Morgunblaðið - 18.12.1990, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
288. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Danmörk:
Schluter myndar
stjórn með Venstre
Þess hefur verið minnst undanfarna daga í Rúmeníu að ár er liðið frá byltingunni sem varð einræðisherran-
um Nicolae Ceausescu að falli. Hér þrífa konur legsteina í grafreit í borginni Timisoara þar sem hvíla
jarðneskar leifar þeirra sem féllu fyrir skotum öryggissveita 16. desember 1989.
Sjá „Ræða við stjórnarandstöðu ..“ á bls. 42.
Ihaldsflokknum og níu frá Venstre.
„Hún er byggð á afar veikum
grunni og eina keppikefli ráðherr-
anna er að sitja sem fastast," sagði
jafnaðarmaðurinn Finn Thorgrim-
son, leiðtogi danska alþýðusam-
bandsins, um nýju stjórnina. Ýmsir
stjórnmálaskýrendur létu í ljós efa-
semdir nm að stjórn með svo fáa
þingmenn að baki sér gæti orðið
kraftmikil eða langlíf en ekki varð
vart við nein viðbrögð á verðbréfa-
mörkuðum landsins í gær.
Kaiipmaimahöfn. Frá N.J. Bruun, frétlaritara Morgunblaðsins. Reuter.
POUL Schliiter, leiðtogi íhaldsfiokksins í Danmörku, myndaði í gær
nýja minnihlutastjórn með Venstre, flokki Uffe Ellemann-Jensens
utanríkisráðherra. Stjórnin hefur aðeins stuðning 61 þingmanns af
179 og verður því að treysta á aðstoð annarra flokka. Schliiter sagði
að lögð yrði áhersla á samvinnu við jafnaðarmenn, sigurvegara
kosninganna sl. miðvikudag.
Schlúter hefur verið forsætisráð-
herra nokkurra minnihlutastjórna
borgaraflokka frá 1982 en að þessu
sinni gekk flokkur Radikale venstre
úr skaftinu við stjórnarmyndun, að
sögn vegna ósigurs í kosningunum.
Flokkurinn tapaði þremur þingsæt-
um. íhaldsflokkur Schlúters tapaði
fimm þingsætum og hefur nú 30
þingmenn. Venstre bætti við sig sjö
' þingmönnum og hefur nú 29 þing-
menn. Einn þingmaður frá Færeyj-
um og einn frá Grænlandi munu
einnig styðja stjórnina þannig að
'hún hefur 61 þingmann á bak við
sig.
Þrátt fyrir mikla fylgisaukningu
jafnaðarmanna í kosningunum
héldu borgaraflokkarnir naumlega
meirihluta á þingi en aldrei hefur
verið rætt'í alvöru um samsteypu-
stjórn allra borgaraflokka. Tals-
menn Mið-Demókrata og Kristilega
þjóðarflokksins sögðu í gærmorgun
að þeir myndu ekki vinna gegn
stjórnarmyndun Schlúters.
Schlúter skýrði frá myndun nýju
stjórnarinnar í gær eftir að hann
hafði rætt við Margréti drottningu.
Hann sagði að Elhmann-Jensen
yrði áfram utanríkisráðherra og
ráðherraembætti yrðu 19, tveimur
færri en í síðustu stjórn. Að sögn
Schlúters verða tíu ráðherrar úr
*
I grafreit í Timisoara
Reuter
Fulltrúaþing Sovétríkjanna:
Gorbatsjov vill aukin völd
til að fást við myrkraöflin
Moskvu. Reuter.
MIKHAIL Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, fór fram á það
við fulltrúaþing Sovétríkjanna
sem saman kom í Moskvu í gær
að honum yrðu fengin aukin völd
í hendur svo takast mætti að
tryggja einingu Sovétríkjanna og
ráða niðurlögum myrkraaflanna
sem nú færu hamförum í landinu.
Gorbatsjov viðurkenndi einnig
að sljórnvöldum hefðu orðið á I
alvarleg mistök undanfarin finun
ár, eða síðan perestrojku var
hleypt af stokkunum. Ýmist
hefðu ákvarðanir dregist á lang- |
inn eða þeim verið hraðað um
of. En ekki mætti heldur gleyma
ávinningum umbótastefnunnar
sem fælust einkum í auknu lýð-
ræði.
Fulltrúaþingið hófst á nokkuð
óvæntan hátt þegar einn þing-
manna, Sazhi Umalatova, sakaði
Gorbatsjov um að auðmýkja Sov-
étríkin í augum heimsbyggðarinnar
með því að biðja um matvælaað-
stoð. Hún lagði til að vantrausts-
tillaga á forsetann yrði tekin á dag-
skrá en var því vísað frá með 1.288
atkvæðum gegn 426.
Gorbatsjov leggur ýmsar stjórn-
kerfisbreytingar fyrir þingið. Hann
vill að fulltrúar lýðveldanna fímmt-
án setjist í ríkisstjórn landsins sem
myndi líklega leiða til þess að ríkis-
stjórn Nikolajs Ryzhkovs forsætis-
ráðherra yrði að segja af sér. Stofn-
að verði svokallað Óryggisráð sem
fari með stjórn öryggismála og lög-
gæslu. Þar eigi sæti yfirmenn ör-
yggislögreglunnar KGB, innanrík-
is-, varnarmála-, og utanríkisráðu-
neytis. Ennfremur verði stofnaðar
tvær eftirlitsnefndir sem sjái um
að ákvörðunum forsetans verði
framfylgt.
Loks vill Gorbatsjov að sam-
þykktur verði nýr sáttmáli um ríkja-
sambandið. Slíkur sáttmáli verði
borinn undir atkvæði í hveiju lýð-
veldanna fyrir sig. Sjálfstæðis-
hreyfingar í Eystrasaltsríkjunum
hafa verið á móti slíkum hugmynd-
um meðal annars vegna þess að þar
býr mikill fjöldi Rússa sem flust
hefur þangað undanfarna áratugi
og getur t.d. í Lettlandi ráðið úrslit-
um í slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Enginn fulltrúi Litháens var á þing-
inu í gær og sögðust þingmenn frá
Eistlandi og Lettlandi einungis ætla
að hlýða á ræðu Gorbatsjovs áður
en þeir færu heim.
De Maiziere segir af sér:
Dulnefnið benti til
tónlistarkunriáttu
Segist aldrei hafa unnið fyrir Stasi
Bonn. Reuter.
LOTHAR de Maiziere sagði í gær af sér embætti ráðherra án
ráðuneytis í þýsku ríkisstjórninni vegna ásakana um að hann
hefði í átta ár verið uppljóstrari fyrir austur-þýsku öryggislög-
regluna Stasi. De Maiziere sem var forsætisráðherra Austur-
Þýskalands fyrir sameiningu Þýskalands lætur einnig af varafor-
mennsku í Kristilega demókrataflokknum, stærsta stjórnmála-
flokki landsins.
De Maiziere sagðist vera sak-
laus og hann myndi halda þing-
sæti sínu og vinna áfram að þvf
að hreinsa mannorð sitt. Hins
vegar hefði rannsókn sem hann
bað um á skjölum Stasi ekki nægt
til að afsanna sakargiftirnar og
því léti hann af störfum. „Ég vil
hvorki íþyngja ríkisstjórninni né
flokknum með þessari óljósu
stöðu,“ sagði de Maiziere á frétta-
mannafundi. Hann er hæst setti
stjórnmálamaðurinn úr austur-
hluta Þýskalands sem orðið hefur
að segja af sér vegna meintra
tengsla við Stasi. Búist hafði ver-
ið við því að hann tæki við emb-
ætti dómsmálaráðherra í nýrri
ríkisstjórn sem líklega verður
mynduð á næstu vikum.
Wolfgang Scháuble, innanríkis-
ráðherra Þýskalands, sagði í gær
að rannsóknin á Stasi-skjölunum
hefði leitt í ljós að maður sem
gekk undir dulnefninu „Czerny"
hefði unnið fyrir Stasi frá árinu
1981 og hann gæti hafa verið
áhrifamaður innan lútersku kirkj-
unnar. De Maiziere starfaði mikið
fyrir kirkjuna og veitti henni lög-
fræðilega aðstoð. Þýsku vikuritin
Der Spiegel og Stern héldu því
fram í síðustu viku að dulnefnið
sem virðist sótt til austurríska
slaghörpuleikarans og tónskálds-
ins Carls Czernys vísaði veginn
til de Maizieres sem lagt hefur
stund á lágfiðluleik. Einnig sagði
Der Spiegel að í Stasi-skjölunum
kæmi fram að „Czerny“ hefði
Hús Lothars de Maizieres við
Treptower Park númer 31 í.Berlín.
Þar bjó Stasi-uppl|óstrarinn „Czerny“
sainkvæint upplýsingum Der Spiegel.
Fyrrum yfirmaður uppljóstrarans
segir einnig að „Czerny“ og de Maizi-
ere séu einn og sami maðurinn.
búið í Treptower Park 31 en það
var einmitt heimilisfang de Maizi-
eres.
I útgáfu sinni frá því í gær
beinir Der Spiegel hins vegar sjón-
um innávið og rannsakar á fjórtán
blaðsíðum réttmæti ásakana sem
fram komu fyrir nokkrum dögum
um að helsti sérfræðingur blaðs-
ins í varnar- og öryggismálum,
Diethelm Schröder, hefði unnið
fyrir Stasi. Niðurstaða blaðsins
er ekki einlilít og þar segir reynd-
ar að sífellt erfiðara verði að gera
sér grein fyrir hvort um réttar
ásakanir sé að ræða í málum sem
þessum eða ófrægingarherferð.