meulen- berg. Séra Sigurð langaði að kynn- ast kaþólskunni og leitaði til Meul- enbergs sem þá var ekki enn orðinn biskup. Séra Sigurður lofar ljúf- mennsku kaþólikkans og dóm- greind. Það var um þær mundir að hingað til lands kom Rossum kardínáli, einn af æðstu mönnum kaþólsku kirkjunnar. Séra Sigurður hafði þá nýlega eignast kirkjusögu Finns biskups sem prentuð var 1772, sannkallað fágæti. Trúað hafði hann Meulenberg fyrir þeirri heppni sinni. Meulenberg kvaddi nú dyra hjá séra Sigurði og var erindið »að fala þessar gersemar fyrir kardínálann sem var meira en lítið viðkvæmnismál því að ritverk þetta var þá talið með öllu ófáan- legt og væri það einhvers staðar til kostaði það of fjár«. Málalok urðu samt þau að kardírtálinn fór með kirkjusöguna og er hún von- andi vel geymd í bókasafni páfa- garðs. Meðal annars efnis er svo þarna viðtal sem Vilhjálmur S. Viihjálms- son átti við biskupinn, hugleiðing eftir Guðbrand Jónsson sem var kaþólskur heimsborgari og hafði víða farið, og minningabrot eftir Sigurveigu Guðmundsdóttur, en hún varð ung að leggjast inn á Landakotsspítalann vegna berkla- veiki. Aðhlynning sú, sem hún hlaut þar hjá systrunum og andblærinn í stofnuninni hafði þau áhrif að hún ákvað að nota tímann til að fræð- ast um kaþólskuna. Og dag einn var hvorki meira né minna en sjálf- ur biskupinn kominn inn á gólf til hennar, »maður lágvaxinn í svartri hempu með rauðum bryddingum og gullkross í festi á bringu. Á hægri hendi bar hann digran gull- hring með afarstórum ametyst- steini. Hann hafði rauða kollhúfu á höfði, gráskeggjaður en hafði sjá- anlega verið rauðbirkinn«, segir Sigurveig. Þokkalega glögg mann- lýsing eða hvað? Og reyndar meira en svo! Ekki þurfa kaþólskir hér að vera upp á aðra komnir í bókagerð því prentuð er bók þessi í prentsmiðju St. Franciskussystra í Stykkis- hólmi. Er ekkert nema gott um vinnu þeirra að segja. Hins vegar hefur tekist svo báglega til að efnis- yfirlit hefur hrapallega brenglast, vísar hvarvetna á skökk blaðsíðutöl svo miklu munar. Ástfangin upp fyrir haus Bækur Kjartan Árnason Ásdís Jenna Ástráðsdóttir: Ég hugsa eins og þið. Ljóð, 36 bls. Sóllilja 1990. Ásdís Jenna er óvenjulegt skáld. Hún er það vegna þess að sjónar- horn hennar er ekki venjubundið, hún horfir á lífið frá annarri hlið en flestir aðrir. Aftan á bók hennar segir: „Ásdís Jenna Ástráðsdóttir fæddist þann 10. janúar 1970. Hún fékk fyrirburagulu, sem olli heila- lömun. Hún hefur ekki stjórn á hreyfingum handa og fóta, en stjórnar rafmagnshjólastól og ritar á tölvu með því að styðja á takka með hökunni." Það þarf talsverðan kjark og þrautsegju til að yrkja við þær aðstæður sem Ásdís Jenna býr við, þegar hugurinn er svo langt á undan öllum hreyfingum, líkaminn virðist dragbítur á alla hugsun. Ásdís Jenna yrkir vitaskuld mikið um aðstæður sínar og hún gerir það beiskjulaust. Sorg hennar og ör- vænting er tær. Að sigra Stundum kemur örvæntingin til mín eins og refsinom og öskrar í eyru mín: Þú getur ekki gengið þú getur ekki notað hendur þínár Þegar sorgin sker hjarta mitt heyri ég hlýja rödd hvísla: Hugur þinn skynjar heiminn í sárustu sorg og dýpstu gleði. Og ég finn kærleika umvefja mig í nálægð vina minna eins og stjömur jóla sem lýsa sáttfúsum augum okkar. Og lífsgleði mín kemur á ný og sigrar. I bókinni eru einnig nokkur ljóð um vorið, sumarið og fugla himinsins, vini og ástvini allt skoðað úr rafmagnsstólnum hennar Ásdís- ar Jennu og gætt því sérstæða Ásdís Jenna Ástráðsdóttir skynbragði sem hún ber á um- hverfí sitt — skynjun sem virðist föjskvalaus einsog sorg hennar. Sumstaðar koma fram ofurlítil von- brigði og tregi yfir einangruninni: „Lítið barn/ horfir á mig./ Og ég veit/ að það hugsar/ af hveiju/ getur hún ekki/ gengið.“ Það er hægt að bregðast við fötl- un sinni á ótal vegu og láta hana hafa öll þau áhrif á líf sitt sem maður vill — til góðs eða ills. Ásdís Jenna velur þessa leið: Ég elska að lifa lífið er dásemd, andinn í okkur deyr aldrei hann lifir um eilífð. (Ást á lífinu) Einlægur tónn ljóðanna í þess- ari bók og ást höfúndarins á lífinu og mönnunum eru atriði sem gaman væri að sjá oftar í íslenskum ljóðum — einkum séu þau sett fram væmni- laust einsog hér. Fötlun er engin trygging fyrir því að menn læri að meta lífið. En þegar hún gerir það er ástin skilyrðislaus. Einsog þegar ástin greip Ásdísi Jennu í vor. Ástin er eins og fiðrildi sem flögrar á milli blóma. I vor kom fiðrildið til mín og ég flögraði á milli blóma ástfangin upp fyrir haus. HtotgtiitMaftift Metsölublað á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.