Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 16
í LJOSI VINNU- HERBERGIÐ Rafkaup ÁRMÚLA 24-SÍMAR 681518-681574 Cterkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiðill! MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 Pólitísk raunasaga __________Bækur________________ Björn Bjarnason EIN MEÐ ÖLLU, áfangaskýrsla frá áhorfanda. Höfundur: Ásgeir Hannes Eiríks- son. Útgefandi: Fróði hf., 1990. 231 blaðsíða með myndum. í bókinni Ein með öllu ræðir Ás- geir Hannes Eiríksson um upphaf Borgaraflokksins. Á fyrstu blað- síðunum svarar hann spumingu, sem vaknaði strax og flokkurinn var stofnaður, um það hvort tekið var að ræða stofnun flokksins á meðan enn var litið þannig á, að Albert Guðmundsson yrði í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík, þótt hann hætti ráðherrastörfum vegna ávirðinga í skattamálum. Ás- geir Hannes var á þessum tíma, í mars 1987, talinn einn helsti stuðn- ingsmaður Alberts og herstjóri í Hulduhemum eins og hann segir sjálfur. Lítum á atburðarásina eins og Ásgeir Hannes lýsir henni: Fimmtudaginn 19. mars 1987 (ekki 17. eins og segir í bókinni), viku áður en framboðsfrestur rennur út, skýrir Þorsteinn Pálsson frá því að hann muni krefjast þess að Al- bert segi strax af sér ráðherradómi. Albert er staddur í Kaupmannahöfn. Laugardaginn 21. mars (ekki 20. eins og segir í bókinni) hefur Alþýðu- blaðið eftir Ásgeiri Hannesi, að mikl- ar hringingar séu í gangi meðal stuðningsmanna Alberts og Helena Albertsdóttir sé á leiðinni heim og hulduherinn vígbúinn. Sunnudaginn 22. mars hittast þeir Þorsteinn og Albert, þar er rætt um að Albert hætti sem ráð- herra en Þorsteinn býðst ti) „að tryggja Albert áfram fyrsta sætið á listanum i Reykjavík", eins og Ás- geir Hannes orðar það. Þennan sama sunnudag efna stuðningsmenn Al- berts til fundar í Þórscafé og Ásgeir Hannes segir: „Því vitaskuld var byrjað að ræða sérstakt framboð Alberts Guðmundssonar á þessum tíma... Krafan var því sérstakt fram- boð. Það var engin spurning. Að vísu drógu nokkrir menn á eftir sér lappimar eins og alltaf þegar stór- ræði eru á næstu grösum." Mánudaginn 23. mars situr Ás- geir Hannes fund heima hjá Páli Líndal, núverandi ráðuneytisstjóra, og Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt, þar sem farið er yfir formsatriði sem þurfa að vera í lagi við framboð. Albert er ekki á þeim fundi en Jó- hann sonur hans. Segist Ásgeir Hannes áður hafa stungið upp á listabókstafnum S. Hringt er í Al- bert sem vill að framboðið heiti Borgaralistinn en Ásgeir Hannes stingur upp á Borgaraflokknum. Er hafist handa að safna meðmælend- um með bókstafnum S fyrir lista Borgaraflokksins. Þriðjudaginn 24. mars fer Hregg- viður Jónsson með umsóknina um listabókstafinn S í dómsmálaráðu- neytið. Þingflokkur sjálfstæðis- manna kemur saman og þar tekur enginn upp hanskann fyrir Albert. Lítur þingflokkurinn þannig á, að niðurstaða samtals þeirra Þorsteins og Alberts skuli standa. Ásgeir Hannes vinnur að því að Helena Albertsdóttir komi til landsins frá Bandaríkjunum til að stjórna kosn- ingabaráttunni, þvert ofan í vilja Alberts. Að kvöldi þessa dags eru þeir í sjónvarpsviðtölum; Þorsteinn Pálsson á Stöð 2 og Albert Guð- mundsson í ríkissjónvarpinu. Bæði voru þessi samtöl örlagarík. Ásgeir Hannes segir, að komið hafi fyllt mælinn, þegar Þorsteinn sagði að Albert yrði ekki ráðherraefni að kosningum loknum. Og bætir við: „Hafí forysta Sjálfstæðisflokksins lifað í voninni um að Albert byði ekki fram þá slokknaði nú sá vonar- neisti." Svo sem kunnugt er bauð Borg- araflokkurinn fram í öllum kjördæm- um, hlaut 16.531 atkvæði eða 10,8% og sjö þingmenn kjöma. Var það glæsilegur árangur. Eftir lestur bók- ar Ásgeirs Hannesar er ástæða til að efast um að ummæli Þorsteins um ráðherradóm að kosningum lokn- um hafi ráðið úrslitum um stofnun flokksins, þau voru hins vegar kjörin átylla til að gera það enn dramat- ískara, hve ill'a væri farið með Al- bert. Hvemig gat Þorsteinn Pálsson lýst yfir því á þessari stundu, að Álbert yrði ráðherra í nýrri ríkis- stjóm? Mörgum þótti nógu erfitt fyrir hann að skýra, hvers vegna Albert hætti sem ráðherra en hvarf ekki úr fyrsta sæti listans. Frásögn Ásgeirs Hannesar og hörmungasaga Borgaraflokksins staðfestir, að meginþorri þeirra sem gekk til liðs við flokkinn gerði það vegna persónulegrar afstöðu til Al- berts og til að veita Sjálfstæðis- flokknum ráðningu. Ásgeir Hannes gefur til kynna að Albert hafí viljað kenna framboð sitt við „lista“ en ekki „flokk“, af því að fyrir honum hafi alltaf vakað að komast aftur í skjól Sjálfstæðisflokksins. Þeir sem gengu til framboðs á listum Borg- araflokksins höfðu margir skipast í minnihluta innan Sjálfstæðisflokks- ins. Þama sáu þeir éinstakt tæki- færi. A blaðsíðu 100 segir: „Albert Guðmundsson kærði sig aldrei um stjórnmálaflokk þegar öllu var á botninn hvolft. Það var alltof mikið ómak og umstang, sem því fylgdi, og síðast en ekki síst of mik- il ábyrgð. Að vísu var notalegt að geta slegið um sig með sjö þingsæt- um á Alþingi eftir snöggsoðið fram- boð og eitt er víst að enginn núlif- andi stjómmálamaður er líklegur til að leika þann sigur eftir. Albert Guðrhundsson hafði hingað Ásgeir Hannes Eiríksson til unað sér vel í hlutverki einleikar- ans í pólitík. Hann svona drattaðist með Sjálfstæðisflokknum í helstu meginmálum en skákaði í skjólinu sem flokkurinn veitti. Hann kaus frekar að eyða tíma sínum í góðra vina hópi yfir kaffi á Hótel Borg en blanda geði við aðra forystusauði Sjallans [Sjálfstæðisflokksins]. Ég skil þessa tilfinningu mætavel því sjálfur er ég einfari af lífi og sál.“ Ásgeir Hannes segir að for- mennska í flokki hafi ekki átt við sólóistann Albert, hann hafi fyrst og fremst hugsað um eigin hag. Um viðhorf þeirra sem skipuðu sér í for- ystusveit með Albert segir höfundur á bls. 101: „Á sama hátt var það líka eigin- gimi hjá okkur hinum að taka þátt í framboðinu með karlinum. Freista þess að hirða molana sem hrukku af borðum framboðsins og hreppa þingsæti í þessu mikla umróti. Láta drauminn rætast og jafna stigin við Sjálfstæðisflokkinn en við höfðum sumir farið halloka í prófkjömm á þeim bæ. Við vomm sem betur fer bara mannlegir." Óþarft er að rekja hér raunir Borgaraflokksins. Albert hvarf svo sem kunnugt er til sendiherrastarfa í París. Hann var andvígur aðild flokksins að ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar og hefur lýst yfir stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn. Ingi Bjöm Albertsson og Hreggviður Jónsson gengu í þingflokk sjálfstæð- ismanna. Guðmundur Ágústsson, þingmaður flokksins í Reykjavík, hefur sagt að atkvæði sitt sé „ekki lengur“ til sölu fyrir ríkisstjómina. Júlíus Sólnes flokksformaður telur að Ásgeir Hannes hafi gerst of vinstrisinnaður þegar hann gekk til samstarfs við Nýjan vettvang í borg- arstjómarkosningunum. Með andláti Benedikts Bogasonar hvarf „hinn mikli hugmyndafræðingur í hópn- um“, svo að vitnað sé til Ásgeirs Hannesar, en hann tileinkar minn- ingu Benedikts bók sína. í bókinni em vandræði Borgara- flokksins rakin af hreinskilni og virð- ist ekkert undan dregið. Höfundur nafngreinir fjölda einstaklinga og dregur í dilka. Þegar hugað er að framboði á skjön við Sálfstæðis- flokkinn sýnist mér höfundur oftast staldra við nöfn þeirra Ellerts B. Schram ritstjóra og Guðmundar J. Guðmundssonar verkalýðsforingja. Hann tíundar einnig nöfn þeirra úr Sjálfstæðisflokknum sem stóðu að baki ríkisstjómar Gunnars Thor- oddsens á sínum tíma og lýsir þýð- ingarmiklu hlutverki sem hann taldi sig gegna til að bæta áróðursstöðu þeirrar stjómar í ijölmiðlum meðal annars með ritun lesendabréfa. Því miður er engin nafnaskrá í bókinni. Mér virðist tilgangUr Ásgeirs Hannesar með ritun þessarar bókar einkum sá að skýra, hvers vegna hann hafi komist upp á kant við samstarfsmenn sína í Borgara- flokknum. Ver höfundur miklu rúmi til að ræða um framboð Nýs vett- vangs og átök innan Borgaraflokks- ins um það. Um suma einstaklinga í Sjálfstæðisflokknum getur hann aldrei rætt án þess að hreyta í þá ónotum og hann talar einnig kulda- lega eða hæðnislega um flesta sam- starfsmenn sína í Borgaraflokknum, virðist hann helst eiga samleið með Óla Þ. Guðbjartssyni og Aðalheiði Bjamfreðsdóttur. Ásgeir Hannes er enginn áhorfandi að stjómmálum eins og hann vill vera láta með und- irtitli bókar sinnar heldur virkur þátttakandi, þótt oft sé hann í felum eða hafður þar eins og á framboðs- lista Nýs vettvangs. Krabbameinsfélag Austiir- lands ræður starfsmann KRABBAMEINSFÉLAG Austurlands hefur ráðið Þuríði Backman, hjúkrunarfræðing, til starfa. Mun hún annast fræðslu mn krabbamein og krabbameinsvamir og veita sjúkUngum og aðstandendum þeirra stuðning og ráðgjöf. Þuríður mun hafa aðstöðu á heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum. Krabbameinsfélag Austfjarða arfjarðar eystri. Frá næstu áramót- hafði frumkvæði að ráðningu starfs- um verður helmingur kostnaðar manns og nýtur til þess stuðnings greiddur af happdrætti Krabba- frá Krabbameinsfélagi Fljótsdals- meinsfélagsins. héraðs og Krabbameinsfélags Borg- TÓmSTUnDRHÚSIO HP Laugavegi 164, sími 21901 ÚRV/IM Bílar - Bátar - Brúður - Fjarstýrðir: Bílar, bátar og módel - Plastmódel - MekKanó - Proskaleikföng Barbie og Sindy brúður og brúðuhús - Fisher price og Playwell leikföng - Snjósleðar - Þotur - Úrval annarra leikfanga fyrir alla aldurshópa. Pú þarft ekki lengra en til okkar, í ævintýra- og leikfangaland Tómstundahússins. Plari*Hl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.