Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 87
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGÚR 18. DESEMBER 1990 ' ! -------:------------87
Rauðakrosshúsið fimm ára:
Um 260 börn og unglingar
hafa leitað til athvarfsins
FIMM ár voru liðin sl. föstudag frá opnun Rauðakrosshússins við Tjarn-
argötu og var velunnurum og samstarfsaðilum haldið boð af því til-
efni. Rauðakrosshúsið var opnað 14. desember 1985 og er megintil-
gangur starfsemi þess að koma til móts við þarfir barna og unglinga
í neyð og bjóða upp á aðstoð allan sólarhringinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjöldi samstarfsaðila og velunnara Rauðakrosshússins mætti í boð
sem haldið var síðastliðinn föstudag í tilefni af fimm ára afmæli
hússins.
Hurðaskell-
ir í Þjóð-
minjasafnið
HURÐASKELLIR kemur í heim-
sókn í Þjóðminjasafnið í dag.
Jólasveinarnir koma nú til
^yggða einn af öðrum og þeir
líta ævinlega við í Þjóðminjasafn-
inu klukkan 11 árdegis.
------HM--------
Yfirlýsing
frá Margréti
Róberts-
dóttur
LÍTIÐ virðist hafa breyst á 40
árum. Þau er sjálfum sér lík,
lyónin á Litla-Kollabæ.
Vegna yfirlýsingar þeirra Kjart-
ans Guðjónssonar og Ingu Sveins-
dóttur, fyrrum ábúendum á Litla-
Kollabæ í Fljótshlíð, varðandi bók
mína, Lífsstríð sem út kom fyrir
skemmstu sé ég mig knúna til að
taka fram eftirfarandi:
Ég er sannkristin kona og hef
aldrei lagt í vana minn að segja
ósatt, hvað þá að leggja öðrum í
munn orð eða hugsanir. Það vita
allir sem mér hafa kynnst. Vist
mín á Litla-Kollabæ um miðbik
aldarinnar var hins vegar með
þeim hætti og reyndi svo mjög á
heilsu mína og sálarþrek að ekki
varð hjá því komist að rifja hana
upp í ævisögu minni. Ég stend við
hvert orð sem þar er skrifað.
Með stefnu sinni á hendur mér
skýla hjónin á Litla-Kollabæ sér á
bak við minnisleysi eða ósannindi
— nema hvort tveggja sé.
Vera má að skortur hafi verið
á ýmsum veraldlegum gæðum á
Litla-Kollabæ, en skortur á hjarta-
hlýju og skilningi var þó mestur á
þeim bæ. Hjónin hafa gleymt því
þegar þau vísuðu mér hálfblindri
á dyr og gátu ekki lengur haft af
mér gagn.
Þau segjast alla tíð hafa haft
við mig gott samband. Ekki sá ég
þau við jarðarför mannsins míns
né minnist ég þess að hafa móttek-
ið frá þeim samúðarskeyti af því
tilefni. í sannleika sagt hef ég
aðeins séð Kjartan tvívegis og Ingu
aldrei eftir að ég hraktist úr vist
þeirra á Litla-Kollabæ.
Mér má í léttu rúmi liggja þó
Kjartan Guðjónsson og Inga
Sveinsdóttir hvetji fólk til að kaupa
ekki bók mína en ásakanir þeirra
í minn garð um að ég fari með
lygar og ósannindi eru alvarlegri
en svo að ég ætli að sitja undir
þeim þegjandi.
Guð veit hver fer með ósannindi
í þessu máli og ég treysti mínum
herra í dag sem endranær. Megi
hann einnig veita Kjartani og Ingu
styrk í erfiðleikum þeirra.
Margrét Róbertsdóttir,
Þorlákshöfn.
Má segja að boðið sé upp á þrenns
konar þjónustu í Rauðakrosshúsinu.
í fyrsta lagi er þar athvarf fyrir
börn og unglinga undir 18 ára aldri
sem vilja og þurfa aðstoð við að leysa
úr vanda sínum. Hafa rúmlega 260
einstaklingar dvalist í athvarfinu,
alls 540 sinnum, frá því að starfsemi
Rauðakrosshússins hófst. Er meðal-
aldur gesta 16,5 ár, kynjaskipting
nánast jöfn og meðal dvalartími um
10 nætur. í frétt frá Rauðakrosshús-
inu segir að sólahringsþjónustan
hafi tvímælalaust sannað gildi sitt
því 85% gesta leita til hússins utan
hefðbundins skrifstofutíma. Eru al-
gengustu orsakir dvalar samskipta-
örðugleikar við foreldra, vímuefna-
neysla gesta og/eða húsnæðisleysi.
í öðru lagi býður Rauðakrosshúsið
upp á símaþjónustu allan sólarhring-
inn fyrir börn og unglinga síðan
1987. Símtöl eru nú orðinn 5.500
þar af rúmlega 3.000 á þessu ári.
Er talsvert um að fullorðnir hringi
til að leita ráða varðandi börn sín.
I þriðja lagi býður Rauðakross-
húsið upp á ráðgjöf og hefur það
færst í aukana að börn, unglingar
og foreldrar leiti eftir viðtölum án
þess að gista. Hafa rúmlega 3.500
heimsóknir af þessu tagi verið skráð-
ar frá upphafi þar af rúmlega 1.800
á þessu ári.
Jókmskemmtim
W verður haldin á Hótel íslandi
CMM sunnudaginn 23. desember nk.
Húsið opnar kl. 14 en skemmtunin hefst kl. 15:00—17:30
Fjöldi skemmtikrafta, m.a.
• kK'*”9
.rfl
^ ..
.Br<*
.-«0’
t6**
Aðgöngumiðar seldir á Hótel íslandi frá 17.
desember milli kl. 16:00 og 18:00
UngUngaráó Vals
SMITH&
NORLAND
Nóstúni 4. 105 Reykjavik.
W
VERSBRtNunesKipn
SftMVINNUBANKANS
VI5A ISLANDWBm HMARK
989
fm ’M'HO/l
SIMI622424
0
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS
yERflBBÉfflwmsKipn
V/ SAMVINNUBANKANS
SUOURLANDSBRAUT 18 SIMI 688568
NÝBÝLAVEQ 14. S:A6G14
SRANDGATA 30. S:6S2377
Fiddi ber á bumbu
Ný barnabók eftir Þóri S. Guðbergsson félagsfræðing